Síða 3 af 11

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Sun 03. Nóv 2013 22:56
af Xovius
MrIce skrifaði:Spurning um að slá saman nokkrir í box og láta það vinna sig up fyrir alla? :P Vaktin.is BTCM :P
Svo er það líka butterflylabs.com

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Sun 03. Nóv 2013 23:24
af Oak
Mikið dýrara system sýnist mér...

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 01:13
af MrIce
Xovius skrifaði:
MrIce skrifaði:Spurning um að slá saman nokkrir í box og láta það vinna sig up fyrir alla? :P Vaktin.is BTCM :P
Svo er það líka butterflylabs.com

http://www.bitcoinx.com/profit/" onclick="window.open(this.href);return false;

kemur ekki út í profit ever með þessu dæmi, ekki nema þú farir í einhverja geggjun kanski..

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 06:57
af Oak
Hardware break even 20 days
Net profit first time frame 8145.13 USD

Þetta fæ ég út miðað við græjuna sem ég bendi á.

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 07:46
af JohnnyRingo
Ég á nú einhvernveginn erfitt með að trúa því að með því að kaupa miner fyrir 6300 Dollara að maður sé að fara græða 9749.86 USD á mánuði...

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 09:23
af playman
Oak skrifaði:Hardware break even 20 days
Net profit first time frame 8145.13 USD

Þetta fæ ég út miðað við græjuna sem ég bendi á.
Það er líka spurning hvenær þú færð þessa græju líka, að mér best vitandi
þá eru þeir ekki einusinni farnir að shipa út til kúnna, bara 1 eða 2 eða eithvað álíka sem eru búnnir að
fá vélar.
Einnig að það er mjög langur biðlisti eftir vélum, og shipping time lengist bara og lengist.
Haugur af fólki er að reyna að fá endurgreiðslu því að þeir séu ekki að standa við sitt.

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 20:48
af Oak
Það er hins vegar allt annað mál :)

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 21:41
af MrIce
Samt allveg pæling, þegar þessir gæjar byrja að senda út og fá actually gott reputation... splæsa saman vaktarar á einn kassa ? Profit for ALL the nerds! :guy

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 04. Nóv 2013 22:45
af Stuffz
tdog skrifaði:Krónur eru líka notaðar við viðskipti með ólöglegum varningi, skil bara ekkert í því að hér sé ekki búið að taka upp evru.
hehe Evran er nú engin töfralausn og það er ekkert að fara að gerast án aðildar síðast þegar ég vissi, ef við förum þarna inn eitthverntímann þá myndi ég helst vilja kjósa að gera það ekki með buxurnar á hælunum og skottið á milli lappanna, ég held það sé ekki beint arfleifð sem maður sem Íslendingur getur verið stoltur af, þar fyrir utan eru efnahagssveiflur á meginlandinu ekkert endilega þær sömu og hér og Seðlabanki Evrópusambandsins er ekki að fara að móta stefnu sína og stýrivexti eftir hvað hentar 300K manna kústaskápi í Evrópublokkinni, við myndum bara verða eitthvað ölmususker þarna uppí horni sem svo sést ekki einusinni á þessum gjaldmiðli Evru þeirra meginlandsmanna.

Ég held Jón Sigurðsson og aðrir Fjölnismenn sem börðust fyrir okkar sjálfstæði og lifðu ekki nógu lengi til að sjá það verða að veruleika myndu sjálfsagt snúa sér í gröfinni ef þeir vissu hve sumir landa þeirra eru mikið reiðubúnir að gefa þetta allt frá sér eftir aðeins 70 ár, ég segi 70 ár því er ég best veit þá með réttu ætti 1 Desember 1943 að hafa verið Þjóðhátíðardagur Íslendinga, en það var beðið með það í 200 daga afþví tímasetningin þótti óheppileg fyrir ákveðna aðila sem voru í stríðsbrölti á sama tíma og hafa lítið slegið af síðan þá.

Varðandi krónuna þá hefur hún alltaf verið það sem hún er smár gjaldmiðill í alla þessa áratugi og ekkert nýtt við það enda bara efnahagslegt verkfæri, það er víst óheillavænlegt að níða af sjálfum sér skóinn á meðan maður gengur í honum, hann fer á eldinn að endingu en á meðan á ferðinni stendur þá þarf hann að duga, það sem klikkaði þarna á undan voru þeir sem stjórnuðu þessu verkfæri, undir forystu flokka sem núna eru að njóta annars tækifæris til að rétta hlutina hvað svo sem verður úr því.

