Síða 3 af 3
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 15:01
af noizer
Zethic skrifaði:Hvernig er með þennan þráð ? Má ekki endurvekja hann ?
Ég nenni aldrei að gera mér morgunmat, hvort myndiði segja að væra betra, 1 glas af trópí og 2 kanilsnúðar eða sleppa því alveg?
Er búinn að vera í ræktinni ofl, 176 á hæð, kominn í 66kg úr 80kg, þarf að fara kjöta mig upp núna

Ef þú ert að kjöta þig upp þá máttu alls ekki sleppa morgunmat, og þarft miklu meira en 2 kanilsnúða.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 15:03
af blitz
Bull,
http://www.leangains.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 15:16
af Gerbill
noizer skrifaði:Zethic skrifaði:Hvernig er með þennan þráð ? Má ekki endurvekja hann ?
Ég nenni aldrei að gera mér morgunmat, hvort myndiði segja að væra betra, 1 glas af trópí og 2 kanilsnúðar eða sleppa því alveg?
Er búinn að vera í ræktinni ofl, 176 á hæð, kominn í 66kg úr 80kg, þarf að fara kjöta mig upp núna

Ef þú ert að kjöta þig upp þá máttu alls ekki sleppa morgunmat, og þarft miklu meira en 2 kanilsnúða.
Rugl, það að þú þurfir að borða morgunmat og það sé algjörlega mikilvægasta máltíð dagsins er einfaldlega ekki satt.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:22
af bulldog
Korn flakes eða coca puffs
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:28
af vesley
Gerbill skrifaði:noizer skrifaði:Zethic skrifaði:Hvernig er með þennan þráð ? Má ekki endurvekja hann ?
Ég nenni aldrei að gera mér morgunmat, hvort myndiði segja að væra betra, 1 glas af trópí og 2 kanilsnúðar eða sleppa því alveg?
Er búinn að vera í ræktinni ofl, 176 á hæð, kominn í 66kg úr 80kg, þarf að fara kjöta mig upp núna

Ef þú ert að kjöta þig upp þá máttu alls ekki sleppa morgunmat, og þarft miklu meira en 2 kanilsnúða.
Rugl, það að þú þurfir að borða morgunmat og það sé algjörlega mikilvægasta máltíð dagsins er einfaldlega ekki satt.
Rugl ? dagurinn er bara allt annar hjá mér ef ég borða góðann morgunmat, get miklu frekar sleppt annarri máltíð.
Sama hvað rannsóknir segja þá finnst mér morgunmaturinn gefa mér lang mestu orkuna yfir daginn og ég er nokkuð viss að ég er ekki einn um að finnast það.
EN. í dag þá reyni ég að borða
hafragraut með rúsínum (hreinn grautur ekkert salt)
Stacker prótein með 500-700ml af vatni.
Kreatín ef mig langar.
Einhverskonar Safi, yfirleitt heilsusafi.
Lýsi og vítamín.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:33
af jagermeister
Hafragrautur með smá kanilsykri og eplabitum
glas af heilsusafa
kaffi
banani á leiðinni í skólann
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:50
af cure
3 gulrætur
2 græn epli
hálfur ananas
hálf agúrka
1/4 avocado sett í safapressu og síðan þambaði ég það

fínt til að starta deginum.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:52
af Pandemic
Hafrar með Ab mjólk, rúsínum og smá púðursykur.
Banani
Vatn.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 16:53
af Akumo
Ég sá eini sem nennir ekki að standa í þessu rugli og fæ mér kók í morgunmat?
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 17:01
af ljoskar
Það sem er til í ísskápnum í vinnunni. Annar eitthvað sem ég fynn í ísskápnum heima.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 17:15
af worghal
má ekki gleima lýsinu

Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 20:10
af pattzi
Akumo skrifaði:Ég sá eini sem nennir ekki að standa í þessu rugli og fæ mér kók í morgunmat?
Fæ mér oft langloku og kók í morgunmat

Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 20:24
af SkaveN
eitt stórt glas af eggjahvítum,whey protein + 100g af höfrum sem eru búnir að liggja í vatni yfir nóttina. Allt sett í blender og fyrsta máltíð dagsins komin!

Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 20:39
af AntiTrust
Þar sem ég er í niðurskurði eins og er, er fyrsta máltíð dagsins áður en farið er á 50mín brennsluæfingu 2skeiðar (15gr) af amínósýrum (BCAA). Eftir það er svo þessi hefðbundni morgunmatur, annaðhvort 35gr hafragrautur + 50gr whey prótín hrært saman með vatni, eða prótínpönnukaka (9 eggjahvítur, örlítið af jómfrúarkókosolíu og 50gr whey) með smá slettu af krömdum ferskum bláberjum.
Hvað varðar það að morgunmaturinn sé mikilvægasta máltíð dagsins þá er það einfaldlega algjörlega persónubundið eftir hverjum og einum og lífstíl hvers og eins. Ég myndi samt sem áður mæla með hafgragraut eða sambærilegum morgunmat fyrir flest alla, kemur rosalegri reglu á blóðsykurinn og hjálpar til við að halda honum jöfnum oft langt fram eftir degi. Nauðsynlegt fyrir menn í ræktinni að vera með e-rskonar prótín í morgunmatnum líka, líkaminn löngu búinn að vinna úr öllu prótíni sem var fyrir hendi um nóttina.
Hvað varðar það að kjöta sig upp þá er náttúrulega bara vitleysa að halda að "éta hvað sem er og mikið afþví" sé leiðin - Maður á að éta svipað í fituskurði og í uppbyggingu, bara í meira magni. Þ.e. meðal annars halda sig við flókin kolvetni (ekki ávaxtasafa og kanilsnúða) - allavega hvað varðar morgunmatinn varðar. Flott að skella í sig e-ð af einföldum kolvetnum beint eftir æfingar en passa að fara þó ekki yfirum, algengur misskilningur að menn tæmi alveg glýkógenbirgðirnar á 'standard' lyftingaræfingu.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 21:25
af braudrist
Akumo skrifaði:Ég sá eini sem nennir ekki að standa í þessu rugli og fæ mér kók í morgunmat?
Vér tveir stöndum saman! :drekka
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 21:28
af AntiTrust
braudrist skrifaði:Akumo skrifaði:Ég sá eini sem nennir ekki að standa í þessu rugli og fæ mér kók í morgunmat?
Vér tveir stöndum saman! :drekka
Ég fæ bara brjóstsviða við að lesa þetta.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 21:40
af kazzi
kaffi og síkó áður en ég legg af stað kl hálf sjö og svo cheerios kl hálf tíu

Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 21:41
af GuðjónR
Þrír bollar af kaffi fyrir hádegi...það er fínt

Re: Morgunmatur.
Sent: Fim 19. Jan 2012 21:42
af ArnarF
Hafragrautur
Lýsi
Whey prótín blandað í 200ml af fjörmjólk
Re: Morgunmatur.
Sent: Fös 20. Jan 2012 00:07
af Philosoraptor
umþaðbil 3 kaffibollar og 4 sígarettur BREAKFAST OF CHAMPIONS
Re: Morgunmatur.
Sent: Fös 20. Jan 2012 00:16
af AciD_RaiN
Vanalega er maður bara í sígó og kók eða kaffi en fékk mér humarsúpu í morgun

Re: Morgunmatur.
Sent: Fös 20. Jan 2012 01:05
af kubbur
flatur bjór og köld pitsa...
Re: Morgunmatur.
Sent: Fös 20. Jan 2012 01:09
af Benninho10
Weetos ef ég vakna nógu og snemma, annars er það eplate, ílla gott te.
Re: Morgunmatur.
Sent: Fös 20. Jan 2012 02:51
af Gerbill
Maður verður feitur og orkulaus ef maður borðar ekki morgunmat og líkaminn fer strax að brenna vöðvum.
Maður verður líka alltaf að fá sér prótein shake bara um leið og maður sleppir lóðinu! Annars er æfingin til einskis og maður brennir vöðvum.
Maður verður líka að hætta að éta klukkan 6 á kvöldin, annars fer allt beint á bumbuna.
Hnébeygjur undir 90 gráðum eyðileggja á manni hnén, tala nú ekki um æfinguna sem að þú svona tekur stöng upp af jörðinni (réttlyfta or some?) það gjörsamlega rústar bakinu á þér.
Lengi lifi bro science.
Mæli með að renna í gegnum:
http://www.leangains.com/2010/10/top-te ... unked.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Ath, ég er ekkert á móti því að fólk fái sér morgunmat, bara frekar þegar því er alltaf haldið fram að maður Þurfi að fá sér morgunmat og það sé algjörlega nauðsynlegt.
Líka að maður þurfi að vera síétandi til að líkaminn svelti nú ekki og byrji að brenna vöðvum.