Síða 3 af 15

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 13:56
af playman
Sallarólegur skrifaði:
hfwf skrifaði:Svíjar, norðmenn og danir held ég líka, eru bara með fast verð. Næ ekki þessari afsökun að segja að þetta sé gert í evrópu.
Þetta er mjög svipað í Norður Kóeru
Eru þeir með Internetið þar?

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 13:59
af playman
GuðjónR skrifaði:
playman skrifaði:Hversu stöðugir eru hringdu?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
Búnir að vear mjög stöðugir í marga mánuði núna, er með VDSL hjá þeim og alltaf með topphraða.
Gagnaveitan mun leggja ljósleiðara inn til mín í sumar og þá mun ég vera með ljósið hjá þeim en þjónustuna hjá Hringdu.
Já ætli maður prófi ekki að hafa samband við þá.
En svo er spurning ef að fullt af liði er að fara frá símanum og slatti færi yfir til hringdu, myndi þá ekki allt fara í hakk hjá þeim
eða eru þeir með nógu góðan búnað til að taka við þeim hugsanlega hóp?

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 14:15
af GuðjónR
playman skrifaði:

Það er hætta á því, nema þeir bregðist hratt við og kaupi sér aukna bandvídd.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 14:16
af crowberriewinemaker
Það er margt sem að er að í þessu tilliti.

Tökum þetta einfalt A og B

A sendir traffík til B. A og B borga skv. skilmálum Símans.

Segjum að A sé vefsíða, segjum filma.is, og B sé allir notendur Filma.is.

Núna þarf Filma.is að borga aukalega fyrir allt gm sem fer frá þeim og notendur þurfa líka að borga aukalega fyrir það sem fer til þeirra.

Mig grunar að þetta hafi ekki verið skoðað nógu vel. Sjálfum þykir mér ekkert að því þannig séð að borga fyrir allt niður. Notkun er notkun og það skiptir ekki máli hvernig hún er. En þetta er rukkun beggja vegna og því er þetta óhugnalegt.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 14:27
af Jón Ragnar
crowberriewinemaker skrifaði:Það er margt sem að er að í þessu tilliti.

Tökum þetta einfalt A og B

A sendir traffík til B. A og B borga skv. skilmálum Símans.

Segjum að A sé vefsíða, segjum filma.is, og B sé allir notendur Filma.is.

Núna þarf Filma.is að borga aukalega fyrir allt gm sem fer frá þeim og notendur þurfa líka að borga aukalega fyrir það sem fer til þeirra.

Mig grunar að þetta hafi ekki verið skoðað nógu vel. Sjálfum þykir mér ekkert að því þannig séð að borga fyrir allt niður. Notkun er notkun og það skiptir ekki máli hvernig hún er. En þetta er rukkun beggja vegna og því er þetta óhugnalegt.
Filma.is er alveg örugglega EKKI með heimatengingu frá Símanum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 14:31
af crowberriewinemaker
Nitpikking, ég er bara að taka dæmi.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 14:47
af Tbot
Ég borga fast gjald á mánuði til gagnaveitunnar fyrir að fá að nota ljósleiðarann hjá þeim og endabúnað.
Síðan er fastagjald til netveitu sem er ætlað að dekka erlent niðurhal, skrifstofuhald og tæknibúnað.

Eru síminn og Vodafock að borga gjald eftir mælingu til Mílu eða gagnveitunnar?

Þetta lyktar af nýju tekjumódeli, vantar að auka hagnaðinn.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 15:04
af GuðjónR
Tbot skrifaði:Þetta lyktar af nýju tekjumódeli, vantar að auka hagnaðinn.
Ekkert annað.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 15:16
af crowberriewinemaker
Þ.a. það er hægt að valda kostnaði með DDOS árás eða bara með því að pinga e-n.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 15:38
af AntiTrust
Það er ekki bara traffíkin um línurnar sem slíkar sem telur, þið eruð algjörlega að gleyma öllu backbone-inu á bakvið traffíkina. Þar erum við að tala um svissa, routera og netbúnað sem hleypur á tugmilljónum sem ISParnir reka yfirleitt sjálfir.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 15:39
af worghal
Thetta er bara al-bandariskt model sem eru ad taka stort skref afturabak til steinaldar. Enda allt komid i fokk thar i netmalum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:03
af sfannar
Því miður er samkeppnin hér á Íslandi þannig að þegar eitt fyrirtæki tekur upp verri viðskiptahætti fyrir neytendur þá er yfirleitt stutt í að hin geri hið sama.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:22
af HringduEgill
playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
playman skrifaði:Hversu stöðugir eru hringdu?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
Búnir að vear mjög stöðugir í marga mánuði núna, er með VDSL hjá þeim og alltaf með topphraða.
Gagnaveitan mun leggja ljósleiðara inn til mín í sumar og þá mun ég vera með ljósið hjá þeim en þjónustuna hjá Hringdu.
Já ætli maður prófi ekki að hafa samband við þá.
En svo er spurning ef að fullt af liði er að fara frá símanum og slatti færi yfir til hringdu, myndi þá ekki allt fara í hakk hjá þeim
eða eru þeir með nógu góðan búnað til að taka við þeim hugsanlega hóp?
Eins og staðan er í dag hefur Hringdu aldrei verið jafn betur í stakk búið að taka á móti nýjum viðskiptavinum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:24
af GuðjónR
sfannar skrifaði:Því miður er samkeppnin hér á Íslandi þannig að þegar eitt fyrirtæki tekur upp verri viðskiptahætti fyrir neytendur þá er yfirleitt stutt í að hin geri hið sama.
Það lítur út fyrir það:
http://www.visir.is/likur-a-ad-fleiri-f ... 4140609696" onclick="window.open(this.href);return false;

