Síða 2 af 2

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Mán 28. Maí 2018 21:44
af ZiRiuS
Ég á enga vini í Garðabænum :crying

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 01:42
af braudrist
Til hvers að kjósa? Þetta er allt sami skíturinn í sömu skálinni, það breytist ekki neitt.

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 01:49
af ZiRiuS
braudrist skrifaði:Til hvers að kjósa? Þetta er allt sami skíturinn í sömu skálinni, það breytist ekki neitt.
Tökum smá líkindareikning á þetta.

"Sit heima og kýs ekki"
eða
"Fer og kýs"

Hvert af þessu er líklegra til að leiða til breytinga?

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 08:49
af rapport
Sallarólegur skrifaði:
rapport skrifaði: Við "vinstrimenn" erum ekki ekki endilega með lægri laun
Það er dálítið erfitt að ræða svona mál við fólk sem afneitar staðreyndum.

Mynd

Þessar tölur lýsa engum staðreyndum, ekki nema það sé staðreynd að xP sé með 32,7% fylgi.

Þarna ertu ekki að bera saman epli og epli.

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 18:41
af Sallarólegur
rapport skrifaði: Þessar tölur lýsa engum staðreyndum, ekki nema það sé staðreynd að xP sé með 32,7% fylgi.

Þarna ertu ekki að bera saman epli og epli.
Fann þessa könnun bara í fljótu bragði og er því miður ekki með aðgang að gagnabönkum MMR eða Gallup, en ef þú kannt að lesa tölur á grafi þá sérðu hvaða tekjuhópar kjósa hvaða flokka.

Þegar þú hefur kynnt þér stjórnmálin örlítið betur, þá muntu fljótt átta þig á að hópar með hærri tekjur kjósa flokka sem hallast til hægri, og lægri tekjuhópar kjósa til vinstri.

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 20:47

Ég hef kynnt mér stjórnmálin nokkuð vel og kosningahegðun.

Það er mikil ónámkvæmni í þessum tölum og vert að benda á að einu breyturnar þar sem marktækur munur er milli kjósenda flokkana, það eru aldur og menntun.

Ég man ekki eftir neinni marktækri rannsókn hérna á Íslandi sem styður það sem þú ert að segja.

Það eina sem ég fann í fórum mínum eru þessar glærur t.d. bls. 7:
Inng_ao_stjmfr_09___4__Kjosendur_og_kosningar.pdf
(230.44 KiB) Skoðað 29 sinnum

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Þri 29. Maí 2018 21:00
af rapport
http://fel.hi.is/sites/fel.hi.is/files/ ... %B3kin.pdf

Bls. 622

Sýnir hvernig fylgi flokka eftir starfstéttum kjósenda hefur verið að þróast undanfarna áratugi.

Þar hefur fylgi hægriflokka minnkað mest hjá "sérfræðingum" og "atvinnurekendum/stjórnendum" og þarna eru tölur frá 1983-2003 og í síðan þá hefur stuðningur þessara hópa minnkað hraðar. (finn ekki heimildir í fljótheitum).

Munurinn er eingöngu marktækur hjá bændum og sjómönnum, þeir halda mestri tryggð við hægri flokkana.

Annars, ef miða ætti við menntunarstig, þá ætti sáralítill munur að vera á tekjum kjósenda flokkana.

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Mið 30. Maí 2018 07:33
af Sallarólegur
rapport skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
rapport skrifaði: Þessar tölur lýsa engum staðreyndum, ekki nema það sé staðreynd að xP sé með 32,7% fylgi.

Þarna ertu ekki að bera saman epli og epli.
Fann þessa könnun bara í fljótu bragði og er því miður ekki með aðgang að gagnabönkum MMR eða Gallup, en ef þú kannt að lesa tölur á grafi þá sérðu hvaða tekjuhópar kjósa hvaða flokka.

Þegar þú hefur kynnt þér stjórnmálin örlítið betur, þá muntu fljótt átta þig á að hópar með hærri tekjur kjósa flokka sem hallast til hægri, og lægri tekjuhópar kjósa til vinstri.
Ég hef kynnt mér stjórnmálin nokkuð vel og kosningahegðun.

Það er mikil ónámkvæmni í þessum tölum og vert að benda á að einu breyturnar þar sem marktækur munur er milli kjósenda flokkana, það eru aldur og menntun.
Já, heldurðu að það séu margir með yfir milljón á mánuði sem kjósa Sósíalistaflokkinn? :lol:

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Mið 30. Maí 2018 10:29

Það er líka virkilega ómarktækt að heimfæra tölfræði um kjósendur Sósíalistaflokksins yfir á alla vinstrimenn.

Þetta er bara algjörlega ómarktæk fullyrðing um kjósendur.

Mikið af tekjuháu fólki getur séð framtíð sinni betur borgið með auknum félagsauð og félagslegri þjónustu. Sérstaklega fólk sem er í dag um 40-50 ára og er að upplifa á eigin skinni að þurfa að hugsa um foreldra sína bæði fjárhagslega og með beinni umönnun þar sem lífeyriskerfið, heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið eru ekki að ná að hjálpa nema fólk sé virkilega illa statt.

Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?

Sent: Mið 30. Maí 2018 22:47
af Hjaltiatla
Allt að gerast í RVK.
http://www.vb.is/frettir/hefja-meirihlu ... ik/147421/

Stærsti flokkurinn og Vigdís Hauks í minnihluta í Borginni, þetta verður svaka partý.Sósíalistar vilja engin völd þannig að þeir teljast ekki með.