Síða 2 af 2
Re: Vantar álit við vinnubrögð hjá Tölvulistanum
Sent: Mið 02. Des 2020 19:30
af DaRKSTaR
Mossi__ skrifaði:DaRKSTaR skrifaði:biddu þá bara um að slá meira af honum, annann 10 þús kall og þú sért sáttur, segir þeim að þú hefðir keypt hann hjá att hefirðu vitað að þetta væri sýningareintak sem þú værir að fara fá frá tölvulistanum.
... þ.e.a.s. ef hann er sáttur við að kaup sýningareintak.
(Ég væri það ekki)
alltaf gott að fá góðann díl, en eins og margt er í dag þá er ekkert skothelt að allt sé til, lager stöður eru oft vitlausar, gerist oftar en fólk gerir sér grein fyrir.
Re: Vantar álit við vinnubrögð hjá Tölvulistanum
Sent: Fim 03. Des 2020 14:22
af gRIMwORLD
Eitt sem hefur ekki komið hérna fram, er að OP getur alltaf óskað eftir því að skila sýningareintakinu og fá "nýjan" skjá af lager núna.
Köllum þetta "röng afhending" WIN-WIN fyrir alla.
Re: Vantar álit við vinnubrögð hjá Tölvulistanum
Sent: Fim 03. Des 2020 14:47
af gunni91
Er sammála því flestu sem er hér fyrir ofan, mistök gerast en það er ekki þitt að blæða fyrir það.
Ég hef fulla trú að TL séu tilbúnir að slá örlítið meira af skjánum svo allir ganga sáttir frá borði.
Þú gætir einnig lagt til að þeir panti fyrir þig nýjan skjá en þá sjá þeir fljótlega að besta lausnin er að slá meira af sýningareintakinu.
Ef ekkert gengur sakar ekki að heyra í Att hvort þeir séu tilbúnir að bjarga þér og selja þér skjáinn á CyberMonday verðinu.
þeir hafa reynst mér mjög liðlegir í gegnum tíðina.
Gangi þér vel í þessu