Síða 2 af 6

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 09:06
af Alfa
Dropi skrifaði:
Alfa skrifaði:Þetta bóluefni var náttúrulega hraðað í gegnum öll kerfi, að halda öðru fram er kjánaskapur
Þetta er hættuleg fullyrðing, algjör eldsmatur á umræðu sem þarf að hægja á.
Ég skil ekki afhverju hún er hættuleg, það þarf bara skoða hve lengi það hefur tekið að þróa önnur bóluefni til að sjá það, afhverju á að þagga niður eitthvað sem er alveg augljóst. Akkúrat það vekur bara meiri tortryggni hjá fólki sem er á neikvæða kantinum. Það þýðir ekkert að þó það hafi verið hraðað þróun að það hafi ekki verið vandað til verka. Umræðan um þessi bóluefni er mjög einsleit, einföld og jákvæð á íslandi, lang lang flestir eru ætla sér að fara í bólusetningu, þeir eru þessi dæmigerði þögli meirihluti.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 09:19
af worghal
stinkenfarten skrifaði:
Lexxinn skrifaði:
stinkenfarten skrifaði:Ég ætla að bíða með að bólusetja mig. Það á örugglega eftir að búa til nýtt bóluefni sem virkar betur eða virkar gegn nýjum þræðum af veirunni. Ætla láta bólusetja mig þegar bóluefnið er treyst nógu mikið.
Nú ertu bara að tala með rassgatinu og mættir endilega kynna þér hlutina betur. Hvað telur þú hafa fengið alla helstu sérfræðinga í ónæmis- og smitsjúkdómafræðum til að tala með bóluefnunum sem eru komin út? Stór hluti sérfræðinga á Landspítalanum hefur verið bólusettur.
Hvar sérð þú ekki mikið traust fyrir bóluefninu hjá fólki sem hefur kynnt sér málið?
Ég treysti því ekki nógu vel því það fékk einhver veiruna aftur eftir hann var bólusettur. Kannski verður bóluefninu breytt og virkar betur gegn nýja þræðinum sem var fundinn í Englandi til dæmis. Mig langar að sjá að allir fá rétt viðbrögð við þetta bóluefni eftir nokkurn tíma, og sjá hvort fólk verður microchipped af bill gates.
Þú! Þú ert stór hættulegur einstaklingur.
Það er greinilegt að þú hefur engann áhuga á að fræðast um eitt né neitt nema það staðfesti þitt eigið bias.
Það tekur tíma fyrir bóluefnið að taka virkni og er talað um 2 til 3 vikur og svo er gefin annar skammtur, sama gildir með flensuna, þú getur fengið bóluefnið en það tekur samt allt að tvær vikur að taka fulla virkni.
Og það að þú étir upp þetta bill gates kjaftæði er svo bara rjóminn ofan á allt saman...

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 10:22
af stinkenfarten
worghal skrifaði:

Ef þú kíkir í þræðin þá sérðu að þetta var djók, auðvitað trúi ég ekki þessu microchip bs, og já, það er rétt að ég hef ekki fræðst um neitt mikið, enda les ég ekki mikið um daginn. Þetta sem ég sagði er heimskulegt og ef mig langaði að vita meira, þá skal ég spurja einhvern sem veit málið.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 10:49
af Dropi
Alfa skrifaði:
Dropi skrifaði:
Alfa skrifaði:Þetta bóluefni var náttúrulega hraðað í gegnum öll kerfi, að halda öðru fram er kjánaskapur
Þetta er hættuleg fullyrðing, algjör eldsmatur á umræðu sem þarf að hægja á.
Ég skil ekki afhverju hún er hættuleg, það þarf bara skoða hve lengi það hefur tekið að þróa önnur bóluefni til að sjá það, afhverju á að þagga niður eitthvað sem er alveg augljóst. Akkúrat það vekur bara meiri tortryggni hjá fólki sem er á neikvæða kantinum. Það þýðir ekkert að þó það hafi verið hraðað þróun að það hafi ekki verið vandað til verka. Umræðan um þessi bóluefni er mjög einsleit, einföld og jákvæð á íslandi, lang lang flestir eru ætla sér að fara í bólusetningu, þeir eru þessi dæmigerði þögli meirihluti.
Hárrétt, en það má ekki gefa tommu þá er handleggurinn farinn þegar við erum að tala um anti-vax. Það er allt mistúlkað og sannleikurinn teygður og bjagaður þangað til að "bóluefninu var hraðað í gegn" verður "það prófaði enginn þetta bóluefni!!!!". Samfélagsmiðlar eru eins og hvísl-leikurinn þar sem þú segir eitthvað, það fer nokkra hringi á milli manna og eitthvað allt annað kemur út hinumegin.

