Síða 3 af 4
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Sun 15. Jan 2012 22:41
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:FLYTJUM Í VIÐEY OG GERUM ÞAÐ AÐ OKKAR EIGIN RÍKI!
Vaktey:
Forseti: GuðjónR
Fangelsismálastjóri/Bouncer: Klemmi Clamps
Gæðastjóri: Appel
Fjármálaráðherra: biturk
Hæstaréttardómari: Zedro
Problem fixed?
Ég er til....en hvað ætlar þú að gera? :sofa
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Sun 15. Jan 2012 22:45
af Klaufi
GuðjónR skrifaði:
Ég er til....en hvað ætlar þú að gera? :sofa
Ég gæti sagt þér það, en þá þyrfti ég að koma þér í kistu..
:drekka
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Sun 15. Jan 2012 22:50
af GuðjónR
hehehehehe...okay...don't wanna know!
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Sun 15. Jan 2012 22:52
af urban
Klaufi skrifaði:FLYTJUM Í VIÐEY OG GERUM ÞAÐ AÐ OKKAR EIGIN RÍKI!
Vaktey:
Forseti: GuðjónR
Fangelsismálastjóri/Bouncer: Klemmi Clamps
Gæðastjóri: Appel
Fjármálaráðherra: biturk
Hæstaréttardómari: Zedro
Problem fixed?
hey má ég vera Hirðfífl ?
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Sun 15. Jan 2012 22:58
af Klaufi
urban skrifaði:Klaufi skrifaði:FLYTJUM Í VIÐEY OG GERUM ÞAÐ AÐ OKKAR EIGIN RÍKI!
Vaktey:
Forseti: GuðjónR
Fangelsismálastjóri/Bouncer: Klemmi Clamps
Gæðastjóri: Appel
Fjármálaráðherra: biturk
Hæstaréttardómari: Zedro
Fíflhirðir: Urban
Problem fixed?
hey má ég vera Hirðfífl ?
Þetta hentar betur..
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 10:06
af GuðjónR
Fús og Fyrirlitning hf.
Guðmundur Andri er alveg með þetta á hreinu.
Gaman að lesa það sem hann skrifar.
Greinin hans.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 12:42
af vesley
GuðjónR skrifaði:Fús og Fyrirlitning hf.
Guðmundur Andri er alveg með þetta á hreinu.
Gaman að lesa það sem hann skrifar.
Greinin hans.
Flott grein, og fær mann jafnvel til að pæla í því hvort þetta tíðkast í fleiri hráefnum en saltinu... Þótt ég hef ekki tekið eftir neinu þess háttar og vinn ég í einni af stærri matvælaverksmiðjum landsins. ( sem notaði ekki þetta salt hinsvegar)
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 13:47
af GuðjónR
vesley skrifaði:GuðjónR skrifaði:Fús og Fyrirlitning hf.
Guðmundur Andri er alveg með þetta á hreinu.
Gaman að lesa það sem hann skrifar.
Greinin hans.
Flott grein, og fær mann jafnvel til að pæla í því hvort þetta tíðkast í fleiri hráefnum en saltinu... Þótt ég hef ekki tekið eftir neinu þess háttar og vinn ég í einni af stærri matvælaverksmiðjum landsins. ( sem notaði ekki þetta salt hinsvegar)
Sammála, ég er mikið búinn að hugsa það undanfarin ár hvaða óþverri er í matnum okkar. Ekki eðlilegt hvað allir eru að verða feitir.
Skoðið myndbönd sem vöru tekin fyrir 30 árum eða fyrr. Þá voru allir grannir, og þá var hálf þjóðin ekki í ræktinni, uppá fjöllum eða í spinning.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 14:09
af Daz

Þá mögulega át fólk minna, ekkert af þessum tilbúna mat svo maturinn var mögulega næringarríkari og alveg örugglega ekki jafn auðvelt að vera sí étandi. Þá var ekki verið að glápa á sjónvarp og hanga í tölvu alla daga. Í það minnsta eru þó nokkuð margir líklegri þættir að stuðla að fitu þjóðarinnar en viðbætt innihaldsefni í mat.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 14:35
af GuðjónR
Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:

Já, fólk borðaði minna. Skammtarnir hafa stækkað og kyrrsetan er meiri. En ég er nokkuð viss um "iðnaðar"-bætiefni í matvælum eiga sinn part í þessu.
Það eru tölvur og sjónvörp í Asíu, samt gengur offitu faraldurinn ekki svona hratt yfir þar.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 14:46
af Daz
GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:

þeir borða líklega minna af pitsum og hamborgurum en við vestrænu þjóðirnar, sem og innbyrða mikið magn af MSG. Kannski vantar okkur meira MSG?
