Síða 3 af 4
Sent: Fim 09. Mar 2006 16:36
af Rusty
yeah, but when you think about it, þá eru flestir svona.
Sent: Fim 09. Mar 2006 17:30
af gnarr
nei. flestir segja strax: "þú borgar þetta á mánuði og mátt downloada svona mikið".
Hive sagði: "þú borgar þetta á mánuði og þú mátt downloada eins mikið og þú vilt", en svo breyttu þeir því alltíeinu eftir á, þegar fólk var búið að kaupa tenginguna.
Sent: Fim 09. Mar 2006 18:45
af GuðjónR
gnarr skrifaði:nei. flestir segja strax: "þú borgar þetta á mánuði og mátt downloada svona mikið".
Hive sagði: "þú borgar þetta á mánuði og þú mátt downloada eins mikið og þú vilt", en svo breyttu þeir því alltíeinu eftir á, þegar fólk var búið að kaupa tenginguna.
Nákvæmlega!!! það er óásættanlegt...
Sent: Fim 09. Mar 2006 21:09
af Veit Ekki
GuðjónR skrifaði:gnarr skrifaði:nei. flestir segja strax: "þú borgar þetta á mánuði og mátt downloada svona mikið".
Hive sagði: "þú borgar þetta á mánuði og þú mátt downloada eins mikið og þú vilt", en svo breyttu þeir því alltíeinu eftir á, þegar fólk var búið að kaupa tenginguna.
Nákvæmlega!!! það er óásættanlegt...
Já, þetta er fáránlegt.
Mér finnst að ef þeir breyta skilmálunum svona að það myndi bara eiga við nýja viðskiptavini þar sem að hinir eru búnir að skrifa undir samning með öðrum skilmálum.
Sent: Fim 09. Mar 2006 23:45
af Rusty
Veit ekki með aðra, en símnet taka sterkt fram "Skilmálar geta breyst án fyrirvara".
Sent: Fös 10. Mar 2006 00:11
af gnarr
Simnet og vodafone hafa þó ekki enþá breytt án fyrirvara (það er að segja til hins verra), allavega ekki svo að ég viti.
Værir þú sáttur rusty, ef þú myndir kaupa 100mb tengingu með frýu niðurhali, og svo 3 dögum eftir að þú borgaðir fyrir tenginguna og skráðir þig í lífstíðar áskrift með órjúfanlegum samningi, þá myndu þeir bara breyta skilmálunum þannig að þetta væri 56k tenging með 100kr per MB.
Þetta er "sami" hlutur sem hiver er að gera, nema hvað að þeir eru ekki alveg svona grófir.
Sent: Fös 10. Mar 2006 04:43
af appel
Sent: Fös 10. Mar 2006 07:25
af gnarr
http://hive.is/index.aspx?GroupId=104
8.
Viðskiptavini er ekki heimilt að trufla, skerða eða á nokkurn hátt hafa áhrif á notkun annarra viðskiptavina. Einnig er viðskiptavini óheimilt að setja upp hugbúnað eða starfrækja tölvuþjónustu sem getur skert þjónustu annarra viðskiptavina. Ef í ljós kemur að notkun felur í sér misnotkun á búnaði eða þjónustu IPF hefur félagið fulla heimild til að synja viðskiptavini um þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar. Eftirfarandi atriði falla undir það að geta haft áhrif á eða skert þjónustu til annarra viðskiptavina:
8.1 – Óhóflegt niðurhal á erlendu gagnamagni. Ef erlent gagnamagn fer yfir sem svarar 60 GB á 30 dögum að jafnaði, áskilur IPF sér rétt til að gera viðeigandi ráðstafanir svo slík notkun skerði ekki gæði þjónustu til annarra viðskiptavina.
8.2 - Notkun forrita eða annars búnaðar sem felur í sér sjálfvirkt niðurhal og leiðir til óhóflegs erlends gagnamagns sbr. gr. 8.1.
8.3 – Hvers kyns notkun er felur í sér óeðlilegt álag á sameiginlegum kerfum er ætluð eru til þjónustu allra viðskiptavina IPF.
Sent: Sun 12. Mar 2006 06:39
af appel
http://spjall.hive.is/viewtopic.php?t=759
Gunnlaugur Admin á Hive.is segir:
Eins og fram hefur komið, þá erum við ekki að loka á tengingar þó þær fari yfir þessi 60GB. Viðeigandi ráðstafanir eru þá t.d. að setja þá sem hala minna niður í hærri forgang heldur en þá sem eru að hala niður allan sólarhringinn. Þannig gætum við haldið jöfnum aðgangi að útlandabandvídd á álagstíma.
Ég veit ekki nákvæmlega í hvaða tilfellum þessi grein á við. Það má samt benda á að við höfum aldrei lokað á neinn út af of miklu niðurhali. Við höfum ekki einu sinni sent út viðvaranir út af því. Þessar greinar eru í raun bara varúðarráðstafanir sem eru í ADSL samningum hjá öllum intenetþjónustum sem bjóða upp á ótakmarkað niðurhal.
Það eru margir áskrifendur hjá okkur sem fara langt yfir þessi 60GB, jafnvel yfir 300GB. Við höfum ekki skipt okkur af því.
Þannig að 60GB er ekkert hámark sem þýðir neitt, það er bara til að gefa til kynna að í einhverjum tilfellum (sem eru vonandi fá) þá fá þeir sem eru með umfram 60GB download lægri pakkaforgang.
Efast um að þetta skipti einhverju máli. Jafnvel þó það sé eitthvað mikið álag á kerfunum hjá þeim, þá er ekki nema hluti af pökkunum sem fara í lægri forgang, og þú færð pakkana hvort sem er og verður varla var við það að þeir hafi verið í lægri forgang.