Annars aftur að bitcoin, ætli RLS sé að tala um hann í þessarri skýrslu?
Mynd

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Þri 05. Nóv 2013 00:31
af bigggan
Við gefum ekki frelsið okkar við inngöngu ESB, það er samvinna við Evrópu sem þetta er, við missum ekki alþingið, við getum sagt nei við mörgum lögum sem er sett inn með nei frá stjórnamenn eða þjóðaratkvæði (sem Írland gerir mikið), en það er reyndar einfaldara að seiga nei við lögum sem kemur gegnum EES, en ESB.
En þegar land gengur inn i ESB þá á hun lika möguleika að breyta og hafa áhrif á stefnu Evrópa. Það að hafa sameiginleigur seðlabanki i Evrópu sé ég ekki sem mikill missir.
Tollar frá Evrópu fellur frá og það er einfaldara að mynda fríverslunarsamningana þegar margir þjóðir teljast sem einn. Td samningur sem þau gera með Kanada sem við missum af.

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Fös 08. Nóv 2013 00:30
af hkr
Bitcoin bubble nr. 33423 í gangi núna, er í kringum $300 núna og hefur því nánast tvöfaldast á síðustu 30 dögum:
http://blockchain.info/charts/market-pr ... 0&address=" onclick="window.open(this.href);return false;

Áhugavert að á nánast nákvæmlega sama tíma var inputs.io hakkað og um 4100 bitcoins stolið, á núverandi gengi er það um 1.2 milljón USD, eða 150 m. ISK :crazy

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Fös 08. Nóv 2013 10:30
af MrIce
hkr skrifaði:Bitcoin bubble nr. 33423 í gangi núna, er í kringum $300 núna og hefur því nánast tvöfaldast á síðustu 30 dögum:
http://blockchain.info/charts/market-pr ... 0&address=" onclick="window.open(this.href);return false;

Áhugavert að á nánast nákvæmlega sama tíma var inputs.io hakkað og um 4100 bitcoins stolið, á núverandi gengi er það um 1.2 milljón USD, eða 150 m. ISK :crazy
o.o Goddamn, einhverjir voru að næla sér í pening :S

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 18. Nóv 2013 22:51
af donzo
http://www.overclock.net/t/1443733/upda ... s-tops-700" onclick="window.open(this.href);return false;

Holy déskotans shit, afhverju er maður ekki að investa í bitcoins :/

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 18. Nóv 2013 23:05
af halldorjonz
sorglegt. horfði fram hjá þessu í byrjun, horfði framhjá þessu seinna, horfði framhjá þessu um daginn þegar þetta var í 200$ þegar þetta fór í 300$ sagði eg við vinminn vá hvað maður er vitlaus að hafa ekki keypt þegar þessi frétt kom út, svo stór auglýsing.. síðan 10 dögum seinna fer þetta í 700$ frá því hahaha þvilika ruglið !!

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 18. Nóv 2013 23:10
af GullMoli
Djöfulsins klikkun.. kaupa bitcoins fyrir 500þús þegar hún var á $200 og maður væri kominn með 1 milljón í gróða!

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mán 18. Nóv 2013 23:36
af intenz
Já djöfull sér maður eftir því að hafa ekki fjárfest í nokkrum svona á sínum tíma. :(

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Þri 19. Nóv 2013 00:41
af chaplin
Ég las að síðan 31 október hefur verðmæti Bitcoin tvöfaldast og hefur þessi gjaldmiðill tekið margar dýfur í gegnum tíðina svo það er kannski aldrei of seint að fjárfesta í Bitcoins. ;)

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Þri 19. Nóv 2013 01:15
af Sallarólegur
Ef ég ætti að skjóta á ástæðuna tel ég að hún sé að Bitcoin sé að verða gjaldgengur í undirheimunum, t.d. í fíkniefnaviðskiptum, sem velta þúsundum milljarða á ári. Sé fyrir mér að þetta geti hækkað ennþá meira ef svo virðist vera.

