Síða 2 af 2

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Lau 19. Sep 2020 18:23
af fhrafnsson
Ég borgaði 103 þúsund og á eftir að borga VSK svo heildar verð verður væntanlega 130 þúsund. Sambærilegt kort er hér á 170 þúsund svo 40 þúsund króna álagning er um 30% sýnist mér.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Lau 19. Sep 2020 18:37
af jonsig
3080 kaupandi þarf að athuga þetta líka ...
Núna er ég búinn að sjá allt

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Lau 19. Sep 2020 19:11
af urban
zordage skrifaði:700$ listing verð og sjá 157975 kr hérna eru ansi langt frá 15-20%
Enn það er rétt að verð á islandi eru hræðileg á flestum vörum enda eru altaf fleir og fleir að nýta sér netið til að kaupa það sem vantar.
$700 með flutningi ($40)og vsk er 124þús
Ef að það verð verður í boði þegar að varan verður í boði.

Hann Klemmi talaði um 15-30%
Ekki 15-20%

158 er 27% hærra en lægsta mögulega verð sem að finnst í augnablikinu og það er ekki í boði að kaupa á því verði núna.
Overclockers var t.d. með 720 pund.
Það miðað við engan flutning er 155 þús krónur hérna heima. (væntanlega lægra samt, minnir að þeir taki vsk af úti)

Ég var bara að spá í því hvort að menn reiknuðu í alvörunni með því að búðir hérna heima gætu boðið lægstu mögulegu verð sem að finnast í heiminum.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Lau 19. Sep 2020 20:51
af jonsig
Ég skal alveg borga auka 20k fyrir svona dýrt kort fyrir korter spjall með honum Alfreð í kísildal.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Lau 19. Sep 2020 20:53
af fhrafnsson
OC taka VSK af í pöntunarferlinu. Lokaverð á kortinu til mín var t.d. 541.66 pund og svo sendingarkostnaður (sem hefði væntanlega verið lægri ef ég væri að taka mörg kort).

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 08:58
af Bandit79
pepsico skrifaði:Bandit79 það eru bókstaflega engar líkur á því að íslenskar tölvuverslanir séu að fá 25-40% afslátt af skjákortum. Þú ert á miklum villigötum.
Enda skrifaði ég "getur verið".

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 09:21
af fhrafnsson
Zotac, framleiðandi ódýrari kortana sem fást hjá Att og Tölvulistanum, hafa staðfest að Trinity kortin þeirra eru viljandi framleitt til að vera verri en Founders Edition kortin frá Nvidia, sem svo önnur kort (Asus TUF, Gigabyte Eagle o.fl) eru svo aðeins betri en.

Vildi bara láta vita fyrir þá sem eru í hugleiðingum varðandi kaup á kortum.

https://www.reddit.com/r/ZOTAC/comments ... ntext=1000

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 09:57
af pepsico
Bandit79 ég viðurkenni fúslega að þú sagðir "mjög líklega" en ekki "klárlega", en það er líka parturinn sem ég neitaði með "bókstaflega engar líkur". Það er allavega eins og ég segi ekki séns að það séu neinar íslenskar búðir með neina slíka afslætti af t.d. örgjörvum og skjákortum. Kannski örsjaldan þegar búnaðurinn er orðinn úreltur.

fhrafnsson ég myndi segja að þetta séu ekki fréttir né neitt sem ætti að koma neinum að óvörum. Ódýrari skjákortin hjá framleiðendunum eru verri en dýrari skjákortin í línunum þeirra. Samstarfsfyrirtæki framleiðendanna eru ekki að fara að nota bestu bitana sem þeir fá frá framleiðendunum í ódýru kortin. 1-3% er mjög vel sloppið með það í huga. Bestu kjarnarnir, bestu minniskubbarnir o.s.frv. fara í dýrustu kortin og afgangurinn skammtast svo niður á ódýrari tegundir þar eftir. Þetta heitir binning og er búið að vera tilfellið með alla örgjörva, öll skjákort, alla vinnsluminniskubba o.s.frv. í meira en áratug.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 10:15
af GuðjónR
fhrafnsson skrifaði:Zotac, framleiðandi ódýrari kortana sem fást hjá Att og Tölvulistanum, hafa staðfest að Trinity kortin þeirra eru viljandi framleitt til að vera verri en Founders Edition kortin frá Nvidia, sem svo önnur kort (Asus TUF, Gigabyte Eagle o.fl) eru svo aðeins betri en.

