Síða 2 af 2
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 12. Júl 2021 19:15
af GuðjónR
Hér að ofan var talað um að bréfin mætti ekki selja fyrr en eftir þrjú ár til að skatta afslátturinn héldi, hvað gerist ef félagið fér í þrot innan þess tímaramma? Þarf þá að endurgreiða?
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 12. Júl 2021 19:28
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:Hér að ofan var talað um að bréfin mætti ekki selja fyrr en eftir þrjú ár til að skatta afslátturinn héldi, hvað gerist ef félagið fér í þrot innan þess tímaramma? Þarf þá að endurgreiða?
Fyrirtækið þarf að standast strangar kröfur til að geta uppfyllt þetta. Meiga heldur ekki sprengja af sér.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 12. Júl 2021 20:24
af russi
Dúlli skrifaði:Áhugaverð keyrsla á þessu.
Væri líka til að sjá hvar fréttablaðið fær þessar upplýsingar að þetta fór upp í 14 og aftur niður.
https://www.frettabladid.is/markadurinn ... ra-utbodi/
russi skrifaði:
Spurning hvort fólk sé yfir höfuð að setja þessi bréf í sölu út frá skattaafslætti, samt var einhver fýr sem seldi bréf fyrir 10þús kr
Ef fólk selur þá tapar það þessum afslætti. Skil ekki alveg seinni part á setningunni hjá þér :O
Á nú bara meira við, að stunda viðskipti á hlutabréfamarkaði uppá 10þús kr er ekki þess virði og líklegt til að skekkja gengið á þeim
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 12. Júl 2021 20:44
af depill
Ekki leyndarmál
https://leit.keldan.is/Market/Shares/SOLID. Lítil velta, aðallega einhver milljón kall sem fór á gengingu 10,5.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 12. Júl 2021 20:44
af Dúlli
russi skrifaði:Dúlli skrifaði:Áhugaverð keyrsla á þessu.
Væri líka til að sjá hvar fréttablaðið fær þessar upplýsingar að þetta fór upp í 14 og aftur niður.
https://www.frettabladid.is/markadurinn ... ra-utbodi/
russi skrifaði:
Spurning hvort fólk sé yfir höfuð að setja þessi bréf í sölu út frá skattaafslætti, samt var einhver fýr sem seldi bréf fyrir 10þús kr
Ef fólk selur þá tapar það þessum afslætti. Skil ekki alveg seinni part á setningunni hjá þér :O
Á nú bara meira við, að stunda viðskipti á hlutabréfamarkaði uppá 10þús kr er ekki þess virði og líklegt til að skekkja gengið á þeim
Já, já nú skil ég þig, já persónuleg finnst mér lágmarkið vera 100þ. 10þ hverfur í gjöld svo hratt.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 13. Júl 2021 16:24
af thrkll
Solid Clouds lokaði í 10,5 kr. á hlut í dag sem er tæplega 19% lækkun frá útboðsgenginu.
Veltan var reyndar bara um 3 m.kr., en engu að síður - góður dagur til að hafa ekki tekið þátt í útboðinu
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 13. Júl 2021 16:30
af GuðjónR
thrkll skrifaði:Solid Clouds lokaði í 10,5 kr. á hlut í dag sem er tæplega 19% lækkun frá útboðsgenginu.
Veltan var reyndar bara um 3 m.kr., en engu að síður - góður dagur til að hafa ekki tekið þátt í útboðinu
Ég er ansi hræddur um a þetta eigi eftir að þurrkast út. Engin eftirspurn og verðið hríðfellur, 19.2% lækkun í dag.
Smá kaldhæðni að einkenni þeirra á markaði sé SOLID.
https://leit.keldan.is/Market/Shares/SOLID
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 13. Júl 2021 19:59
af Dúlli
Fjandinn hafi.
Núna öfandar maður fólki sem fékk ekki hlut.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 13. Júl 2021 20:16
af GuðjónR
Dúlli skrifaði:Fjandinn hafi.
Núna öfandar maður fólki sem fékk ekki hlut.
Vonum að hagnaðurinn af Play slétti út tapið af þessu…
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 13. Júl 2021 20:25
af Dúlli
GuðjónR skrifaði:Dúlli skrifaði:Fjandinn hafi.
Núna öfandar maður fólki sem fékk ekki hlut.
Vonum að hagnaðurinn af Play slétti út tapið af þessu…
Eru að hækka helvíti vel, keypti bara fyrir svo litla upphæð.
