Mitt notendanafn kemur frá Mad Max 2: RoadWarrior http://www.imdb.com/title/tt0082694/?ref_=tt_rec_tti" onclick="window.open(this.href);return false;
Búinn að nota það töluvert lengi, ég er atvinnubílstjóri og því fannst mér þetta passa bara helv vel við, alltaf útá vegi að berjast við umferðina
Er að nota það töluvert víða og reyni að velja það ef nokkur kostur er á spjallsíðum hingað og þangað um heimnn
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mán 01. Sep 2014 21:45
af beatmaster
Um síðustu aldamót þegar að ég var virkur í að tromma kallaði ég mig stundum Beatmaster-E til heiðurs Beatmaster-V trommara Body Count hljómsveitarinnar sem Ice-T gerði garðinn frægann með, ég var svo búinn að stytta það í Beatmaster þegar að ég fór að vera virkur á vefnum og vildi svo fyrir einhverjum árum alltaf skrifa það sem beatmaster með litlu b og lét meira að segja breyta því hérna.
Nota beatmaster í allt sem er ekki vinnutengt á netinu og ef að það er ekki laust þá á ég alter-egóið beatmztr, það er alltaf laust og inniheldur z sem að er greinilega mjög vinsælt
Edit: ég er greinilega reglubrjótur því að hér er Beatmztr, ég hef greinilega ekki verið kominn í litla béið sumarið 2005
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mán 01. Sep 2014 22:58
af tanketom
tanketom er danskt orð yfir "empty headed" vantaði eitthvað frumlegt nick sem enginn annar gæti nokkurn tímann dottið í hug að nota... Komst svo að því að það er til vefsíða sem heitir tanketom.com
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:48
af rapport
Ég virðist eiga mér þemalag..
joppi joppi jopp...
Re: Why you picked your nick?
Sent: Þri 02. Sep 2014 01:52
af KanDoo
Var ca. 11 ára þegar ég var að labba í nettó og sá þessa frábæru vöru, hef kallað mig þetta í leikjum/forums síðan
Re: Why you picked your nick?
Sent: Þri 02. Sep 2014 02:05
af Minuz1
1sta online nickið mitt, um það bil árið 2000 þegar ég var að spila MS allegience.
Mínus vann músíktilraunir og það var í blöðunum, ákvað samt að hafa Z og 1 þar sem ég vildi getað notað nickið nánast alstaðar...so far so good.
Re: Why you picked your nick?
Sent: Þri 02. Sep 2014 12:17
af Bioeight
Bioeight er bara furðuleg leið til að skrifa BIO8 sem þýðir klessa og kemur frá nickinu mínu í ActionQuake sem var OfurKlessa þar sem ég gerði lítið annað en að stökkva fram af húsþökum og verða að klessu.
Þurfti að hugsa mikið af því að ég vildi ekki koma undir mínu gamla irc nicki hérna.
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 10:50
af Halli25
Var með e-mail'ið 25@fsu.is bætti svo við Gælunafninu mínu og voila halli25
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 11:20
af Nitruz
Í gamla daga fannst mér Bad Company vera the shiznit, nitrous kemur fram í einu laginu þeirra.
Bad Company - Son of Nitrous
Svo einns og hefur komið fram hér þá er Z svo zvalt hehe.
Siðar hef ég stundum þurft að bæta við 69 eftir að menn fóru að stela nickinu.
69 útaf því að ég er krabbi og líka þessi fína stelling
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 13:28
af kizi86
Bioeight skrifaði:Bioeight er bara furðuleg leið til að skrifa BIO8 sem þýðir klessa og kemur frá nickinu mínu í ActionQuake sem var OfurKlessa þar sem ég gerði lítið annað en að stökkva fram af húsþökum og verða að klessu. Þurfti að hugsa mikið af því að ég vildi ekki koma undir mínu gamla irc nicki hérna.
héstu kanski himmler eða goebbels eða H1tl3r ?
en að öllu djóki slepptu, af hverju vildirðu ekki hafa irc nafnið lengur? og hvað var þitt gamla irc nick?
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 15:15
af rapport
kizi86 skrifaði:
Bioeight skrifaði:Bioeight er bara furðuleg leið til að skrifa BIO8 sem þýðir klessa og kemur frá nickinu mínu í ActionQuake sem var OfurKlessa þar sem ég gerði lítið annað en að stökkva fram af húsþökum og verða að klessu. Þurfti að hugsa mikið af því að ég vildi ekki koma undir mínu gamla irc nicki hérna.
héstu kanski himmler eða goebbels eða H1tl3r ?
en að öllu djóki slepptu, af hverju vildirðu ekki hafa irc nafnið lengur? og hvað var þitt gamla irc nick?
