Síða 3 af 5

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 01:34
af Nariur
Stuffz skrifaði:ftr

Ég var að tala almennt um persónuupplýsingar þarna áður.

Ég myndi persónulega ekki sjá fyrir mér Landsbankann ofarlega á lista yfir varasömustu persónunjósnara í heiminum :lol:

en persónunjósnir eru staðreynd í heiminum í dag og mér finnst eðlilegt ef fólk vill hafa allan varann á sem prinsipp atriði.

ef fleiri hefðu haft allan varann á sem prinsipp atriði hérna fyrr á árum þá hefðum við kannski ekki verið leikin svona grátt af kreppunni

en jæja koma tímar koma ráð :-k


EDIT: Ánægjulegt að mönnum sé boðið á tæknikynningu :)
Ertu þá að tala um viðkvæmar upplýsingar eins og hvert fyrsta gæludýrið þitt var?
Fyrir utan að ekki nokkur maður hefur aðgang að svarinu, þá snúast bankar um að höndla mun viðkvæmari upplýsingar. Ég skil ekki hvert þú ert að fara.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 07:34
af biturk
geti'i ekki haft svona kynningu á akureyri líka? fullt af fólki hér sem myndi vilja heira aðeins í ykkur um þetta.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 08:04
af tdog
Live Streaming!

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 09:10
af kvaldik
Ég mæti á þriðjudaginn ef af því verður!

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 09:54
af dori
tdog skrifaði:Live Streaming!
úúúú... það væri töff.

Annars mætir maður örugglega. Ég er mjög áhugasamur um að heyra hvernig þetta auðkennisdót og áhættumat ykkar virkar. InfoSec er smá hobbí hjá manni...

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 13:04
af tlord
frábært ef þeir streyma þessu og setja upptöku á netið.

Ef ekki, væri góð hugmynd ef einhver vaktari tekur upp og skellir inn einhverstaðar.

Hvað segir Landsbakinn og Ægir?

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 14:30
af rapport
Skil ekki afhverju það er ekki farið í e-h svona:

http://www.gi-de.com/gd_media/media/en/ ... _Token.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;


Öryggisþættir:
Lykill + leyniorð = þú kemst inn og getur gert allt án frekari auðkenningar.
Ekkert trace verður á tölvunni sem þetta er notað á.

Lítið forrit keyrir af lyklinum í eigin bólu af stýrikerfi og skilur ekkert trace eftir sig á tölvunni sem það er notað á.

Ódýrt, einstaklega einfalt, þægilegt og umfram allt miklu öruggara en það sem verið er að bjóða hérna á klakanum.

p.s. inná síðunni þeirra eru success stories frá Brasilíu og Kína = stóriri markaðir sem hafa náð að nýta þetta, við ættum að geta það líka.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 16:36
af Pandemic
Þætti sniðugt ef bankarnir myndu koma með App authenticator eins og Google authenticator svo væri hægt að blanda þessari lausn frá RSA inní á bakvið það.
Allavegana að hafa möguleikan á authenticator þar sem ég myndi halda að hér á landi væru það flestir "kunningar" fólks sem væri að gera malicious hluti á heimabankanum. Tek eftir því hjá ungafólkinu að þau eru ekki mikið að velta fyrir sér að geyma lykilorðin sín á öruggan hátt og segja engum.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 18:23
af Stuffz
Nariur skrifaði:
Stuffz skrifaði:ftr

Ég var að tala almennt um persónuupplýsingar þarna áður.

Ég myndi persónulega ekki sjá fyrir mér Landsbankann ofarlega á lista yfir varasömustu persónunjósnara í heiminum :lol:

en persónunjósnir eru staðreynd í heiminum í dag og mér finnst eðlilegt ef fólk vill hafa allan varann á sem prinsipp atriði.

