Síða 3 af 3

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 14:38
af dave57
Þetta féll nú ekki í kramið á mínu heimili.
Sumt var smá fyndið, en almennt frekar rýrt og alltof gróft fyrir yngri kynslóðina.
Horfði á þetta með 4 og 6 ára dætrum mínumm sem sögðu mjög oft "að þetta væri nú ekki fallegt að segja''.
Fannst þetta líka vera alltof mikil pólitísk ádeila, ekki nóg af léttara gríni og svo var lokaatriðið miklu slakara en síðustu ár.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 14:49
af darkppl
ég sofnaði yfri því ... fannst það ekkert spes og fannst svoldið mikið blót miða við að það eru krakka að horfa á þetta.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 15:52
af appel
Þetta með kommentakerfi DV.is var ... jújú doldið góður sketch... en átti frekar heima á youtube eða álíka. Einhverjir skildu þetta ekki hjá mér og ég þurfti að útskýra hvað var þarna í gangi. Svo var þetta nú bara ekki við hæfi krakka.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 23:55
af Swooper
Mér fannst þetta frábært skaup, með þeim betri síðustu ár. Það var hlegið hátt að því í minni fjölskyldu.

Nauðgunardjókin voru auðvitað ljót, en þau voru engu að síður mjög sterk ádeila sem beindist gegn nauðgurum og samfélagslegu "samþykki" á nauðgunum. Þetta var ekki "haha, nauðgun er fyndin" þetta var "haha ojj, það er til fólk sem finnst nauðganir í lagi".

RÚV skotin voru frábær og áttu fullan rétt á sér, alls enginn innanhúshúmor. Mágur minn sagði meira að segja eitthvað á þá leið að þetta hefði verið svo beitt að ef Edda Sif skilar ekki inn uppsögn á næstu dögum yrði hann mjög hissa.

Kommentakerfisdæmið var gott, en ég skil reyndar að fólki með börn finnist það hafa farið yfir strikið. Það voru að vísu þrjú 2-6 ára börn á svæðinu hjá okkur en þau höfðu engan veginn athyglina á sjónvarpinu (þökk sé strategískt staðsettri snakkkörfu þar sem þau stóðu á beit, en það er annað mál...). Líka óþarflega mikil endurtekning, allt í lagi að hafa running gag en þetta var bara sami brandarinn þrisvar.

Það eina sem fór virkilega í taugarnar á mér var síendurtekna Gangnam Style dæmið - flott, alltílagi að taka þetta lag, en það hefði mátt vera styttri partur af því, og algjör óþarfi að endurtaka það í gegnum allt Skaupið.

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 00:52
af dori
Swooper skrifaði:RÚV skotin voru frábær og áttu fullan rétt á sér, alls enginn innanhúshúmor. Mágur minn sagði meira að segja eitthvað á þá leið að þetta hefði verið svo beitt að ef Edda Sif skilar ekki inn uppsögn á næstu dögum yrði hann mjög hissa.
Hún var samt ráðin fyrir 2 árum eða eitthvað. Þessi umræða um að hún hefði verið ráðin útaf því að hún er dóttir föður síns fór fram á þeim tíma og hefði þannig mátt eiga heima í skaupi síðasta árs. Það eina sem kom eitthvað fram í fréttum um hana var í janúar á síðasta ári þegar þetta líkamsárásarmál (ég man ekki, eitthvað vesen með verðlaunahátíð íþróttafréttamanna og Hjört sem btw. gerðist 2011 rétt fyrir áramót) og það er ekki eitthvað sem mér finnst að eigi að gera grín að.

En það versta við þetta skaup var að það var ekkert fyndið. Fullt af hlutum sem gerðust og voru í fréttum á árinu sem voru virkilega fyndnir og hefði ekki verið hægt að klúðra en í staðin ákvað einhver að taka þessi leiðinlegu íslensku stjórnmál og gera mjög misheppnað (á flestan hátt) grín af þeim.

