Síða 3 af 3

Re: Toll Skratti!!!!!!!!!

Sent: Fös 13. Jan 2012 18:48
af urban
inservible skrifaði:Þetta minnir mig allt saman á þegar að ég var rukkaður fyrir "eyðingargjald" á fartölvu batteríi sem ég flutti inn. Veit ekki alveg hvernig það hangir allt saman en að rukka fyrir eyðingu áður en því er eytt finnst mér mjög spes. Ekki veit ég til þess að mamma hafi verið rukkuð um líkkistu þegar hún fæddi mig.

það er vegna þess að eyðingargjöldin myndu aldrei koma fram annars.
menn myndu láta rafhlöðurnar hverfa með heimilissorpinu eða einhverju öðru ef að þeir þyrftu að borga fyrir að skila þeim inn

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Fös 13. Jan 2012 19:05
af AciD_RaiN
En spáiði í því. Það er margfalt dýrara að gera þessar tollskýrslur og halda þessu við en við erum að borga fyrir vörurnar og restina borgum við með launaskatti. Spes...

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 00:52
af fremen
Mann svíður alltaf aðeins í taðgatið eftir að maður fær sendar vörur hingað heim. Ég fékk senda vöru frá BNA fyrir 2 árum og af því ég keypti svo mikið þá borgaði hann sendingarkostnaðinn fyrir mig. Ég þurfti samt að greiða VSK af þeim sendingarkostnaði þó ég hafi ekki greitt hann sjálfur. :)

En það er auðvitað rétt að maður á að borga VSK af bæði vöruverði og sendingarkostnaði, það er verið að verja söluaðila í landinu, þeir borga VSK af öllu.

Svo gerist það alveg jafnvel að maður sé ekkert rukkaður. Ég keypti kjól fyrir konuna hjá Karen Millen í UK og lét systir félaga míns senda hann hingað (KM sendir ekki til IS) og hann kom heim að dyrum án þess að einhver þyrfti að borga eitt né neitt.. 30k kjóll og var ekki merktur sem gjöf.

Mig minnir að ég hafi séð einhverntíman að það væri 15% eða 20% vörugjald á tölvuíhlutum, er það rangt hjá mér? Minnir að ég hafi séð það á heimasíðunni en þegar ég talaði við þjónustufulltrúa hjá tollinum þá fékk ég þær upplýsingar að það væri yfirleitt bara VSK greiddur af íhlutum en ekki vörugjald.

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 01:43
af bubble
ég á heima í bna er ekki rukaður fyrir neit jafnvel þótt að ég sé að panta untan landar...sem gerist ekki oft en samt...bara borgavöru síðan sentingar kostnað

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 01:47
af DJOli
Er ég bara svona heppinn þegar ég panta að utan?

hef pantað allskyns aukahluti á bílinn fyrir pabba og aldrei þurft að borga meira en kannski 12þús í mestalagi fyrir kostnað (annan en kostnað vörunnar).

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 02:52
af dori
fremen skrifaði:Mann svíður alltaf aðeins í taðgatið eftir að maður fær sendar vörur hingað heim. Ég fékk senda vöru frá BNA fyrir 2 árum og af því ég keypti svo mikið þá borgaði hann sendingarkostnaðinn fyrir mig. Ég þurfti samt að greiða VSK af þeim sendingarkostnaði þó ég hafi ekki greitt hann sjálfur. :)
Það eru svik. Þú átt ekki að þurfa að borga nema af því sem þú virkilega greiðir fyrir vöruna (komin til þín).

Ég hef annars fengið pakka sem var með frírri sendingu og það stóð ekki í innihaldslýsingunni að það hefði verið eitthvað sendingargjald. Svo bætti tollurinn einhverju rúmlega $10 sendingargjaldi sem þeir annað hvort áætluðu eða stóð í einhverjum fylgiskjölum sem ég fékk ekki í hendurnar. Ég man ekki nákvæmlega en ég man að þetta var ~500 kr. of mikið sem ég borgaði útaf þessu sem var ~1/6 af heildargjöldum. Ótrúlega var maður svekktur...

Svo hefur maður líka verið að panta inn litla hluti sem maður þarf *strax* (einhver tengi og tölvuvarahluti) og kosta slikk. Tengi á $5 dollara og minna. Það að það sé eitthvað de-facto tollmeðferðargjald á svoleiðis er útí hött.

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 11:05
af kfc
Ef við værum í ESB þá þyrtum við bara að borga VSK af vörum sem væru pantaðar innan ESB. Einginn tollur.

Re: Toll Skratti [leyst mál eða hvað]

Sent: Lau 14. Jan 2012 12:25
af methylman
kfc skrifaði:Ef við værum í ESB þá þyrtum við bara að borga VSK af vörum sem væru pantaðar innan ESB. Einginn tollur.
Rangt ef við værum í ESB þá eru allar vörur sem keyptar eru innan ESB fluttar inn án allra afskrifta skattyfirvalda (tollstjóra) virðisaukinn er greiddur í landinu sem þú kaupir frá. En þó eru til undantekningar frá þessari reglu ESB og þá helst varðandi skráningu á bílum, danir t.d. eru með meiri gjöld á bílum en aðrar þjóðir.


Heimild: http://evropuvefur.is/svar.php?id=60141" onclick="window.open(this.href);return false;