Síða 3 af 4

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 18:52
af Dazy crazy
GuðjónR skrifaði:Og talandi um kerfi, ég er með 5x pc tölvur á heimilinu og eina mac, pc tölvurnar komast ekki með tærnar þar sem mac er með hælana.
Verð því miður að taka undir það sem mac gúruarnir hafa verið að segja.


Ertu að tala um í öllu eða bara skjánum?

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 21:04
af GuðjónR
Dazy crazy skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Og talandi um kerfi, ég er með 5x pc tölvur á heimilinu og eina mac, pc tölvurnar komast ekki með tærnar þar sem mac er með hælana.
Verð því miður að taka undir það sem mac gúruarnir hafa verið að segja.


Ertu að tala um í öllu eða bara skjánum?


Skjárinn er náttelga snilld, svo er það hönnunin...og tölvan er 100% silent...eða svona 99%
Annars var ég líka að tala um stýrikerfið, magnað að innstallera forritum og það er EKKI að henda *.dll skrám út um allt með tilheyrandi systemhruni.
Enda systemið byggt á UNIX sem er það öflugasta fyrr og síðar.
Sannfærist alltaf meir og meir hvað windows er mikið sorp og svik.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 21:22
af Sallarólegur
Þetta eru frábærar tölvur fyrir peninginn. No arguing with that.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 21:25
af Windowsman
Frændi minn á frekar gamlan iMac sem að er svakalega fínn.

Rosalega flott umhverfi og skemmtileg hönnun.

Sit samt en á því að það ætti frekar að kaupa rosalega silent og öfluga tölvu og skella Linux á hana.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 22:37
af urban
Sallarólegur skrifaði:Þetta eru frábærar tölvur fyrir peninginn. No arguing with that.



tjahh þetta eru stórkostlegar tölvur
hvort að þær séu aftur á móti alveg fyrir allan peningin má deila um, en aftur á móti ef að þú ert ekki þessi "almenni" leikjaspilari þá eru þær alveg stórkostlegar.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 24. Maí 2008 22:38
af GuðjónR
Svo fyrir þá sjúku væri hægt að skemma stemninguna og setja windows upp...veit ekki með linux, sé samt ekkert sem ætti að hamla á móti því.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Sun 25. Maí 2008 11:41
af ezkimo
Demon skrifaði: ALT+Q og þá quittarðu úr forritinu sem þú ert að vinna í


Það er víst command(slaufa) Q fyrir quit.. mjóg hvimleitt þegar fólk er að leita að @ sem er "alt 2"

Demon skrifaði: Svo virðast þeir einnig vera ægilega hrifnir af því að nota mús í allt í stað þess að nota lyklaborðið. Ég er t.d. vanur að nota backspace til þess að fara til baka ef ég er að skoða drifin mín í Win.Explorer, getur gleymt því í Finder, skalt sko gjöra svo vel og nota músina!


Þetta er smá vanþekking.. Þú getur nánast gert allt í Finder án músarinnar..

Td. slaufa og örfahnapparnir upp og niður taka þig framm og aftur í gluggakerfinu.. sama hvort u ert í list View eða thumbnail View..
slaufa w lokar glugga slaufa o opnar skjal og slaufa i opnar info gluggan..
Með lyklaborðs skipunum geturu browsað menu röndina og komist inn í spotlight.. ef u villt getur u sleppt skjánum líka og látið speech segja þér hvar þú ert staddur í stýrikerfin.. getur ræst speech með lyklaborðs skipun :D

Resizing á gluggum er eitthvað undarlegt, virkar bara að draga frá einu horni en ekki öllum eins og í Windows. Og svona fleiri litlir hlutir sem bara fara í taugarnar á mér.

Demon skrifaði: Ég held samt að þetta venjist svosem allt, svo eru örugglega lausnir við eitthverju sem ég er að lenda í en ég hef bara ekki nennt að kynna mér það, ekki á ég vélina. 24'' Macca skjárnir eru að fá mjög góðar einkunnir (sem og 30'') og eru taldir með þeim bestu á markaðinum. Ég held það væri ekkert leiðinlegt að eiga svona vél allavega. Í versta falli keyrirðu windows á þessu.


Það er vonnt en það venst :D

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Sun 25. Maí 2008 14:53
af Demon
Hehe jæja ágætt að það eru lausnir við eitthverju af röflinu frá mér.
En þetta er auðvitað viðbúið þegar maður hefur notað windows mjög lengi.

