Síða 2 af 3
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 10. Des 2020 15:19
af Dropi
Spyr sá sem ekki veit, hljómar eins og þetta hafi verið risk management, var ekki gert grein fyrir þessum gjöldum þegar lánin voru tekin? Voru ekki lægri vextir fyrir þá sem tóku lán með uppgreiðslugjaldi?
Þeir sem tóku lánin án uppgreiðslugjalds og borguðu hærri vexti hafa væntanlega eitthvað um þetta að segja, eða eru allir kannski þegar búnir að endurfjármagna?
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 10. Des 2020 16:14
af GuðjónR
Dropi skrifaði:Spyr sá sem ekki veit, hljómar eins og þetta hafi verið risk management, var ekki gert grein fyrir þessum gjöldum þegar lánin voru tekin? Voru ekki lægri vextir fyrir þá sem tóku lán með uppgreiðslugjaldi?
Þeir sem tóku lánin án uppgreiðslugjalds og borguðu hærri vexti hafa væntanlega eitthvað um þetta að segja, eða eru allir kannski þegar búnir að endurfjármagna?
Það sem ég hef heyrt í fjölmiðlum undanfarið eftir að dómur féll er það að þetta hafi verið "risk management" en á þann veg að verja sjóðinn fyrir hugsalegu áhlaupi en ekki að þetta ætti að verða ófrávíkjanleg tekjulind.
Þegar ég tók lánið 2007 þá bauðst mér 4.8% verðtryggt með gjaldi eða 5.15% verðtryggt ekki með þessu gjaldi, ráðgjafinn sagði þá að ef ég ætlað að búa lengur en 3-5 ár þá myndi það allan daginn borga sig að taka lægri vextina, uppgreiðslugjaldið yrði aldrei það hátt að það væri réttlætanlegt að fara í hærri vexti. Sem hugsanlega var rétt akkúrat á þeim tímapunkti, en síðan þá hefur margt gerst í heiminum. Það hefði
enginn tekið lán með 0.35% lægri vöxtum gegn 7-17% uppgreiðslugjaldi á ALLAN höfuðstólinn ... ég fullyrði það bara hér og nú.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 10. Des 2020 19:05
af urban
einarhr skrifaði:
.... Nú þurfum við ss skattgreiðendur að borga fyrir þessa áfríun íbúðarlánasjóðs svo sjóðurinn geti haldið áfram að stela af lántökum
Þó það nú væri að sá sem að sjái um skattpeningana okkar fari með þetta mál alla leið.
Þetta er algert tímamóta mál og það væri í raun alger þvæla að fara ekki með þetta alla leið til hæstaréttar til þess að fá endanlega skorið úr þessu.
Menn fara ekkert að breyta vinnubrögðum og borga út skaðabætur fyrr en þetta er farið fyrir lágmark landsrétt með sömu niðurstöðu.
Ég sem skattgreiðandi fer fram á að þetta fari alla leið.
Enda kostnaður við áfrýjun smápeningar miðað við það sem upphæðirnar sem eru undir.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fös 18. Des 2020 08:32
af Njall_L
Annar sambærilegur dómur féll í gær:
https://www.frettabladid.is/frettir/ibu ... ytendalog/
Þessi dómur virðist vera sambærilegur í meginatriðum en gengur þó lengra en sá fyrri.
Fréttablaðið skrifaði:Hinn nýfallni dómur gengur þó enn lengra því auk þess að dæma ÍL-sjóð brotlegan við húsnæðislög er sjóðurinn einnig talinn hafa gerst brotlegur við neytendalög, meðal annars með lélegri upplýsingagjöf.
„Þessi dómur í raun og veru kemur með þau viðbótarsjónarmið að það hafi verið brotið gegn lögum um neytendamál með því að lánaskilmálar tiltóku ekki hvernig uppgreiðslugjald skyldi reiknað út,“ segir Jónas Fr. Jónsson hæstaréttarlögmaður sem sótti málið fyrir hönd hjónanna.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fös 18. Des 2020 11:06
af gRIMwORLD
Njall_L skrifaði:Annar sambærilegur dómur féll í gær:
https://www.frettabladid.is/frettir/ibu ... ytendalog/
Þessi dómur virðist vera sambærilegur í meginatriðum en gengur þó lengra en sá fyrri.
