Síða 2 af 3
Sent: Lau 28. Jún 2003 15:54
af Voffinn
ég á TEAC sem ég keypti fyrir þó nokkru, hef ekki átt í neinum vandræðum með hann, hann var einhvern tíman held ég hraðasti skrifarinn á cdfreaks.com
Sent: Lau 28. Jún 2003 16:00
af gumol
halanegri skrifaði:Ef þú vilt endilega hafa Hyper-Threading tæknina sem er aðeins í 3.0GHz og uppúr, þá skaltu bara bíða þangað til að hann lækki í verði, nema þú tímir þessu.
HT er í öllum 800 örgjörvum
En ætlaru ekki að hafa neina mús?
Sent: Lau 28. Jún 2003 16:02
af Bitchunter
ég á logitech optical mús og 17" skjá
Sent: Lau 28. Jún 2003 16:05
af Bitchunter
og ef 3ghz lækkar ekkert 30júní þá kaupi ég mér 2,8ghz
halanegri skrifaði:
Ég mæli frekar með nýjustu Lite-On eða Plextor skrifurunum, þeir geta skrifað allt og eru langbestir í þessum bransa.
Vona að þetta hjálpi eitthvað.
hvað með
GEISLASKRIFARI - Plextor PleXWriter PX-W4824TA/SW 48x/24x/48x EIDE / ATAPI CD-RW Drive, innpakkaður
Netverð: 11.970?
og þetta hjálpar mikið
ég var líka að pæla í NETKORT - 3COM 3C905BTX Fast EtherLink XL PCI NIC 10/100 No-WakeUp
Sent: Sun 29. Jún 2003 00:10
af Ekoc
Það er bæði netkort og hljóðkort í móðurborðinu

Sent: Sun 29. Jún 2003 03:50
af halanegri
gumol skrifaði:halanegri skrifaði:Ef þú vilt endilega hafa Hyper-Threading tæknina sem er aðeins í 3.0GHz og uppúr, þá skaltu bara bíða þangað til að hann lækki í verði, nema þú tímir þessu.
HT er í öllum 800 örgjörvum
Já, hehe ruglaði því við 400 örrana

Sent: Sun 29. Jún 2003 08:56
af Bitchunter
Ekoc skrifaði:Það er bæði netkort og hljóðkort í móðurborðinu


úps
Sent: Sun 29. Jún 2003 12:38
af Bitchunter
ég er búinn að plúsa saman nokkrum hlutum
DVD GEISLADRIF - Artec 16x/48x Tray Load DVD CD ROM oem
DISKETTUDRIF - NEC / Techmedia 1.44 MB, 3,5 tommu floppydrif
MÓÐURBORÐ - ASUS P4C800 DL Raid, Pentium 4, 800/533/400 MHz FSB, AGP Pro 8x, 5 PCI raufar, DDR, 4 SATA tengi, 8 USB, með innbyggðu hljóðkorti og 3COM Gigabit LAN ásamt 1394 Firewire.
ÖRGJÖRVI - Intel P4 2.80 GHz 800 MHz brautarhraði, 478 pinna og 512k flýtiminni (innpakkaður)
HARÐUR DISKUR - Seagate 120 GB 7200RPM IDE ATA100 (ST3120024A)
2xMINNI - 512 MB 184 pinna DDRAM PC3200 400 MHz
GIGABYTE Radeon 9700 PRO 128MB DDR (Dual Head)
Antec Performance+ Metal/Gray
vonandi er ég ekki að gleyma neinu...
Sent: Sun 29. Jún 2003 16:47
af halanegri
Jújú, allt í lagi, nema þú eigir ekki lyklaborð/mús

Sent: Sun 29. Jún 2003 16:55
af Bitchunter
jepps, ég kaupi mér nytt lyklaborð en ég á góða logitech optical mús
ég kaupi mér þetta allt á þriðudaginn
en hvar get ég fengið þetta sett saman?