Annars er ég nokkuð viss um að það sé hægt að búa til graf sem tengir aukinn frítíma við aukna offitu (frítími sem er þá afleiðing minni heimilsstarfa og styttri vinnuviku). Sem og álíka graf sem tengir kyrrsetustundir (tölvu+sjónvarpsgláp) við offitu.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 15:39
af GuðjónR
Já pottþétt, minni hreyfing, meira át og óhollara fæði.
Enda borðar fólk meiri "iðnaðar" mat, þ.e. unnar matvörur, þar á meðal MSG en það gerði í gamla daga.
Uppistaða fæðunnar í Asíu eru grjónin.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 15:48
af Daz
GuðjónR skrifaði:
Uppistaða fæðunnar í Asíu eru grjónin.
Og MSG. (og soyaafurðir.) (Ég er sprenglærður átfræðingur með Asíu sem sérgrein, augljóslega.)
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 15:58
af GuðjónR
Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:
Uppistaða fæðunnar í Asíu eru grjónin.
Og MSG. (og soyaafurðir.) (Ég er sprenglærður átfræðingur með Asíu sem sérgrein, augljóslega.)
hahaha....ég er álíka fróður
Samt, maður er farinn að hafa áhyggjur af því hvað það er sem fyrirtæki komast upp með að selja manni. Það var talað um að iðnaðarsaltið væri ekkert verra salt þannig séð, bara geymt úti í stað inni. Og hvaða máli skiptir þó að fuglar skíti ofan í sílóin, nú þegar poki með matarsalti dettur í gólfið og rifnar þá er saltinu ekki hent, því er sópað upp og það selt sem iðnaðarsalt.
Huggulegt.
Það er ekki langt síðan að það var þáttur "Landinn" þar sem frystihús var heimsótt, þar var framleiðslustjórinn voðalega kátur þeir voru búnir að hanna nýja aðferð við að þyngja fiskinn. Þeir tóku nefninlega gúanóið leystu það upp og sprautuðu aftur í fiskinn.
Fullkomlega löglegt!
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:00
af lukkuláki
Man einhver annar en ég eftir því þegar maður fór í sjoppuna og fékk sér litla kók í gleri og prins pólo eða hríspoka kannski svona einu sinni í viku ?
Núna gera sumir þetta daglega, alla daga ! og 1 lítil kók (25ml.) er ekki nóg unglingar eru að fara með 1 - 2 lítra á DAG og nammið er í kílóavís í hverri viku.
Þessi inntaka á sykri eða HFCS er stórhættuleg hvenær ætlar fólk að vakna og sjá hlutina ? Þetta stefnir í skelfilegt ástand á heilsu almennings.
Mjólkursamsalan notar í dag meiri sykur í sínar vörur en Vífilfell (Er mér sagt) jógúrt, skyr og aðrar MS vörur eru svo stappaðar af sykri að það er argasti viðbjóður.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:01
af Daz
Þá er þessi mynd alltaf klassísk
Nei, þetta er ekki
jarðaberjaís.
Ef maður vill vera viss hvað maður er að borða, þá er víst best að kaupa það ferskt og með sem fæstum milliliðum. Á móti þá má maður ekki tapa sér í brjálæði, það hlýtur alltaf að vera til einhver gullinn meðalvegur.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:03
af dori
Það er held offita sé miklu meira vandamál hjá fólki sem man eftir því þegar maður fékk sér 1 kók í gleri á viku en krökkunum í dag. Hins vegar virðist líka vera rosalega mikil fylgni milli offitu foreldra og feitra krakka (þetta er allavega tilfinning sem ég hef, verð að viðurkenna að ég hef ekki gert neina rannsókn á þessu). Sem er svo sem skiljanlegt, ef það er alltaf verið að mönsa í kringum þig þá hlýtur þú að sækja í að fá að vera með.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:27
af GuðjónR
lukkuláki skrifaði:Man einhver annar en ég eftir því þegar maður fór í sjoppuna og fékk sér litla kók í gleri og prins pólo eða hríspoka kannski svona einu sinni í viku ?
Núna gera sumir þetta daglega, alla daga ! og 1 lítil kók (25ml.) er ekki nóg unglingar eru að fara með 1 - 2 lítra á DAG og nammið er í kílóavís í hverri viku.
Þessi inntaka á sykri eða HFCS er stórhættuleg hvenær ætlar fólk að vakna og sjá hlutina ? Þetta stefnir í skelfilegt ástand á heilsu almennings.
Mjólkursamsalan notar í dag meiri sykur í sínar vörur en Vífilfell (Er mér sagt) jógúrt, skyr og aðrar MS vörur eru svo stappaðar af sykri að það er argasti viðbjóður.
Já þetta er SVAKALEGT!
Í denn þegar ég var að alast upp þá var það prins og kók 1-2x yfir allt sumarið. Ekki neinir nammidagar aldrei neitt svona.
Það er búið að eyða hundruðum milljóna ef ekki milljörðum í markaðssetningu mjólkurvara undanfarin ár/áratugi, þar sem "mjólk er góð" og mjólkurvörur eru hollar.
