Síða 3 af 3
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Fim 13. Des 2012 22:12
af coldcut
Garri skrifaði:Málið er ekki að setja upp Windows.. það er bara smá mál. Málið er að tína til og setja upp öll þessi stóru og smáu forrit sem nauðsynlegt er á professional vinnuvstöðvum. Las á einhverjum spjallþræði að menn væru einhverja klukkutíma (eða daga) að setja upp þróunarumhverfi eins og það sem ég er með. Ég er með nokkur þróunarumhverfi sem hvert um sig er að nota pakka víða og búið að uppfæra margar kynslóðir eftir allskonar leiðum frá orginal pökkum.
þú ættir kannski að skoða önnur stýrikerfi...
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Fös 14. Des 2012 10:26
af Garri
Hvers vegna ætti ég að gera það?
Það að "gera við stýrikerfið" hefur virkað hjá mér í öllum tilfellum. Þar að auki, þá fást ekki sum þessara þróunarumhverfa fyrir önnur stýrikerfi, eins og Delphi. Kylix var tilraun sem gekk ekki.
Svo.. í dag vantar í raun helling upp á að hægt sé að nota lynix fyrir meir en netráp.
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Fös 14. Des 2012 10:44
af Daz
Ég vil bara taka undir það sem Garri segir um enduruppsetningu stýrikerfis sem lækningu við einhverjum smákvilla. Þó að síður eins og ninite.com séu að einfalda manni mikið að setja upp stýrikerfið upp á nýtt, þá eru allskonar smáforrit, viðbætur, widgets osfrv sem maður man ekki alltaf eftir.
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Lau 15. Des 2012 16:28
af coldcut
Garri skrifaði:Hvers vegna ætti ég að gera það?
Það að "gera við stýrikerfið" hefur virkað hjá mér í öllum tilfellum. Þar að auki, þá fást ekki sum þessara þróunarumhverfa fyrir önnur stýrikerfi, eins og Delphi. Kylix var tilraun sem gekk ekki.
Svo.. í dag vantar í raun helling upp á að hægt sé að nota lynix fyrir meir en netráp.
Hvar í fjandanum ertu samt að vinna? TM?
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Mán 17. Des 2012 11:47
af marri182
Hæ hæ,
Er búin að henda inn combofix og tekur þennan leiðindar "tvíkommuvandræði" en hinsvegar þegar ég rístarta tölvunni, þá kemur þetta aftur. s.s. ég þarf að keyra combofix strax eftir að ég kveiki á tölvunni, frekar pirrandi.
mbk.Marri
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Mán 17. Des 2012 11:53
af Jón Ragnar
Hef stundum lent í þessu í vinnuni
Þarf þá að breyta codepage í regedit. set það í 861 (ef ég man rétt)
Það á reyndar bara við XP tölvur
Re: n´´ytt fyrir update Windows 7
Sent: Mán 17. Des 2012 13:22
af Garri
Hef unnið sjálfstætt frá 1990 eða þar um bil. Smíðað á annað hundrað kerfi af allskonar stærðum og gerðum. Er mest í dag með eigin viðskiptahugbúnað og sérlausnir í kringum hann, ásamt nokkrum sérkerfum.