Síða 3 af 5
Sent: Lau 08. Maí 2004 18:39
af KinD^
hehe
Sent: Lau 08. Maí 2004 18:41
af ICM
pyro skrifaði:1. Tekið gríni
Rétt er það, en þið hinir kunnið heldur ekki að taka gríni, fyrir utan kanski Halanegra.
2. Tekið rökum
Er það eitthvað sem þið eruð duglegir við? Einu rökin sem þið færið eru af Inquirer og álíka slúður síðum.
3. Hugsað sjálfstætt
Ef ég væri ekki að hugsa sjálfstætt þá væri ég löngu búin að henda Windows vegna hóp þrýstings.
4. Viðurkennt að hann hafi rangt fyrir sér
Ekki meðan þið neitið að viðurkenna að Windows hentar betur til margra verka annara en í tölvuleiki og neitið að viðurkenna að það er til fólk sem vill fá bloat og þolir ekki menn eins og ykkur sem kalla stöðugt það sem því líkar við drasl útaf því að það sé of bloated þótt það keyrist jafnvel betur en minna bloated forrit á sömu tölvunni.
5. Viðurkennt að Microsoft/Bill Gates geti hugsanlega haft rangt fyrir sér
Þeir hafa oft rangt fyrir sér og hvað um það?
6. Hætt að fleima
Ég er ekki einn um það.
Sent: Lau 08. Maí 2004 19:12
af Voffinn
Gaman að sjá að þið hafið leyst úr þessu. Tími til að þessu flamei fari að hætta hérna... ég meina, hvar værum við ef við hefðum ekki iCave... okkar eigin ms fréttaritara! Spjallið væri ansi litlaust ef við hefðum hann ekki.
(er ekki fullur.)
Sent: Lau 08. Maí 2004 19:31
af SolidFeather
Sent: Lau 08. Maí 2004 20:24
af Sigurður Ingi Kjartansson
IceCaveman skrifaði:Hlægilegt að Sigurður Ingi Kjartansson sé að tjá sig yfir þessu þar sem OSX var hræðilega bloated þegar það kom fyrst og keyrist næstum óásættanlega á nema nýrri G4 og G5 vélum...
Þetta átti bara við um Public Betuna og varla hægt að dæma kerfið eftir því.
10.2 og 10.3 eru reyndar einu utgáfurnar sem ég hef reynslu af en það er ekki hægt að kvarta yfir þeim á G3 örgjörvum.
Vélarnar sem ég nota dags daglega eru allar orðnar gamlar en ég er samt sáttur við OS X
hér er listi yfir vélarnar sem ég nota
G3 BW 800Mhz, 448MB/120GB, MacOs 10,2
G3 DT 375Mhz, 224MB/120GB, MacOs 10,2
iBook G3/600Mhz 14' 256MB/20GB, MacOs 10,3
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:33
af Rednex
IceCaveman.........skokkaðu á vegg
Í alvöru.
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:39
af gumol
Rednex skrifaði:IceCaveman.........skokkaðu á vegg
Í alvöru.
Það er ekkert víst að það virki eins á alla aðra eins og það virkaði á þig.
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:58
af ICM
Rednex það er nákvæmlega þetta sem ég er að tala um, stöðugur dónaskapur í ykkur að ástæðu lausu og svo þegar maður tekur upp dónaskapin í ykkur og notar á móti þá er maður allt í einu orðin eitthvað svakalega vondur.
En hvað er málið með ykkur kann engin ykkar að lesa? Fyrirsögnin var ekki nægilega læsileg?
DRM/IRM er það eina sem hefði dugað til að stöðva ykkur, enda kallið þið það drasl. Gefur nokkuð auga leið að það sem er drasl í ykkar augum (nánast allt) er himnasending í augum annara.
Sent: Sun 09. Maí 2004 02:11
af Rednex
Núna ætla ég að skýra frá helstu eiginleikum og göllum Windows og Linux
Windows-Kostir: Það er frekar auðvelt að læra á Windows, góður leikja og vélbúnaðar stuðningur.
Windows-óKostir: Það er ekki nægilega stöðugt því það er byggt á gluggakerfinu, ef Xið hrynur fer allt. Það er ótrúlegur fjöldi fólks sem notar windows og þess vegna er það helsta skot mark vírusgerðarmanna. Windows kostar slatta.
Linux-Kostir: Það er stöðugt, ef Xið hrynur er því einfaldlega startað aftur. Það þarf ekki að reboota á 4 vikna fresti. Þú færð meiri stjórn yfir tölvunni þinni, nákvæmari stillingar. Það er ókeypis.
Linux-óKostir: Það er frekar erfitt að læra á Linux í byrjun. Minni leikja og vélbúnaðar stuðningu
Windows vs. Linux er svipað og þýska vs. enska. Það er ekkert mál að redda sér á enskunni en að vera góður í ensku er allt annað mál. Þýskan er erfið í byrjun en um leið og grunnurinn er kominn er ekkert mál að verða eins og frumbyggjar Þýskalands.