ef fleiri hefðu haft allan varann á sem prinsipp atriði hérna fyrr á árum þá hefðum við kannski ekki verið leikin svona grátt af kreppunni

en jæja koma tímar koma ráð :-k


EDIT: Ánægjulegt að mönnum sé boðið á tæknikynningu :)
Ertu þá að tala um viðkvæmar upplýsingar eins og hvert fyrsta gæludýrið þitt var?
Fyrir utan að ekki nokkur maður hefur aðgang að svarinu, þá snúast bankar um að höndla mun viðkvæmari upplýsingar. Ég skil ekki hvert þú ert að fara.
Veistu það er allt-í-lagi að þú skiljir ekki, og það er fínt að þú sért ekkert smeikur að tala um það :D
Stuffz skrifaði: var að tala almennt um persónuupplýsingar þarna áður.
x2

ég var ekkert að tala sérstaklega um Landsbankann, var að tala um miklu stærri mynd af málefninu, en ok kannski smá off topic fyrir svona local issue. svo never mind.
rapport skrifaði:Skil ekki afhverju það er ekki farið í e-h svona:

http://www.gi-de.com/gd_media/media/en/ ... _Token.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;


Öryggisþættir:
Lykill + leyniorð = þú kemst inn og getur gert allt án frekari auðkenningar.
Ekkert trace verður á tölvunni sem þetta er notað á.

Lítið forrit keyrir af lyklinum í eigin bólu af stýrikerfi og skilur ekkert trace eftir sig á tölvunni sem það er notað á.

Ódýrt, einstaklega einfalt, þægilegt og umfram allt miklu öruggara en það sem verið er að bjóða hérna á klakanum.

p.s. inná síðunni þeirra eru success stories frá Brasilíu og Kína = stóriri markaðir sem hafa náð að nýta þetta, við ættum að geta það líka.

Var búinn að heyra eitthvað um svona möguleika áður vissi ekki að eitthverjir væru þegar farnir að nota það, athyglisvert :)

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Fös 09. Nóv 2012 18:52
af Nariur
Stuffz skrifaði:
Nariur skrifaði:
Stuffz skrifaði:ftr

Ég var að tala almennt um persónuupplýsingar þarna áður.

Ég myndi persónulega ekki sjá fyrir mér Landsbankann ofarlega á lista yfir varasömustu persónunjósnara í heiminum :lol:

en persónunjósnir eru staðreynd í heiminum í dag og mér finnst eðlilegt ef fólk vill hafa allan varann á sem prinsipp atriði.

ef fleiri hefðu haft allan varann á sem prinsipp atriði hérna fyrr á árum þá hefðum við kannski ekki verið leikin svona grátt af kreppunni

en jæja koma tímar koma ráð :-k


EDIT: Ánægjulegt að mönnum sé boðið á tæknikynningu :)
Ertu þá að tala um viðkvæmar upplýsingar eins og hvert fyrsta gæludýrið þitt var?
Fyrir utan að ekki nokkur maður hefur aðgang að svarinu, þá snúast bankar um að höndla mun viðkvæmari upplýsingar. Ég skil ekki hvert þú ert að fara.
Veistu það er allt-í-lagi að þú skiljir ekki, og það er fínt að þú sért ekkert smeikur að tala um það :D
Stuffz skrifaði: var að tala almennt um persónuupplýsingar þarna áður.
x2

ég var ekkert að tala sérstaklega um Landsbankann, var að tala um miklu stærri mynd af málefninu, en ok kannski smá off topic fyrir svona local issue. svo never mind.
Var það semsagt ekki það sem þú varst að meina?

also.. þú X2 aðir sjálfan þig

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Sun 11. Nóv 2012 11:17
af Frantic
Nariur skrifaði:Var það semsagt ekki það sem þú varst að meina?

also.. þú X2 aðir sjálfan þig
Einhverstaðar (Örugglega af vaktinni) lærði ég að maður ætti ekki að x2-a comment heldur +1-a.
Því ef 2 eru búnir að +1-a eitthvað fáránlega skemmtilegt comment og wild Stuffz appears og x2-ar þá erum við komnir með 4 en í raun eru bara 3 að fíla það sem var verið að +1-a og x2-a.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Mán 12. Nóv 2012 11:05
af Landsbankinn
Blessaðir er ekki búinn að hafa tíma til að svara fyrr en nú, en já skal taka upp fundinn og athuga með að gera hann aðgengilegan fyrir þá sem mæta ekki. Vandamálið er
samt það að ef þið viljið að við séum opinn hverning þetta virkar þá verðum við eitthvað aðeins að minnka upplýsingarnar um hverning þetta nákvæmlega virkar, en það ætti
ekki að skipta það miklu máli. Þetta ætti að komast til skila og setjum bara spurningar aftast í kynninguna þá er hægt að klippa það út. og með spurningar þá ætlum
við að bjóða uppá Twitter þar sem flestir íslendingar vilja ekki rétta upp hendi ;-) svo þið hafið ástæðu fyrir Ipadan ykkar.