Örugglega eitthvað huggulegt eins og Reparlana... sem nota bene ég spilaði með í c.a. tvö ár án þess að fatta að eitthvað dúvíus væri við nickið...
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 16:23
af KrissiP
Gælunafn og fyrsti stafur í föðurnafni
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 17:50
af tdog
Fyrsti stafurinn í nafninu mínu ... og svo er ég algjör hundur!
Re: Why you picked your nick?
Sent: Mið 03. Sep 2014 22:38
af Stuffz
hef verið að panta allskonar tölvu/tækja Stuff á ebay í gegnum tíðina, og svo dl stuffi svo valdi Stuffz, samt var med Floppy áður en það var bannað eftir að ég var spurður hvort ég notaði sama nick annarsstaðar lol
Re: Why you picked your nick?
Sent: Fim 04. Sep 2014 00:19
af HalistaX
Daz skrifaði:
Og svo eru öll nöfn með "Z" í svöl, það vita allir.
Mér finnst X samt flottara skooo....
Re: Why you picked your nick?
Sent: Fim 04. Sep 2014 01:18
af worghal
HalistaX skrifaði:
Daz skrifaði:
Og svo eru öll nöfn með "Z" í svöl, það vita allir.
Mér finnst X samt flottara skooo....
svona eins og xXx.w4e2e0d.xXx ? xD
Re: Why you picked your nick?
Sent: Fim 04. Sep 2014 01:30
af HalistaX
worghal skrifaði:
HalistaX skrifaði:
Daz skrifaði:
Og svo eru öll nöfn með "Z" í svöl, það vita allir.
Mér finnst X samt flottara skooo....
svona eins og xXx.w4e2e0d.xXx ? xD
Akkúrat!
Re: Why you picked your nick?
Sent: Lau 06. Sep 2014 23:22
af intenz
Valdi það þegar ég var að byrja í netheimum, u.þ.b. árið ~97. Var upprunalega intenzity, fletti bara upp einhverju kúl orði í orðabók. Stytti það svo í intenz
Re: Why you picked your nick?
Sent: Sun 07. Sep 2014 02:11
af hundur
Var eitt sinn í sumarbústaðaferð þar sem upphófst mikið rifrildi þar sem ég taldi mig hafa á fullkomlega réttu að standa.
Sagði því: "Ég skal hundur heita ef þetta er ekki rétt hjá mér".
Þetta atriði var svo alls ekki rétt hjá mér og ég varð að taka afleiðingunum af því.
Re: Why you picked your nick?
Sent: Sun 07. Sep 2014 02:45
af Kindineinar
Heiti Einar og er kind.
Re: Why you picked your nick?
Sent: Sun 07. Sep 2014 13:04
af rapport
Kindineinar skrifaði:Heiti Einar og er kind.
Þú átt líka þemalag/lög...
Re: Why you picked your nick?
Sent: Sun 07. Sep 2014 18:14
af tveirmetrar
Var alltaf með Nöpper, Nopper eða Nöpperinn, man ekkert hvernig það kom til. Fannst það svo lélegt eitthvað að ég skipti í tveirmetrar þegar ég mældist tveir metrar á hæð í körfuboltanum um 15-16 ára. Bara nokkuð sáttur með það síðan, hef allavega aldrei lennt á því að einhver annar er að nota það
Re: Why you picked your nick?
Sent: Sun 07. Sep 2014 22:17
af vesley
Ég einfaldlega hef ekki hugmynd hvernig mér datt í hug að nota nickið "Vesley"
Re: Why you picked your nick?
Sent: Fim 11. Sep 2014 17:56
af Bioeight
kizi86 skrifaði:héstu kanski himmler eða goebbels eða H1tl3r ?
en að öllu djóki slepptu, af hverju vildirðu ekki hafa irc nafnið lengur? og hvað var þitt gamla irc nick?
Var bara að fela mig og finnst fínt að fela mig ennþá svo ég ætla ekki að deila gamla nickinu núna.
Nickið var þó ekkert slæmt þannig séð, allaveganna ekkert tengt nasistum.
Re: Why you picked your nick?
Sent: Fim 11. Sep 2014 22:12
af lifeformes
Var að deita stelpu ´95-´96 sem hlustaði mikið á F.S.O.L. og plata með þeim heitir lifeformes, hlusta enn á þetta í dag, svona öðru hvoru.