Edit: þetta er það sem ég átti við með eldsmatur

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 12:54
af urban
ABss skrifaði:
urban skrifaði: ...
Það á að vera númer ca 2-3 í röðinni, sýna það á heilbrigðu fólki sem að er ekki á grafarbakkanum að það sé ekkert að þessu bóluefni frekar en öðrum bóluefnum.
...
Gamla fólkið er akkúrat númer 3 á listanum.

En þetta var alveg skelfileg framsetning hjá fréttunum.

hopar.png
Min minnti að það væri aftar, minnti semsagt að hópur 1 og 2 væri sami hópurinn.
En þú hlýtur að átta þig á því hvað ég á við.

En svona til þess að hafa það alveg á 100% hreinu, þá tók ég það nú líka fram í einhverjum póstinum hjá mér.
að það ætti að vera einhver x tala af heilbrigðu fólki hingað og þangað af landinu áður en það kemur að því elsta og veikasta.

semsag að það væri ekki svona ofarlega á listanum.
Bara svo að það myndist smá sátt um bóluefnið, umræðurnar hérna sýna það svart á hvítu hvað þetta var heimskuleg ákvörðun.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 13:29
af Dropi
urban skrifaði:Bara svo að það myndist smá sátt um bóluefnið, umræðurnar hérna sýna það svart á hvítu hvað þetta var heimskuleg ákvörðun.
Umtalið er eitt áhyggjuefni en það ætti ekki að taka framfyrir áhættuna sem við stöndum frammi fyrir með COVID sjálft. Þetta er byggt á vísindum ekki tilfinningum eða hvað okkur finnst. Vírusnum er alveg skítsama.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 14:02
af Mossi__
urban skrifaði: Bara svo að það myndist smá sátt um bóluefnið.
Miðað við hvaða blábylju fólk er að gubba út úr sér í kringum þessa veiru og bólusetningu og hafa verið að gera síðan farsóttin byrjaði, hunsandi vísindin, telur þú ekki frekar líklegra að fólk myndi frekar bara mála upp einhverjar aðrar og fleiri ranghugmyndir heldur en að gúttera bólusetninguna.

Meina. Fólk, sumt, trúir að Covid sé út af 5G...

Bóluefnið er af skornum skammti. Mjög skornum.. og þð þarf að bókusetja bróðurpartinn af öllum heiminum. Þá er lagt allt púkk í það að vernda þá sem eru í mesta áhættuhópinum.

Ja og! (Punktur áætlaður öðrum hér)

Ef að læknar og vísindamenn teldu einhverja hættu stafa af bóluefninu, þá einmitt myndu heilbrigðir og hraustir vera sendir fyrst, til að minnka mögukegan skaða og til að vernda stærsta áhættuhópinn!

Það er ekki verið að prófa og sjá hvort bóluefnið sé í lagi á gamla fólkinu sem "er hvortsemer að fara að deyja".

Allur heimurinn er á haus að reyna að halda þessu fólki frá veikindunum og dauða. Þau eru sett í forgang í þeim tilgangi, því að bóluefnið er öruggt.

Veit ekki hvaða rit sumir hafa verið að lesa.. en lesið minna.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 14:46
af Jón Ragnar
Bólusetjum okkur öll. For the greater good.

Þetta bóluefni er safe. Ekkert samsæri eða neitt neinstaðar

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 15:15
af nidur
Skemmtilegur þráður

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 15:29
af CendenZ
VARÚÐ VIÐ BÓLUEFNI!!!

