Síða 2 af 3
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 03:38
af Sinnumtveir
Reikna fastlega með að menn borgi "through the nose" fyrir Gigabyte borðið í næst-síðustu athugasemd sem passar því Gigabyte borðið (10G Ethernet + 4 x NVMe SSD drives) tekur Asus borðið í nefið. Þetta Gigabyte borð er með ALLT plús bílskúr & vínkjallara.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 09:09
af Klemmi
Nei, en X570 borð sem eru án viftu heyra til undantekninga
Sjaldséðir RGB hrafnar.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 09:59
af GuðjónR
Nýja MacBookAir með M1 örgjörvanum er alveg viftulaus.
Að framleiða móðurborð með litlum háværum kæliviftum árið 2020 er dæmi um algert metnaðarleysi.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 11:37
af chaplin
Af því sem ég best veit er vifta útaf PCIe 4.0 sem er af því sem ég best veit ekki á neinu Intel móðurborði í dag. Ef vifta er dealbreaker að þá er alltaf hægt að kaupa bara Z400 línuna af móðurborðum sem ég myndi gera.
Þetta er auðvita ekki AMD exclusive, EVGA X299 Dark er með 3 viftum á móðurborðinu.
@GuðjónR, M1 (og komandi kynslóðir) verður algjör bylting en þetta er bókstaflega að bera saman epli og appelsínur. Það mætti segja að gera örgjörva í dag sem styður ekki external skjákort, stækkun á minni, ECC o.s.frv. sé metnaðarleysi.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 12:58
af olihar
chaplin skrifaði:Af því sem ég best veit er vifta útaf PCIe 4.0 sem er af því sem ég best veit ekki á neinu Intel móðurborði í dag. Ef vifta er dealbreaker að þá er alltaf hægt að kaupa bara Z400 línuna af móðurborðum sem ég myndi gera.
Þetta er auðvita ekki AMD exclusive, EVGA X299 Dark er með 3 viftum á móðurborðinu.
@GuðjónR, M1 (og komandi kynslóðir) verður algjör bylting en þetta er bókstaflega að bera saman epli og appelsínur. Það mætti segja að gera örgjörva í dag sem styður ekki external skjákort, stækkun á minni, ECC o.s.frv. sé metnaðarleysi.

Já einmitt, pælum samt í því að bjóða upp á Thunderbolt en... samt ekki... held ég enginn thunderbolt virkni sem gerir þetta bara að USB tengi.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 20:39
af kizi86
er reyndar einni kynslóðinni eldri, en þessi er að koma vel út.... fyrir utan hávaðann í viftunum á móðurborðinu,
Asrock TRX40 Taichi
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 20:51
af worghal
maður fær bara minnimáttarkend hérna

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fös 13. Nóv 2020 22:26
af Lenidaz
Og hvað á að gera við þetta Intel "rusl"? ég gæti mögulega séð um að fara með þetta á sorpu fyrir þig fyrir lítinn pening

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Þri 17. Nóv 2020 13:40
af Templar
Ryz en shine kominn í kassann, Intelinn situr þarna og hugsar sitt mál..
Tókst ekki að fá 4x8GB í DDR4000, er að maxa út í 3600, prófað DDR4000 með Fclock 3900 og 4000, RAMið á XLM2 profíl og ekkert OC á neinum timings == no dice.
Er að bíða eftir CL15 16 16 17 DDR4000 frá Kísildal, tek baráttu aftur þá en þangað til, einhver hérna með 4x8GB kubba á 3733+ og Ryzen 5K series?
Takk.

- image_2020-11-17_133935.png (476.55 KiB) Skoðað 2098 sinnum
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Þri 17. Nóv 2020 14:35
af agnarkb
Klemmi skrifaði:Templar skrifaði:Þetta er bara rugl flott hjá AMD.. alveg geggjað bara, hlakka til að skrúfa þetta í.
Nema ég mun seint fyrirgefa þeim fyrir að innleiða aftur viftur á kubbasettum móðurborðs
Þær áttu að haldast dauðar, litlar og grannar viftur, ef þær eru ekki háværar frá upphafi, þá er það bara tímaspursmál.
Ég var með sömu áhyggjur og hélt í gamla x370 Crosshair jálkinn í lengri tíma. Tók svo stökkið um helgina yfir í x570, Asus Strix Gaming E (langaði í annað Crosshair en kom ekki til greina að eyða 100kall plús í móðurborð). Verð bara að segja það að ég hef hingað til ekki heyrt múkk í þessari viftu, hún keyrir ekki í almennri vinnslu og í leikjum þá heyrist nú bara í skjákorts og AIO viftunum frekar en í þessari einu litlu viftu.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Þri 17. Nóv 2020 19:33
af Fridvin
Ég fékk mér Gigabyte Aorus Elite og 5900x. Og það var þvílíka brasið að ná að uppfæra biosinn og á endanum var ég bara heppinn að 1800x virkaði í móðurborðið og náði ég að uppfæra biosinn með því og leið og biosinn installaðist hætti hann að virka með móðurborðinu. Sá mikið eftir því að hafa ekki fengið mér Gigabyte Aorus Master.
En annars hef ég verið að pæla fá mér 4x8gb í 4000mhz og væri gaman að sjá hvort þú sjáir mikin mun Templar.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Mið 18. Nóv 2020 14:57
af bjarni85
Bara ef það myndi drullast á markað einhvern tímann!
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Mið 18. Nóv 2020 18:28
af gotit23
Þetta er borð er klikkað,
er sjálfur með svona,fólk er reyndar að kvarta undan bios umhverfinu en mér fannst það bara allat í lagi (venst).
Til hamingju með kaupinn

