Síða 3 af 3
Sent: Sun 24. Okt 2004 20:32
af ICM
nei gumol, bara örjgörvarnir frá Intel
lítti t.d. á Power örjgörvana sem Apple hafa notað síðustu árin, alltaf verið öflugari en intel örgjörvar með sömu mhz tölu, síðan færði AMD þetta yfir í x86 heimin að mhz skiptir ekki öllu máli.
Sent: Sun 24. Okt 2004 21:43
af gumol
IceCaveman skrifaði:nei gumol, bara örjgörvarnir frá Intel
lítti t.d. á Power örjgörvana sem Apple hafa notað síðustu árin, alltaf verið öflugari en intel örgjörvar með sömu mhz tölu, síðan færði AMD þetta yfir í x86 heimin að mhz skiptir ekki öllu máli.
Ég var að segja að Intel Celeron örjörvarnir hannaðir þannig að mhz talan skipti máli. Ef þú skildir þetta öðruvísi varstu að reyna að misskilja þetta.
Sent: Mán 25. Okt 2004 01:47
af llMasterlBll
Ég held að Powr PC örrinn sé bara að standa sig svona mikip betur því hann er hannaður fyrir þær tölvur sem nota hann og er hann ekki 64 bit á 64 bita kerfi (veit það ekki..minnir bara og nenni ekki að leita), þar sem að AMD og Intel (og allir aðrir örgjörfar) eru mismunandi að uppbyggingu skipta mismunandi hlutir mismiklu máli (FSB, dual/quad, L1 og L2 og fleira) svo Intel var ekki að blekkja neinn, frekar AMD með að gefa upp einhverja tölu sem segir ekkert um örgjðrfan í rauninni.
Sent: Mán 25. Okt 2004 02:31
af gnarr
hvernig getið þið borið saman risc og cisc ? líka fáránlegt að halda því fram að intel hafi verið að keyra allar sýnar auglýsingar á MHz. það er hreinlega bara staðreind að pure MHz er betra í mest allri margmiðlun, og intel hefur gefið sig út fyrir að gera öfluga media örgjörfa.
annars er þetta grútleiðnileg umræða sem að á aldrei eftir fást neinn botn í.
Sent: Mán 25. Okt 2004 15:33
af Icarus
AMD ALL THE WAY
Sent: Mán 25. Okt 2004 17:16
af MezzUp
gnarr skrifaði:annars er þetta grútleiðnileg umræða sem að á aldrei eftir fást neinn botn í.
amen!
Sent: Mán 25. Okt 2004 20:15
af Pandemic
er ericsson eða simens ekki stærsti örgjörva framleiðandi í heimi.
Væri líka gaman að fá að vita hver framleiðir alla þessa RISK örgjörva fyrir eplið
Sent: Mán 25. Okt 2004 20:38
af wICE_man
gnarr skrifaði:annars er þetta grútleiðnileg umræða sem að á aldrei eftir fást neinn botn í.
Já, amk. ekki í þeim farvegi sem hún er í, það virðist sem að menn blindist af hatri á andstæðingnum. Það er ekki eins og annað fyrirtækið sé alsaklaust og hitt illskan uppmáluð. Bæði eru sek um að villa fyrir okkur á tímum. Ég skil ekki menn sem halda því fram að annar aðilinn sé alltaf betri en hinn.
Fyrir ári var Intel á toppnum, nú upp á síðkastið hefur AMD náð að krafsa sig í foristu nema á fartölvu markaðnum þar sem þeir hafa í raun ekkert svar við Centrino-tækni Intel. Þó bilið sé mjórra nú en oft áður þá held ég að engum hlutlægum aðila detti annað í hug að en að lýsa AMD sem tímabundinn sigurvegara á borðtölvu og netþjóna markaðnum.
Þetta er samt ekki svart og hvítt, t.d. gæti mönnum fundist betra að uppfæra beint í PCIe og DDR2, þá er Intel eini valkosturinn eða ef viðkomandi er í hljóð og myndvinnslu þá er hagkvæmara að nota Pentium 4 örgjörva en nokkurn AMD örgjörva. Eins er Intel eins og áður segir með sterkt tak á fartölvumarkaðnum og AMD64 örgjörvar koma bara til greina í þyngri leikjafartölvunum, svokölluðum desktop-replacement.
Svo AMD og Intel-fanboys reynið að vakna upp til lífsins, það að halda að merki séu óskeikull mælikvarði á gæði er fáviska sem á ekki heima hjá nördum! Það eina sem skiptir máli er raunveruleikinn.