Elsku vinir þið verðið að passa ykkur á þessu bóluefni frá Bíll Gates Microsoft... ég fékk bóluefni úr smiðju Bill Gates og núna er ég með 6 vélar með Microsoft 10 leyfi og Microsoft Office, Microsoft mýs, Microsoft lyklaborð !!
ÞeTtA eR hEIlaÞvoTTur!!

:guy

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 15:51
af falcon1
Nú er ég ekki á móti bólusetningum og hef farið í allar sem hefur verið í boði en ég er einn af þeim sem ætlar að bíða og sjá. Það er einfaldlega staðreynd að rannsóknir á langtímaáhrifum þessara COVID bóluefna eru ekki til staðar og á meðan svo er þá er ég ekkert að fara að drífa mig í bólusetningu enda á góðum aldri og ekki í neinum áhættuhóp.

Varðandi þessi andlát sem fjölmiðlar töluðu um þá verðum við bara að bíða og sjá hvað kemur út úr rannsókn sérfræðinga.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 16:10
af mikkimás
falcon1 skrifaði:Nú er ég ekki á móti bólusetningum og hef farið í allar sem hefur verið í boði en ég er einn af þeim sem ætlar að bíða og sjá. Það er einfaldlega staðreynd að rannsóknir á langtímaáhrifum þessara COVID bóluefna eru ekki til staðar og á meðan svo er þá er ég ekkert að fara að drífa mig í bólusetningu enda á góðum aldri og ekki í neinum áhættuhóp.

Varðandi þessi andlát sem fjölmiðlar töluðu um þá verðum við bara að bíða og sjá hvað kemur út úr rannsókn sérfræðinga.
Af hverju vill sumt fólk ekki skilja að bólusetningar á einstaklingum snúast ekki bara um þá einstaklinga sem fá bólusetninguna, heldur líka alla aðra sem þeir umgangast.

Afsakið orðbragðið, en þessi vírus er #$%& smitandi.

Þetta er að gera mig brjálaðan.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 16:49
af falcon1
mikkimás skrifaði:

Sorrý en ég er ekki að fara að taka séns á bóluefni með óþekktar afleiðingar. Önnur bóluefni hafa ár og áratugi á bakvið sig í rannsóknum. Það er ekkert að fara að virka á mig einhver áróður um að maður sé að drepa ömmu sína með því að bólusetja sig ekki með þessum efnum strax. Ég fer eftir öðrum sóttvarnarleiðbeiningum og er ekki að umgangast fólk mikið.
Ekki það að mér sýnist að það sé engin hætta á að mér verði boðin bólusetning í bráð.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mið 06. Jan 2021 18:07
af Bandit79
Mynd

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 08. Feb 2021 10:45
af Hjaltiatla
Spurning hvort Ísland verði tilraunastofa líkt og í myndinni "The Island" eftir Upplýsingafundinn í dag.
Erum við í rauninni bara klón sem eru eingöngu með þann tilgang að láta prófa lyf á okkur :guy
https://www.visir.is/g/20212070869d/bei ... singafundi

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 08. Feb 2021 11:00
af GuðjónR
Ég hef engan áhuga á bólusetningu en er þakklátur þeim sem bjóða sig fram sem tilraunadýr í viðleitni við að skapa hjarðónæmi.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 08. Feb 2021 11:07
af Hjaltiatla
Þetta er pottþétt samsæri, bölvaðir sameinuðu þrjótanir.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 08. Feb 2021 11:14
af Mossi__
GuðjónR skrifaði:Ég hef engan áhuga á bólusetningu en er þakklátur þeim sem bjóða sig fram sem tilraunadýr í viðleitni við að skapa hjarðónæmi.

Neibíddunúvið.

Maðurinn sem var hvað æstastur þegar þetta var að byrja.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 08. Feb 2021 11:27
af GuðjónR
Mossi__ skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég hef engan áhuga á bólusetningu en er þakklátur þeim sem bjóða sig fram sem tilraunadýr í viðleitni við að skapa hjarðónæmi.

