Síða 3 af 3

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 03:59
af mattiisak
intenz skrifaði:Eitt skothellt: TREO, vatnsglas og leggja þig aftur. Vaknar eiturhress!
virkar engan vegin fyrir mig hvorki að taka fyrir svefn né eftir svefn : /

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 04:12
af REX
Mjólk.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 08:16
af Benzmann
hvað ertu 14 ára ?

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 09:10
af ManiO
Drekka bara sterkt áfengi og mikið af því :lol: Ef rétt er farið að þessari aðferð er engin þynnka um morgunin, en menn gætu verið enn ölvaðir.
Ég mæli ekki með því að drekka áfengi þar sem að skaði getur hlotist af því. Ef menn velja að fara að drekka skal ávallt fara hóflega í það og passa sig á að verða ekki of ölvaðir. Ef menn verða sjálfum sér að skaða undir áhrifum áfengis er það þeim sjálfum að kenna og ég ber enga ábyrgð á gjörðum þeirra.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 09:26
af dodzy
eitt vatnsglas.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 09:36
af bulldog
að drekka ekki \:D/

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 10:06
af fannar82
Besta ráðið við þynnku er að vera bara ekki auminginn sem hengur í rúmminu,

þetta dettur af þér eftir smá tíma ef þú asnast strax framm og ferð að gera eitthvað helst út,

en af minni reynslu, aldrei blanda tegundum helst halda sig bara við bara bjór eða bara sterkt og hætta að drekka sirka klukku tíma áður en þú ætlar þér að fara heim.


en smá offtoppic, nú er ég með líkamlegt ofnæmi fyrir eplasnafsi það skiptir engvu máli hvað ég er búinn að drekka mikið\lítið ef ég fæ mér einn dropa af því þá faðma ég klósettskálina um 1-5min eftir inntöku :pjuke

lendið þið í þessu? með einhverja áfengis tengund

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 10:36
af ManiO
fannar82 skrifaði: en smá offtoppic, nú er ég með líkamlegt ofnæmi fyrir eplasnafsi það skiptir engvu máli hvað ég er búinn að drekka mikið\lítið ef ég fæ mér einn dropa af því þá faðma ég klósettskálina um 1-5min eftir inntöku :pjuke

lendið þið í þessu? með einhverja áfengis tengund
Tekíla í flestum tilfellum.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 10:44
af tdog
Ein og ein jóna hefur reddað þynnkunni hjá mér.

Annars verð ég sem þynnstur ef ég bagga á djamminu...

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 11:08
af rapport
ManiO skrifaði:
fannar82 skrifaði: en smá offtoppic, nú er ég með líkamlegt ofnæmi fyrir eplasnafsi það skiptir engvu máli hvað ég er búinn að drekka mikið\lítið ef ég fæ mér einn dropa af því þá faðma ég klósettskálina um 1-5min eftir inntöku :pjuke

lendið þið í þessu? með einhverja áfengis tengund
Tekíla í flestum tilfellum.
Tequila virkar ögn öðruvísi á mig... hef bara drukkið það örfá skipti en þau enda alltaf eins.... í handjárnum, slagsmálum, dýrum viðgerðum á fáránlegustu hlutum og ónýtum fötum.

Enda hef ég ekki smakkað þennan drykk núna í 12 ár eftir að ég fékk 1/2 gallon í tvítugsafmælisgjöf og við vorum tveir sem kláruðum flöskuna á gamlárs...

Sumir mundu segja "legendary".... fyrir mig táknaði þetta "drykkupása í 1-1,5 ár" svona aknnski með 1-2 litlum undantekningum.


Ég var aldrei þunnur fyrr en eftir 27 ára aldurinn og ég hafði bara örfáar reglur.

1) Drekka fáar tegundir (en þessi regla var oft brotin... ÞAÐ MÁ SAMT ALDREI DREKKA STERKT EFTIR FLÖSKU AF RAUÐVÍNI MEÐ MATNUM)
2) Ekki drekka ógeðsbjór og ógeðsdrykki sbr. elephant bjór, Stroh, tannlæknaspíra, spíra og landa frá einhverjum sem þú þekkir ekki framleiðsluna hjá.
3) MIKILVÆGT - Vita hvenær þú átt að hætta að drekka, hvenær er komið nóg (yfirleitt þegar þú stendur kyrr en ert samt í dansfílingnum)
4) Nonni, Hlölli, Pylsa er allt OK en það toppar ekkert 1/2 djúpsteiktan kjúlla á BSÍ með frönskum, sósu og salati (EKKI KAUPA SNÆÐING ÞÓ HANN SÉ ÓDÝRARI)
5) Ef herbergið snýst þegar þú ferð í rúmmið þá borgar sig að faðma dolluna fyrir háttinn...

Seinasta reglan er eiginlega sú besta því þeir sem taka á því ... já ... herbergið snýst alltaf hjá þeim.

ahhh... p.s. besta ever... reynið að sofna í grjónapúða ef þið finnið svoleiðis, það er best að sofa úr sér í svoleiðis.

Besta og eftirminnilegasta partý ever = Skerjafjörður ´95 og ég sofnaði í risa grjónapúða þegar partýið var að liða undir lok, kynntist húsfrúnni betur morguninn eftir sem var svaka skutla og bara helvíti skemmtileg.

Mánuði seinan fóru svo næstum allir félagarnir á Uxa nema ég :(

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 11:20
af Ulli
Vinna/Hreyfing.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 13:56
af REX
benzmann skrifaði:hvað ertu 14 ára ?
hahahah þú ert helvíti harður. Kæmi ekki á óvart að þú værir sjálfur fyrir neðan þennan ofangreinda aldur þinn.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 14:18
af dori
rapport skrifaði:...
5) Ef herbergið snýst þegar þú ferð í rúmmið þá borgar sig að faðma dolluna fyrir háttinn...
Mér finnst svo kósí þegar allt snýst svona fyrir manni :P Ekkert óþæginlegt, bara frekar fyndið.

Re: Hvað er best við þynnku ?

Sent: Fös 25. Feb 2011 14:32
af hauksinick
Treó