Síða 12 af 12

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 29. Apr 2011 16:31
af coldcut
Ripparinn skrifaði:Og hér er verið að tala um rannsóknardeild og tæknideild lögreglunar(sem kann ekki á linux).
Kann þetta lið í alvörunni ekki á Linux? Spurning um að hafa þá bara allt vafasamt í falinni möppu þá finna þeir ekki neitt:D

Annars skil ég ekki þá sem eru að gera e-ð sem þeir vita að er á mörkum þess að vera löglegt og eru ekki með almennileg encryption á drifunum sínum og jafnvel fela þau. Án þess að geta fullyrt um það þá held ég að það sé ekki lögbrot á Íslandi að neita að gefa upp lykilorð ein og það er t.d. í Bretlandi.

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 14:54
af Ripparinn
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett ... ldri-malum" onclick="window.open(this.href);return false;


Round 2 ?

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 14:55
af Gúrú
Ég skil ekki hvers vegna þú ert að bumpa þræði með þessari frétt. Það er bókstaflega ekkert fréttnæmt í henni
og það bendir ekkert til þess að neitt sé að fara að gerast. Auðvitað er Smáís búið að kæra Deildu.net fyrir löngu.

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 18:40
af braudrist
Gúru jákvæðni mættur á svæðið :troll

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 18:42
af Sallarólegur
Hef aldrei skilið hvernig í ósköpunum það er hægt að pirra sig á því að gamlar umræður séu teknar upp á nýju... mjög margir bæði hér og á öðrum spjallborðum sem pirra sig á þessu, aldrei skilið þetta.

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 18:45
af Gúrú
braudrist skrifaði:Gúru jákvæðni mættur á svæðið :troll
Mín stefna er að óúthugsuðum póstum sé mætt með beittri, broskallalausri hlutleysni.
Sallarólegur skrifaði:mjög margir bæði hér og á öðrum spjallborðum sem pirra sig á þessu, aldrei skilið þetta.
Hef ekkert á móti því að þetta sé upp-bumpað per se, með áhugaverðari þráðum Vaktarinnar, en það er bókstaflega ekkert í þessari frétt
sem að bendir til þess að hún tengist þessum þræði, þessi frétt er eins og Tweet. "Smáís beitir sér gegn torrent síðum með h.réttarvörðu efni. Mikið að gera hjá dómsstólum" :)

Re: húsleit vegna "ólöglegs" niðurhals

Sent: Fös 24. Ágú 2012 18:52
af zedro
Gúrú skrifaði:blablabla
Vantar svona Like post takka, algjörlega sammála Gúru :)