Síða 3 af 3

Re: Smurning á bíl

Sent: Sun 24. Ágú 2014 04:51
af MatroX
jonsig skrifaði:Kostaði mig tæpan 3k að smyrja yaris , (3.2L oía) með smursíu. Ódýrasta olían fæst hjá kemi.is frá Irvin.

Og samkvæmt consumerreports (eru ekki full of shit) virkar bilun að smyrja nýja bíla á 5þús fresti .http://www.xs11.com/xs11-info/xs11-info ... -1996.html" onclick="window.open(this.href);return false;
enda algjör drasl olía, þegar þetta stendur í lýsinguni Olían er ætluð á besnín bíla.


Ég er búinn að vinna á verkstæði sem er búið að vera smyrja bíla í 6+ ár, Ódýrt og góð olía á ekki heima í sömu settningu,


t.d með skoda ef þú ert á skoda sem er með staðalinn 504 00 / 507 00 þá er smurning dýr, oftast í krinum 20þús þótt það sé enginn loftsía eða miðstöðvar sía með eða neitt,

að segja að aftermarket síur séu veri en OEM er þvæla þar sem aftermarket fyrirtækin framleiða ofast OEM síuna, t,d mann framleiðir orginal síur í BMW, AUDI, SKODA,VW, HYUNDAI og marga fleirri,

Mjög margir segja t.d að Nipparts sé glataðir en það er bara ekki rétt, varahlutirnir hja þeim kannski ekkert þeir bestu en þeir hafa framleitt orginal síurnar í TOYOTA, LEXUS, HONDA og marga fleirri japanska bíla

FRAM framleiðir t.d oem síur í HONDA, PEUGEOT og marga fleirri bíla,

þetta virkar þannig að framleiðendurnir leita eftir ódýrasta tilboðinu sem fer eftir OE standards,

Re: Smurning á bíl

Sent: Sun 24. Ágú 2014 11:10
af jonsig
þessi olía uppfyllir alveg næga staðla ! Eitthvað annað og meira eru bara Voodoo vísindi eða marketing scam. Þurfi ég einhverja betri olíu þá er það vegna þess að ég er kominn á
500hp bíl .

MAX1 performs above the standard requirements of the American Petroleum Institute’s (API) highest performance level SN, as well as the latest ILSAC GF-5 requirements for warranty of the latest models by all domestic automobile manufacturers.

Ef einhver segir að þetta sé ekki nóg fyrir yaris , þá er hinn sami full of crap (frá mobil1 auglýsingastofunni :) )

Re: Smurning á bíl

Sent: Mán 01. Sep 2014 02:38
af Danni V8
Það fer samt allt eftir árgerðinni á bílnum í rauninni. Ef þetta er gamall Yaris þá skiptir það engu máli.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mán 01. Sep 2014 03:36
af jonsig
Held að þessi olía geri nákvæmlega sama og olía 4x dýrari munurinn á sliti væri örugglega mældur í nanó eða píkó. Þessir olíuframleiðendur eru búnir að fylla alla af bullshit, til að græða meira. Og ég hugsa að hver rökhyggjandi maður sjái í hendi sér að þessar fáránlegu yfirlýsingar á mótorolíubrúsum eru tóm tjara .

Ég ætla hinsvegar að kaupa mér OEM olíufilter næst , er ekki að treysta alveg nógu vel filter sem heitir koshimo og finnst ekkert um á netinu XD

http://mysite.verizon.net/vzep121w/rons ... /id44.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Smurning á bíl

Sent: Mán 01. Sep 2014 09:55
af Danni V8
Það skiptir engu máli hvað þú heldur. Það er ástæða fyrir því að olían er ódýrari. Það er alveg hægt að setja inn fullt af fancy stöðlum sem olían uppfyllir en ef þetta eru úreltir staðlar þá skiptir það engu máli. Nýjustu bílarnir t.d. sem eru ðarticle filter í pustinu þurfa að fá olíu sem upfyllir staðal sem heitir C5 og olíur sem uppfylla þennan staðal eru dýrar.

Ef að þú heldur virkilega að olía sem kostar innan við þúsund krónur lítrinn sé eitthvað góð olía þá ert þú ekki hluti af þessum rökhyggjandi mönnum sem þú minnist á. En á gömlum bíl á þetta örugglega eftir að endast bílinn samt. Þarf bara að skipta oftar.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mán 01. Sep 2014 10:11
af oskar9
ég átti gamlan AUDI með 2.8L V6 vél, ekinn 250 þús, sem brenndi smá olíu, ég smurði hann einusinni, fór og keypti einhverja ódýra olíu, keypti svo orginal filter, bílinn át í gegnum þessa olíu og þegar það var kalt úti og bílinn búinn að standa óhreyfður í kannski 1-2 daga þá kom eitthvað hundleiðinlegt hljóð þegar maður setti hann í gang í svona 1-2 sek eins og einhverskonar bank eða hringl.
ég tók þessa olíu af honum, fékk nýjan filter og lét hreina gömlu olíuna af vélinni, setti svo á hann Mobil 1 ESP Formula 5W-30, aukahljóðið við kaldræsingu hvarf og hann brenndi svona 70% minna en með hinni olíunni.