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Mið 18. Nóv 2020 18:31
af gotit23
Templar skrifaði:Ryz en shine kominn í kassann, Intelinn situr þarna og hugsar sitt mál..
Tókst ekki að fá 4x8GB í DDR4000, er að maxa út í 3600, prófað DDR4000 með Fclock 3900 og 4000, RAMið á XLM2 profíl og ekkert OC á neinum timings == no dice.
Er að bíða eftir CL15 16 16 17 DDR4000 frá Kísildal, tek baráttu aftur þá en þangað til, einhver hérna með 4x8GB kubba á 3733+ og Ryzen 5K series?
Takk.
image_2020-11-17_133935.png
er þetta cl 15 G.skill kit serpöntun eða ?
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Fim 19. Nóv 2020 09:59
af Templar
Reyndi Gigabyte borð, coil whine, misheppnað BIOS update og fleira, fór yfir í ASrock og núll vandamál. Gigabyte hafði nokkra fítusa sem Asrock hafði ekki sem ég kunni að meta í BIOS en þetta þarf að virka, hægt að lofa öllu en standa ekki við neitt.
Minnið er sérpöntun hjá Kísildal já, er ekki viss um að ég nái í 4000 á því heldur en ég get þá keyrt alveg rugl low timings á 3600 með 4 kubbum.
Minn 5950X er að boosta sig í 5GHz, þeir segja 4.9 max en ég sé á gröfum að þeir fara í 4975MHz reglulega þegar ég spila AC Valhalla t.d.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 14:19
af jonsig
Templar skrifaði:Reyndi Gigabyte borð, coil whine, misheppnað BIOS update og fleira, fór yfir í ASrock og núll vandamál. Gigabyte hafði nokkra fítusa sem Asrock hafði ekki sem ég kunni að meta í BIOS en þetta þarf að virka, hægt að lofa öllu en standa ekki við neitt.
Hey gamli.
Hvernig lýta þessar tölur út hjá þér ? kv.
HWinfo64

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 19:23
af Templar
Svona lítur þetta út hjá mér ungi

- image_2020-12-13_192239.png (20.93 KiB) Skoðað 1465 sinnum
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 20:48
af Bengal
Hvernig er cyberpunk að koma út á þessu setupi ?
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 21:53
af Templar
Fínn, með DLSS 2 Balanced og Ray tracing í Ultra er ég að fá 60-80fps í 4K, fer í 100+ í cut scenes. Droppar aldrei undri 60 svo þetta er smooth þó svo að tölurnar eru ekki hærri.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 21:56
af GuðjónR
jonsig skrifaði:Hey gamli.
Hvernig lýta þessar tölur út hjá þér ? kv.
Hvað eru mörg ý í líta?
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 22:02
af jonsig
GuðjónR skrifaði:jonsig skrifaði:Hey gamli.
Hvernig lýta þessar tölur út hjá þér ? kv.
Hvað eru mörg ý í líta?
þessar tölur líta illa út. Þessvegana lýta
https://islenskordabok.arnastofnun.is/ord/27247
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 22:16
af ÓmarSmith
BÆNG !

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 22:38
af GuðjónR
Ég veit að þú þarft að fara til lýtalæknis af því að þú ert ljótur en það er ekkert víst að þú munir líta betur út þrátt fyrir það.
Bara varð af því að þú varst sjálfur að leiðrétta hérna:
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=723232#p723232
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Sun 13. Des 2020 23:02
af jonsig
Ég er upp með mér að þú haldir punkta yfir allt sem ég segi á vaktinni. En rólegur að tala um útlit mitt í andhverfu , fæstir hérna skilja svona húmor

.
Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður
Sent: Mán 14. Des 2020 09:22
af Dropi
Templar skrifaði:Fínn, með DLSS 2 Balanced og Ray tracing í Ultra er ég að fá 60-80fps í 4K, fer í 100+ í cut scenes. Droppar aldrei undri 60 svo þetta er smooth þó svo að tölurnar eru ekki hærri.
Hvernig er CPU util í CBP2077? Hex edit trikkið er að koma vel út hjá mönnum með 1 CCX, ertu búinn að prófa það á þínum?
Eins og er þá er feitt disadvantager með Ryzen í þessum leik, eitthvað bungled codepath þar sem leikurinn athugar hvort þú sért með Bulldozer, ef ekki þá notar hann bara physical cores og ekki SMT. Svona 100 reddit þræðir um þetta.