Síða 3 af 3

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 12:34
af leaderfish
Vil frekar meina að þetta sé söfnunarárátta, hljómar mun betur.

kv. fíkill.

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 12:48
af SergioMyth
HalistaX skrifaði:Var einmitt að klára að downloada öllu Desperate Housewives....because i can!
Á líklega eftir að horfa á fyrstu tvo þættina og eyða því svo.

Þetta er algjör fíkn. Ég þarf alltaf að hafa eitthvað í gangi í µTorrent, annars er ég ómögulegur.
Annars sæki ég svona 200-300 gb í mánuði, allt af deildu síðunni. Búinn að sækja pretty much allt það sem ég hef áhuga á að horfa á/spila og er byrjaður að sækja dót bara til að sækja það, eins og Despós t.d.
Despó all the way!

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 16:55
af kubbur
1 sem fólk virðist ekki átta sig á, á íslandi eru gagnaver, ekki eru þau að borga stórkosnað fyrir aðgang að sæstrengjunum

nú er verið að stækka ákveðið ver á íslandi, stækkunin nemur eins og 24 gámum af tölvubúnaði, ekki borga þeir hlutfallslega jafn mikið og venjulegur notandi, ekki séns á að það væru gagnaver á íslandi ef það væri málið

internet leiðirnar á íslandi eru allt of fokking dýrar...

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:07
af dori
Það er sjálfsagt að það sé reynt að bjóða þeim samkeppnishæf verð. En það á hins vegar ekki að niðurgreiða þá þjónustu með því að skella öllu á neytendur (eins og þetta virðist gera). Svo mjög að það virðist vera hægt að græða á því að áframselja þessa bandvídd eins og er gert þarna með Lokun/HMA.

Það hlýtur að vera hægt að finna aðrar leiðir til að selja það að það sé góð hugmynd að hýsa hluti á Íslandi (stöðugt frekar lágt hitastig yfir árið, "hreint rafmagn", redundancy, "frelsi" a la IMMI og örugglega fullt af öðru sem þú gætir látið þér detta í hug með því að hugsa um þetta í lengri tíma en mínútu). Það að vera með ódýra eða góða tengingu við umheiminn mun aldrei vera einn af þessum punktum þannig að það að láta eins og það sé tilfellið er frekar heimskulegt.

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:34
af Revenant
dori skrifaði:Það er sjálfsagt að það sé reynt að bjóða þeim samkeppnishæf verð. En það á hins vegar ekki að niðurgreiða þá þjónustu með því að skella öllu á neytendur (eins og þetta virðist gera). Svo mjög að það virðist vera hægt að græða á því að áframselja þessa bandvídd eins og er gert þarna með Lokun/HMA.

Það hlýtur að vera hægt að finna aðrar leiðir til að selja það að það sé góð hugmynd að hýsa hluti á Íslandi (stöðugt frekar lágt hitastig yfir árið, "hreint rafmagn", redundancy, "frelsi" a la IMMI og örugglega fullt af öðru sem þú gætir látið þér detta í hug með því að hugsa um þetta í lengri tíma en mínútu). Það að vera með ódýra eða góða tengingu við umheiminn mun aldrei vera einn af þessum punktum þannig að það að láta eins og það sé tilfellið er frekar heimskulegt.
Einn stærsti hluti kostnaðar við rekstur gagnavera er rafmagnskostnaður. Sem dæmi ef þú tekur gagnaver með 8 rekkaraðir x 16 rekka / röð x 42 serverar í rekka x 200W per server þá er raforkunotkunin 1,0752MW (einföldun).
Ef mikið er að gera í gagnaverinu þá getur þetta aukist upp í 2-3MW. Þessi tala inniheldur ekki kostnað við að kæla þennan búnað.

Þetta er pjúra rafmagnskostnaður en síðan er auðvitað overhead 5-20% sem fer í UPS-a.

Þar að auki þá dettur engum í hug að upload-a nokkur hundruð terabætum yfir farice/danice til gagnavers á íslandi. Svoleiðis aðilar fylla frekar kassa af diskum/tape-um og senda með hraðflutningi.

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:35
af Jón Ragnar
Er ekki Verne líka meira eins og reiknifarm?

Ekkert magn af traffík á milli þannig séð

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Mið 08. Jan 2014 17:40
af depill
kubbur skrifaði:1 sem fólk virðist ekki átta sig á, á íslandi eru gagnaver, ekki eru þau að borga stórkosnað fyrir aðgang að sæstrengjunum

nú er verið að stækka ákveðið ver á íslandi, stækkunin nemur eins og 24 gámum af tölvubúnaði, ekki borga þeir hlutfallslega jafn mikið og venjulegur notandi, ekki séns á að það væru gagnaver á íslandi ef það væri málið

internet leiðirnar á íslandi eru allt of fokking dýrar...
Eins og hefur komið fram mjög oft á þessu forumi. Borga gagnaverin u.þ.b. 1/10 af því sem ISParnir borga til Farice. Í krafti þess geta Lokun og HMA gert það sem þau er að gera.

Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?

Sent: Fim 09. Jan 2014 20:15
af pattzi
Ég downloada 150-200gb a man biomyndir adalega og kaupi blu-ray til ad eiga a ordid slatta af blue ray myndum