Vildi bara láta vita fyrir þá sem eru í hugleiðingum varðandi kaup á kortum.

https://www.reddit.com/r/ZOTAC/comments ... ntext=1000
Eru Founders Edition kortin ekki háværust?
Ef Zotac skrapar botnin með lélegustu kortin, hvaða framleiðandi er þá með bestu kortin?

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 10:48
af fhrafnsson
ASUS TUF hafa komið vel út og Gigabyte Eagle líka.

Hávaðinn í FE er lítill en hitastigið gæti verið betra.

Sjá t.d. https://www.kitguru.net/components/grap ... iew/all/1/

Svo er listi yfir reviews hér: https://videocardz.com/newz/nvidia-gefo ... ew-roundup

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 11:17
af GuðjónR
Já þetta er athyglisvert,
Í gömlu línunni þá þótti „EVGA GeForce RTX 2080 Ti FTW3 ULTRA GAMING“ bera höfuð og herðar yfir önnur sambærileg kort, enda var verðmiðinn í stíl við það, $1500.
https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... 80_ti.html

Persónulega þá hef ég engan áhuga á 3070 eða 3080, það sem mér finnst spennandi er 3090.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 11:41
af Trihard
Það er athyglisvert að það eru engar umsagnir um dýrari RTX 3080 kortin ennþá, t.d. af Gigabyte Aorus XTREME, Asus ROG Strix OC, EVGA FTW3 og slíkt. Það er ljóst að lélegasti kísillinn var fjöldaframleiddur og seldur fyrst áður en þeim tekst að ná betri framleiðni fyrir dýrari skjákortin.

Það er líka talað um verulegan mun á 2x8 pinna RTX 3080 kortunum og 3x8 pinna kortum, verður 3x8 pinna kort jafn öflugt eða öflugra en 2x8 pinna 3090 kort? Það væri fyndið :D

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 11:42
af Fletch
Trihard skrifaði:Það er athyglisvert að það eru engar umsagnir um dýrari RTX 3080 kortin ennþá, t.d. af Gigabyte Aorus XTREME, Asus ROG Strix OC, EVGA FTW3 og slíkt. Það er ljóst að lélegasti kísillinn var fjöldaframleiddur og seldur fyrst áður en þeim tekst að ná betri framleiðni fyrir dýrari skjákortin.
held þetta sé frekar að það tekur lengri tíma að hanna custom pcb kort, kortin sem eru komin eru flest reference pcb

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 12:01
af GuðjónR
Trihard skrifaði:Það er líka talað um verulegan mun á 2x8 pinna RTX 3080 kortunum og 3x8 pinna kortum, verður 3x8 pinna kort jafn öflugt eða öflugra en 2x8 pinna 3090 kort? Það væri fyndið :D
Því trúi ég ekki ](*,)

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 12:41
af trusterr
Ég pantaði einusinni kort að utan og þurfti að senda það út eftir að vinur minn hellti bjór á tölvuna og kortið shortaði. Þurfti að borga 25k til að láta senda það út og fékk nýtt og þessi kortnaður ekki til staðar ef keypt á íslandi.

Ég hef mikið pantað að utan og tek þessa áhættu vitandi. Passið ykkur bara en ekki gefa skít í mörg þessi Íslensk fyrirtæki sem öll kaupa frá Evrópskum söluaðilum og borga Íslensk laun og annan kostnað. Talaði við einn og helsta ástæðan er fluttningskostnaður.
En ég hef alveg talað um B&H Photo og hvað þeir eru ódýrari en þeir eru líka með miljón manna markað.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 16:02
af MatroX
trusterr skrifaði:Ég pantaði einusinni kort að utan og þurfti að senda það út eftir að vinur minn hellti bjór á tölvuna og kortið shortaði. Þurfti að borga 25k til að láta senda það út og fékk nýtt og þessi kortnaður ekki til staðar ef keypt á íslandi.

