Síða 3 af 3
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:18
af Orri
Afhverju geturðu ekki hugsað þér að spila nokkurn skapaðan hlut í PS3 ?
PC er ekki með yfirhöndina í flestöllum leikjum.
Snýst um personal preference.
Xbox 360 er ekki með GT5

Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:22
af Steini B
Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:40
af thegirl
Steini B skrifaði:Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

Haha ertu ekki ad grinast? Eg svoleidis slatra gaurunum i skotleikjum i ps3
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:42
af GullMoli
Orri skrifaði:
Afhverju geturðu ekki hugsað þér að spila nokkurn skapaðan hlut í PS3 ?
PC er ekki með yfirhöndina í flestöllum leikjum.
Snýst um personal preference.
Xbox 360 er ekki með GT5

Finnst controlerinn fyrir PS3 bara alltof óþægilegur + flestir leikir sem ég spila eru rts eða fps leikir og get ekki hugsað mér að spila það á console vél (auto-aim neitakk). Bílaleikir á xbox vegna þess að controlerinn þar er með spes inngjafartakka svo þú ert ekki alltaf í botni á bensíngjöfinni/bremsunni heldur geturðu ráðið nákvæmlega hversu mikið þú gefur, er PS3 með þannig? Svo er auðvitað Forza 3 > GT5.
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:42
af Ingi90
Steini B skrifaði:Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

x2
Skil ómögulega fólk sem getur spilað Cod & svo framvegis þar
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:45
af Frost
Ingi90 skrifaði:Steini B skrifaði:Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

x2
Skil ómögulega fólk sem getur spilað Cod & svo framvegis þar
Frekar létt, tekur ekki nema klukkutíma í mesta lagi að ná fullri stjórn.
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:51
af thegirl
Frost skrifaði:Ingi90 skrifaði:Steini B skrifaði:Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

x2
Skil ómögulega fólk sem getur spilað Cod & svo framvegis þar
Frekar létt, tekur ekki nema klukkutíma í mesta lagi að ná fullri stjórn.
veistu ég hugsa að það sé ekki einu sinni klukkutími.. bara eftir fyrsta leikinn er þetta under control.. en maður er ekkert góður auðvitað eftir einn leik en maður er alveg búin að venjast controllernum
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:52
af Hvati
PC > PS3 > Xbox360
PS3 fjarstýringin finnst mér miklu þæginlegri en xobx, hún er miklu léttari, þæginlegari í hönd, með þæginlegari takka og betri í bílaleikjum. Xbox er aðeins betri í FPS með staðsetningu stýripinnanna ásamt lögun þeirra.
Annars er PC betra að öllu öðru leiti nema fyrir bílaleiki og kannski 3D platformer leiki, en það er alltaf hægt að kaupa t.d. Xbox fjarstýringu fyrir PC.
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:56
af dori
thegirl skrifaði:Steini B skrifaði:Hahhh, skotleikur í PS3, það er bara ekki hægt...

Haha ertu ekki ad grinast? Eg svoleidis slatra gaurunum i skotleikjum i ps3
Það er náttúrulega þannig þegar allir eru að nota PS3 þá eru allir með jafn slæma stjórn á málunum. Mús er bara miklu betri leið til að stjórna fínhreyfingum (og lengri vegalengdum) nákvæmlega í FPS leik en stýripinnarnir á þessum fjarstýringum (bæði PS3 og Xbox).
Ekki misskilja mig. Ég er ekki að gefa í skyn að FPS á PS3 og Xbox sé eitthvað leiðinlegt.
Re: CRYSIS 2 (LEAKED)
Sent: Mán 28. Mar 2011 22:13
af Orri
GullMoli skrifaði:
Finnst controlerinn fyrir PS3 bara alltof óþægilegur + flestir leikir sem ég spila eru rts eða fps leikir og get ekki hugsað mér að spila það á console vél (auto-aim neitakk). Bílaleikir á xbox vegna þess að controlerinn þar er með spes inngjafartakka svo þú ert ekki alltaf í botni á bensíngjöfinni/bremsunni heldur geturðu ráðið nákvæmlega hversu mikið þú gefur, er PS3 með þannig? Svo er auðvitað Forza 3 > GT5.
Þú getur slökkt á Auto-Aim í flestum 'alvöru' FPS leikjum á leikjatölvunum.
Xbox 360 fjarstýringin er með trigger sem er einmitt verri í bílaleiki eftir því sem ég hef lesið, m.v. PS3 sem er með mjög mjúka R2 og L2 takka sem þú getur ráðið uppá hár hvað þú vilt gefa mikið inn eða bremsa.
Forza 3 = arcade leikur, GT5 = the real driving simulator. Fyrst þú þarft endilega að bera þá saman þá finnst mér GT5 betri, skemmtilegri og mun mikið raunverulegri.
Finnst líka fyndið að sjá 'hardcore PC gamers' sem segja console vera drasl og ónothæfa í FPS leiki.
Allir eru samt sem áður sammála um að það er erfiðara að spila FPS leiki með controller, er þá ekki meira 'hardcore' að vera góður í FPS leikjum með controller frekar en lyklaborð og mús með milljón aukahlutum og fídusum sem auðvelda spilunina ?
Mæli líka með að prófa að spila Killzone 3 með Move, það kemur á óvart
