Síða 3 af 3

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 10:12
af Gúrú
rapport skrifaði:p.s. Minnislykill 32GB á þennan pening er líklega made in china og ekki líklegur til afreka (að mínu mati).
"Minnislykill" er líklega made in China, en þú hefur eflaust ekkert point með þessu er það? :catgotmyballs

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 13:13
af Tesli
Er einhver búinn að kaupa lykil og prufa hann?
Er hann hraður að hlaða inn á sig?

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 13:54
af Gúrú
laemingi skrifaði:Er einhver búinn að kaupa lykil og prufa hann?
Er hann hraður að hlaða inn á sig?
Lestu a.m.k. upphafsinnleggið... lyklarnir koma ekki fyrr en 7. febrúar.

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 14:20
af rapport
Gúrú skrifaði:
rapport skrifaði:p.s. Minnislykill 32GB á þennan pening er líklega made in china og ekki líklegur til afreka (að mínu mati).
"Minnislykill" er líklega made in China, en þú hefur eflaust ekkert point með þessu er það? :catgotmyballs
Pontið var svona að "made in china" er í beinni þýðingu "búið til í Kína" en vörur sem eru NN-vörur eða framleiddar undir stolnu vörumerki (sem er algengt í Kína) eru ekki líklegar til að vera þess virði.

T.d. eignaðist ég 5-6 stk af 16Gb iPad Nano hér um árið sem félagi minn keypti í sölubás við vörusýningu í Kína.

Skjárinn, heyrnartólin og hugbúnaðurinn á tækinu var crap og ég hugsaði "fínt sem minnislykill" en þegar tækið tók eilífð í að tengjast og kópera þá sá ég að ég hefði ekkert gagn af þessu og henti þessu.

En þú ert eflaust vanur að fólk þurfi að útskýra sig fyrir þér, er það ekki? :dissed

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 14:28
af Tesli
Gúrú skrifaði:
laemingi skrifaði:Er einhver búinn að kaupa lykil og prufa hann?
Er hann hraður að hlaða inn á sig?
Lestu a.m.k. upphafsinnleggið... lyklarnir koma ekki fyrr en 7. febrúar.
Ég las hann nú allan, ekki hægt að taka það frá mér, en þetta er orðinn frekar langur þráður svo ég var búinn að gleyma detailum í fyrsta póstinum þegar ég var kominn að leiðarlokum :P

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 15:02
af beatmaster
Mér finnst vera stór munur á því hvort að þú leggir inná nemendafélagið eða nemandann sjálfann, hvort er það?

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 14. Jan 2011 15:24
af Frussi
Ég held alveg 90% að það sé lagt inn á nemandann.


Ananrs:

1. Pælingin hans lukkuláka, um að "þykjast" vera nemandi sem er að selja þetta fellur um sjálfa sig, þar sem auðvelt er að hringja í þann sem linkað er á á skólafélagssíðunni, og einfaldlega athuga hvort hann sé í raun sá sem hann segist vera.

2. Eins og einhver benti á, þarf kennitölu til að leggja inn á reikninga. Með kennitölu viðkomandi er nokkuð auðvelt að komast að því hver hann er.

3. Það er ábyrgð á lyklunum, svo ef um er að ræða einhverja "feik made-in-China" vöru ætti að vera auðvelt að fá endurgreitt.



Til Lukkuláka:

Mér finnst hálf barnalegt að vera að vitna í neytendalög þegar skólakrakkar eru að selja eitthvað fyrir útskrift, þú ræður algjörlega hvort þú kaupir eitthvað eða ekki. Ef þú ákveður að kaupa, verður þú einfaldlega að fylgja þeim skilmálum sem kaupunum fylgja. Ef þér líkar ekki við þá, þá kaupiru ekki :roll:


Ég var í þessum sömu sporum í fyrra (að selja hitt og þetta fyrir útskriftarferð) og ég vona að þér gangi vel með söluna :)

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Mán 24. Jan 2011 23:24
af snaeji
Segji bara bump fyrir þessum þráð... drepum þetta ekki í leiðindum og styrkjum frekar gott framtak

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 28. Jan 2011 13:13
af macroni
ég skal kaupa 1 32GB

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Fös 28. Jan 2011 15:04
af Dormaster
Ég man nú alltaf eftir því þegar ég var að safna fyrir ferð til spánar með fótboltanum og vorum að selja dagatöl fyrir jólinn og ein kona pantaði 4 = 4000 kr u.m.þ.b. síðan kem ég með þetta og hún segist ekki vera með neinn pening svo að hún segir mér að koma næsta dag, ég kem næsta dag til hennar og hún neitar að borga :mad

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Þri 01. Feb 2011 13:54
af snaeji
Enda fór þetta allt í vaskinn... lyklarnir voru víst ekki komnir til landsins og vitlaus verð... þetta er allt í tómu tjóni

