Síða 3 af 5
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 12:26
af BjarkiB
http://visir.is/arasin-a-hlemmi-atti-se ... 2120609548" onclick="window.open(this.href);return false;
Persónulegar illdeilur urðu til þess að öryggisvörður á Hlemmi gekk í skrokk á útigangsmanni sem þar hafðist við.
Ekkert meira sagt en þetta.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:12
af Garri
dori skrifaði:Ég var einhverntíma að taka strætó á Hlemmi og horfði á öryggisvörð vera í einhverjum "bardaga" við að halda útigangsmanni úti. Var búinn að segja honum að fara og henda honum út einu sinni eða tvisvar á meðan ég var þarna að bíða. Svo ráfar maðurinn aftur inn og þá snýr öryggisvörðurinn hann niður. Rífur beltið og úlpuna sem greyið var í og hendir honum út.
Mér blöskraði það eiginlega og sá eftir að hafa ekki tekið þetta uppá myndband því að ég fann á mér að það yrði eitthvað vesen þegar gæinn ráfaði þarna inn í síðasta skiptið.
En hvernig er það, augljóslega er þetta fólk sem ég myndi ekki bjóða inn til mín. En ef það er ekkert að gera af sér annað en að sitja inni í hitanum á einhverjum bekk og gerir annars ekki flugu mein. Er hægt að banna því það? Er þetta ekki eitthvað svona "almenningssvæði"? Þarf ekki bara að hafa fleiri og yfirvegaðri öryggisverði þarna?
What????
Fyrst þetta..
"Var búinn að segja honum að fara og henda honum út einu sinni eða tvisvar á meðan ég var þarna að bíða."
Svo þetta í sama innleggi..
"En ef það er ekkert að gera af sér annað en að sitja inni í hitanum á einhverjum bekk og gerir annars ekki flugu mein. Er hægt að banna því það?"
Vantar ekki eitthvað í rökhugsunina þarna?
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:16
af dori
Gæinn gerði ekkert. Hann var bara að ráfa um þarna. Ég var einmitt alltaf að velta því fyrir mér af hverju það var verið að henda gæjanum út. Mér fannst öryggisvörðurinn sem gerði þetta vera mjög óyfirvegaður og frekar æstur bara. Hafði ekki fagmannlegt yfirbragð allavega.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 13:26
af Tbot
Fyrst að þessum sem var hent út, er svona mikið gæðablóð, þá hljótið þið allir að vera meira en til í að skjóta yfir hann skjólshúsi svo hann þurfi ekki að hanga þarna á Hlemmi.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 14:27
af Klemmi
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett ... i-a-netinu" onclick="window.open(this.href);return false;
Auðvitað er þetta einnig bara "önnur hlið sögunnar", en ef satt reynist, að það sé ítrekað verið að hóta honum og reyna að hafa af honum peninga sem hann ekki skuldar, þá skil ég vel að hann hafi gefist upp á þessu og brugðist við líkt og raun ber vitni. Ekki það að ég hafi nokkru sinni lamið neinn sem heitið getur, en í sömu aðstæðum veit maður aldrei hvernig maður myndi haga sér.
EEEEEn við vitum auðvitað ekkert hvað raunverulega gerðist þarna, enda á eiga svona hlutir ekkert heima á netinu, skapar bara reiði og hatur.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 14:50
af coldcut
1. Gæjinn á ekki að bregðast svona við, hann á að hringja á Lögguna! (Hann segir það meira að segja sjálfur.)
2. Það eru tvær hliðar á öllum málum og hvorug hliðin er 100% sönn!
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:13
af vargurinn
ofsafengin árás, hryllileg árás, óhugguleg árás. Stór lýsingarorð miðað við video-ið.
Ekki að réttlæta neitt en finnst þetta alltof ýkt eitthvað.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:17
af Sallarólegur
Þessi árás á svo sem rétt á sér, þeas. ef einhver róni væri í hótunum við mig og fjölskildu mína og vinir hans væru að hanga eftir mér eftir vinnu myndi ég alveg íhuga að berja hann.
Bara leiðinlegt að þetta hafi gerst á meðan hann var í vinnunni, þeas. missa stjórn á skapinu.
Eins og var bent á fyrr, ef hann hefði verið að tæla ungar stelpur á hlemmi, hvernig mynduð þið þá líta á þessa árás?
Fólk þarf aðeins að dempa sig niður, þó þetta hljómi þreytt þá eru alltaf tvær hliðar.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:30
af Varasalvi
Sallarólegur skrifaði:Þessi árás á svo sem rétt á sér, þeas. ef einhver róni væri í hótunum við mig og fjölskildu mína og vinir hans væru að hanga eftir mér eftir vinnu myndi ég alveg íhuga að berja hann.