Síðan hef ég haft það fyrir sið að kaupa olíur sem bílaframleiðandin segir mér að kaupa, sumum finnst það heimskulegt en á meðan mínir þýsku bílar ganga eins og klukkur þá sé ég enga ástæðu til að "spara" mér einhvern pening og skimpa á almennilegu smuri

Re: Smurning á bíl

Sent: Mán 01. Sep 2014 10:58
af jonsig
Danni V8 skrifaði:Það skiptir engu máli hvað þú heldur. Það er ástæða fyrir því að olían er ódýrari. Það er alveg hægt að setja inn fullt af fancy stöðlum sem olían uppfyllir en ef þetta eru úreltir staðlar þá skiptir það engu máli. Nýjustu bílarnir t.d. sem eru ðarticle filter í pustinu þurfa að fá olíu sem upfyllir staðal sem heitir C5 og olíur sem uppfylla þennan staðal eru dýrar.

Ef að þú heldur virkilega að olía sem kostar innan við þúsund krónur lítrinn sé eitthvað góð olía þá ert þú ekki hluti af þessum rökhyggjandi mönnum sem þú minnist á. En á gömlum bíl á þetta örugglega eftir að endast bílinn samt. Þarf bara að skipta oftar.
Nei það skiptir engu hvað ég held ,þessi C5 staðall mun gera legurnar í bílnum þínum ódauðlegar, og það mun muna 300þús km á endingu vélar þinnar en á öðrum sambærilegum bíl í sambærilegum akstri með "crappy" olíu . Nei veistu þetta líkist trúarbrögðum hjá ykkur og þetta er eins og að segja heilaþveginni Herbalife manneskju að herbalife er að koma út eins og allt hitt draslið . Ég vitnaði allavegana í raunverulega rannsókn af virkilega pro náungum, ekki eitthvað drasl sem er sponsað af framleiðanda .

Og ps , ég er ekki á 500hp twin turbo yaris

SN grade olía og ILSAC GF-5 er drullu fínt, sérstaklega þegar þetta er undir 1000kr líter. Googlið þessa staðla .

Re: Smurning á bíl

Sent: Þri 14. Okt 2014 16:18
af Arnarmar96
kostar mig 0 krónur að gera þetta! :'D geri þetta sjálfur og fæ að nota síur og olíurnar uppí vinnu :)

Re: Smurning á bíl

Sent: Þri 14. Okt 2014 16:46
af Frantic
Arnarmar96 skrifaði:kostar mig 0 krónur að gera þetta! :'D geri þetta sjálfur og fæ að nota síur og olíurnar uppí vinnu :)
Takk fyrir upplýsingarnar...

Re: Smurning á bíl

Sent: Þri 14. Okt 2014 21:48
af jonsig
+1

Re: Smurning á bíl

Sent: Þri 24. Feb 2015 20:32
af GuðjónR
Ég er að velta einu fyrir mér, Bílson er viðurkennt WV og Skoda smur og verkstæði, m.a. geta sinnt þjónustuskoðunum þeir nota olíu sem heitir Carlube.
KvikkFix notar hins vegar olíu sem heitir Eurol.
Einhver er nú verðmunurinn en er Carlube eitthvað betri?
Ef ég skoða lýsingu yfir þessar olíur þá get ég ekki betur séð en þær séu með sömu vottanir bílaframleiðenda.

Re: Smurning á bíl

Sent: Fim 26. Feb 2015 22:49
af Arnarmar96
Djöfulsins dick var ég.. en þarna ég borgaði síðast 20þ ca í keflavík (smurstöðin bakvið olís) skipt um allar síur nema eldsneytis og sett prolong á allt draslið, nema drifin og kassann, enginn þörf að skipta um. og þetta er á 2.5td 94' pajero, finnst þetta ekki dýrt reyndar.

