Síða 2 af 5

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 21. Feb 2018 20:39
af brain

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 21. Feb 2018 23:49
af worghal
Þetta hljómar eins og léleg dönsk bíómynd :lol:

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 22. Feb 2018 20:41
af appel
http://ruv.is/frett/logregla-rynir-i-or ... -ad-tolvum

Er lögreglan bara með aðgang að upplýsingum um raforkunotkun allra heimila?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 22. Feb 2018 21:03
af GuðjónR
appel skrifaði:http://ruv.is/frett/logregla-rynir-i-or ... -ad-tolvum

Er lögreglan bara með aðgang að upplýsingum um raforkunotkun allra heimila?
Já, svona koma þeir oftast upp um cannabis ræktanir.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 22. Feb 2018 21:05
af DaRKSTaR
já.. þannig hafa þeir fundið kannabisrætun í íbúðarhúsnæðum síðustu árin, öll óeðlileg raforkunotkun er könnuð.
appel skrifaði:http://ruv.is/frett/logregla-rynir-i-or ... -ad-tolvum

Er lögreglan bara með aðgang að upplýsingum um raforkunotkun allra heimila?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 22. Feb 2018 21:08
af appel
Þarf þá ekki bara að skoða hverjir hafa keypt dísel-rafstöðvar nýverið? :D

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 00:52
af Stuffz
ég efast um að þessi búnaður sé enn á landinu.

talandi um rafmyntar gröft, fréttirnar kalla þetta gagnaver sem er þá ekki kórrétt.

hmm svo ef þetta rafmyntar graftar drasl er að nota meiri orku en heimilin þá þegar kemur nógu mikil/löng niðursveifla í þessu þegar hrun verður á rafmyntargröfti og þeir aðilar pakka saman og fara úr landi, ætli fanboys um rafstreng til Bretlands eigi ekki eftir að fá byr undir báða vængi, rafmagnssölu aðilar vilja örugga langtíma kaupendur, ef Bretinn er ekki lengur í EU þá á ekki við að það megi ekki selja þeim orku á hærra verði.

óæskilegt í sögulegu samhengi að gerast hráefnanýlenda fyrir erlenda heimsveldis þjóð.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 05:20
af Moldvarpan
Hitaveitan kemur einu sinni á ári til að lesa af mælunum, þær tölur rýna yfirvöld í, í von um að finna eh óeðlilegt.

Svo, ég tel það fráleitt að finna þessar tölvur með þeirri aðferð að svo stöddu.
Ég hef þó á tilfinningunni að þetta hafi ekki verið skipulagt frá A-Ö, og þetta sé enn í felum hér á landi.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 08:58
af urban
Stuffz skrifaði:
óæskilegt í sögulegu samhengi að gerast hráefnanýlenda fyrir erlenda heimsveldis þjóð.
Hvað helduru að við höfum verið í gegnum árin annað en hráefnanýlenda fyrir breta ?
Við erum það meirað segja ennþá, við sendum óhemju magn af fisk þangað vikulega.

Moldvarpan skrifaði:Hitaveitan kemur einu sinni á ári til að lesa af mælunum, þær tölur rýna yfirvöld í, í von um að finna eh óeðlilegt.

Svo, ég tel það fráleitt að finna þessar tölvur með þeirri aðferð að svo stöddu.
Ég hef þó á tilfinningunni að þetta hafi ekki verið skipulagt frá A-Ö, og þetta sé enn í felum hér á landi.
Færðu bara orkureikning einu sinni á ári ?
Hérna í eyjum er lesið af annan hvern mánuð og "áætlun" hinn mánuðinn

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 11:06
af Moldvarpan
Nei borga mánaðarlega, en það er áætluð notkun.

Svo er það stemmt af einu sinni á ári, hvort sem notkunin sé minni eða meiri en áætlað var.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 12:09
af urban
Moldvarpan skrifaði:Nei borga mánaðarlega, en það er áætluð notkun.

Svo er það stemmt af einu sinni á ári, hvort sem notkunin sé minni eða meiri en áætlað var.
Vá hvað það er slæmt fyrirkomulag.
Hvað ef að áætlunin var bara 10% of lág, þá þarf bara að gera svo vel að borga 10% af heildarnotkun á árinu á einu bretti.

Nú ef að ég er að borga of mikið, ég hef engan áhuga á því að lána orkufyrirtækinu mínu peningana mína vaxtalaust, þeir lána mér alveg öruggt ekki vaxtalaust.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 13:15
af blitz
Þeir sjá væntanlega notkun á rauntíma eftir dreifingarstöðum og geta unnið sig út frá því.

Annars borgar sig alltaf að lesa af mælum mánaðarlega og skrá hjá Veitum sem eftirlitsmælingu.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 13:34
af GuðjónR
blitz skrifaði:Þeir sjá væntanlega notkun á rauntíma eftir dreifingarstöðum og geta unnið sig út frá því.

Annars borgar sig alltaf að lesa af mælum mánaðarlega og skrá hjá Veitum sem eftirlitsmælingu.
Ef ske kynni að það kæmi "hækkun" ... því hún er afturvirk ef þú vanáætlar...

