Síða 3 af 3

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Sun 06. Maí 2012 08:54
af Danni V8
Weird Al klikkar ekki :lol:

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 12:24
af beatmaster
Hvernig er svo stemmningin fyrir Bauhaus núna rúmum 2 árum seinna? :-k

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 13:20
af Jón Ragnar
Versla meira þar en í Byko/Húsasmiðjuni

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 13:21
af Sallarólegur
beatmaster skrifaði:Hvernig er svo stemmningin fyrir Bauhaus núna rúmum 2 árum seinna? :-k
Rosalega góð verð og ágætar vörur - en getur verið mjög erfitt að finna starfsfólk, eins og í hinum verslununum.
Ég boycotta Húsa og Byko algerlega og versla bara við Bauhaus.

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 14:22
af rapport
Sallarólegur skrifaði:
beatmaster skrifaði:Hvernig er svo stemmningin fyrir Bauhaus núna rúmum 2 árum seinna? :-k
Rosalega góð verð og ágætar vörur - en getur verið mjög erfitt að finna starfsfólk, eins og í hinum verslununum.
Ég boycotta Húsa og Byko algerlega og versla bara við Bauhaus.
Sammála, Byko og Húsasm. fyrirgerðu rétti sínum með þessu samráði, ég kíki alltaf fyrst í múrbúðina samt áður en ég fer í Bauhaus... oftast samt bara til að friða samviskuna því égveit að Bauhaus gengu nærri mikið af íslenskum birgjum sbr. aðfarir Haga á markaðinum...

Sem er samt ekkert slæmt, fyrirtæki eiga ekki að verða rík á því að vera með mikla álagningu sem milliliðir...

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 15:41
af depill
Já ég neita líka að versla við Húsa og Byko. Versla stundum í Múrbúðinni, en mér finnst hreinlega vörunar sem eru í Bauhaus oft betri. S.b.r málning sem ég keypti í múrbúðinni og hún var ekki velþekjandi, málaði fjandans 4 umferðir með henni, var að verða geðveikur. En bara 2 með Bauhaus málningunni sem var @ the end of the day ódýrari ( afþví ég notaði minna ).

En ég fíla allavega Bauhaus, nýbúinn að parketleggja, verðið þeirra var með því betra og gæðavara. Mér finnst reyndar oftast lítið mál að fá aðstoð, hringi bara þessari bjöllu og fæ venjulega aðstoð innan 2 - 3 mín þegar ég hef verið þarna.

EDIT: Eini gallinn við Bauhaus er símkerfið þeirra. Hafið þið prófað að hringja þarna ? Þetta er lengsti IVR sem ég hef lent í á Íslandi.

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 16:47
af Meso
Og vefsíða bauhaus er líka glötuð.

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 18:33
af depill
Sem mér finnst svo magnað vegna þess að móðurfyrirtækið er ágætt
http://www.bauhaus.dk/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 18:57
af Minuz1
Keypti 18v, 4A, lithium batterý, hleðsluvél með höggi frá bosch á 24 þús.
Sbr vél kostar 40+ annars staðar.

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 20:02
af GuðjónR
depill skrifaði:EDIT: Eini gallinn við Bauhaus er símkerfið þeirra. Hafið þið prófað að hringja þarna ? Þetta er lengsti IVR sem ég hef lent í á Íslandi.
Úff, eitt orð; hræðilegt!
Svo nærðu ekki sambandi og þá byrjar allt ferlið upp á nýtt!!

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 20:17
af Baraoli
GuðjónR skrifaði:Sáuð þið fréttirnar á RUV? fólk gisti í tjöldum í nótt fyrir utan búðina! hahahaha!!!
Hvað er í gangi?
2% af þjóðinni mætti á opnun "Byggingarvöruverslunar" for crying out loud!
Það var ekki verið að opna Tívolí eða Disney Land. Það var verið að opna byggingavöruverslun!!!!

Sæi í anda 6 milljón ameríkana tjalda fyrir utan nýja Wallmart verslun, svona ef við leikum okkur af hlutföllum.