Neibíddunúvið.

Maðurinn sem var hvað æstastur þegar þetta var að byrja.
Ég er alltaf pollrólegur :guy

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 00:56
af Graven
https://www.visir.is/g/20212186066d/bol ... ega-mikid-

Þá er áróðurinn farinn í hæsta gír.

Þetta verður mjög áhugavert.
Hættulegt.

Ætlunin er að skipta fólki í tvo hópa, og etja þeim svo saman.

https://en.wikipedia.org/wiki/Ten_stages_of_genocide

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 02:36
af nonesenze
tekur þú íbufen? hvað leinist í því? svo stupid að hugsa um það nema hafa actual vit á því
hvað í chicken nuggets ... ? hakkað niður bein og guts, samt gott righ?
hvað er í einhverju? , þið sem eruð á móti þessu getið verið móti flest öllu í dag, allt er framleitt einhvern veginn í dag
það býr enginn á farm eins og í gamla daga gerir steikur, það taka allir hopp scooters og spá ekkert í hvaðan maturinn kemur

btw ég elsa bjór og steik og **** , all natural ;)
eina sem maður ætti að vilja

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 02:39
af jonfr1900
Graven skrifaði:https://www.visir.is/g/20212186066d/bol ... ega-mikid-

Þá er áróðurinn farinn í hæsta gír.

Þetta verður mjög áhugavert.
Hættulegt.

Ætlunin er að skipta fólki í tvo hópa, og etja þeim svo saman.

https://en.wikipedia.org/wiki/Ten_stages_of_genocide
Nei. Þetta er tómt bull.

Þeir sem hinsvegar láta ekki bólusetja sig gegn covid-19 munu veikjast og munu kannski deyja, ef viðkomandi lifir af þá er alltaf hætta á að viðkomandi einstaklingur verði öryrki eftir covid-19.

Það eru vísbendingar um að þeir sem hafa smitast af eldri coronavírusum séu betur varðir gegn covid-19 en þeir sem hafa ekki smitast. Þessar eldri coronavírusar valda kvefi í dag hjá fólki en ollu faldri eins og þei sem við sjáum í dag í upphafi. Síðasti svona faraldur var árið 1889 til 1890 og það tók veiruna fimm ár að ganga almennilega yfir.

1889–1890 pandemic (Wikipedia)

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 03:34
af Graven
jonfr1900 skrifaði:

Já sæll, þetta hlýtur að vera einhverskonar tilraun til húmors hjá þér?

"Þeir sem hinsvegar láta ekki bólusetja sig gegn covid-19 munu veikjast og munu kannski deyja"

HAHAHA

Ef þú trúir þessu í alvöru, þá er áróðurinn að virka mjög vel á þig.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 03:46
af Graven
nonesenze skrifaði:tekur þú íbufen? hvað leinist í því? svo stupid að hugsa um það nema hafa actual vit á því
hvað í chicken nuggets ... ? hakkað niður bein og guts, samt gott righ?
hvað er í einhverju? , þið sem eruð á móti þessu getið verið móti flest öllu í dag, allt er framleitt einhvern veginn í dag
það býr enginn á farm eins og í gamla daga gerir steikur, það taka allir hopp scooters og spá ekkert í hvaðan maturinn kemur

btw ég elsa bjór og steik og **** , all natural ;)
eina sem maður ætti að vilja
Ég skil ekki alveg hvað þú ert að reyna að segja.

Ég hugsa um allskonar hluti, og ef ég veit lítið um eitthvað sem vekur mig til umhugsunar þá viða ég að mér upplýsingum um þann hlut.
En þú mátt alveg bara sleppa því að hugsa um hluti sem þú veist ekki mikið um, það er alveg þitt val, en þá hefur þú ekki neitt til málanna að leggja og þín ummæli um allt saman hér eftir eru einskis verð.

Re: Varðandi bólusetningu við Covid-19

Sent: Mán 22. Nóv 2021 04:20
af Moldvarpan
Hvaða áróður ertu að staglast á?