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 01:04
af Frantic
Ömurlegt skaup.
Fáránlegt þegar fólk heldur því fram að fólki sem finnst þetta hafa verið lélegt skaup sé ekki að fylgjast með fréttum.
Ég skildi alltaf tilvísunina en þetta var einfaldlega ekki fyndið.

Ætlaði ekki að trúa því að það væri verið að vísa í nauðgunartjald þegar náunginn var að versla sér tjald með engum botni.
Hélt að ég væri að misskilja atriðið en svo var greinilega ekki og svo þurfti ég að útskýra þetta fyrir hinum sem fattaði þetta ekki og fylltust allir viðbjóði við þessu "gríni".
Ég skil hugtakið ádeila en mér finnst skaupið eigi ekki að snúast um svona alvarlegar ádeilur.
Þetta á að vera grín fyrir alla fjölskylduna.

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 04:05
af capteinninn
Frekar lélegt skaup að mínu mati

Hefðu getað haft DV djókið einu sinni og ekki jafn gróft og djöfull hefur einhver verið fúll út í Pálsdóttur þarna, hefðu alveg getað haft eitt stutt djók um það og svo komið.

Mér fannst samt samherjadjókið var það besta af skaupinu og ég er ánægður að það sé verið að koma með einhver beitt skot í skaupinu, hefðu getað verið bara með meira af því frekar en einhverja lélega fimmaurabrandara og nauðgunarbrandara. Líka fannst mér gott þegar þeir gerðu grín að mótmælunum um veiðigjaldið

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 09:39
af jericho
Þetta var versta skaupið í langan tíma

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 12:52
af Magneto
Eitt og eitt fyndið að mínu mati, t.d. DV dótið, Dans Dans Dans grínið og þegar Jón Gnarr var í hjólastólnum... :megasmile
Annars var restin bara frekar glatað fannst mér.

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 13:03
af tlord
pínlega lélegt

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 13:04
af appel
I want my money back!

Re: Skaupið

Sent: Mið 02. Jan 2013 13:16
af playman
appel skrifaði:I want my money back!
Good luck with that ;)

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 00:27
af urban
biturk skrifaði:þið sem segið að það var lélegt fylgist hvorki með fréttum né skiljið kaldhæðni né ádeiludjóka

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
Já semsagt að meiri hlutinn af fólki hvorki fylgist með fréttum né skilja kaldhæðni né ádeilu....

getur ekki bara verið að því þyki það lélegt ???
en fylgist samt vel með og hefur húmor fyrir hinu og þessu.

ég hreinlega elska kaldhæðni og ádeiludjóka.
ég fylgist vel með fréttum

mér fannst þetta skaup vera eiginlega bara ömurlegt

þokkalegustu djókar í því svo sem einhverjir en alltof alltof mikið af endurtekningum (voru höfundar með ritstíflu eða voru menn að renna út á tíma)

nauðgunardjókar, jólasveina"trú" gagnrýnd og þetta orðlag í DV djókunum er bara alveg gersamlega út í hött í þessu mest áhorfðaðast sjónvarpsefni á íslandi.
menn tala nú um að þetta orðbragð sé á dv hvort eð er og hver sem er getur lesið það, það er bara akkurat málið, mér er skítsama hvað þú segir við fólkið sem að les dv.is það er ekki sá aldurshópur sem að það er verið að gagnrýna þetta útaf.
fullt af t.d. 5 - 6 ára börnum að horfa á þetta og ég er alveg pottþéttur megnið af þeim séu ekki að lesa mikið á dv.is

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 00:51
af braudrist
Hvað ætli við höfum eytt mörgum milljónum í þetta rusl? Er ekki bara komin tími á að leggja þetta niður og Eurotrashvision og eyða peningunum í eitthvað annað? :guy

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 01:14
af Haxdal
Frantic skrifaði:Ömurlegt skaup.
Fáránlegt þegar fólk heldur því fram að fólki sem finnst þetta hafa verið lélegt skaup sé ekki að fylgjast með fréttum.
Ég skildi alltaf tilvísunina en þetta var einfaldlega ekki fyndið.
+1

skyldi alveg tilvísanirnar, fannst útfærslan á bröndurunum bara vera ömurleg.