Sent: Sun 29. Jún 2003 17:06
af halanegri
Varstu ekki búinn að segja á öðrum þræði að þú ætlaðir að láta setja það saman í Tölvuvirkni fyrir 2500 kr ?
Sent: Mán 30. Jún 2003 22:01
af Bitchunter
ég ætla frekar að fá mér
http://www.computer.is/vorur/1770
svo ég verð að fá mér annað dvd/geisladrif(eitthvað sem er svart)
svo er
http://www.computer.is/vorur/2784 gott?
getur það spilað öll cd formats líka?
og þessi skrifari
http://www.computer.is/vorur/1861
getur hann spilað líka cd formats?? þessi skrifqari
og ég verð lika að fá spennugjafa, veit einhver um góðan spennugjafa..?
Sent: Mán 30. Jún 2003 22:07
af Mal3
Ég sá áðan að Tölvulisitinn er bæði með Antec og Enermax spennugjafa sem mér skilst að séu góðir. Öflugasti TruePower ætti að duga fínt og vonandi vera hljóðlátur í þokkabót...
Sent: Mán 30. Jún 2003 22:14
af Bitchunter
já, takk
en hvað með geisladrifin sem eru nefnd hér fyrir ofan?
Sent: Mán 30. Jún 2003 22:26
af Mal3
Púff, ég hef ekki græna glóru. Rekst sjaldan á review á geisladrifum og er ekkert að pæla í DVD því ég á þannig. Ég er sjálfur að plotta að setja í næstu vél Samsung 52x skrifara. Ekki sá ódýrasti né kannski sá hraðasti en mér skilst að Samsung séu flinkir í þessu og þetta sé solid drif með góðum fídusum og, það sem kannski mestu máli skiptir, þá er þetta víst þokkalega hljóðlátt. Skiptir mig máli þar sem DVD verður bara notað sem DVD og kannski drif til að kópera diska frá en CD-RW verður aðaldrifið. Mér finnst hávaðinn í ASUS DVD 8x drifinu full mikill stundum.
Annars myndi ég varla hafa miklar áhyggjur af þessu drifi nema þú ætlir að gera mikið af því að skrifa og hraði skipti höfuð máli. Helst kannski pirrandi að kaupa hávært drif. Myndgæði gætu líka komið inní með DVD ásamt byundled hugbúnaði. Komast að því hvað þú vilt fá út úr drifinu og athuga svo hvaða drif bjóða upp á það á verði sem þér líst á.
Sent: Mán 30. Jún 2003 23:14
af Bitchunter
en getur frekar fundið einhvern spennugjafa á computer.is?
helst undir 10k frekar hljóðlátan
ég veit ekki mikið um þetta
Sent: Mán 30. Jún 2003 23:25
af Mal3
Ekki ég heldur
Myndi ekki ThermalTake
http://www.computer.is/vorur/2307 vera málið? Þetta er reyndar orðið ansi dýrt kassa/PSU combo hjá þér. Ég stefni á Antec kassann sem þú varst með í sigtinu áður og hann var ekkert ódýr, en virtist samt vera gott kitt fyrir peninginn.
En ef þér finnst ThermalTake græjan flott er alveg mál að splæsa ef þú hefur seðlana

Örugglega prýðiskassi. Farðu bara ekki að kaupa þéreinhvern ofurkassa og troða svo einhverju aumingja no-name PSU í hann. ÞAð er ekki nóg að hafa bara lookið, ha?

Sent: Mán 30. Jún 2003 23:35
af Bitchunter
ég á alveg fyrir þessu
og hvað er psu?

Sent: Mán 30. Jún 2003 23:43
af Ekoc
Bitchunter skrifaði:
og hvað er psu?

Það er Power Suply eða Aflgjafi
Sent: Mán 30. Jún 2003 23:51
af kemiztry
Getur líka fengið
Samsung Combo drif.... skrifari dvd og allt það..
Tölvulistinn á svona drif... svart!

Sent: Mán 30. Jún 2003 23:59
af Bitchunter
er það þetta hérna
Svart Combo 52x/24x/52x skrifari og 16x DVD drif frá Samsung með 2MB buffer, m/hugb, int.IDE 11.900
Sent: Þri 01. Júl 2003 00:45
af Mal3
Samt, er ekki málið að fá 8 Mb byffer fyrst að hann býðst? Reyndar virðast Tölvulistinn ekki bjóða upp á 52x drif með 8 Mb buffer, en er ekki mál að taka top-performance og hvítan front? Þú getur hvort eð er lokað framhliðinni á kassanum?

Sent: Þri 01. Júl 2003 14:25
af odinnn
síðan er lítið mál að kaupa sér svartan spreybrúsa og spreyja frontin svartan
Sent: Þri 01. Júl 2003 14:39
af Mal3
Er það alveg að virka? Engin hætta á að skaða drifið? Þetta er nú einu sinni optical media og maður væri hræddur viða ð linsur eða eitthvað fengi að kenna á sprayinu...
Vonandi næ ég að fá mér tölvu á næstunni og ég er einmitt með hvítan kassa með hvítu DVD en ætla að fá mér dökkan kassa. Ég ætla því ekkert að pæa í hvaða litur er á draslinu, en það gæti verið ágætt að sprauta það þá bara við tækifæri þegar maður veit að þetta virkar allt.
Sent: Þri 01. Júl 2003 15:22
af odinnn
þú átt að geta tekið plastið framan af dvd drifinu til þess að eiga ekki á hættu að sprey fari á linsuna.