Fréttablaðið skrifaði:Hinn nýfallni dómur gengur þó enn lengra því auk þess að dæma ÍL-sjóð brotlegan við húsnæðislög er sjóðurinn einnig talinn hafa gerst brotlegur við neytendalög, meðal annars með lélegri upplýsingagjöf.
„Þessi dómur í raun og veru kemur með þau viðbótarsjónarmið að það hafi verið brotið gegn lögum um neytendamál með því að lánaskilmálar tiltóku ekki hvernig uppgreiðslugjald skyldi reiknað út,“ segir Jónas Fr. Jónsson hæstaréttarlögmaður sem sótti málið fyrir hönd hjónanna.
Fyrri dómurinn fjallaði um það að ÍLS hefði farið út fyrir lagaheimild með því að setja á uppgreiðslugjald þar sem lagaheimildin krafðist sérstakra aðstæðna. Ss uppgreiðslugjaldið ólöglegt.
Seinni dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingagjöf varðandi reikniformúlu uppgreiðslugjalds hefði verið svo brotin að lántökum hafi verið ómögulegt í raun að reikna út hve uppgreiðslan væri há hverju sinni.
Nú þurfum við að bíða niðurstöðu efri dómsstiga.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fös 18. Des 2020 16:02
af GuðjónR
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Þri 19. Jan 2021 22:16
af GuðjónR
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 20. Jan 2021 18:31
af falcon1
Það verður áhugavert að sjá hvort að Hæstiréttur þori að staðfesta dóm Héraðsdóms.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 20. Jan 2021 19:54
af GuðjónR
falcon1 skrifaði:Það verður áhugavert að sjá hvort að Hæstiréttur þori að staðfesta dóm Héraðsdóms.
Já það verður það, en heldurðu að fólk almennt eigi auðvelt með að átta sig á uppgreiðslugjaldinu eftir uppgefnum formúlum hér að ofan?
Ef ekki, þá er þeim varla stætt á því að snúa niðurstöðu héraðsdóms.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 20. Jan 2021 21:57
af Nariur
Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 21. Jan 2021 11:10
af gRIMwORLD
Nariur skrifaði:Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.
Aha...tell me more!!
En þegar þú ert með ÍLS lán og hringir í ÍLS til að fá að vita hvert uppgreiðslugjaldið er núna...og manneskjan á línunni segir að það "taki tíma að finna það út". Var reiknireglan aðgengileg á sínum tíma? nah það er too easy
Direct quote frá starfsmanni ÍLS:
"Þú er með svona lose lose lán!"
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 21. Jan 2021 12:17
af GuðjónR
Nariur skrifaði:Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.
hahaha góður!
Einföld stærðfærði, starfsfólk stofnunarinnar getur ekki reiknað þetta út fyrir þig nema í þar til gerðu forriti
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 15. Apr 2021 15:18
af gunni91
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 15. Apr 2021 16:47
af GuðjónR
Það vona ég líka, þá á ég í kringum 2M kr. kröfu á þá.
„Málflutningur í málunum tveimur verður í byrjun maí.“
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 09:48
af gunni91
Hefur einhver heyrt meira um þetta mál?
„Málflutningur í málunum tveimur verður í byrjun maí.“
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 09:58
af Gormur11
Málið var flutt í Hæstarétti þann 5. maí sl.
Það er ekki ólíklegt að dómur falli í lok maí eða byrjun ágúst.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 14:51
af GuðjónR
Gormur11 skrifaði:Málið var flutt í Hæstarétti þann 5. maí sl.
Það er ekki ólíklegt að dómur falli í lok maí eða byrjun ágúst.
Ég las það einhvers staðar að niðurstaðan ætti að liggja fyrir í þessum mánuði.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 14:58
af worghal
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 15:00
af gunni91
Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 20:20
af g0tlife
gunni91 skrifaði:
Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.
Ég tók fyrsta lánið með breytilegum fyrir einu ári síðan. Ætti maður að kvitta undir þetta eða hvað?