Niðurstaða: Fyrir hinn "normal Joe" er windows málið. Ég myndi ekki setja upp Linux hjá ömmu og afa, það var nógu erfitt að kenna þeim á músina
Hins vegar ef að þið eruð að gera einhverja hluti er tengjast neti eða eruð fjár litlir (eða tímið ekki að borga fyrir eitthvað sem fæst ókeypis) er Linux málið
Sent: Sun 09. Maí 2004 02:17
af ICM
Alveg hægt að nýta þetta svar aftur:
Ég er tækja sjúkur maður og það er virkilega erfitt að nota önnur kerfi en Windows ef maður þjáist af þeirri sýki.
Ég hef ekkert á móti að sumt fólk noti Linux en ég þoli ekki að nota það, það er ekki nægilega mature ennþá fyrir alla notkun. Þau tæki sem hægt er að tengja við það eru rétt svo með grunn stuðningi og í mörgum tilfellum ekki einusinni mögulegt að fá þau til að virka. Að hafa hlutina í lágmarki er algjörlega óásættanlegt í mínu nútíma lífi.
Stýrikerfi nota ég ekki útaf pólitískum ástæðum eins og svo margir gera, ég nota það kerfi sem hentar best fyrir minn stafræna lífstíl. Ég kaupi ekki vélbúnað til að lenda í eintómum vonbrigðum, hlutirnir eiga að virka eins og ég ætlast til að þeir geri það! Ég er ekki að hafa áhyggjur af að 1984 sé að fara að rætast eins og sumir.
Hvort sem það er Tablet (liðugari fartölva), lófatölvan, símin eða borðtölvurnar mínar þá ætlast ég að allt virki sem ein heild og ég ætlast til að fá allt útúr vélbúnaðinum sem hann var hannaður fyrir og í sumum tilfellum meira, ég sætti mig ekki við minna en það.
Ég nota OneNote með stafrænu bleki og ég nota stafrænt blek með mínum skrifstofu og teikni forritum og það er ekki möguleiki að ég fari að hætta því útaf því að einhverjir gaurar úti í bæ hafi ekki kynnt sér alminnilega þær lausnir sem eru til fyrir Microsoft kerfi.
Hver segir að þitt val sé eitthvað réttara en annara? Hver segir að það sé heimska að nota Windows? Það er hámark fáfræðinnar að vera stöðugt að kalla alla Windows notendur heimska uppúr þurru, alltaf svona síðasta úrræði hjá fólki sem veit það hefur reynt að taka stærri bita en það hefur efni á.
Svona ég hef aðrar þarfir en þú þá hlýtur þú að vera heimskur.
Sent: Sun 09. Maí 2004 02:22
af ICM
Gott kerfi í augunum á flestu fólki er kerfið í heild ( það inniheldur allt frá höfundum kerfisins til vélbúnaðar framleiðanda og hugbúnaðar höfunda, kjarnin skiptir minna máli hjá flestum.
Sent: Sun 09. Maí 2004 02:23
af SolidFeather
Enn og aftur:
Sent: Sun 09. Maí 2004 03:29
af Zaphod
Hver segir að þitt val sé eitthvað réttara en annara? Hver segir að það sé heimska að nota Windows? Það er hámark fáfræðinnar að vera stöðugt að kalla alla Windows notendur heimska uppúr þurru, alltaf svona síðasta úrræði hjá fólki sem veit það hefur reynt að taka stærri bita en það hefur efni á.
Svona ég hef aðrar þarfir en þú þá hlýtur þú að vera heimskur.
Þú hefur varla efni á þessu , kallandi menn sem nota linux anarkista og reynir einsog þú getur að tengja þá við vírusa og orma .
þú tókst að þér að níða niður í skítinn öll önnur stýrikerfi og notendur þeirra . þú bara uppskerð það sem þú sáir ......
Linux er ekkert fyrir þig , hættu þá að drulla yfir þá sem nota það . þú getur bara verið sáttur í þínum windows heimi .
Lestu einhvertímann svör við póstunum þínum ? því að svörin þín bera þess ekki merki .
Sent: Sun 09. Maí 2004 03:39
af ICM
Hættið bara að koma með lygasögur um Microsoft og kalla stöðugt allt þeim tengt drasl að ástæðu lausu og þá eruði lausir við þessi leiðindi.
Zaphod ég hef aldrei talað illa um Linux notendur, ég hef talað illa um Linux fanatíkusa, menn eins og ykkur sem getið ekki talað um annað en hversu lélegt allt frá Microsoft er. Þegar ég kalla ykkur illum nöfnum þá taki það hver til sín sem við á, ef þú ert venjulegur Linux notandi en ekki öfgafullur trúboði þá tekurðu það ekki nærri þér.