En maður er farin að efast með solid clouds núna og hvort maður nenni að hanga í 3 ár bara fyrir þennan skatt afsl.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mið 14. Júl 2021 08:44
af GullMoli
Þetta er meðal annars ástæða þess að ég tók ekki þátt í Solid Clouds né Play þar sem þau eru bæði á First North markaðnum, þar sem viðskipti eru eflaust mikið minni og getur því mögulega reynst erfitt að losa sig við bréf nema að lækka verðið töluvert.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mið 14. Júl 2021 09:53
af russi
GullMoli skrifaði:Þetta er meðal annars ástæða þess að ég tók ekki þátt í Solid Clouds né Play þar sem þau eru bæði á First North markaðnum, þar sem viðskipti eru eflaust mikið minni og getur því mögulega reynst erfitt að losa sig við bréf nema að lækka verðið töluvert.
Viðskipti þar eru minni, það hjálpar ekki til að þú þarft að hringja inn viðskipti á þessum markaði. Held reyndar að Íslandbanki sé búin að lagfæra það.
Þetta er allt lítil skref til glæða þann markað, fyrirtæki og auðvitað þeir sem sýsla með hlutabréf þurfa að þora að fara aðeins inná þennan markað, hann er mjög virkur í Svíþjóð og ágætlega virkur í DK, NO, FI. Meðan hann eiginlega hreyfist ekki hér heima. Ef það verða kannski einhver 15+ fyrirtæki þarna inni og ekki þörf á aðhringja öll viðsipti þanngað inn, þá er allavega komin smá hvatning á virkari First North markað.
Varðandi Solid Clouds, þá er þetta lítið þekkt fyrirtæki hér á markaði en þeir eru og þora og því ber að hrósa, þeir hafa tekjustreymi sem er ekki á allra vitorði og er ég viss um þegar það eykst með nýrri útgáfu leiks þá getur þetta sveiflast verulega til.
Ein stærsta reglan í svona viðskiptum... Dont Panic sell þegar sprotar eru annars vegar.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Fim 15. Júl 2021 11:49
af GuðjónR
russi skrifaði:Ein stærsta reglan í svona viðskiptum... Dont Panic sell þegar sprotar eru annars vegar.
Fjárfestar þurfa stundum að sætta sig við tap og selja til að koma í veg fyrir meira tap.
Hver vill vera „bagholder“ ?
SOLID heldur áfram að hrapa, hátt í 10% núna fyrir hádegi og PLAY fellur líka.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Fim 15. Júl 2021 14:28
af thrkll
GuðjónR skrifaði:russi skrifaði:Ein stærsta reglan í svona viðskiptum... Dont Panic sell þegar sprotar eru annars vegar.
Fjárfestar þurfa stundum að sætta sig við tap og selja til að koma í veg fyrir meira tap.
Hver vill vera „bagholder“ ?
SOLID heldur áfram að hrapa, hátt í 10% núna fyrir hádegi og PLAY fellur líka.
Á sama tíma og Play hefur fallið um 5,7% leiðir Icelandair lækkunina á aðalmarkaðnum og hefur fallið um 3,7%. Hvað veldur?
Annars held ég að lækkunin á Solid Clouds sé bara almennir fjárfestar sem hafa ekki efni á / þolinmæði til að taka á sig lækkunina. Heildarveltan með bréfin hefur verið undir 50m þessa daga síðan markaðurinn opnaði.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Fim 15. Júl 2021 14:53
af Kull
thrkll skrifaði:
Á sama tíma og Play hefur fallið um 5,7% leiðir Icelandair lækkunina á aðalmarkaðnum og hefur fallið um 3,7%. Hvað veldur?
Væntanlega fréttir um mögulega hertar aðgerðir á landamærunum.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021 ... nnanlands/
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 04. Okt 2021 16:56
af Bengal
Solid Clouds að skíta - buy the dip?
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Mán 04. Okt 2021 18:20
af dadik
Bengal skrifaði:Solid Clouds að skíta - buy the dip?
Þeir sem eru að selja núna eru væntanlega þeir sem ætluðu að make a quick buck. Núna er nokkuð ljóst að gengið hjá SC er ekkert að fara upp úr skýjunum og verður væntanlega á þessu róli þangað til það koma einhverjar fréttir frá félaginu.
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 02. Nóv 2021 10:54
af GuðjónR
Ef þetta hækkar ekki gengið í Solid Clouds, amk. tímabundið þá gerir ekkert það.
https://www.frettabladid.is/markadurinn ... id-clouds/
Re: Solid Clouds fer á markað
Sent: Þri 02. Nóv 2021 12:37
af russi
Vonandi, en efa að þessi frétt hækki gengið, frekar að þá fái meiri stöðugleika. Það er fullt af mjög færu staffi þarna og nöfn hafa takmörkuð áhrif.
Það sem hefur áhrif eru uppgjör og svo velgengni í því sem er gefið út hjá svona fyrirtækjum