kv
Ægir

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Mán 12. Nóv 2012 19:44
af Stuffz
Frantic skrifaði:
Nariur skrifaði:Var það semsagt ekki það sem þú varst að meina?

also.. þú X2 aðir sjálfan þig
Einhverstaðar (Örugglega af vaktinni) lærði ég að maður ætti ekki að x2-a comment heldur +1-a.
Því ef 2 eru búnir að +1-a eitthvað fáránlega skemmtilegt comment og wild Stuffz appears og x2-ar þá erum við komnir með 4 en í raun eru bara 3 að fíla það sem var verið að +1-a og x2-a.
hehe

mér fannst eitthverra hluta vegna að ég þurfa að leggja tvöfalda áherslu á þetta comment mitt svo ergó "x2" annars whatever :P

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 15:30
af dori
Ég sé að skráningarsíðan er útrunninn og það var eini staðurinn með upplýsingum um staðsetningu og tímasetningu. Man einhver hvar og hvenær þetta var nákvæmlega?

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 15:33
af tdog
Tjarnarbíói, kl 16
ég kemst ekki þannig þú tekur bara mitt sæti ;)

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 15:40
af dori
Ég var búinn að skrá mig, minnti að þetta væri staðurinn en ég hata að fara fýluferð. Gæti verið að þeir hafi sent póst með upplýsingum sem ég fann ekki við leit. Held samt ekki.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 16:41
af cartman
Gat ekki eytt þessu commenti

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 18:42
af Stuffz
Jæja hvernig fór þetta?

hver vann :lol:

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 20:22
af arnif
Landsbankinn vann...

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 20:26
af gRIMwORLD
Ef það á að krýna sigurvegara þá vann Landsbankinn, menn voru með comment fram og til baka en ég varð allavega sannfærður um að þetta nýja öryggiskerfi er alls ekki verra en það sem var á undan. Þeir sem mættu ekki misstu ef líflegum Q&A umræðum eftir formlegu kynninguna. Gaman að sjá top dog í öryggismálum hjá Landsbankanum í ham við að svara spurningum. :snobbylaugh

Smá lesning http://www.emc.com/security/rsa-identit ... cation.htm

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 21:20
af appel
Eru gjaldeyrishöftin ekki nægileg forvörn gagnvart erlendum tölvuglæpalýð sem hyggst ræna heimabanka venjulegra íslendinga? Hver vill ræna ISK? Er það ekki doldið einsog að stela matador peningum?

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 22:18
af GuðjónR
Appel þegar þú færð leið á matadorpeningunum þínum þá máttu gjarnan gefa mér þá :D

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 22:20
af pattzi
Þetta er samt pirrandi kerfi væri ekkert skemmtilegt að fara inná heimabankann og búið að tæma alla reikninga :money

Vanalega þarf maður auðkennislykil og er svoleiðis ennþá í öðrum bönkum.

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 22:38
af intenz
Ég komst ekki. Ég bíð spenntur eftir upptökunni af fundinum. :P

Re: Nýtt öryggiskerfi fyrir netbanka

Sent: Þri 13. Nóv 2012 23:18
af gRIMwORLD
pattzi skrifaði:Þetta er samt pirrandi kerfi væri ekkert skemmtilegt að fara inná heimabankann og búið að tæma alla reikninga :money

Vanalega þarf maður auðkennislykil og er svoleiðis ennþá í öðrum bönkum.
Þeir bæði sögðu frá því að Landsbankinn stóð ekki á bakvið þá hugmynd að hætta með auðkennislykilinn og einnig, að með sömu tækni og notuð er til að komast yfir user og pass inn í heimabanka, er hægt að nota auðkennislykilinn án þess að hafa hann í höndunum. Hann veitir því falskt öryggi.