Síða 3 af 4

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fim 14. Nóv 2013 22:48
af appel
JReykdal skrifaði:Síminn búinn að opna fyrir appið.... og auðvitað virkar það ekki :)
Hvað er ekki að virka?


En jú, Sjónvarp Símans er komið út fyrir "snjalltækin", android + ios.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fim 14. Nóv 2013 23:28
af depill
Virkar hjá mér ( iPad 4 Retina ) verð að segja mjög flott. VoDið alveg til fyrirmyndar, ótrúlega margt sem ég saknaði frá OZ appinu sem er þarna og ef þetta verður innifalið í myndlykla áskriftinni held ég að þeir eigi lítinn séns.

Eina gagnrýnin hjá mér er að mér finnst viðmótið með sjónvarpið soldið "þarf að explaina fyrir mér" ( sem sagt ekki obvious og auðvelt ) og finnst óþægilegt að komast aftur í live strauminn. Tímaflakkið virkar samt flott ( nær samt heldur stutt til baka hjá mér allavega ). Augljóslega vantar töluvert af Sjónvarpsstöðvum en giska að það sé í vinnslu.

Stöð 2 Sport er svo fáranlega óskýr hjá mér. Hinar eru skárri.

P.S Djöfull langar mig að vita hvort þetta Stjörnubíó verður eithvað alvöru SVOD eða ekki.

Edit: Hvaða sjónvarpstöðvar eiga að birtast ? Sé á screenshotum að það eigi að vera Stöð 3, en hún t.d. kemur ekki hjá mér.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fim 14. Nóv 2013 23:37
af appel
Viðmótið með sjónvarpið þarf að leysa fjóra hluti:
1) sýna þér stöðvaframboð og á að vera auðvelt að skipta um stöð
2) sýna þér þann dagskrárlið sem er verið að spila núna
3) fá frekari dagskrárupplýsingar
4) spila fyrri dagskrárliði (tímaflakk)
Það er ekki auðvelt að koma þessu öllu fyrir í einföldu viðmóti, en ég held að það hafi tekist þokkalega.

Þetta er augljóslega fyrsta útgáfa, og við erum áfram að vinna á fullu í þessu, að bæta efnisframboð, stöðugleika, gæði og viðmót.

Ég get voða lítið annað sagt.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 00:11
af eriksnaer
Er að nota þetta á S4, algjör snilld.... Get ekki beðið eftir að það komi fleiri stöðvar inn. Flott viðmót í VOD og öllu bara yfir höfuð :happy

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 01:09
af Moldvarpan
Hvaða pin er þetta þetta sem þarf að stimpla inn til að aflæsa?

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 01:10
af appel
Moldvarpan skrifaði:Hvaða pin er þetta þetta sem þarf að stimpla inn til að aflæsa?
Sjálfgefið er held ég 1234.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 01:18
af Moldvarpan
Mikið rétt.
En verður ekki bætt við fleiri rásum fljótlega?

Mjög flott app annars

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 10:52
af depill
Já ég ætla bara að commenta eftir að hafa notað smá. Þetta er mjög flott app, maður er búinn að vera sýna þetta í vinnunni þetta er það flott og fólk virðist fá "mini"-boner sérstaklega fólk sem er með börn út af VoD möguleikanum.

SkjárKrakkar ekkert smá flott útfært. Þetta er eiginlega bara eins og OZ hefði átt að vera.

En væri til í að vita með sjónvarpsstöðvarnar, þar sem að screenshotin sýna fleirri sjónvarpsstöðvar en ég sé ( en er samt með áskrift af þeim )

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 10:58
af appel
Það eru 10 stöðvar núna, en þeim verður fjölgað.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 11:02
af biturk
virkaði mjög flott í s2 hjá mér í gærkveldi, loksins gat ég legið uppí rúmi og horft á sjónvarpið án þess að konan brjálist eftir að hún sofnar :happy


kveðja, ánægður viðskiptavinur símans!

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 11:41
af appel
Takk fyrir góð viðbrögð.

Nokkur einföld navigation-trikk:
- með því að ýta á síma-logoið upp í hægra horni þá ferðu á heim síðuna.
- long-press á fyrri síðu í breadcrumbs uppi fer með þig á heim síðuna.
- long-press á mynd í flokk (t.d. á Djúpið í "Nýjar myndir" undir skjábíó) þá ferðu beint inn í myndina en ekki inn í flokkinn "Nýjar myndir"


Ég nota appið mest í að horfa á frelsi.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 11:56
af depill
appel skrifaði:Takk fyrir góð viðbrögð.

