Síða 15 af 16

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 10:26
af Garri
Spurning samt hvort þessir aðilar þurfi ekki að kosta einhverju smá til að fara eftir lögum.. í allavega einhverjum þáttum sinnar starfssemi.

Sjá til dæmis þetta:
8. gr.

Ítarleg sundurliðun reikninga.

Áskrifendur að fjarskiptaþjónustu eiga rétt á að fá reikninga fyrir fjarskiptaþjónustu ítarlega sundurliðaða gegn hæfilegu gjaldi óski þeir eftir því. Skulu áskrifendur alþjónustu þó eiga rétt á slíkri sundurliðun reikninga án þess að greiðsla komi fyrir. Í ítarlegri sundurliðun reikninga felst að áskrifandi getur fengið nákvæmari upplýsingar en þær er birtast á almennum reikningi hans um fjarskiptaþjónustu sína. Kröfur um sundurliðun samkvæmt ákvæði þessu má uppfylla með rafrænum hætti, t.d. með tölvupósti eða sérstökum aðgangi notanda að þjónustuvefsíðu.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 10:30
af AntiTrust
Þessi grein er samt svo óljós, m.v. hana eru fjarskiptafyrirtæki að uppfylla lagalegur skyldur með því að bjóða upp á skoðun á gagnamagni eftir dögum. Það þarf að skilgreina þetta mikið nánar áður en viðskiptavinir heimta meiri upplýsingar með e-rjum grundvelli.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 10:34
af Garri
Ja.. "ítarlega sundurliðaða" finnst mér allavega nokkuð sterkt orðalag.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 10:39
af AntiTrust
Garri skrifaði:Ja.. "ítarlega sundurliðaða" finnst mér allavega nokkuð sterkt orðalag.
Lagalega er það mjög óljóst. Það er ekkert í þessari grein sem telur til hvað fellur undir ítarlegt og því algjörlega geðþóttaákvörðun hvers fyrirtækis fyrir sig svo lengi sem það uppfyllir nákvæmari upplýsingar en ".. upplýsingar en þær er birtast á almennum reikningi."

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 11:05
af Garri
AntiTrust skrifaði:

Orðið "ítarlegt" er nokkuð skýrt, bæði lagalega og skilningslega. Ef ég vill fá ítarlega internetnotkun á erlendu gagnamagni, þá þýðir ekkert til dæmis að taka saman notkun á daga eða klukkutíma. Orðið "samantekt" getur ekki verið samhljóma orðinu "ítarlegt" í einu né neinu tilliti.

Aðeins ítarlegur listi yfir allar forsendur gjaldmælingar fyrir notkun er ásættanlegur miðað við þessa grein, allavega.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 11:29
af Daz
Garri skrifaði:

Ekki skil ég greinina þannig, raunar er þetta nokkuð skýrt eins og AntiTrust sagði
Í ítarlegri sundurliðun reikninga felst að áskrifandi getur fengið nákvæmari upplýsingar en þær er birtast á almennum reikningi hans um fjarskiptaþjónustu sína.
Reyndar er sundurliðunin útskýrð í næsta lið í reglugerðinni
9. gr. skrifaði:Upplýsingar á ítarlega sundurliðuðum reikningum.

Ítarleg sundurliðun reikninga fyrir fjarskiptanotkun, samkvæmt 8. gr., skal að lágmarki innihalda eftirfarandi upplýsingar:
....

c. Nákvæmar upplýsingar um notað gagnamagn sundurliðað eftir tímabilum með klukkustundar nákvæmni.
Meiri sundurliðinu en þetta er ekki lagaleg skylda að veita. Ég var einmitt að kvarta yfir þessu á síðustu blaðsíðu

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Þri 04. Feb 2014 17:39
af AntiTrust
Garri skrifaði: Orðið "ítarlegt" er nokkuð skýrt, bæði lagalega og skilningslega. Ef ég vill fá ítarlega internetnotkun á erlendu gagnamagni, þá þýðir ekkert til dæmis að taka saman notkun á daga eða klukkutíma. Orðið "samantekt" getur ekki verið samhljóma orðinu "ítarlegt" í einu né neinu tilliti.