Re: Smurning á bíl

Sent: Fim 26. Feb 2015 23:25
af jonsig
GuðjónR skrifaði:Ég er að velta einu fyrir mér, Bílson er viðurkennt WV og Skoda smur og verkstæði, m.a. geta sinnt þjónustuskoðunum þeir nota olíu sem heitir Carlube.
KvikkFix notar hins vegar olíu sem heitir Eurol.
Einhver er nú verðmunurinn en er Carlube eitthvað betri?
Ef ég skoða lýsingu yfir þessar olíur þá get ég ekki betur séð en þær séu með sömu vottanir bílaframleiðenda.
Sömu staðlar . Eina sem mun segja þér hvor olían er betri er auglýsingadeild fyrirtækjanna. Ég á ekki orð yfir þessari voodoo science vitleysu í kringum þetta þegar við erum að ræða venjulega fólksbíla.

Re: Smurning á bíl

Sent: Fös 27. Feb 2015 00:26
af GuðjónR
jonsig skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég er að velta einu fyrir mér, Bílson er viðurkennt WV og Skoda smur og verkstæði, m.a. geta sinnt þjónustuskoðunum þeir nota olíu sem heitir Carlube.
KvikkFix notar hins vegar olíu sem heitir Eurol.
Einhver er nú verðmunurinn en er Carlube eitthvað betri?
Ef ég skoða lýsingu yfir þessar olíur þá get ég ekki betur séð en þær séu með sömu vottanir bílaframleiðenda.
Sömu staðlar . Eina sem mun segja þér hvor olían er betri er auglýsingadeild fyrirtækjanna. Ég á ekki orð yfir þessari voodoo science vitleysu í kringum þetta þegar við erum að ræða venjulega fólksbíla.
Einmitt, ekki eins og við séum að tala um háþrýstar formúlu 1 vélar, staðalinn er; VW 507 00 og google segir mér að það sé 5W-30 og líterinn af henni er á 2.210 hjá Bílson. Á eftir að tékka annarsstaðar. Olíusían hjá þeim er á 2.806.- hráolíusía 9.226, loftsían á 5.344 og frjókornasían á 4.440. Ekkert gefið upp hvaða vörumerki er verið að tala um, þ.e. á reikningi.

Re: Smurning á bíl

Sent: Fös 27. Feb 2015 02:27
af Minuz1
Glazier skrifaði:
MatroX skrifaði:
Glazier skrifaði:
Labtec skrifaði:Svo að borga meira fyrir sama siu nema buið merkja hana með bilaframleiðanda er lika ekki eitthvað sem eg myndi telja að flokkast undir "betra"
Þetta, minn kæri.... er bara ekki rétt.

Það er mjög algengt að aftermarket síur (það sem þú kallar sama og original) morkni og ef fólk gleymir sér ööörlítið og fer með bílinn aðeins of seint í smurningu eiga aftermarket síur það til að bókstaflega molna niður.

Aftermarket sía kostar ~1.500 til 2.000 kr. og ORGINAL BMW sía kostar um 3.500 kr. þetta er EKKI peningur sem maður á að spara enda villtu ekki að sían molni niður, ef hún molnar niður þá endar hún inni í mótornum.
Gott dæmi er t.d. þessi bíll: http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1" onclick="window.open(this.href);return false;
Glæný vél í honum eins og stendur í auglýsingunni, akkurat vegna þess að það var notuð aftermarket olíusía í hann.


Einnig vil ég fá að vita hvað þessi 20.000 króna reikningur innihélt..
Skal samþykkja að hann sé hár ef þetta er bara olía + vinna en ef þetta inniheldur olíu (mögulega langtíma), olíusíu, loftsíu og jafnvel rúðuþurrkur og/eða ljósaperur þá er þetta ekki endilega svo galið
og helduru að bmw framleiði sínar eigin síur? orginal síur morkna líka ef þú smyrð bílinn ekki á réttum tíma,

það er ekkert að því að nota aftermarket síur í bílana sína sama hvað þú segir þar sem að ef mótorinn virkilega fer útaf því að sían morknaði og allt stenst í smurbók etc þá á hann að fá mótorinn bættan,
Það eru bara of mörg dæmi um það að aftermarket sía morkni og endi inni í mótornum, of lítill peningur til að taka áhættuna, original síur eru lang oftast betri, alveg eins og original varahlutir.
Þú virðist vera haldin af slæmri BMW blindu.
Fullt af aftermarket dóti til fyrir flest farartæki sem eru miklu betri en OEM.
Auðvitað ef þú ferð í budget deildina, þá færðu yfirleitt það sem þú borgar fyrir.

Re: Smurning á bíl

Sent: Mið 04. Mar 2015 22:53
af jonsig
Já , þegar hann vísar í þennan link minnir mig á kaþólsku kirkjuna þegar þeir hafa tekið dæmi um dreng sem hafði blindast eftir sjálfsfróun .

trúarvitleysa dæmigerð .