Sent: Sun 12. Mar 2006 08:07
af Rusty
oh great.. setja þeir P2P sem low priority, síðan ef maður downloadar lengi á P2P, þá er maður settur sem low priority, að downloada P2P á low priority. Djöfull hlýtur það að vera frábær hraði..
starting to sound sucky. Sérstaklega þar sem þeir sögðu að ef notkun yrði of mikil myndu þeir kaupa aðild að FarICE..
Sent: Sun 12. Mar 2006 08:15
af fallen
það á náttúrulega bara að sniðganga hive útaf þessu
myndi ekki láta bjóða mér uppá þetta
Sent: Fös 17. Mar 2006 18:00
af Gestir
Ok,
GuðjónR byrjar að væla yfir Símanum, núna vælir hann yfir Hive, ég býð spenntur eftir Vodafone væli
En yfir í aðra sálma.
Hver þarf að sækja meira en 30-60GB á mánuði ? HONESTLY !!
Það sem fer fram yfir það er náttúrulega bara misnotkun sé þetta til lengri tíma og auðvitað skerðir þetta á tengingar hjá öðrum VV ef að nokkrir kúnnar eru ALLTF með allt DL í botni.
Ef þið huxið þetta aðeins lengra en næsta porn mynd eða þáttur þá hljótið þið að sja þetta í réttu ljósi.
Reyndar ef HIVE breytti þessum skilmálum sínum asmt allt í einu þá er það bara enn einn steinninn sem þeir kasta úr glerhúsi sínu.
Með annars fullri virðingu fyrir samkeppni á Íslandi.
Góða helgi
Sent: Fös 17. Mar 2006 19:10
af SolidFeather
Það vita allir að Síminn er bestur.
Sent: Lau 18. Mar 2006 02:16
af Rusty
SolidFeather skrifaði:Það vita allir að Síminn er bestur.
þó verstu þjónustuna.
Sent: Lau 18. Mar 2006 15:30
af Gestir
Það eru eflaust ekki allir sammála því.
Það er kvarta gífurlega yfir þjónustu hjá Hive, Símanum , Vodafone, Skyggnir, Skýrr.. Allstaðar.
Hvar er 100% þjónusta
það er alltaf fólk sem þarf að kvarta, og það er alltaf fólk sem þarf ekki að kvarta.
Sent: Lau 18. Mar 2006 18:06
af Andri Fannar
Hjá vodafone þarf þó ekki að bíða í 4 tíma í símanum eftir hjálp.
Sent: Lau 18. Mar 2006 18:53
af DoRi-
metið mitt að bíða er 1klst
það þurfa kannski svona margir að bíða því að all flestir eru hjá símanum?
Sent: Lau 18. Mar 2006 19:02
af Gestir
ÉG hef heyrt að það sé misjöfn bið hjá Símnet og auk eþss hef ég líka heyrt þess getið að fólk sé að velja kol rangt á símsvara.
Allir velja tæknilega aðstoð þó það eigi kannski heima í Söluveri, og þá myndast flöskuhálsar.
Einnig heyrði ég að það væri verið að leita að fleira fólki hjá Símnet og væru ráðningar í gangi þar, sem er flott mál.
Sent: Lau 18. Mar 2006 21:13
af Rusty
Það eina skipti sem ég hef ekki gefist upp hjá símanum var það 1klst. Guði sé lof fyrir að síminn hafði headset.
Núna, þá nota ég annaðhvort
webmaster@siminn.is eða
8007000@siminn.is, eftir því hvað tilfellið er. Símar eru so last century..
Sent: Lau 18. Mar 2006 21:33
af GuðjónR
ÓmarSmith skrifaði:Ok,
GuðjónR byrjar að væla yfir Símanum, núna vælir hann yfir Hive, ég býð spenntur eftir Vodafone væli

Væla? ertu búinn að fá leið á spjallinu? ekkert mál ég skal deleta user..
Hver þarf að sækja meira en 30-60GB á mánuði ? HONESTLY !!
Hvað kemur þér það eiginlega við?
Sent: Sun 19. Mar 2006 16:39
af appel
Muniði eftir gömlu góðu dögunum, á 14kbit og 28.8kbits modemunum, og alltaf á tali á kvöldin.
Sent: Sun 19. Mar 2006 18:55
af GuðjónR
appel skrifaði:Muniði eftir gömlu góðu dögunum, á 14kbit og 28.8kbits modemunum, og alltaf á tali á kvöldin.
Those were the days...
Sent: Mán 20. Mar 2006 19:40
af Rusty
Lagið í klukkutíma..
Sent: Mán 20. Mar 2006 20:44
af Sallarólegur
GuðjónR skrifaði:ÓmarSmith skrifaði:
GuðjónR byrjar að væla
ertu búinn að fá leið á spjallinu?
Fatta ekki beinlínis hvernig þetta tengist saman...
Sent: Mán 20. Mar 2006 20:49
af Blackened
Viktor skrifaði:GuðjónR skrifaði:ÓmarSmith skrifaði:
GuðjónR byrjar að væla
ertu búinn að fá leið á spjallinu?
Fatta ekki beinlínis hvernig þetta tengist saman...
... Ef þú skoðar þetta aðeins nánar.. þá var Ómar að skjóta á GuðjónR..
og GuðjónR er stjórnandi hér á spjalli.. svo að GuðjónR var að segja að ef að hann væri með einhver leiðindi þá gæti hann alveg eytt aðganginum hans Ómars ef að hann vildi
Hugsa aðeins og þá kemur þetta alltsaman
