Síða 2 af 2

Sent: Þri 29. Nóv 2005 13:35
af Mumminn
var svona að pæla... ég kláraði leikinn um daginn og fékk þarna M3 GTR en ég var að vellta því hvort maður fær eitthvað þennan "Camaro SS" ??

Sent: Þri 29. Nóv 2005 17:33
af ErectuZ
Mumminn skrifaði:var svona að pæla... ég kláraði leikinn um daginn og fékk þarna M3 GTR en ég var að vellta því hvort maður fær eitthvað þennan "Camaro SS" ??
Ég held að hann sé í Black Edition, en ég er ekki viss um hvernig (Eða jafnvel hvort) maður getur fengið hann. Nett gaman að keyra hann í quick race samt :D

Sent: Mið 30. Nóv 2005 08:39
af Gestir
í black edition þá geturu valið hann í einum af Challenge Series.

En hann kemur aldrei fram í leiknum sem slíkur..


Spurning hvort það komi NFS 70´s og 80´s eða eitthvað álíka ..

Sent: Fös 02. Des 2005 11:16
af Icarus
Ég er búinn að vera að spila þennan leik þó að ég sé hættur yfir prófin.

Keyri núna á uppfærðum DB9.. geðveikur bíll og ég er ekkert að fara að skipta honum út á næstunni :P

Sent: Fös 02. Des 2005 13:19
af Snorrmund
ÓmarSmith skrifaði:í black edition þá geturu valið hann í einum af Challenge Series.

En hann kemur aldrei fram í leiknum sem slíkur..


Spurning hvort það komi NFS 70´s og 80´s eða eitthvað álíka ..
Eða bara Motor City Offline :)

Sent: Sun 11. Des 2005 08:34
af Danni Colt
Það sem gerist eftir Blacklist 1 er það erfiðasta sem e´g hef nokkurntíman gert í bílaleik :shock: Ef þið eruð ekki búnir ða ná því, have fun ;)

Sent: Mán 12. Des 2005 00:09
af ErectuZ
Danni Colt skrifaði:Það sem gerist eftir Blacklist 1 er það erfiðasta sem e´g hef nokkurntíman gert í bílaleik :shock: Ef þið eruð ekki búnir ða ná því, have fun ;)
Tapaði því bara einu sinni, svo gekk þetta vel :D

Sent: Mán 12. Des 2005 12:26
af Snorrmund
er fastur á blacklist nr 5 gaur er ekkert að nenna að vera í honum lengur maður er bara í prófum og svona rugli .. ætla að klára hann og nfs PU(porsche 2000) í jólafríinu.
Annars finnst mér slappt að geta ekki tekið free roam online né í quickrace svo vantar líka að geta farið í svona pursuit mode eins og í nfs3 þar sem maður sjálfur gat verið löggan...

Sent: Mán 12. Des 2005 13:04
af SolidFeather
Mér fannst gaman þegar að NFS snérist um að keyra framandi bílum, ekki tjúnuðum Lexus :cry:

Sent: Mán 12. Des 2005 13:07
af gnarr
Totally agree..

ef ég vill keyra Hondu Civic.. þá keyri ég Hondu Civic..

Hinsvegar ef ég vill keyra Ferrari Enzo eða McLaren F1, þá vill ég fara í NFS.

Fast and the Furios hafði mjög slæm áhrif á þennann brannsa. Ekkert nema hundleiðinlegir götubílaleikir með einhverjum ótúr "rice"-uðum leiðinlegum og venjulegum druslum.

Sent: Mán 12. Des 2005 14:25
af ErectuZ
SolidFeather skrifaði:Mér fannst gaman þegar að NFS snérist um að keyra framandi bílum, ekki tjúnuðum Lexus :cry:
Það eru nú nokkrir frekar framandi bílar í NFSMW og þú þarft ekkert að tjúna þá.

En annars er ég sammála, gömlu NFS leikirnir voru og eru alltaf þeir langbestu :D

Sent: Mán 12. Des 2005 14:38
af gumol
Mér finnst NFS III eiginlega lang bestur, skemmtilegt að vera lögga í þeim leik. Verst að hann er hættur að virka hjá mér í Windows XP

Sent: Mán 12. Des 2005 15:12
af gnarr
Mér þótti NFS2 og NFS5:porche lang bestir. Ég held að ég hafi klára NFS2 svona 15 sinnum... :oops:

Sent: Mán 12. Des 2005 16:20
af Birkir
NFS:HP2 :8)

Sent: Þri 13. Des 2005 01:02
af Snorrmund
gnarr skrifaði:Mér þótti NFS2 og NFS5:porche lang bestir. Ég held að ég hafi klára NFS2 svona 15 sinnum... :oops:
Svona næstum sama sagan hjá mér .. vann NFS2(SE?) svona 2-3 og NFS5 svona 10-20 sinnum :D bætist við eitt skipti í jólafríinu..

Sent: Þri 13. Des 2005 03:17
af axyne
gnarr skrifaði:Mér þótti NFS2 og NFS5:porche lang bestir. Ég held að ég hafi klára NFS2 svona 15 sinnum... :oops:
sama sagan hjá mér. ég gleymi því aldrei þegar ég keypti nfs2 og spilaði hann á nýja voodoo2 kortinu mínu í 3dfx gæðum eins og það kallaðist.

djös stemmara var það, kláraði hann svo billjónlega oft að bara vá.

en af öllum nfs leikjunum þá finnst mér nfs5 porche langtum bestur.

Sent: Þri 13. Des 2005 20:43
af Silly
Eitt sem ég verð að deila. Ég fór í heimsókn til vinkonu minnar og þar var verið að spila þennan leik á ps2, og liðið var að tala um hvað þetta væri rosaleg grafík og bara vá vá ofl :? Mér leið bara illa að horfa á það. Eftir að hafa verið að spila X-box 360 útgáfuna þá leið mér bara illa að horfa á ps2 útgáfuna. Maður sá hvað ps2 tölvan er byrjuð all hressilega að sýna aldur. Ég var nýlega búin að skoða xbox-1 útgáfuna og mismunurinn á milli ps2 og xbox er talsverður. Hvað finnst ykkur????

Bendi á þetta til að sýna xbox og xbox 360 mismuninn. http://www.gamespot.com/features/6140621/p-2.html

Sent: Fim 22. Des 2005 10:30
af daddni
Black edition er með öll lögin úr leiknum sem fylgja með

Sent: Fim 22. Des 2005 11:10
af gnarr
daddni skrifaði:Black edition er með öll lögin úr leiknum sem fylgja með
Nú verðuru að útskýra?

Fylgir annar leikur með þessum leik? og er þá þessi leikur með öll lögin úr þeim leik?
Eða er Black edition með öll lögin úr sjálfum sér? og er þá hin útgáfan ekki með öll lögin úr sjálfum sér?


hvað ertu eiginlega að reyna að segja?

Vertu annars velkominn á spjallið og lestu reglurnar.
7. gr.

Undirskriftin má ekki vera meira en tvær línur. Hún má ekki innihalda myndir og má ekki vera of áberandi.
Stjórnendur dæma um hvað er of áberandi og geta eytt henni alveg út ef þeir vilja.

Sent: Fim 22. Des 2005 12:00
af Gestir
Eitthvað segir mér að Xbox 360 sé soldið vonbrigði ... ekki eins flott og maður átti von á .. enda eru pc leikir orðnir gasalega flottir.