Síða 3 af 3

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Sun 12. Apr 2015 11:26
af braudrist
Eru allir að gleyma Sony Xperia Z4? Ég er svo sáttur með minn Z2 að ég fæ mér pottþétt Z4.

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Fim 14. Maí 2015 10:50
af Morgankane
Samsung S6 lítur mjög vel út en mér finnst hann of dýr. Ég er eiginlega búinn að setja budgedið hjá mér í 100 K þannig að valið hefur staðið milli Moto X og Sony Xperia Z3.

Hefur einhver reynslu af Z3? Hann kemur með KitKat en það er búið að gefa út Lollopop update á hann en ég las kvartanir frá fólki sem segja að batterý endingin minnki við þetta. Batterýið og myndavélin væru ástæðurnar fyrir því að velja hann og ef raflhöðuendingin er orðin lakari þá veit ég ekki alveg með hann. Hefur einhver reynslu af Z3?

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Fim 14. Maí 2015 11:26
af mercury
ef thu ert ekki til i 100thus + tha mæli eg med ad thu skodir htc m8. Held hann se til hja emobi

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Fim 14. Maí 2015 19:24
af Morgankane
Jú hef aðeins litið á hann. Er myndavélin ekki eithvað tæp á M8?
Hvernig er reynslan af emobi hjá fólki ?

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Fös 15. Maí 2015 06:26
af mercury
verslaði htc one m7 hjá emobi og var það ekkert mál. Hef ekki heyrt neinar hryllingssögur af þeim enþá og hafa þau verið starfandi núna í einhver ár.
Það var talað um sama myndavélaflopp á m7 og fannst mig það ekki eiga við þessar normal myndir sem ég var að taka. Myndir í skólanum, djamminu, famelíunni og þessháttar.
https://www.youtube.com/watch?v=pwsPZi_JRrA

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Sun 31. Maí 2015 20:33
af Morgankane
Ennþá er ég að skoða þetta. Ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að fjárfesta í síma er einfaldlega valkvíði.

Gott að vita að engar hryllingssögur hafa heyrst af emobi.

Langaði lengi vel að fá mér sony xperia z3 en svo hef ég lesið að glerið rispist mjög auðveldlega.

Er eiginlega dottinn inn á galaxy s6(32gb). Hann er ódýrastur hjá Elko (ásamt emobi). Er einhver ástæða fyrir því að kaupa hann ekki í elko? Er ekki bara meiri álagning hjá símanum og vodafone? og er einhver ástæða fyrir því að kaupa ekki ?

Svo að lokum vil ég bara þakka fyrir góð ráð:)

Re: Flaggskipin: Hverju mælið þið með?

Sent: Sun 31. Maí 2015 20:56
af SvavarBerg
Ég á Samsung galaxy S6 edge 64 gb og átti HTC One m8. Ég mæli hiklaust með Samsung símanum. Það eina sem ég sakna samt frá HTC er dual front facing speakers. Maður áttar sig ekki á því hvað það er þægilegt.