Síða 3 af 3

Re: Einn bjór takk !

Sent: Þri 16. Ágú 2011 10:47
af KebabBob
Hitastýringin er bara 10A, og gæti því bara stjórnað einu elementi. Svo er líka spurning með hitanemann, hvort hann henti í 70-80 gráður í meskingunni. Það eru 2 element í fötunum sem ég sel. Tvö til að ná hita en eitt dugar til að viðhalda suðu.

Re: Einn bjór takk !

Sent: Þri 16. Ágú 2011 10:53
af Daz
Ok, frekar hugsað til að viðhalda gerjunarhitastiginu? Maður er að kynna sér hvað allar græjurnar gera, því augljóslega er maður græjunörd frekar en bruggnörd :D

Re: Einn bjór takk !

Sent: Þri 16. Ágú 2011 11:16
af FuriousJoe
Geturu reddað stýringu sem maður gæti bara stilt á 70-80 og svo boostað upp í suðu þegar þess þarf ?

Þarf maður ekki annars að standa yfir þessu og plögga í samband af og til, til að ná að halda réttum hita í meskingu ?

Re: Einn bjór takk !

Sent: Þri 16. Ágú 2011 11:20
af KebabBob
Algjör óþarfi að stinga í samband af og til ef maður einangrar fötuna vel með handklæðum til dæmis. Þá nær maður bara réttu hitastigi í byrjun og lætur þetta í friði í klukkutíma. Ég get reddað stýringum til að halda hitastiginu á öllum stigum málsins, þær eru bara aðeins dýrari en þær sem ég er með á síðunni. Líklega um 15-20þús pakki.

Re: Einn bjór takk !

Sent: Fös 19. Ágú 2011 20:44
af Snikkari
Djöfull eru Íslensku micro-brugghúsin að sækja í sig veðrið ..
Fyrst Lava, sem er svaðalegur Imperial stout .. svo þessi líka lungamjúki IPA (India Pale Ale) sem Úlfur er frá Brugghúsinu Borg.
http://www.ratebeer.com/beer/borg-brugg ... -3/138492/

Og þetta er allt að gerast eftir hrun ..

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 00:22
af Klaufi
Mig langar að byrja að brugga!

Mér sýnist að BIAB sé sniðugast.

Er helvíti heitur fyrir byrjendapakkanum frá brew.is, þó svo að maður geti nú útvegað þetta allt sjálfur..

Er einhver fróður til í að fara yfir ferlið?
Er að velta því fyrir mér hvort maður eigi að velja búnaðinn út frá því að geta automate-að ferlið síðar meir.

Og já, allar ráðleggingar fyrir byrjendur meira en velkomnar!

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 00:48
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:Mig langar að byrja að brugga!

Ég skal vera í vöruþróun og smökkun hjá þér. ;)

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 00:52
af worghal
Klaufi skrifaði:Mig langar að byrja að brugga!

Mér sýnist að BIAB sé sniðugast.

Er helvíti heitur fyrir byrjendapakkanum frá brew.is, þó svo að maður geti nú útvegað þetta allt sjálfur..

Er einhver fróður til í að fara yfir ferlið?
Er að velta því fyrir mér hvort maður eigi að velja búnaðinn út frá því að geta automate-að ferlið síðar meir.

Og já, allar ráðleggingar fyrir byrjendur meira en velkomnar!
hvar sæki ég um sem smakkari?

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 00:58
af vesley
Klaufi skrifaði:Mig langar að byrja að brugga!

Mér sýnist að BIAB sé sniðugast.

Er helvíti heitur fyrir byrjendapakkanum frá brew.is, þó svo að maður geti nú útvegað þetta allt sjálfur..

Er einhver fróður til í að fara yfir ferlið?
Er að velta því fyrir mér hvort maður eigi að velja búnaðinn út frá því að geta automate-að ferlið síðar meir.

Og já, allar ráðleggingar fyrir byrjendur meira en velkomnar!

Miðað við þá bjórbruggunar áhugamenn sem ég hef spjallað við þá er þetta alveg merkilega auðvelt.
Veit samt lítið sem ekki neitt um þetta sjálfur þótt ég hef spjallað við marga.
Kannski kominn tími til að fræða sig um þetta!

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 01:00
af Klaufi
Þið smakkarar:

Rukkið þið per klukkutíma eða eftir magni?

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 01:08
af worghal
Klaufi skrifaði:Þið smakkarar:

Rukkið þið per klukkutíma eða eftir magni?
þygg bara smakkið að launum :D

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 10:48
af KebabBob
Ég er með brew.is.. Ef þú ert með einhverjar sérstakar spurningar þá er ekkert mál að skjóta þeim á mig...

Þetta skjal sem ég skrifaði hefur líka reynst mörgum vel sem eru að byrja í brugginu
http://www.brew.is/files/BIAB.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;

Edit: Klúðraði linknum :)

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 11:00
af beggi90
Hef gert þrjá BeeCave frá brew.is og þeir verða bara betri með hverri lögun.
KebabBob skrifaði:Ég er með brew.is.. Ef þú ert með einhverjar sérstakar spurningar þá er ekkert mál að skjóta þeim á mig...

Þetta skjal sem ég skrifaði hefur líka reynst mörgum vel sem eru að byrja í brugginu
http://www.brew.is/files/biab.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
Fyrst þú ert hérna, hvað er í lagi að geyma humla lengi ókælda.
Keypti hvítan slopp í nóv og skellti bara gerinu í kæli ekki humlunum, fann aldrei tíma í des til að fara í þetta.

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 11:03
af KebabBob
beggi90 skrifaði:Fyrst þú ert hérna, hvað er í lagi að geyma humla lengi ókælda.
Keypti hvítan slopp í nóv og skellti bara gerinu í kæli ekki humlunum, fann aldrei tíma í des til að fara í þetta.
Ef þeir lykta enn vel þá er í lagi með þá. Fer aðeins eftir hvort pokinn hafi ekki verið vel lokaður og líka hvort það hafi verið eitthvað ljós á honum. Myndi giska á að þetta væri í lagi samt.

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 15:17
af GuðjónR
Klaufi skrifaði:Þið smakkarar:

Rukkið þið per klukkutíma eða eftir magni?
Èg skal drekka bjórinn þinn alveg ókeypis ;)

Re: Einn bjór takk !

Sent: Mán 07. Jan 2013 16:42
af Xovius
GuðjónR skrifaði:
Klaufi skrifaði:Þið smakkarar:

Rukkið þið per klukkutíma eða eftir magni?
Èg skal drekka bjórinn þinn alveg ókeypis ;)
Ég hlýt að vera miklu hæfari því ég kosta 10kr per bjór og ég er smakkari á ja.is :D