Re:

Sent: Mán 23. Jún 2008 20:38
af n3tm4n
Sallarólegur skrifaði:Hef alltaf haft mikinn áhuga á því að byrja að vera Makkari. Finnst forritin sem fylgja með svo fáránlega þæginleg og nytsamleg. Engir vírusar, virkar með öllu... :)

tjaaa, ef allt á makka virkar bara, af hverju eru þá til vefsíða sem heitir "Mac Fix It."

Hér er dæmi um topic:
-Login window stuck!
-lower caSe "S" key not working!!
-Menu bar keeps flashing
-I can't drag and drop!

held að þetta komi mínum skoðunum áfram

P.S. iTunes er mesta fasista BS sem ég hef nokkurntíman séð

iTunes Licence Agreement skrifaði:You Also agree that you will not use these products for... the development, design, manufacture or production of missiles, or nuclear, chemical or biological weapons


http://www.thebestpageintheuniverse.net ... =macs_cant fyrir fleiri spennó upplýsingar

Re: Re:

Sent: Mán 23. Jún 2008 22:20
af ManiO
n3tm4n skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Hef alltaf haft mikinn áhuga á því að byrja að vera Makkari. Finnst forritin sem fylgja með svo fáránlega þæginleg og nytsamleg. Engir vírusar, virkar með öllu... :)

tjaaa, ef allt á makka virkar bara, af hverju eru þá til vefsíða sem heitir "Mac Fix It."

Hér er dæmi um topic:
-Login window stuck!
-lower caSe "S" key not working!!
-Menu bar keeps flashing
-I can't drag and drop!

held að þetta komi mínum skoðunum áfram

P.S. iTunes er mesta fasista BS sem ég hef nokkurntíman séð

iTunes Licence Agreement skrifaði:You Also agree that you will not use these products for... the development, design, manufacture or production of missiles, or nuclear, chemical or biological weapons


http://www.thebestpageintheuniverse.net ... =macs_cant fyrir fleiri spennó upplýsingar



Vekja gamlan þráð til að byrja einhverjar deilur [-X Vinsamlegast ekki gera þetta aftur.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 27. Jún 2008 01:44
af Sallarólegur
Þessi mynd segir allt :) (smellið á hana til að losna við "scrollið")

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Lau 30. Ágú 2008 01:49
af CendenZ
Þarf ekki nánari útskýringar

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fim 16. Apr 2009 20:01
af biturk
mac á sína spretti, elska þennan eina takka til að minnka alla gluggana en guð minn góóóður hvað ég hata þessa mús, þetta helv lyklaborð og ITUNES ætti að vera drepið endanlega það er verkfæri djöfulsins. óþolandi að ef þú ert ekki með Iblblaala eitthvað forrit framleitt frá mac þá er HEAVY vesen að fá þau forrit til að virka rétt og getur tekið marga daga að finna lausnir.

tengjast við pc tölvu á shared network....það tók mig og mág minn tvo daga útaf macca ruglinu

ég held mig við pc takk fyrir, ef þú kannt á tölvur þá eru þær nánast aldrei með leiðindi sem ekki er hægt að vinna úr á kannski 2-5klt með smá gúgli og lítilli fyrirhöfn

eina sem gæti fengið mig til að fá mér mac væri að ef ég væri í hljóð eða myndvinnslu þar sem þær eru með betri vinnslugetu og forritamöguleika í þann pakka

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fim 16. Apr 2009 21:33
af Sydney
Fyrst við erum að þessu vil ég benda á þetta:

Er með tölvu með 4GHz Core 2 Duo, 6GB RAM og dual 8800 skjákort, með 22" skjá, G15 lyklaborð, G5 mús, 5.1 system o.s.frv. og kostaði kannski aðeins yfir 200 þúsund.

Outperformar allar mac tölvur, er með ALVÖRU UNIX kerfi, ekkert closed-source drasl og Windows fyrir leikina í dual boot, setti meira að segja hackintosh inná, en fannst það vera leiðinlegt og tilgangslaust stýrikerfi.

Linux er bara svo miklu betra en Mac á hvern einasta veg, fólk er alltaf að tala um hvað OSX er "elegant" og flott með þessum fídusum, en compiz getur svo miklu meira en OSX getur gert.