Bara leiðinlegt að þetta hafi gerst á meðan hann var í vinnunni, þeas. missa stjórn á skapinu.
Eins og var bent á fyrr, ef hann hefði verið að tæla ungar stelpur á hlemmi, hvernig mynduð þið þá líta á þessa árás?
Fólk þarf aðeins að dempa sig niður, þó þetta hljómi þreytt þá eru alltaf tvær hliðar.
Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:31
af Klemmi
Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:35
af mind
Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Dúm dúm, tiss.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:37
af Varasalvi
Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Veit ekki alveg hvað þú átt við með þessu. Þegar ég tala um óþarfa ofbeldi þá er ég að tala um allt nema sjálfsvörn og allt það augljósa. En þessi gæji græddi ekkert á því að ráðast á hann, svo það var óþarfi.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 15:52
af Klemmi
Varasalvi skrifaði:Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Veit ekki alveg hvað þú átt við með þessu. Þegar ég tala um óþarfa ofbeldi þá er ég að tala um allt nema sjálfsvörn og allt það augljósa. En þessi gæji græddi ekkert á því að ráðast á hann, svo það var óþarfi.
Ef þú myndir mæta upp í vinnu til mín reglulega og ætla að rukka mig um peninga sem ég skuldaði þér ekki, myndir svo neita að fara þegar ég bæði þig um það, haldandi áfram að ljúga upp á mig og segjandi að ég skuldaði þér, þá myndi ég ekki kalla það óþarfa ofbeldi að henda þér á dyr með valdi, þó svo að rétta leiðin væri að hringja á lögregluna og fá hana til að sjá um það fyrir mig.
Þetta er eins og sagan birtist í frásögn öryggisvarðarins, ég því miður veit ekkert hvort hún er sönn eða ekki. En ef hún er sönn, þá get ég alveg fundið til með manninum að hafa misst stjórn á skapi sínu.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:14
af Eiiki
Gott dæmi um hvað þessi litla og þröngsýna íslenska þjóð trúir öllu því sem fram kemur í fjölmiðlum og öðru eins. Eins og hann segir sjálfur að þá er verið að aflífa manninn á netinu áður en við fáum að sjá rétta mynd á málinu. En það er náttúrulega ekki rétt hjá honum að "ganga í skrokk" á manninum eins og hann sagði sjálfur (ég hef nú séð verri barsmíðar). Eins og klemmi sagði, þá veit ég ekki hvað ég myndi gera eftir að ég væri búinn að fá fólk reglulega í heimsókn til mín í vinnuna að rukka mig um eitthvað sem ég skulda ekki og hótandi fjölskyldu minni og svo myndi það neita að fara þegar ég bæði að fara. Ég hugsa að ég myndi missa mig á endanum og henda ákveðnum aðila á dyr með valdi.
En auðvitað er aldrei hægt að treysta því að önnur sagan sé 100% rétt.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:18
af Varasalvi
Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Veit ekki alveg hvað þú átt við með þessu. Þegar ég tala um óþarfa ofbeldi þá er ég að tala um allt nema sjálfsvörn og allt það augljósa. En þessi gæji græddi ekkert á því að ráðast á hann, svo það var óþarfi.
Ef þú myndir mæta upp í vinnu til mín reglulega og ætla að rukka mig um peninga sem ég skuldaði þér ekki, myndir svo neita að fara þegar ég bæði þig um það, haldandi áfram að ljúga upp á mig og segjandi að ég skuldaði þér, þá myndi ég ekki kalla það óþarfa ofbeldi að henda þér á dyr með valdi, þó svo að rétta leiðin væri að hringja á lögregluna og fá hana til að sjá um það fyrir mig.
Þetta er eins og sagan birtist í frásögn öryggisvarðarins, ég því miður veit ekkert hvort hún er sönn eða ekki. En ef hún er sönn, þá get ég alveg fundið til með manninum að hafa misst stjórn á skapi sínu.
Ég sé ekkert að því að henda manni út. En ég sé mikin mun á því að draga mann út og að kýla og sparka (og svo henda honum uppvið vegg þegar hann er kominn út).
Það er greinilega mikið af skiptum skoðunum hérna um hvað er réttlátt . Ég er bara mikið á móti ofbeldi.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 16:27
af Klemmi
Varasalvi skrifaði:Ég sé ekkert að því að henda manni út. En ég sé mikin mun á því að draga mann út og að kýla og sparka (og svo henda honum uppvið vegg þegar hann er kominn út).
Það er greinilega mikið af skiptum skoðunum hérna um hvað er réttlátt . Ég er bara mikið á móti ofbeldi.
Jámm, sitt sýnist hverjum
Þetta högg með opnum lófa og spark með beinni löpp og rist sýnist mér er frekar gert til að sýna honum að honum sé alvara, ekki til að meiða. Svo fýkur meira í hann þegar maðurinn lætur hann ekki vera eftir að hann hendir honum út og þá vissulega tekur hann aðeins harðar á honum.