Enda er ég alveg klár á því að Síminn hefði aldrei farið út í svona grófar breytingar án þess að tryggja fyrst að missa ekki alla kúnanna yfir til "samkeppnis" aðilann. Þess vegna er bufferinn frá tilkynningunni til framkvæmda þrír mánuðir og innan þess tímaramma mun Vodafone tilkynna að þeir muni gera nákvæmlega það sama og Síminn, af því að það er svo sanngjarnt fyrir neytendur.

Þetta er jú allt gert af eintómri góðmennsku við viðskiptavini þeirra. :face

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:26
af ponzer
HringduEgill skrifaði:
playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
playman skrifaði:Hversu stöðugir eru hringdu?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
Búnir að vear mjög stöðugir í marga mánuði núna, er með VDSL hjá þeim og alltaf með topphraða.
Gagnaveitan mun leggja ljósleiðara inn til mín í sumar og þá mun ég vera með ljósið hjá þeim en þjónustuna hjá Hringdu.
Já ætli maður prófi ekki að hafa samband við þá.
En svo er spurning ef að fullt af liði er að fara frá símanum og slatti færi yfir til hringdu, myndi þá ekki allt fara í hakk hjá þeim
eða eru þeir með nógu góðan búnað til að taka við þeim hugsanlega hóp?
Eins og staðan er í dag hefur Hringdu aldrei verið jafn betur í stakk búið að taka á móti nýjum viðskiptavinum.
Eintengdir við RIX með 1Gbps ? :happy

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:37
af rapport
Hvaða áhrif haldið þiðað þetta hafi á samfélagið?

Gæti þetta aukið muninn milli ríkra og fátækra?

Ég sé fyrir mér fullt af foreldrum fara banna börnunum að nota leikina á umferðastofu, horfa á barnefnið á RÚV o.s.frv. til að spara pening.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:44
af ponzer
rapport skrifaði:Hvaða áhrif haldið þiðað þetta hafi á samfélagið?

Gæti þetta aukið muninn milli ríkra og fátækra?

Ég sé fyrir mér fullt af foreldrum fara banna börnunum að nota leikina á umferðastofu, horfa á barnefnið á RÚV o.s.frv. til að spara pening.
Þetta gefur alls ekki góð skilaboð þarna út! T.d bara það að þurfa að útskýra fyrir afa sínum að horfa á fréttatíma inn á RÚV.is sé að fara tikka af gagnamagninu hans finnst mér alveg út í hött. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum sem sýnir hversu rangt þetta er hjá þeim!

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 16:48
af depill
ponzer skrifaði: Þetta gefur alls ekki góð skilaboð þarna út! T.d bara það að þurfa að útskýra fyrir afa sínum að horfa á fréttatíma inn á RÚV.is sé að fara tikka af gagnamagninu hans finnst mér alveg út í hött. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum sem sýnir hversu rangt þetta er hjá þeim!
Hmm gefur þetta ekki soldið bara frítt færi á Símann. Grunnáskrift kostar 3.990 kr hjá Símanum ( 15 gb innifalin ) , ef við leggjum ekki routera gjaldið á þetta og leggjum það til samans við leigu á 3G/4G pung + 1990 kr í línugjöld = 5980 kr vs 3.990 kr hjá NOVA fyrir sömuþjónustu ( ein þráðlaus sem hann getur tekið með sér og þarf ekki aukatæki ef hann er með iPad ).

Mér finnst einhvern megin Síminn gefa smá færi á réttlætingunni á fastlínunni með þessu.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:01
af Tiger
Er búinn að vera að velta þessu svolítið fyrir mér í dag. Er þetta svo slæmt? Vitið þið hvað þið downloadið/uploadið miklu total á mánuði? Deildu.is er horbjóðsléleg torrent síða þannig að ég geti sótt núna hundruðu GB erlendis frá finnst mér bara kostur.

