Síða 3 af 3

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fös 19. Sep 2008 16:25
af SIKO
við viljum þróun og meiri þróun....

jú við erum tölvuatvinnu og áhuga menn
og í þessum heimi þar sem hraðasta þróun á sér stað

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fös 19. Sep 2008 16:41
af Halli25
Það er ekki eins og wow sé eins og CS menningin, fólk sem ég er að spila wow með eru um og yfir 30 =D>

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fös 19. Sep 2008 23:59
af beatmaster
Ég hef ekki mikinn áhuga á að vera leiðinlegur en mér langar til að blanda mér aðeins inn í þessa umræðu.

Ég hef stundað þetta spjallborð í tæp fjögur ár núna og kíki hingað að meðaltali fimm ainnum á dag og hef fengið að upplifa ýmsar hæðir og lægðir hérna inni en aldrei hefur ástandið verið jafn dapurt og þegar að WOW æðið reið hérna yfir í byrjun sumars.

Hlutirnir hafa hins vegar verið í ágætis málum upp á síðkastið og sakna ég þess ekki að þegar að ég velji "skoða ný innlegg" skuli ekki komi upp 30 nýir þræðir sem að snerust allir um kaup og sölu á WOW account-um, ég man líka hvað umræðurnar urðu slappar hérna af því að tölvunördagrúskararnir sem að ég hef mjög gaman af að vita hvað eru að spá í, nenntu ekki að pósta hérna lengur.

Hins vegar ef að menn vilja prufa að leyfa Vaktinni að styðja við bakið á WOW aftur þá finnst mér hugmyndin sem að kom fyrir framan um að stofna http://wow.vaktin.is" onclick="window.open(this.href);return false; fyrir það alls ekkert vitlaus.

Annars vona ég bara að menn muni eftir WOW tímanum hérna og hvernig hann gekk fyrir sig áður en að menn leyfa hann aftur, en ef að svo fer þá mun ég að sjálfsögðu taka þátt í því. Vaktin 4TW! :wink:

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Mán 22. Sep 2008 09:48
af Halli25
persónulega vill ég ekki sjá neina söluþræði fyrir wow, bara að þið fáið ekki niðurgang ef einhver fer að spjalla um wow á þessu spjallborði og farið að kalla fólk nöfnum.

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Þri 21. Okt 2008 18:49
af ManiO
faraldur skrifaði:Það er ekki eins og wow sé eins og CS menningin, fólk sem ég er að spila wow með eru um og yfir 30 =D>

CS og WoW menningin er mjög svipuð. Fólk á öllum aldri sem spilar þá, maður bara tekur hvað mest eftir 12 ára einstaklingunum sem fara í taugarnar á manni.

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:19
af gudjonnet
Hvað er WOW?

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:21
af einzi
Wandræði Og Witleysa

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Fim 06. Nóv 2008 16:42
af ManiO
gudjonnet skrifaði:Hvað er WOW?
Ignorance is bliss.

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Mán 22. Des 2008 15:28
af Bjarki F
það þarf að búa til sub-flokk fyrir cod leikina ef það er ekki búið að því





Er nýliði svo ekki fara illa með mig ef ég veit ekki einhvað.

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Mán 22. Des 2008 15:44
af hallihg
Það þarf að fara að gefa harðar viðvaranir fyrir að endurvekja gamla þræði. Þá fara menn kannski að skoða dagsetningar.

Re: Pæling varðandi WOW

Sent: Mán 22. Des 2008 16:10
af Gúrú
Bjarki F skrifaði:það þarf að búa til sub-flokk fyrir cod leikina ef það er ekki búið að því
Þú... gáðir ekki einu sinni hvort að það væri til sub flokkur fyrir cod leikina áður en að þú baðst um það... í eldgömlum þræði... tengdum WoW?

Áhugavert... áhugavert..