Síða 12 af 37
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Þri 03. Júl 2012 13:50
af AciD_RaiN
Klemmi skaut mér skelk í bringu. Hann seldi mér 128gb SSD og þegar ég opnaði pakkann var hann í kassa af 256gb disk. Hélt ég þyrfti að senda hann til baka og vesen en diskurinn alveg perfect og hann gerði mér meir að segja greiða í leiðinni sem honum bar engin skylda að gera. Algjör ljúflingur...
methylman keypti af mér minni og var snöggur að borga. Topp náungi þar á ferð líka

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Mið 04. Júl 2012 03:29
af Gúrú
Fumbler bauð í, sótti og greiddi fyrir vinnsluminni. Svona frekar eðlilegt en jú það sem að þessi þráður er fyrir.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Mið 04. Júl 2012 05:09
af J1nX
keypti skjákort af n7armor , nýhreinsað og nóta með og alles.. algjört gúrm

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fös 06. Júl 2012 12:47
af yrq
Ég keypti tölvu af sverrisson og hann var fljótur í svörum og með gott verð. Allt gekk eins og í sögu.
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Mið 11. Júl 2012 13:13
af peturthorra
Hrós dagsins fær Slubert, keypti af honum PNY GTX580 kort, lagði inn á hann fyrirfram og hann sendi mér svo kortið í pósti. Gekk mjög vel fyrir sig, og ánægjulegt að vera í viðskiptum við hann.
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fim 19. Júl 2012 21:42
af Benzmann
var að stunda viðskipti við Daz í dag, allt gekk eins og í sögu
seldi honum gömlu tölvuna mína
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fös 20. Júl 2012 14:56
af AciD_RaiN
krissdadi keypti af mér smá tölvudót og var fljótur að svara og stóð við allt sem hann sagði. Topp kaupandi

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 21. Júl 2012 00:39
af Stubbur13
Ég verslaði við bulldog, lagði inn á hann og treysti honum fyrir því að senda til mín sem hann auðvitað gerði. Var snöggur að koma þessu í póst þar sem ég er á Akureyri og hann í Keflavík. Setti pakkan í góðar umbúðir svo það mundi ekkert koma fyrir vöruna, ég mundi versla af honum aftur.
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 21. Júl 2012 00:52
af bulldog
takk sömuleiðis

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 21. Júl 2012 04:56
af Gunnar
Stubbur13 skrifaði:Ég verslaði við bulldog, lagði inn á hann og treysti honum fyrir því að senda til mín sem hann auðvitað gerði. Var snöggur að koma þessu í póst þar sem ég er á Akureyri og hann í Keflavík. Setti pakkan í góðar umbúðir svo það mundi ekkert koma fyrir vöruna, ég mundi versla af honum aftur.
passaðu þig samt á honum....
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... &start=400" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Sun 22. Júl 2012 00:41
af bulldog
gunnar : það getur öllum orðið á og yfirleitt er ég góður kaupandi / seljandi hérna. Fæ bráðum annað gott review hérna

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Þri 24. Júl 2012 00:11
af Daz
Benzmann skrifaði:var að stunda viðskipti við Daz í dag, allt gekk eins og í sögu
seldi honum gömlu tölvuna mína
Væri það ekki frekar ég sem myndi hrósa þér fyrir að hafa selt tölvu sem var eins og hún var auglýst.
Takk fyrir mig, fékk meira að segja fría heimsendingu!
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Þri 24. Júl 2012 14:45
af AciD_RaiN
Átti smá við"skipti" við siggi83 og allt gekk eins og í sögu frá mínum enda séð. ótrúlega sáttur og hann stóð reyndar alveg rúmlega við sitt

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Þri 24. Júl 2012 15:01
af Baldurmar
Keypti vinnsluminni af
Maddi allt gekk eins og í sögu og hann gekk meira að segja svo langt að skutla minnunum til mín !

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Mið 01. Ágú 2012 16:26
af bulldog
Ég keypti EVGA X79 Classified móðurborð og i7 3930K örgjörva af Tiger og allt gekk eins og í sögu

Hann var svo almennilegur að skutla þessu til mín líka til Keflavíkur

Ég myndi hiklaust versla af honum aftur :drekka
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Mið 01. Ágú 2012 16:33
af AciD_RaiN
gardar keypti af mér kapla og stóð við allt sem hann sagði

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fim 02. Ágú 2012 23:59
af Tiger
Bulldog keypti af mér móðurborð og örgjörva, allt stóðst eins og flís við rass.......sel honum örugglega helling í viðbót.
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fös 03. Ágú 2012 00:45
af agust1337
Keypti mús af arnarj um daginn og það gekk bara eins og í sögu.
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 04. Ágú 2012 01:54
af ASUStek
Fékk Antec 1200 kassa frá Bulldog lagði inná hann helming sendum hann með póstkröfu þvert yfir landið í ekki neinum pakkningum kom að dyrum mínum heill og alveg í skikkjanlegu formi , alltaf gott að koma heim frá lannnngri vakt finna út
að litla barnið fékk hús

lagði restinna inná hann... áreiðanlega fljótasta sala vaktarinnar ! sýnir bara hverjir eru traustir!
vil þakka Bulldog enn og aftur fyrir viðskiptin
reyndar eftir að fá skrúfur til að festa diskana mína og svona clip on fyrir auka viftu innan í og og réttar skrúfur fyrir hliðarhurðirnar :S
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 04. Ágú 2012 03:12
af bulldog
Takk sömuleiðis fyrir viðskiptin

Þetta gekk snöggt og vel fyrir sig

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 04. Ágú 2012 16:27
af Fridvin
Keypti fartölvu af HR og gékk það mjög fljótt fyrir sig og leið og vélin byrjaði að hitna þá hafði hann samband við tölvutek og fékk þá til að rykhreinsa og skipta um kælikrem á örgjörva..
Topp náungi og mundi hiklaust hafa viðskipti við hann aftur. (Frekar leiðinlegra fyrir hann að hafa svona kröfuharðan kaupanda

)
Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 11. Ágú 2012 00:45
af Yawnk
Keypti GTX560 Ti af HR og allt gekk eins og í sögu, vel pakkað inn og í kassa, bauðst jafnvel til að setja það í vélina hjá mér ef allt færi til fjandans, því ég er soddan nýliði

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 11. Ágú 2012 09:48
af Klemmi
Bulldog og Acid-Rain fá báðir toppmeðmæli frá mér, öll mín viðskipti við þá hafa gengið mjög hratt og vel.
Einnig var arnoredlus að kaupa af mér tölvu í gær og allt gekk eins og í sögu

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Lau 11. Ágú 2012 09:57
af vesley
Gleymdi alltaf að þakka Tiger þúsundfalt fyrir hópkaupin sem hann stóð fyrir.
Gekk allt eins og í sögu og mun ég allavega treysta honum 100% fyrir næstu kaupum.
Vona bara að það verði önnur hópkaup í haust

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum
Sent: Fim 16. Ágú 2012 01:45
af Xovius
Var að kaupa vinnsluminni af Tiger

allt gekk eins og í sögu og allt virkar fínt