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Þri 01. Feb 2011 14:03
af BjarniTS
Fékk þetta sent :
Tölvupóstur frá Ívari skrifaði: Sæl öllsömul,

Ég hef því miður þær sorgarfréttir að færa að það verður ekkert af þessum USB-lyklum. Það var eitthvað katastrófískt klúður hjá Tanna sem er að selja okkur þetta og allt fór í fokk.(sjá neðan.) Ég fór í bankann í dag og ætlaði að reyna að millifæra allt þetta til baka í einu en ég þarf hjá ykkur rkns.nr. og kt. ykkar til þess að geta gert það. Þannig að ef þið gætuð sent mér þetta þá millifæri ég allt til baka, og biðst jafnframt innilegrar afsökunar á þessu öllu saman.

-Ívar Elí.

Góða kvöldið.

Við viljum byrja á því að hrósa ykkur fyrir að hafa verið ótrúlega dugleg að safna! En því miður höfum við sorgarfréttir að færa.
Komið hefur upp ný staða í sambandi við USB – lyklana í fjáröfluninni. Við höfum ákveðið að geyma sölu á USB lyklunum þar til síðar vegna ruglings hjá fyrirtækinu sem við áætluðum að skipta við.

Í byrjun janúar (5.jan) fengum við tilboð í USB-lykla frá Tanna ehf. Þar sem m.a. 32 GB var á rúmar 5000 kr. Við báðum sölufulltrúa okkar hjá Tanna að athuga hvort að þetta væru ekki örugglega rétt verð. Þetta átti allt saman að vera rétt. Janúarfjáröflunin var því auðvitað skipulögð í kringum þessi góðu verð og við sáum fram á flotta fjáröflun. Negldur var niður hentugur pöntunardagur.

Aftur á móti, 26. Janúar sendu þau okkur önnur verð, daginn fyrir áætlaðan pöntunardag. Gerði eigandinn þá skyssu að afrita og líma röng verð upphaflega en nýju verðin voru sum um 100% hærri en þau upphaflegu(fór línuvillt í verðskránni). Auk þess var tíminn sem þurfti að líða frá pöntun að afhendingu skyndilega orðinn að 20 dögum í stað 10 því þau hjá Tanna ehf áttu víst ekki nóg til á lager.

Við höfum reynt að lækka verðin nokkrum sinnum en eigandinn gefur sig ekki. Lægstu tilboð sem við höfum fengið eru enn það dýr að þau fara vel yfir söluverðið ásamt gróðanum. Þyrfti þá að borga yfir 3000 kr með hverjum seldum 32 GB lykli.

Okkur þykir fyrir því að hætta við þetta með svo stuttum fyrirvara! Vonandi skilst ástæðan.
Þar sem áhuginn var mjög mikill (yfir 300 lyklar voru pantaðir) ætlum við að leita betur að tilboðum og hafa samband við fleiri fyrirtæki. Planið er að hafa aðra sér, litla fjáröflun sem fyrst á önninni. Að öllum líkindum verða lyklarnir dýrari en þó vonandi töluvert ódýrari en út í búð.

Kær kveðja ,
5.bekkjarráð MR.
Ég geri svosem alveg ráð fyrir að fá endurgreitt , fékk þetta sent í gær og ég sendi þeim upplýsingar um rkn til að leggja inn.
Geri ráð fyrir að fá greitt í kvöld.
Keypti tvo lykla 32gb. = 12.000ISK

Hringdi í kauða áðan (Ívar) og hann sagði mér að hann væri að safna rkn-númerum og kt og það væri allt að koma í hús og hann leggur allt inn í það minnsta fyrir vikulok sagði hann.
Virðist heiðarlegur drengur og þetta virðast mistök sem hefðu getað komið fyrir hvern sem er.

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Þri 01. Feb 2011 14:31
af Meso
Það er kannski bara ágætt að þetta floppaði :lol:

ég var búinn að panta 32GB en afpantaði eftir að ég las þessi review

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Þri 01. Feb 2011 15:34
af Gúrú
BjarniTS skrifaði:Hringdi í kauða áðan (Ívar) og hann sagði mér að hann væri að safna rkn-númerum og kt og það væri allt að koma í hús og hann leggur allt inn í það minnsta fyrir vikulok sagði hann.
Virðist heiðarlegur drengur og þetta virðast mistök sem hefðu getað komið fyrir hvern sem er.
Já ég held það sé alveg á hreinu að þetta er Tanna að kenna, þeir googluðu eflaust lyklana í nokkrar
sekúndur og sáu fram á að þurfa að skipta út hverjum einasta lykli frítt.. á innan við viku.

Re: USB Lyklar til sölu!

Sent: Þri 01. Feb 2011 15:38
af Pandemic
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6820220536" onclick="window.open(this.href);return false;
Kaupa fullt af þessu... Profit!!(svo lengi sem hægt er að skila rest)