Fyrir mitt leyti held ég að þetta breyti engu, nema til góðs fyrir mig. Samt er ég með backup af ljósmyndum ofl sem fara í upload en held samt að ég nái aldrei 600GB í mánuði. En það á bara eftir að koma reynsla á það, ef þetta er útí hött þá kemur það fljótt í ljós.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:10
af DoRi-
Ég veit að ég var búinn ad UL 93GB kl um 1215

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:13
af Fletch
Var ekki alltaf talað um að ástæðan fyrir rukkun á erlendu gagnamagni væri að við værum á lítilli eyju útí atlantshafi og þessi traffík væri svo dýr?

Það á varla við innlenda traffík..............

Og eru þeir ekki bara að reyna minnka streaming milli notanda? Bæði Voda og Síminn eiga sjónvarpsstöðvar sem þeir eru að selja aðgang að....

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:20
af GuðjónR
Fletch skrifaði:Var ekki alltaf talað um að ástæðan fyrir rukkun á erlendu gagnamagni væri að við værum á lítilli eyju útí atlantshafi og þessi traffík væri svo dýr?

Það á varla við innlenda traffík..............

Og eru þeir ekki bara að reyna minnka streaming milli notanda? Bæði Voda og Síminn eiga sjónvarpsstöðvar sem þeir eru að selja aðgang að....
Á sama tíma er gagnaveitan að bjóða uppá ljósleiðar og sífellt betri hraða með auknu gagnaflæði, á meðan heldur Síminn áfram að byggja upp úrelt ljósnetkerfi.
Þetta minnir á smásöluhjólið sem maður lærir í markaðsfræði, þetta opnar leið fyrir nýja á markaðinn eða þá minni að stækka og blómstra.
Held að þetta sé það vitlausasta útspil sem ég hef séð á öldinni hjá íslensku fyrirtæki og er af nægu að taka.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:21
af sfannar
Tiger skrifaði:Er búinn að vera að velta þessu svolítið fyrir mér í dag. Er þetta svo slæmt? Vitið þið hvað þið downloadið/uploadið miklu total á mánuði? Deildu.is er horbjóðsléleg torrent síða þannig að ég geti sótt núna hundruðu GB erlendis frá finnst mér bara kostur.

Fyrir mitt leyti held ég að þetta breyti engu, nema til góðs fyrir mig. Samt er ég með backup af ljósmyndum ofl sem fara í upload en held samt að ég nái aldrei 600GB í mánuði. En það á bara eftir að koma reynsla á það, ef þetta er útí hött þá kemur það fljótt í ljós.
Veit ekki hvað ég er að uploada miklu á mánuði en eitt erlent torrent er komið í 163GB upload á 6 dögum.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:32
af Revenant
Hafið það í huga að þetta hefur að öllum "aðeins" áhrif á 1-5% af notendagrunni Símans. Þessi pakkastækkun "dekkar" innanlandstraffíkina.

Eins og hefur komið hefur fram áður þá er backbone búnaður mjög dýr (sérstaklega ef hann er redundant).
Með tilkomu t.d. Deildu, HideMyAss o.fl þá hefur traffíkin innanlands margfaldast en tekjurnar (þ.e. fyrir sölu á gagnamagni) að öllum líkindum staðið í stað.
Ef þú þarft að uppfæra netbúnað til að geta þjónustað meiri innanlandstraffík en færð engar tekjur á móti þá er það frekar óréttlátt.

Pointið er nefnilega: Það er ekkert til sem heitir frítt download! Ef traffíkin er ókeypis þá er einhver annar að niðurgreiða hana.

Re: Síminn telur allt gagnamagn

Sent: Þri 03. Jún 2014 17:37
af GuðjónR
Revenant skrifaði:Hafið það í huga að þetta hefur að öllum "aðeins" áhrif á 1-5% af notendagrunni Símans. Þessi pakkastækkun "dekkar" innanlandstraffíkina.

Eins og hefur komið hefur fram áður þá er backbone búnaður mjög dýr (sérstaklega ef hann er redundant).
Með tilkomu t.d. Deildu, HideMyAss o.fl þá hefur traffíkin innanlands margfaldast en tekjurnar (þ.e. fyrir sölu á gagnamagni) að öllum líkindum staðið í stað.
Ef þú þarft að uppfæra netbúnað til að geta þjónustað meiri innanlandstraffík en færð engar tekjur á móti þá er það frekar óréttlátt.

Pointið er nefnilega: Það er ekkert til sem heitir frítt download! Ef traffíkin er ókeypis þá er einhver annar að niðurgreiða hana.
Já og hvað með það?
Þegar ég borga 120.000 á ári fyrir internet þá hlýt ég að vera að borga fyrir aðgang að þessu backbóni sem virðist vera eitthvað tískuorð núna er það ekki?