Nota Linux í allt nema einhverja harða leiki sem neita að nota openGL.

Custom built PC tölva með Linux > Mac

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 00:12
af GuðjónR
Ég er búinn að eiga haug af pc tölvum, bæði office og laptops, ég hef líka átt eina iMac og þó ég sé ekki neinn sérstakur Mac áhugamaður þá get ég sagt að engin PC tölva hefur komist með tærnar þar sem Mac er með hælana.
Þeir sem halda öðru fram hafa greinilega ekki átt Mac.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 00:33
af Sydney
Nefndu einn hlut sem mac getur gert en PC ekki.

Settu inn OSX x86 á tölvuna mína og þetta er drasl samanborið við Linux.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 02:12
af Minuz1
GuðjónR skrifaði:Ég er búinn að eiga haug af pc tölvum, bæði office og laptops, ég hef líka átt eina iMac og þó ég sé ekki neinn sérstakur Mac áhugamaður þá get ég sagt að engin PC tölva hefur komist með tærnar þar sem Mac er með hælana.
Þeir sem halda öðru fram hafa greinilega ekki átt Mac.


Getur sett OSX upp á PC vélum.

http://osx86.thefreesuite.com/leo_intel.php

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 07:44
af ManiO
Sydney skrifaði:Nefndu einn hlut sem mac getur gert en PC ekki.

Settu inn OSX x86 á tölvuna mína og þetta er drasl samanborið við Linux.


Eitt sem OSX hefur fram yfir Linux. Fyrir óreynt fólk á tölvur kemur Mac tölvan fullkomlega tilbúin. En Linux.... not so much.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 09:45
af GuðjónR
Sydney skrifaði:Nefndu einn hlut sem mac getur gert en PC ekki.

Ég er ekkert að tala um að ein tölva geti eitt en önnur ekki.

Horfu á 24" iMac á borði, ein snúra, frábær hönnun og fágun.
Horfðu síðan á PC í risa kassa druslu með 300m af snúrum út um allt í flækju.

Þurfum ekki að ræða þetta...

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 10:13
af Sydney
GuðjónR skrifaði:
Sydney skrifaði:Nefndu einn hlut sem mac getur gert en PC ekki.

Ég er ekkert að tala um að ein tölva geti eitt en önnur ekki.

Horfu á 24" iMac á borði, ein snúra, frábær hönnun og fágun.
Horfðu síðan á PC í risa kassa druslu með 300m af snúrum út um allt í flækju.

Þurfum ekki að ræða þetta...

Spurning um smekk, sumir vilja einfalt, sumir vilja customizable, vill geta overclockað, moddað etc.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 10:22
af depill
GuðjónR skrifaði:Ég er búinn að eiga haug af pc tölvum, bæði office og laptops, ég hef líka átt eina iMac og þó ég sé ekki neinn sérstakur Mac áhugamaður þá get ég sagt að engin PC tölva hefur komist með tærnar þar sem Mac er með hælana.
Þeir sem halda öðru fram hafa greinilega ekki átt Mac.


Hmm ég hef átt marga Maca, þarf að ég held 5 MacBook Pro ef mig minnir rétt, 3 PowerBækur og 2 iBækur, 3 iMaca og einn PowerMac G4 og já 2x MacMini ( á einn núna, hann er SNILLD sem media centerið mitt ).

Mér finnst þær allar snilld, myndi örugglega hugsa í að fá mér aftur Mac einhvern tíman. Hins vegar finnst mér þetta ekki svona heilagt eins og mörgum finnst, mér finnst sumt vera gallar við Mac og sumt vera gallar við PC. Ég hef aldrei átt algjörlega hljóðláta ferðavél hvorki PC né Mac, þannig reynið ekki að halda þessu fram. Þær geta verið jú hljóðlátar, en það er alltaf samt þetta smá hljóð ( shitt verst var það bara 1G MacBook Pro þar sem að hátíðnihljóðið var að gera mig vitlausan, sem tók AIMC b.t.w endalausan tíma að gera við ).

Núna á ég XPS m1330 þar sem að mér fannst á þeim tíma ( og finnst enn ) Apple eiga ekkert til að svara þeirri vél. Mig langaði soldið í MacBook Air sem yrði í fyrsta skipti, en fjandinn, 1 USB, non user-replaceable batterí ( sem er líka komið í MBP 17", sama hvað þið reynið, þá er non-user replaceable batterí ALGJÖR SKITA og þið getið ekki réttlætt það fyrir mér ) og ekkert geisladrif. Ég nota það ekki oft, en ég nota það samt.