Ég er ekki að segja að þetta séu rétt viðbrögð, en þau eru hins vegar skiljanleg ef saga öryggisvarðarins er tekin trúanleg.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 17:03
af blitz
Ef frásögn öryggisvarðarins er rétt finnst mér ekkert að þessu.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 17:18
af Xovius
Held að réttast væri að orða sögu öryggisvarðarins sem "ástæðu" ekki "réttlætingu".
Erum nú held ég flestir sammála um það að þetta mál hefði betur verið leyst á annan hátt en með ofbeldi og einnig það að þetta mál hefur verið blásið svoldið mikið upp, myndi sjálfur varla kalla þetta að ganga hrottalega í skrokk á manninum þó þarna sé vissulega ekki rétt farið að og meira að segja öryggisvörðurinn sjálfur hefur sagt það.
Öryggisvörður skrifaði:
...ég missti stjórn á mér. Ég átti aldrei að gera þetta. Ég átti að hringja í lögregluna.
Ég veit að þetta réttlætir ekki gjörðir mínar en eitthvað brast þennan tiltekna dag.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:06
af vargurinn
Okei nú spyr ég ; hvað átti löggan að gera ?
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:14
af Baldurmar
vargurinn skrifaði:Okei nú spyr ég ; hvað átti löggan að gera ?
Löggan hefði komið, talað við hann og farið. rinse and repeat...
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:24
af KermitTheFrog
Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Klemmi skrifaði:Varasalvi skrifaði:Það er ekkert sem réttlætir óþarfa ofbeldi, punktur, end og story, the end, and so on.
Óþarfa er lykilorðið þarna.
Veit ekki alveg hvað þú átt við með þessu. Þegar ég tala um óþarfa ofbeldi þá er ég að tala um allt nema sjálfsvörn og allt það augljósa. En þessi gæji græddi ekkert á því að ráðast á hann, svo það var óþarfi.
Ef þú myndir mæta upp í vinnu til mín reglulega og ætla að rukka mig um peninga sem ég skuldaði þér ekki, myndir svo neita að fara þegar ég bæði þig um það, haldandi áfram að ljúga upp á mig og segjandi að ég skuldaði þér, þá myndi ég ekki kalla það óþarfa ofbeldi að
henda þér á dyr með valdi, þó svo að rétta leiðin væri að hringja á lögregluna og fá hana til að sjá um það fyrir mig.
Þetta er eins og sagan birtist í frásögn öryggisvarðarins, ég því miður veit ekkert hvort hún er sönn eða ekki. En ef hún er sönn, þá get ég alveg fundið til með manninum að hafa misst stjórn á skapi sínu.
Það er munur á því að slá og sparka í varnarlausan mann og að henda honum á dyr með valdi.
Eins og hann gerir í kjölfarið á árásinni þá dregur hann manninn út. Eitthvað sem hann hefði getað gert án þess að slá hann og sparka í hann.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 20:27
af littli-Jake
Það er sorglegt hvað það er búið að blása þetta allt saman upp. Þessi "högg" eru ekki að fara að skaða nokkurn mann þó að það sé náttúrulega ekki aðalatriðið. Mer sýnist að forsagan á þessu máli sé talsvert skuggalegri en það sem er að gerast í þessu myndbandi. Svo fynst mér svoltið fyndið að fólk sé að tala um að það sé óheppilegt að öryggisvörðurinn sé að gera þetta á vinnutíma.
Auk þess fynst mér hálf óábirgt af GuðjóniR að pósta þessu inn áður en nokkur fjölmiðil er búinn að koma fram með nokkra alvöru umfjöllun um málið.
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 21:38
af Gúrú
littli-Jake skrifaði:Auk þess fynst mér hálf óábirgt af GuðjóniR að pósta þessu inn áður en nokkur fjölmiðil er búinn að koma fram með nokkra alvöru umfjöllun um málið.
Er Guðjón allt í einu dómsmálaráðuneytið og fékk þetta myndband sent í trúnaði?
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 22:11
af KermitTheFrog
littli-Jake skrifaði:Auk þess fynst mér hálf óábirgt af GuðjóniR að pósta þessu inn áður en nokkur fjölmiðil er búinn að koma fram með nokkra alvöru umfjöllun um málið.
Hahaha what?
Má ekki pósta um neinn eða neitt ef ekki er komin alvöru umræða frá fjölmiðlum?
U no make sense...
Re: Er þetta leyfilegt??
Sent: Þri 05. Jún 2012 22:56
af tomasjonss
Hárrét hjá Gúru og Kermit. Hefði bara viljað fá þetta fyrr svo ég hefði getað skúbbað þessu.