Ég hef mikið pantað að utan og tek þessa áhættu vitandi. Passið ykkur bara en ekki gefa skít í mörg þessi Íslensk fyrirtæki sem öll kaupa frá Evrópskum söluaðilum og borga Íslensk laun og annan kostnað. Talaði við einn og helsta ástæðan er fluttningskostnaður.
En ég hef alveg talað um B&H Photo og hvað þeir eru ódýrari en þeir eru líka með miljón manna markað.
25þus fyrir að senda kortið út??? jahá eg hef bæði sent 680gtx til overclockers og það kostaði 5 til 6þus svo 690gtx til evga og það var rett undir 10k, og i bæði skiptin hef eg fengið nytt kort
a undir 2 vikum, undir viku hja overclockers,

eg hef líka keypt móðurborð af kísildal og þeir rifu bara kjaft og a endanum sendi eg það beint til asrock sjalfur og fekk nytt an neins vesens

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 17:22
af trusterr
MatroX skrifaði:

Já ég notaði Icetransport sem sér um Fedex allavega á þeim tíma sagði EVGA ég mátti bara nota þá.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Sun 20. Sep 2020 22:20
af Klemmi
Aldrei lent í neinu þægilegra en Intel... fyllti út RMA, fékk PDF skjal til útprentunar, basicly prepaid miði flutning til að líma á kassann og símanúmer til að hringja í til að panta pickup.
Kostaði ekki krónu, og þurfti ekki að fara út úr húsi.

En svo hef ég notað póstinn til að senda út, og þá þarftu að fylla út útflutningsskýrslu um að þetta sé vara sem er verið að senda út til viðgerðar, því annars geturðu lent í veseni þegar varan kemur til baka, því tollurinn vill annars rukka þig um vaskinn á nývirði vörunnar...

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Mán 21. Sep 2020 10:02
af Plushy
trusterr skrifaði:Ég pantaði einusinni kort að utan og þurfti að senda það út eftir að vinur minn hellti bjór á tölvuna og kortið shortaði. Þurfti að borga 25k til að láta senda það út og fékk nýtt og þessi kortnaður ekki til staðar ef keypt á íslandi.

Ég hef mikið pantað að utan og tek þessa áhættu vitandi. Passið ykkur bara en ekki gefa skít í mörg þessi Íslensk fyrirtæki sem öll kaupa frá Evrópskum söluaðilum og borga Íslensk laun og annan kostnað. Talaði við einn og helsta ástæðan er fluttningskostnaður.
En ég hef alveg talað um B&H Photo og hvað þeir eru ódýrari en þeir eru líka með miljón manna markað.
Hvernig væri þessi kostnaður ekki til staðar hefðiru keypt kortið á Íslandi?

Söluaðilinn hér myndi reyna gera við kortið/skoða það og kæmist væntanlega að þeirri niðurstöðu að þú hafir hellt vökva/bjór í vélina eða að skammhlaupið hafi ekki verið kortinu að kenna og rukkað þig svo 25.000 kr fyrir vinnuna að skoða kortið því þetta var ekki ábyrgðarmal. Svo áttu ennþá bilaða kortið :D

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Mán 21. Sep 2020 17:17
af Templar
Að hella bjór yfir tölvuna sína og reyna svo að fá ábyrgð er ekki almennur ábyrðgarréttur.

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Þri 22. Sep 2020 13:06
af agnarkb
Fyrsta review fyrir 3090 er komið!

https://www.youtube.com/watch?v=oqNXwsVLufM

:happy

Re: RTX 3080 á íslandi?

Sent: Þri 22. Sep 2020 13:24
af Atvagl
agnarkb skrifaði:Fyrsta review fyrir 3090 er komið!

https://www.youtube.com/watch?v=oqNXwsVLufM

:happy

Þessi var góður =D>