Aðeins ítarlegur listi yfir allar forsendur gjaldmælingar fyrir notkun er ásættanlegur miðað við þessa grein, allavega.
Nei, nú ert þú að lesa það sem þú vilt úr þessari umræddu grein. Ítarlegt er lýsingarorð, og því nær merkingarlaust lagalega séð nema meðfram nákvæmum leiðbeiningum hvað felst í orðinu m.v. samhengi, eins og sést í greininni sem Daz vísar í. Það liggur því við að eins og lögin eru í dag eru fyrirtækin ekki lagalega skylduð til þess að gefa upp allar forsendur gjaldmælingar fyrir notkun.

Það má svo deila um hvernig hægt er að skilja 4.gr og 7.gr. - en það má deila um það hvernig þessar greinar skiljast, eins og með margar aðrar lagagreinar.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 06. Feb 2014 20:48
af Some0ne
AntiTrust skrifaði:Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Verð bara að svara þessu, þetta er ekki rétt. IP sundurliðun fyrir einn dag tekur ekki nema skamma stund.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 06. Feb 2014 20:50
af Plushy
Some0ne skrifaði:

Þetta er samt verk sem tekur einhvern tíma. Væri fínt að bjóða upp á svona þjónustu en fólk ætti þá að vera til í að borga eitthvað fyrir hana.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 06. Feb 2014 20:52
af Some0ne
Plushy skrifaði:

Tekur svona 60 sekúndur að gera þetta manually, ef þetta væri gert í gegnum einhverjar scriptur þá tæki þetta brot af því

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 06. Feb 2014 21:12
af AntiTrust
Some0ne skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Það væri hugsanlega hægt að bjóða upp á sundurliðun niður á mínútu, hinsvegar er álagið við að sækja þær upplýsingar úr gagnagrunninum gífurlegt. Sama á við þegar fólk er að biðja um IP sundurliðun, það tekur nokkra klukkutíma bara að keyra hrágögnin úr gagnagrunnum.
Verð bara að svara þessu, þetta er ekki rétt. IP sundurliðun fyrir einn dag tekur ekki nema skamma stund.
Ég er að tala um heilan mánuð. Þegar þú kaupir IP sundurliðun færðu hrágögn fyrir heilan mánuð. Afhverju það tekur svona langan tíma veit ég ekki, hvort það er verið að keyra samanburð við hrágögn frá hverjum tengipunkt fyrir sig eða hvað, en ég veit að þetta tekur umtalsvert meiri tíma en örfáar mínútur.

EDIT: Ég skal bara athuga hvort ég geti ekki fengið þetta á hreint.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 16:46
af Gúrú
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

100Mb ljósleiðari beintengdur 12. febrúar.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 17:41
af Garri
AntiTrust skrifaði: ..snip

EDIT: Ég skal bara athuga hvort ég geti ekki fengið þetta á hreint.
Og?

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 21:40
af berteh
Gúrú skrifaði:Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

100Mb ljósleiðari beintengdur 12. febrúar.
hefur ekki bara verið eitthvað vesen þarna akkurat? Tók nokkur hjá mér yfir wifi

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
*edit*bætti við durham*/edit*
Mynd

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 22:23
af ponzer
Gúru, ertu ekki bara kominn í capp/búinn með gagnamagnið þitt ?

Tók sömu test og þú og er að fá þessar fínu tölur..

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Durham,NC - US:
Mynd

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 22:30
af dori
ponzer skrifaði:Gúru, ertu ekki bara kominn í capp/búinn með gagnamagnið þitt ?
Tengdur 12. febrúar. Hljómar ekki mjög líklegt...