Það var viðtal við Forstjóra Mjólkursamsölunnar í dag, þar sem hann segist ekki kunna að lesa og starfsfólkið hans kann það ekki heldur.
A.m.k. fattaði engin að um iðnaðarsalt var að ræða, hann bætti svo gráu ofan á svart með því að segja að saltið hafi bara verið notað í skamma stund og í tvær (óupplýstar) vörutegundir af fimmhundruð.
Ég spyr þá bara, hvaða salttegund var notuð í hinar 498 tegundirnar? Og af hverju að kaupa spes salt fyrir þessar tvær vörutegundir?
I smell :troll
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:36
af Daz
Af því að þeir nota ekki salt í skyr.is og drykkjarjógúrt kannski?
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:47
af GuðjónR
Daz skrifaði:Af því að þeir nota ekki salt í skyr.is og drykkjarjógúrt kannski?
Er ekki notað salt í flestar vörur? ... annars veit ég það ekki
Ölgerðin harmar það að viðskiptavinir hennar hafi að "ósekju"verið dregnir inn í umræðuna, þeir eru ekkert að harma það að fólkið hafi keypt afurðir framleiddar með ólöglegum efnum.
Svo var eitt sem fékk mig til að brosa, Eðalfiskur ehf segist ekkert hafa notað saltið í matavælagerð, bara notað það til að bræða klakann á bílastæðinu
http://visir.is/olgerdin-harmar-ad-fyri ... 2120119260" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 16:54
af tlord
Það á að taka HART, HART á þessu. Þessir gaurar vissu alveg hvað var að gerast. ÞETTA ERU EKKI MISTÖK. Þeir voru að spara einhverja aura með því að gera þetta. Svívirðilegt..
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 17:22
af pattzi
lukkuláki skrifaði:Man einhver annar en ég eftir því þegar maður fór í sjoppuna og fékk sér litla kók í gleri og prins pólo eða hríspoka kannski svona einu sinni í viku ?
Núna gera sumir þetta daglega, alla daga ! og 1 lítil kók (25ml.) er ekki nóg unglingar eru að fara með 1 - 2 lítra á DAG og nammið er í kílóavís í hverri viku.
Þessi inntaka á sykri eða HFCS er stórhættuleg hvenær ætlar fólk að vakna og sjá hlutina ? Þetta stefnir í skelfilegt ástand á heilsu almennings.
Mjólkursamsalan notar í dag meiri sykur í sínar vörur en Vífilfell (Er mér sagt) jógúrt, skyr og aðrar MS vörur eru svo stappaðar af sykri að það er argasti viðbjóður.
Þetta er náttúrlega orðið rugl hvernig þróunin í nammi og gosi hefur orðið .
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Mán 16. Jan 2012 23:23
af braudrist
Hvernig væri þá að lækka fokking verðin á ávöxtum, grænmeti og öllu þessum holla mat.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Þri 17. Jan 2012 00:39
af appel
braudrist skrifaði:Hvernig væri þá að lækka fokking verðin á ávöxtum, grænmeti og öllu þessum holla mat.
Fokking ya!
Mér hefur alltaf fundist merkilegt að óunninn sykur (þessi brúnleiti) sé dýrari en þessi unni hvíti sykur. Maður hefði haldið að meiri vinna, tíma og orka hefði farið í að framleiða hvíta sykurinn heldur en brúnleita, enda kemur hann bara nánast beint af akrinum.
Þetta á við um margar vörur, hveiti, hrísgrjón, o.fl.
Meginreglan er einfaldlega sú að því minni vinnsla því hollara.
Ég hata ekkert meira en stjórnvöld. En hvað þennan matvælaiðnað varðar þá finnst mér hann idjótískur. Hví kostar ruslmatur svona lítið og er svona aðgengilegur, á meðan hollur matur er dýr og óaðgengilegur? Stundum finnst mér að það þurfi að snúa þessu algjörlega við, og þá er spurning hvort stjórnvöld geri slíkt með handafli, þ.e. lagasetningu.
But, the slippery slope... þá endum við með allskonar boð og bönn, neyslustýringu dauðans.
Held að fólk þurfi bara að ranka við sér og éta rétt. Stjórnvöld ættu að geta stutt forvarnarstarf í þeim tilgangi, reynt að auka vitund fólks um hvað það á að éta og hvað ekki. Það er til hollur matur, en hann er ekki auðsjáanlegur.
Re: Til hvers er Matvælastofnun ?
Sent: Þri 17. Jan 2012 00:55
af Gunnar
tlord skrifaði:Það á að taka HART, HART á þessu. Þessir gaurar vissu alveg hvað var að gerast. ÞETTA ERU EKKI MISTÖK. Þeir voru að spara einhverja aura með því að gera þetta. Svívirðilegt..
einhverja aura?
þetta voru 13 ár. allveg öruglega nokkrar milljónir.