Síða 3 af 3

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Sun 08. Mar 2015 19:12
af rapport
*BUMP*

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Sun 08. Mar 2015 23:14
af Stufsi
Er pínu forvitin um það hvort hægt sé að vinna þessa vinnu með skóla? Eða er þetta 100% vinna?
Er þá s.s. að tala um starf í Tölvuþjónustu

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Mán 09. Mar 2015 00:51
af rapport
Þetta er í tölvuþjónustu, símaþjónusta + bakvinnsla + vettvangsþjónusta, opið milli 7:30 og 17:00 alla virka daga...

Ef þú þekkir einhvern á spítalanum þá köllumst við í daglegu tali 1550 (innanhússnúmerið til okkar)

Það er efitt að koma þessu við nema þú sért í kvöldskóla.

Ég veit að það er oft erfitt að komast að á vinnumarkaðinum nema með reynslu, við náum hreinlega ekki að greiða nógu há laun til að geta gert þá kröfu.

Fólk getur fengið reynslu hjá okkur.

Ótrúlegt en satt, þá náum við að halda nokkuð vel í þá snillinga sem við höfum og starfsaldurinn og mórallinn bæði mjög hár...

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Mán 09. Mar 2015 01:27
af Hannesinn
Ég geri mér grein fyrir að ég sé að svara gamalli fyrirspurn, en biðlaunakerrfið var lagt af '96. Allir þeir sem ráðnir hafa verið hjá ríkinu eftir þann tíma fá ekki biðlaunasamning eins og gilti áður, en það var oftast til eins árs.

Svo eru kostir að vinna hjá ríkinu, eins og oftar sveigjanlegri vinnutími, færð -alltaf- borgað og það á réttum tíma, og bara almennur sveigjanleiki sem finnst sjaldnar úti í einkageiranum, en það allt saman kostar líka lægri laun en hægt er að fá í einkageiranum. Og takið sérstaklega eftir "en hægt er að fá í einkageiranum", því þeir eru ekkert endilega betur borgaðir, bara þeir sem koma sér áfram. Svo eru aðrir sem bara nenna eða geta ekki verið að vinna í útseldri vinnu, þar sem þarf að klára verk fyrir mánudagsmorgun og klukkan er 17 á föstudegi. Barnafólk til dæmis.

Starfsöryggi ríkisstarfsmanna fer svo út um gluggann ef frumvarp frammara um að ráðherrar fái að flytja stofnanir án sérstakrar lagaheimildar, eins og er í þinginu núna. :)

Annars er örugglega fínt að vinna á lansanum. :)

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Mán 09. Mar 2015 09:57
af Jón Ragnar
Þeir sem ég þekki hjá Tölvudeildini hjá Spítalanum eru snillingar og við vinnum mikið fyrir LSH :)

Mæli með að fólk kíki á þetta og sæki um. Góður starfsandi þarna

Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf

Sent: Lau 25. Mar 2017 01:26
af rapport
Mynd

Seinasta sinn sem ég vek athygkli á jobbum á LSH :-)

https://www.starfatorg.is/taeknistorf/k ... 201703-485