Hahaha fyndið að sjá þetta núna.. en já ég var einn af þeim fjórum sem ''tjölduðu'' fyrir utan. hahaha þetta var nú bara fyndin skyndi ákvörðun hjá félögunum. slóum upp tjald og fengum okkur kaldan og biðum hlæjandi eftir að pressan myndi gleipa þetta hehe :fly

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 20:17
af jonsig
depill skrifaði:Já ég neita líka að versla við Húsa og Byko. Versla stundum í Múrbúðinni, en mér finnst hreinlega vörunar sem eru í Bauhaus oft betri. S.b.r málning sem ég keypti í múrbúðinni og hún var ekki velþekjandi, málaði fjandans 4 umferðir með henni, var að verða geðveikur. En bara 2 með Bauhaus málningunni sem var @ the end of the day ódýrari ( afþví ég notaði minna ).

En ég fíla allavega Bauhaus, nýbúinn að parketleggja, verðið þeirra var með því betra og gæðavara. Mér finnst reyndar oftast lítið mál að fá aðstoð, hringi bara þessari bjöllu og fæ venjulega aðstoð innan 2 - 3 mín þegar ég hef verið þarna.

EDIT: Eini gallinn við Bauhaus er símkerfið þeirra. Hafið þið prófað að hringja þarna ? Þetta er lengsti IVR sem ég hef lent í á Íslandi.
Viss um að þú hafir ekki bara keypt grunn ?

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 21:27
af lukkuláki
jonsig skrifaði:

Það er bara vel þekkt staðreynd að ódýr málning er alltaf drasl en hún þarf ekki að vera fokdýr til að vera nógu góð.
Málaði pallinn hjá mér í sumar ofl. og BYKO var með ódýrasta Olíu Kjörvarann og pallaolíuna hún var alveg 1000 kr. dýrari í Bauhaus í 4 ltr. fötu. og ég þurfti nokkrar.
Keypti handklæðaofn í Bauhaus sem var mörg þúsundum króna ódýrari þar en allstaðar annarr staðar sem ég gáði þannig að það er allur gangur á þessu.

Ég geri hiklaust verðkönnun áður en ég ræðst í að kaupa eitthvað

Fer stundum í Bauhaus að skoða það er svo margt til þar sem er ekki að sjá hjá hinum en lítill fugl sagði mér að það væri tap upp á milljónir á mánuði hjá þeim.

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 22:02
af jonsig
Spurning hvort það sé hægt að miða við byko eða húsasmiðjuna yfir höfuð , handónýtar keðjur .

Þetta með lampana er það sem verslunnarrekendur kalla "bait" þetta er gert í fölsku yfirskini , til að blekkja ykkur rollurnar um að þarna séu hagstæð verð .

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fim 18. Sep 2014 22:16
af Squinchy
Sallarólegur skrifaði:
beatmaster skrifaði:Hvernig er svo stemmningin fyrir Bauhaus núna rúmum 2 árum seinna? :-k
Rosalega góð verð og ágætar vörur - en getur verið mjög erfitt að finna starfsfólk, eins og í hinum verslununum.
Ég boycotta Húsa og Byko algerlega og versla bara við Bauhaus.
This!

Fer sjúklega í mig

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fös 19. Sep 2014 14:53
af Jón Ragnar
GuðjónR skrifaði:
depill skrifaði:EDIT: Eini gallinn við Bauhaus er símkerfið þeirra. Hafið þið prófað að hringja þarna ? Þetta er lengsti IVR sem ég hef lent í á Íslandi.
Úff, eitt orð; hræðilegt!
Svo nærðu ekki sambandi og þá byrjar allt ferlið upp á nýtt!!

Sé það að ég þarf að selja þeim símkerfi og nýja rödd :megasmile

Re: Bauhaus opnar á laugard

Sent: Fös 19. Sep 2014 15:40
af Sallarólegur
Djöfull er ég að fýla stemninguna í þessum þræði.

Það er ótrúlegt hvað þetta samráð Byko/Húsa er augljóslega búið að vera í gangi lengi - og er enn við lýði. Bauhaus getur í mjög mörgum tilfellum boðið upp á betri eða sambærilegar vörur á lægra verði.