Sent: Sun 09. Maí 2004 03:51
af Zaphod
þú mátt semsagt kalla alla illum nöfnum og þá skal bara hver taka til sín sem á .....
en um leið einhver segir eitthvað sem kemur illa við windows , þá kemur hellisbúinn útúr hellinum geltandi...
nei virkar ekki svoleiðis ..
ég hef aldrei staðið í neinslags trúboði , persónulega finnst mér að hver á nota það sem honum hentar .....
þegar ég renni yfir spjallið hérna á vaktinni , þá er það greinilegt að mesta trúboðir sem einhver hefur lagst er hjá þér . að sannfæra heiminn að windows sé einhver snilld ...
Windows er ekkert merkilegt , það hefur verið óstöðugt og fullt af öryggisholum í meira en 10 ár og ég sé ekki fyrir endann á því ... En það hefur sína kosti ...
Sent: Sun 09. Maí 2004 08:44
af elv
SolidFeather skrifaði:Enn og aftur:
ROFL
Sent: Sun 09. Maí 2004 12:56
af Icarus
iCAVE, segðu mér. Hvenær sagði einhver hérna að það væri heimska að nota windows ?
Sent: Sun 09. Maí 2004 18:44
af kiddisig
IceCaveman skrifaði:Hættið bara að koma með lygasögur um Microsoft og kalla stöðugt allt þeim tengt drasl að ástæðu lausu og þá eruði lausir við þessi leiðindi.
Zaphod ég hef aldrei talað illa um Linux notendur, ég hef talað illa um Linux fanatíkusa, menn eins og ykkur sem getið ekki talað um annað en hversu lélegt allt frá Microsoft er. Þegar ég kalla ykkur illum nöfnum þá taki það hver til sín sem við á, ef þú ert venjulegur Linux notandi en ekki öfgafullur trúboði þá tekurðu það ekki nærri þér.
Ég ætlaði nú ekki að senda neitt inn á þennan þráð. Langar samt að spurja þig að svolitlu IceCaveman.
Linux fanatics eru semsagt fífl í þínum augum, ef ég skil þennan póst þinn rétt. Þú ert Windows fanatic, ekki satt? Ert þú semsagt að segja að þeir sem eru Linux fanatics eru fífl en þeir sem eru Windows fanatics eru fínasta fólk?
Sent: Sun 09. Maí 2004 19:02
af Rednex
Hugsið ykkur af að ríkisstofnanir t.d. skólar og spítalar, myndi velja Linux fram yfir Windows hvað það myndi fela í sér gífurlegan sparnað.
Windows kostar um 10-20þús. kr.+ office pakkan 18-33þús. Samtals 28-55þúsund krónur
Það væri hægt að kaupa öflugri örgjörva, meira vinnsluminni eða bæta kjör starfsmanna.
Pælið aðeins í þessu
Sent: Sun 09. Maí 2004 19:19
af CraZy
Hverjum þikir sinn fugl fagur..
Sent: Sun 09. Maí 2004 19:42
af elv
Rednex skrifaði:Hugsið ykkur af að ríkisstofnanir t.d. skólar og spítalar, myndi velja Linux fram yfir Windows hvað það myndi fela í sér gífurlegan sparnað.
Windows kostar um 10-20þús. kr.+ office pakkan 18-33þús. Samtals 28-55þúsund krónur
Það væri hægt að kaupa öflugri örgjörva, meira vinnsluminni eða bæta kjör starfsmanna.
Pælið aðeins í þessu
Fyrirtæki eru ekki að borga svona mikið fyrir Window.Landspítalinn er með yfir 1000 leyfi og kostnður per leyfi er ekki svo mikill.
Sent: Sun 09. Maí 2004 20:14
af gumol
Það fylgja nú oftast leyfi með nýum tölvum sem svona fyrirtæki kaupa og windows kemur pre-installed.
Sent: Sun 09. Maí 2004 21:32
af Rednex
Það er samt kostnaður
Sent: Sun 09. Maí 2004 22:08
af elv
Rednex skrifaði:Það er samt kostnaður
Held nú að flest fyritæki af stærri gerðinni "kaupi" líka Linux.Annars væri Red Hat og fleirri á hausnum....ekki heldurðu að þau downloadi bara einhverju distroi
Sent: Sun 09. Maí 2004 22:37
af Voffinn
elv skrifaði:Rednex skrifaði:Það er samt kostnaður
Held nú að flest fyritæki af stærri gerðinni "kaupi" líka Linux.Annars væri Red Hat og fleirri á hausnum....ekki heldurðu að þau downloadi bara einhverju distroi
Talandi um það, varstu kominn með slackware 9.1 isoin? Ég var að rekast á þau á
binary.is[/url]