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 22:53
af Plushy
dori skrifaði:
ponzer skrifaði:Gúru, ertu ekki bara kominn í capp/búinn með gagnamagnið þitt ?
Tengdur 12. febrúar. Hljómar ekki mjög líklegt...
Ef hann væri kappaður myndi hann örugglega ekki ná inn á speedtest hvort sem er. Hinsvegar gæti verið að það eigi eftir að ganga frá pöntuninni hans eða svipað ef hann var tengdur í dag. Tengingin kemur alltaf fyrst frá Gagnaveitunni í boxið síðan er klárað að setja upp hjá fjarskiptafyrirtækinu.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 23:10
af Televisionary
Ég man eftir því eitt sinn að hafa verið tengdur á ljósleiðaranum til Vodafone og það var eitthvað sem klúðraðist og ég var fastur á mjög lágri bandvídd einhver sjálfvirkni mál í ólagi sem voru bara löguð eftir 1 símtal og þjónustuaðilinn fljótur að koma auga á það sem var ekki að virka. Það má ekki gleyma því að stundum geta hlutir farið úrskeiðis.
Plushy skrifaði:
dori skrifaði:
ponzer skrifaði:Gúru, ertu ekki bara kominn í capp/búinn með gagnamagnið þitt ?
Tengdur 12. febrúar. Hljómar ekki mjög líklegt...
Ef hann væri kappaður myndi hann örugglega ekki ná inn á speedtest hvort sem er. Hinsvegar gæti verið að það eigi eftir að ganga frá pöntuninni hans eða svipað ef hann var tengdur í dag. Tengingin kemur alltaf fyrst frá Gagnaveitunni í boxið síðan er klárað að setja upp hjá fjarskiptafyrirtækinu.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mið 12. Feb 2014 23:26
af kthordarson
Ég hætti hjá Voda eftir þetta rugl. Er núna hjá Tal. Notelegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af innlenda/erlenda lengur :)

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 13. Feb 2014 00:25
af chaplin
kthordarson skrifaði:Ég hætti hjá Voda eftir þetta rugl. Er núna hjá Tal. Notelegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af innlenda/erlenda lengur :)
Hefðir held ég geta notað DNS "trick"-ið sem GuðjónR vitnaði í fyrr í þræðinum, minnir að það virki og þá værir þú með það gagnamagn sem þær stækkuðu í + allt í gegnum spegla ókeypis. :happy

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 13. Feb 2014 00:45
af Gúrú
Svakalega langt frá gagnamagnshámarkinu. Sömu ömurlegu tölur á íslenskum serverum á Speedtest.

Þetta makear ekkert sense fyrir mér þar sem þetta er ljósleiðaratenging. Skil þetta ekki alveg.

Held fjarskiptafélögunum bjóðist ekki einu sinni að stilla á svona lágan hraða hjá GR. Kanna þetta betur á morgun.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 13. Feb 2014 00:57
af AntiTrust
Hvað segir speedtest.gagnaveita.is? Getur notað það til að útiloka að vandamálið sé í fíbernum/ONTunni.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Fim 13. Feb 2014 01:23
af kthordarson
chaplin skrifaði:
kthordarson skrifaði:Ég hætti hjá Voda eftir þetta rugl. Er núna hjá Tal. Notelegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af innlenda/erlenda lengur :)
Hefðir held ég geta notað DNS "trick"-ið sem GuðjónR vitnaði í fyrr í þræðinum, minnir að það virki og þá værir þú með það gagnamagn sem þær stækkuðu í + allt í gegnum spegla ókeypis. :happy
Nei, það virkaði ekki. Það kom redirect frá CDN-inum á Símanetinu inná Voda CDN.

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mán 17. Feb 2014 09:21
af lukkuláki
Capture.PNG
Capture.PNG (598.46 KiB) Skoðað 1012 sinnum
Ætla þeir sem lentu í þessu og eru eða voru hjá Vodafone á þessum tíma að skrá sig í þetta ?
http://malsoknarfelag.is/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Er vodafone downloadið í einhverju rugli ????

Sent: Mán 17. Feb 2014 16:46
af Sallarólegur
lukkuláki skrifaði:
Capture.PNG
Ætla þeir sem lentu í þessum leka og eru eða voru hjá Vodafone á þessum tíma að skrá sig í þetta ?
http://malsoknarfelag.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta var ekki leki.