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 19:25
af jonfr1900
urban skrifaði:
Stuffz skrifaði:
óæskilegt í sögulegu samhengi að gerast hráefnanýlenda fyrir erlenda heimsveldis þjóð.
Hvað helduru að við höfum verið í gegnum árin annað en hráefnanýlenda fyrir breta ?
Við erum það meirað segja ennþá, við sendum óhemju magn af fisk þangað vikulega.

Moldvarpan skrifaði:Hitaveitan kemur einu sinni á ári til að lesa af mælunum, þær tölur rýna yfirvöld í, í von um að finna eh óeðlilegt.

Svo, ég tel það fráleitt að finna þessar tölvur með þeirri aðferð að svo stöddu.
Ég hef þó á tilfinningunni að þetta hafi ekki verið skipulagt frá A-Ö, og þetta sé enn í felum hér á landi.
Færðu bara orkureikning einu sinni á ári ?
Hérna í eyjum er lesið af annan hvern mánuð og "áætlun" hinn mánuðinn
Þetta er svona hjá Rarik og Orkusölunni. Veit ekki með önnur fyrirtæki. Það er alveg hægt að senda inn áætlun oftar held ég (langt síðan ég bjó á Íslandi almennilega).

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 19:35
af arons4
jonfr1900 skrifaði:

HS eru í nokkurn tíma búnir að vera að setja upp mæla sem hringja út notkunina og eru held ég að vinna í því að skipta út gömlum mælum.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 19:59
af Manager1
Það er markvisst verið að vinna að því útum allt land að útrýma mælum sem ekki er hægt að lesa af í fjarálestri. Ég held ég geti fullyrt að allir nýjir mælar sem settir eru upp í dag eru með búnaði sem gerir eiganda mælisins (veitunni, ekki húseiganda) kleift að lesa af honum rafrænt með nokkrum músarsmellum í tölvu.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 20:20
af jonfr1900
Manager1 skrifaði:Það er markvisst verið að vinna að því útum allt land að útrýma mælum sem ekki er hægt að lesa af í fjarálestri. Ég held ég geti fullyrt að allir nýjir mælar sem settir eru upp í dag eru með búnaði sem gerir eiganda mælisins (veitunni, ekki húseiganda) kleift að lesa af honum rafrænt með nokkrum músarsmellum í tölvu.
Það eru flest allir mælar þannig í Danmörku nú þegar. Flest rafmagnsfyrirtæki eru hætt að áætla hérna í Danmörku notkunina á fólki (í flestum tilfellum held ég).

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fös 23. Feb 2018 20:37
af appel
Fór þetta ekki bara í gám og svo bara út?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Mið 28. Feb 2018 18:46
af urban
Sagan á götunni segir að þetta hafi fundist hérna í eyjum í gámum.
Sagan á götunni hefur svo sem ekkert alltaf rétt fyrir sér, en það eru allavega aðkomulögreglumenn á svæðinu að skoða tölvudót í gámum.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 17:52
af DJOli

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:09
af appel
Gámaver? Nokkuð góð hugmynd.

Þetta er svoldið reyfarakennt.

Augljóst að þetta var mjög skipulagt.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:12
af arons4
Fyndið að koma með eitthvað svona til vestmannaeyja, þar sem allt fréttist um allan bæjinn um leið. Var búinn að heyra af þessu gagnaveri fyrir nokkrum vikum og um leið grínast með að þetta gæti hafa verið þessi stolni búnaður.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:18
af DJOli
Nú verður svo gaman að sjá hvort þeir verði einnig krafðir um að greiða allan hagnað til baka sem þeir gætu hafa náð.
Miðað við Ethereum, og gengi þess s.l. þrjár vikur amk, og 1x1060-6 kort yfirklukkað, er geta þess sirka $1.4 á dag, sem myndi gera $840, eða 85.585kr.- á dag með 600 skjákort.

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:22
af appel
DJOli skrifaði:Nú verður svo gaman að sjá hvort þeir verði einnig krafðir um að greiða allan hagnað til baka sem þeir gætu hafa náð.
Miðað við Ethereum, og gengi þess s.l. þrjár vikur amk, og 1x1060-6 kort yfirklukkað, er geta þess sirka $1.4 á dag, sem myndi gera $840, eða 85.585kr.- á dag með 600 skjákort.
Hvað ætli rafmagnskostnaðurinn sé, hýsingarkostnaður?

Re: Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Sent: Fim 01. Mar 2018 18:31
af DJOli
appel skrifaði:
DJOli skrifaði:Nú verður svo gaman að sjá hvort þeir verði einnig krafðir um að greiða allan hagnað til baka sem þeir gætu hafa náð.
Miðað við Ethereum, og gengi þess s.l. þrjár vikur amk, og 1x1060-6 kort yfirklukkað, er geta þess sirka $1.4 á dag, sem myndi gera $840, eða 85.585kr.- á dag með 600 skjákort.
Hvað ætli rafmagnskostnaðurinn sé, hýsingarkostnaður?
Tökum dæmi.
gtx 1060-6gb kort er með 140w tdp.
Hjá mér keyrir eitt svoleiðis kort á ~80% tdp í 100% vinnslu sem gerir 112w (140*0.80).
112*600=67.2kW, og það eru bara skjákortin.