Þannig punkturinn minn er þessi, þetta er tölva. Þetta virkar mjög svipað. iMac er flott All-in-one-design, en það eru líka til PC vélar sem gera það sama. Mac OS X er flott stýrikerfi og hentar mörgum, en stundum viltu Windows eða Linux eða wtf, að það skuli vera hægt að rífast jafn mikið um einn hlut er ótrúlegt.

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 12:03
af GuðjónR
depill sammála, hvort maður velur mac eða pc eiga ekki að vera trúarbrögð eins og sjálfstæðismenn hafa alltaf kostið sjálfstæðisflokkin af því að pabbi gerði það.
Ég hef t.d. engan áhuga á mac fartölvum með 13" skjá, mér finnst 15.4" lágmark, myndi helst vilja 17" og að geta ekki skipt um batterý er big FAIL.

Varðandi iMacinn þá er sú yngsta (5 ára) löngu búin að eigna sér hann, og því er VISTA keyrt á honum 98% tímans.
Því má segja að iMacinn sé flottasta PC tölvan á heimilnu, en iMac er btw ekkert annað en fartölva á sterum.

Síðan má ekki gleyma einu, að ef eitthvað bilar í Mac þá er 6 mánaðar BIÐ á verkstæðið, þá spyr maður sig... eru svona fáir að vinna á verkstæðinu? eða eru þær svona bilanagjarnar??

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 12:28
af ManiO
Er með 3 Apple tölvur á heimilinu.

5 ára gamla 17" G4 Powerbook, eina sem er að henni er að skjárinn hefur ekki lengur baklýsingu sem er alfarið mér að kenna.

1 árs 24" iMac, ekkert að henni.

1 árs Mac Mini sem media center sem ekkert er að heldur (búið að vera kveikt á henni nánast samfellt þetta ár).


Grunar að bilanatíðnin sé bara svipuð og í PC geiranum (enda mest allt sömu íhlutir í dag) ásamt því að verkstæðisfólkið hér sé fámennt (kannski líka bara ekki nógu góðir).

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 15:45
af Sydney
ManiO skrifaði:Er með 3 Apple tölvur á heimilinu.

5 ára gamla 17" G4 Powerbook, eina sem er að henni er að skjárinn hefur ekki lengur baklýsingu sem er alfarið mér að kenna.

1 árs 24" iMac, ekkert að henni.

1 árs Mac Mini sem media center sem ekkert er að heldur (búið að vera kveikt á henni nánast samfellt þetta ár).


Grunar að bilanatíðnin sé bara svipuð og í PC geiranum (enda mest allt sömu íhlutir í dag) ásamt því að verkstæðisfólkið hér sé fámennt (kannski líka bara ekki nógu góðir).

Ef tölvan mín bilar kemst ég bara að því hvað er að og skipti hann út, og ef hluturinn er enn í ábyrgð, mér að alveg kostnaðarlausu.

Kæmi ekki á óvart ef Apple tekur einhvern 15 þúsund á tímann eða eitthvað á verkstæðinu...

Re: Er að hugsa um að svíkja lit.

Sent: Fös 17. Apr 2009 15:50
af Gúrú
Sydney skrifaði:Ef tölvan mín bilar kemst ég bara að því hvað er að og skipti hann út, og ef hluturinn er enn í ábyrgð, mér að alveg kostnaðarlausu.

Kæmi ekki á óvart ef Apple tekur einhvern 15 þúsund á tímann eða eitthvað á verkstæðinu...


Og hvað? Tölvan er löguð þér að kostnaðarlausu ef að hún er í ábyrgð sama hvort að hún er keypt hjá Apple eða ekki, og það að það sé þér kostnaðarlaust að skipta um hluti sjálfur þá er það augljóslega ódýrara en að ráða einhvern annan, og eins og þú sérð á verðum Apple eru þeir ekki að reyna að vera í samkeppni við önnur verkstæði þar sem að þeir hafa nóg að gera nú þegar og hafa engan tíma fyrir aukavinu og þar af leiðandi ætti enginn að versla við verkstæðið þeirra v. lagfæringar.. Hvað ertu að segja hérna?