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 21:33
af gunni91
g0tlife skrifaði:gunni91 skrifaði:
Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.
Ég tók fyrsta lánið með breytilegum fyrir einu ári síðan. Ætti maður að kvitta undir þetta eða hvað?
Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 22:13
af Klemmi
gunni91 skrifaði:
Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.
Ha, ef vextir hafa bara lækkað síðan maður tók breytilega, þá hefur maður ekki orðið fyrir neinum skaða, og á þar með ekki rétt á neinum skaðabótum, eða hvað?
Eða er þetta því að ef vextir banka hefðu elt stýrivexti, þá væru þeir enn lægri?
Spyr sá sem ekki veit. Auðvitað sakar ekki að skrifa undir, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessu, nú þegar breytilegir vextir eru líklegir til að hækka.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 22:50
af gunni91
Klemmi skrifaði:gunni91 skrifaði:
Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.
Ha, ef vextir hafa bara lækkað síðan maður tók breytilega, þá hefur maður ekki orðið fyrir neinum skaða, og á þar með ekki rétt á neinum skaðabótum, eða hvað?
Eða er þetta því að ef vextir banka hefðu elt stýrivexti, þá væru þeir enn lægri?
Spyr sá sem ekki veit. Auðvitað sakar ekki að skrifa undir, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessu, nú þegar breytilegir vextir eru líklegir til að hækka.
Ja ég er að rugla sé ég
Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.
Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.
líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Mið 19. Maí 2021 22:59
af Klemmi
gunni91 skrifaði:Ja ég er að rugla sé ég
Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.
Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.
líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.
Ég rúllaði í gegnum þetta, og sá að þeir nefna samt líka að lán sem hafa fasta vexti í ákveðinn tíma, s.s. 3 - 5 ár, megi mögulega líta á sem lán með breytilegum vöxtum, þar sem vextir breytist á lánstímanum.
Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þessu, þar sem lög meðal annars kveða á um að það megi ekki krefjast uppgreiðslugjalds ef að lán ber breytilega vexti. Ef raunin verður að fyrrnefnd lán teljist til lána með breytilega vexti, þá er auðvitað um mikið víðtækara svið að ræða, og getur þetta munað umtalsverðu fyrir þá sem til dæmis hafa ákveðið að endurfjármagna og greiða uppgreiðslugjaldið, eða ef menn geta sýnt fram á skaða sem hlaust af því að þeir endurfjármögnuðu ekki, sökum uppgreiðslugjaldsins, og fóru því á mis við betri lánakjör.
Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!
Sent: Fim 20. Maí 2021 07:54
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:gunni91 skrifaði:Ja ég er að rugla sé ég
Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.
Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.
líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.
Ég rúllaði í gegnum þetta, og sá að þeir nefna samt líka að lán sem hafa fasta vexti í ákveðinn tíma, s.s. 3 - 5 ár, megi mögulega líta á sem lán með breytilegum vöxtum, þar sem vextir breytist á lánstímanum.
Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þessu, þar sem lög meðal annars kveða á um að það megi ekki krefjast uppgreiðslugjalds ef að lán ber breytilega vexti. Ef raunin verður að fyrrnefnd lán teljist til lána með breytilega vexti, þá er auðvitað um mikið víðtækara svið að ræða, og getur þetta munað umtalsverðu fyrir þá sem til dæmis hafa ákveðið að endurfjármagna og greiða uppgreiðslugjaldið, eða ef menn geta sýnt fram á skaða sem hlaust af því að þeir endurfjármögnuðu ekki, sökum uppgreiðslugjaldsins, og fóru því á mis við betri lánakjör.
Tæknilega séð eru allir vextir á öllum óverðtryggðum lánum breytilegir, þeir breytast ýmist í takt við stýrivexti Seðlabanka eða breytast á 3-5 ára fresti. Þannig að 40 ára lán með svokallaða „fasta vexti“ breytir vöxtum 13 sinnum á líftíma sínum og því má færa rök fyrir því að það sé lán með breytilegum vöxtum. Ég reikna með að tekist verði á um þessar skilgreiningar.