Sent: Mán 25. Okt 2004 21:35
af gnarr
og eins og við wIce_man vitum báðir, þá eru via örgjörfarnir þeir bestu
Sent: Mán 25. Okt 2004 21:47
af MezzUp
gnarr skrifaði:og eins og við wIce_man vitum báðir, þá eru via örgjörfarnir þeir bestu
double amen there!
Það er eitthvað við fanless og drulluódýrt sem hefur alltaf heillað mig.
Sent: Mán 25. Okt 2004 21:50
af gnarr
nákvæmlega. hvað segir að það þurfi alltaf að nota sömu aðferðir tila ð finna "bestu" örgjörfana. via er með laaaaaangbestu örgjörfana ef maður ætlar að búa til hljóðláta tölvu. tildæmis sjónvarpstölvu
ég hefði gaman að því að sjá sjónvarpstölvu með prescott... þyrfti að setja græjurnar yfir 100db til að yfirgnæfa vifturanr
Sent: Mán 25. Okt 2004 22:14
af MezzUp
Jamm,
dolby sound eða
mpeg2 decoder. Nú eða í dedicated server, innbyggt net og skjákort.
Verst finnst mér þó að computer.is eru einu með þetta hérna á klaknum, ekki vitið um einhvern annan sem er að selja Via?
Sent: Mán 25. Okt 2004 22:58
af BlitZ3r
Sent: Mán 25. Okt 2004 23:11
af MezzUp
Töff, vissi þetta ekki.
Þetta móðurborð - 9 þús
HD - 10 þús
kassi og PSU - 5 þús
256MB RAM - 4 þús
28 þúsund og þú ert kominn með server
Sent: Mán 25. Okt 2004 23:14
af BlitZ3r
þetta er ekki neitt neitt fyrir tetta móðurborð með 2000+ örgjörva fyrir 9k. það er skemtilegt við VIA að þeyr eru svo ódýrir abit-VT7 á 7.500kr og er að skora aðeins minna og 875p móðurborð
Sent: Þri 26. Okt 2004 00:06
af gumol
BlitZ3r skrifaði:þetta er nett móðurborð kjörð í sjónvarpsvél
Engin agp rauf. Það gæti verið vandamál fyrir þá sem vilja nota gamla GF MX/Ti skjákortið sitt fyrir tv-out.
Sent: Þri 26. Okt 2004 01:08
af BlitZ3r
fá bara pci version af mx
Sent: Fös 29. Okt 2004 10:48
af kanill
Arnar skrifaði:Minn AMD rústar hvaða intel örgjörva sem er.
ójá
Ekki í ProTools vinnslu!!! þá er Intel MIKKLU betri AMD bara virkilega kúkar upp á bak í ProTools. En annars þá var ég meira AMD maður .. en fékk mér Intel fyrir protools
Sent: Fös 29. Okt 2004 11:42
af Icarus
kanill skrifaði:Arnar skrifaði:Minn AMD rústar hvaða intel örgjörva sem er.
ójá
Ekki í ProTools vinnslu!!! þá er Intel MIKKLU betri AMD bara virkilega kúkar upp á bak í ProTools. En annars þá var ég meira AMD maður .. en fékk mér Intel fyrir protools
stundar/stundaðir þú mikið bt spjallið ? ef svo er máttu alveg halda þig þar.
Sent: Fös 29. Okt 2004 13:01
af Stebbi_Johannsson
Ég er frekar viss um að AMDinn hans Arnars rústi hvaða Intel sem er:
FX-53, ég held að hann sé 2.4GHz á stock
Sent: Fös 29. Okt 2004 13:22
af gnarr
http://www.molar.is/listar/partalistinn/2004-10/0379.shtml
nei. amd64 er ekki jafn hraður og intelinn í hljóðvinslu.
Sent: Lau 30. Okt 2004 05:16
af llMasterlBll
Þetta er allt svindl og samsæri..þeð er verið að plata gamalt fólk frá Florida til að kjósa AMD í gríð og erg...ég vill að þráðstjórar fari í málið og fer framm á endurkosningu!!
Sent: Lau 30. Okt 2004 10:50
af MezzUp
llMasterlBll skrifaði:Þetta er allt svindl og samsæri..þeð er verið að plata gamalt fólk frá Florida til að kjósa AMD í gríð og erg...ég vill að þráðstjórar fari í málið og fer framm á endurkosningu!!
og fyrir þá sem að ekki föttuðu þetta;
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php ... &f_id=1173