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Þri 19. Nóv 2013 03:19
af chaplin
Á einni viku.

high: 900.98
low: 365.00

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Fös 22. Nóv 2013 18:25
af halldorjonz
Veit samt eitthver hvort það sé hægt að kaupa svona í dag frá Íslandi? Er búinn að vera reyna og reyna að finna síður, sem þetta gæti hugsanlega gengið upp í gegnum, en það er greinilega bara ekki séns að millifæra beint með masteracrdi og síðurnar sem trading síðurnar leyfa eru ekki að leyfa mastercardi að adda á sig

Þannig ég var að spá, er eitthver möguleiki að fara upp í banka og gera "International Wire transfer" eins og mér sýnist vera vinsælasta dæmið þarna, en þá er maður nátturulega að senda eins og 1000$ út
og er eitthver banki á Íslandi í dag sem leyfir það útaf þessu heimsku gjaldeyrishöftum? Geta Íslendingar bara horft á þetta, ekki joinað ?? :catgotmyballs
(PS búinn að vera 2 daga að reyna finna eitthvað annað sem gæti virkað annað en þetta, og var að verða gráhærður á þessu.. sýnist þetta vera eini möguleikinn)

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mið 27. Nóv 2013 00:19
af Hazhir
Hægt að fjárfesta í gegnum plus500.is
Þarft að vera með Paypal reikning til að greiða inn á +500

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mið 27. Nóv 2013 00:34
af 121310
halldorjonz skrifaði:Veit samt eitthver hvort það sé hægt að kaupa svona í dag frá Íslandi? Er búinn að vera reyna og reyna að finna síður, sem þetta gæti hugsanlega gengið upp í gegnum, en það er greinilega bara ekki séns að millifæra beint með masteracrdi og síðurnar sem trading síðurnar leyfa eru ekki að leyfa mastercardi að adda á sig

Þannig ég var að spá, er eitthver möguleiki að fara upp í banka og gera "International Wire transfer" eins og mér sýnist vera vinsælasta dæmið þarna, en þá er maður nátturulega að senda eins og 1000$ út
og er eitthver banki á Íslandi í dag sem leyfir það útaf þessu heimsku gjaldeyrishöftum? Geta Íslendingar bara horft á þetta, ekki joinað ?? :catgotmyballs
(PS búinn að vera 2 daga að reyna finna eitthvað annað sem gæti virkað annað en þetta, og var að verða gráhærður á þessu.. sýnist þetta vera eini möguleikinn)
Athugaðu:
https://www.virwox.com/index.php" onclick="window.open(this.href);return false;

og skoðaðu:
http://www.btcpedia.com/buy-bitcoins-wi ... edit-card/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mið 27. Nóv 2013 01:40
af halldorjonz
121310 skrifaði:

Var búinn að finna þetta með virvoxið, en þeir eru bara ótrúlegir lélegir með eitthvað 200$ cap per mánuð eða eitthvað fáranlegt í deposits.. annars væri það solid.

Tjékka á hinu, er búinn að vera gráhærður í meira en viku að reyna finna lausn á þessu.
Er búinn að finna eina ágæta lausn til að fá peninginn inn, verst er bara að með þeirri leið þá erum við að tala um total 14% fee eftir allt..
En það er ansi mikið farið í fee þá.. t.d. 500k verður að 430k + að maður fer í "high risk investment" þó ég vilji ekki meina að þetta sé það, en þó.

Skemmtilegt samt að segja frá því að það sem ég hefði fjárfest í þegar ég byrjaði að velta mér uppúr þessu er búið að 2 og 3 faldast í verði :|

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mið 27. Nóv 2013 01:44
af Klaufi
Bara að gamni, hefur einhver hérna fundið miner þessa dagana, sem borgar sig að kaupa?

Re: Bitcoin (330kr)

Sent: Mið 27. Nóv 2013 10:43
af starionturbo
Hefði maður keypt eins og 50 bitcoins í janúar á þessu ári og selt þá alla í dag væri maður 5.7 milljón krónum ríkari.

Eeeen ég hefði nú líklega eytt þeim í eitthvað ómerkilegt á leiðinni eins og t.d. newsbin áskrift eða eitthvað :)