Nokkur einföld navigation-trikk:
- með því að ýta á síma-logoið upp í hægra horni þá ferðu á heim síðuna.
- long-press á fyrri síðu í breadcrumbs uppi fer með þig á heim síðuna.
- long-press á mynd í flokk (t.d. á Djúpið í "Nýjar myndir" undir skjábíó) þá ferðu beint inn í myndina en ekki inn í flokkinn "Nýjar myndir"


Ég nota appið mest í að horfa á frelsi.
Ekki það að ég þurfi það strax, en datt þetta í hug þegar ég var í vinnunni og ja jafnvel langaði að setja þetta á eitt tækið hérna. Er einhvern megin hægt að deauthoriza ( / logga út ) tæki, sem sagt svipta því teningunni við Sjónvarp Símans ?

Já þetta er algjör snilld til að horfa á Frelsi. Þið voruð að gera tvo tækni"troubled" foreldra mína mjög ánægða. Þau hafa notað Netflix mikið í iPadunum sínum en eru mjög ánægð með þetta.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 11:58
af appel
depill skrifaði:
appel skrifaði:Takk fyrir góð viðbrögð.

Nokkur einföld navigation-trikk:
- með því að ýta á síma-logoið upp í hægra horni þá ferðu á heim síðuna.
- long-press á fyrri síðu í breadcrumbs uppi fer með þig á heim síðuna.
- long-press á mynd í flokk (t.d. á Djúpið í "Nýjar myndir" undir skjábíó) þá ferðu beint inn í myndina en ekki inn í flokkinn "Nýjar myndir"


Ég nota appið mest í að horfa á frelsi.
Ekki það að ég þurfi það strax, en datt þetta í hug þegar ég var í vinnunni og ja jafnvel langaði að setja þetta á eitt tækið hérna. Er einhvern megin hægt að deauthoriza ( / logga út ) tæki, sem sagt svipta því teningunni við Sjónvarp Símans ?

Já þetta er algjör snilld til að horfa á Frelsi. Þið voruð að gera tvo tækni"troubled" foreldra mína mjög ánægða. Þau hafa notað Netflix mikið í iPadunum sínum en eru mjög ánægð með þetta.
Við bætum við "afskrá tæki" í tækinu sjálfu bráðum. Þangað til er hægt að afskrá tækið í myndlyklinum, á sama stað og þú fékkst skráningarnúmerið.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 15:10
af Daz
Svolítið östöðugt (maður þarf stundum að velja 2x því það kemur einhverskonar tengingarvilla) en virkar mjög flott, svona með 5 mínútna testi í ANDROID síma.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 16:20
af appel
Daz skrifaði:Svolítið östöðugt (maður þarf stundum að velja 2x því það kemur einhverskonar tengingarvilla) en virkar mjög flott, svona með 5 mínútna testi í ANDROID síma.
Persónulega finnst mér allt fúnkera best í iOS, iPad/iPhone. Verst að ekki er hægt að panta efni sem kostar á iOS appi.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 16:45
af svensven
Virkar mjög smooth, so far, í Galaxy S3 hjá mér :happy

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 18:51
af Moldvarpan
Hef engar villur fundið á mínum síma, S3 Mini.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 19:06
af sakaxxx
ég get ekki tengst eftir að ég skrifa inn kóðann þá loadar þetta endalaust. Sama vandamál á ipad!

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 20:18
af appel
sakaxxx skrifaði:ég get ekki tengst eftir að ég skrifa inn kóðann þá loadar þetta endalaust. Sama vandamál á ipad!
Komið í lag, smá hnökrar með skráningar :)

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Fös 15. Nóv 2013 20:27
af sakaxxx
appel skrifaði:
sakaxxx skrifaði:ég get ekki tengst eftir að ég skrifa inn kóðann þá loadar þetta endalaust. Sama vandamál á ipad!
Komið í lag, smá hnökrar með skráningar :)
þetta virkar núna! þetta er argandi snilld!!

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Þri 19. Nóv 2013 22:51
af appel
Áts...

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Þri 19. Nóv 2013 22:56
af Tiger
Er hægt að horfa á þetta í iPad ef maður er erlendis? (með erlenda ip tölu að sjálfsögðu)

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Þri 19. Nóv 2013 22:59
af appel
Tiger skrifaði:Er hægt að horfa á þetta í iPad ef maður er erlendis? (með erlenda ip tölu að sjálfsögðu)
Nope.

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Þri 19. Nóv 2013 23:03
af AntiTrust
Væri rosalega þægilegt að geta valið aspect ratio (zoom/auto/16:9/4.3 etc..).

Re: Sjónvarp Símans í snjalltækin

Sent: Þri 19. Nóv 2013 23:07
af Daz
Ef það væri nú hægt að velja efnið í appinu og spila það í gegnum afruglarann...