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 01:52
af vesley
braudrist skrifaði:Hvað ætli við höfum eytt mörgum milljónum í þetta rusl? Er ekki bara komin tími á að leggja þetta niður og Eurotrashvision og eyða peningunum í eitthvað annað? :guy

Síðast þegar ég vissi þá stendur bæði Eurovision og Skaupið undir kostnaði, hinsvegar mættum við alveg hætta í þessar söngkeppni og endurhugsa þetta skaup.

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 09:46
af appel
vesley skrifaði:
braudrist skrifaði:Hvað ætli við höfum eytt mörgum milljónum í þetta rusl? Er ekki bara komin tími á að leggja þetta niður og Eurotrashvision og eyða peningunum í eitthvað annað? :guy

Síðast þegar ég vissi þá stendur bæði Eurovision og Skaupið undir kostnaði, hinsvegar mættum við alveg hætta í þessar söngkeppni og endurhugsa þetta skaup.
Æi já, auðvelt að vera sammála, en veistu hvað, ég held að ef það yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort við eigum að vera áfram í eurovision eða hætta alfarið þátttöku, þá myndu flestir vilja halda áfram þátttöku... þetta er orðið jafn þjóðlegt og lambakjötið.

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 10:20
af Klemmi
Swooper skrifaði:RÚV skotin voru frábær og áttu fullan rétt á sér, alls enginn innanhúshúmor. Mágur minn sagði meira að segja eitthvað á þá leið að þetta hefði verið svo beitt að ef Edda Sif skilar ekki inn uppsögn á næstu dögum yrði hann mjög hissa.
Fyrir þá sem ekki þekkja til Eddu, þá er hún ultra greind, dugleg og góð stelpa sem kemur vel fyrir. Var með henni bæði í grunnskóla auk sumarvinnu, minnir alveg örugglega að hún hafi dúxað úr FG þegar hún var þar.

Auðvitað er erfitt þegar upp kemur sú staða hjá ríkisreknu fyrirtæki að faðir ráði dóttur sína framyfir aðra kosti, en fyrir mína parta þykir mér ólíklegt að aðrir umsækjendur hafi verið hæfari til starfsins.

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 10:24
af GuðjónR
Rétt klemmi, af hverju ætti hún að gjalda þess að vera dóttir pabba síns? Eiga menn í stjórnunarstöðum aldrei að ráða ættingja?
Mig minnir samt að umræðan hafi eitthvað snúið um ofbeldi. Man það samt ekki alveg.

Varðandi skaupið þá held ég að fólk hafi allt of miklar væntingar, þegar væntingarnar eru svona miklar þá verða alltaf vonbrigði.

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 10:31
af Klemmi
GuðjónR skrifaði:Rétt klemmi, af hverju ætti hún að gjalda þess að vera dóttir pabba síns? Eiga menn í stjórnunarstöðum aldrei að ráða ættingja?
Mig minnir samt að umræðan hafi eitthvað snúið um ofbeldi. Man það samt ekki alveg.

Varðandi skaupið þá held ég að fólk hafi allt of miklar væntingar, þegar væntingarnar eru svona miklar þá verða alltaf vonbrigði.
http://www.dv.is/frettir/2012/1/11/edda ... ikamsaras/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Skaupið

Sent: Fim 03. Jan 2013 10:33
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Rétt klemmi, af hverju ætti hún að gjalda þess að vera dóttir pabba síns? Eiga menn í stjórnunarstöðum aldrei að ráða ættingja?
Mig minnir samt að umræðan hafi eitthvað snúið um ofbeldi. Man það samt ekki alveg.

Varðandi skaupið þá held ég að fólk hafi allt of miklar væntingar, þegar væntingarnar eru svona miklar þá verða alltaf vonbrigði.
http://www.dv.is/frettir/2012/1/11/edda ... ikamsaras/" onclick="window.open(this.href);return false;
Já einmitt, svo voru uppi samsæriskenningar um að hann hefði verið rekinn svo hún fengi starfið :no