Síða 2 af 2
Re: Heimabankar
Sent: Mið 30. Ágú 2017 18:18
af netkaffi
Revenant skrifaði:Það er ekki auðskilið útfrá tölvupóstinum sem þú sendir að þú ert að spyrja um hvort að fídus X sé ekki lengur til staðar í netbankanum (eða kosti ekki neitt).
Miklu frekar að þú hafir lent í vandræðum að hækka yfirdráttinn í netbankanum og þessvegna spyr Arion um kennitölu (til að geta hjálpað þér)
Já, þetta er góð kenning hjá þér en ég var búinn að taka fram að ég sendi annan tölvupóst.
Annars er ég er á vanskilaskrá útaf einhverju sem ég á eftir að leiðrétta, allavega skulda ég ekki neitt og var sagt um daginn að ég gæti talað við RSK.is til að fá það leiðrétt að ég sé á vanskilaskrá því þetta er vegna gamallar skuldar við þau sem er löngu farin. Gat samt tekið svona yfirdrátt hiklaust automatic á skotstundu bara fyrir 30 dögum. (Sem ég er búinn að borga.)
Anyway, þetta snérist aldrei um það né hver ég væri.
Ég var bara að spyrja hvort hugbúnaðurinn hjá þeim hefði breyst. Fídus tekinn út. Hérna er einhver þjónustufulltrúi búin að skilja mig
Re: Vangefið svar frá arionbanki@arionbanki.is
Sent: Mið 30. Ágú 2017 19:05
af netkaffi
Klemmi skrifaði:finnst nú bara ótrúlegt að þau hafi verið búin að svara þér strax kl. 9:36 morguninn eftir, óháð því hversu gott svarið er
Var ekki búinn að taka eftir því. Fá þá plús fyrir "Answers within an hour."
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Mið 30. Ágú 2017 22:44
af pepsico
Tókstu ekki bara hámarks samstundis lán og ert ekki búinn að greiða það og því stendur eftir þessi slider sem er þá
eins og ef þú hefðir upphaflega beðið um það lán plús það sem sliderinn er að sýna og þar sem það er þar með stærra
en hámarks lánið sem var hægt án umsóknar þá þarf þessar upplýsingar frá CreditInfo o.s.frv.?
Þannig myndi ég halda að þetta væri forritað. Eftir stendur þá hvort heimabankinn veit að þú ert búinn að borga yfirdráttinn.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Mið 30. Ágú 2017 23:23
af rbe
Lúxusvandamál ? einu sinni þurfti fólk að hitta bankastjóra til að fá lán og segja i hvað það ætlaði að nota peningana.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Fim 31. Ágú 2017 16:04
af netkaffi
Lúxusvandamál eru eldiviður framfaranna. Annars værirðu að nota blekpenna en ekki lyklaborð?
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Fim 31. Ágú 2017 16:48
af dori
Ég skil ekki, er tölvupósturinn í upprunalega innlegginu á undan því sem þú sendir inn síðar? Af því að það er mögulega óljósasta fyrirspurn sem ég hef séð.
Svo er þetta
Ég er að tala um forrit sem í almennu tali er kallaður heimabanki. Hugbúnaður s.s. sem fer gegnum breytingar og uppfærslur.
...
líka hrikalega skrýtinn póstur.
Mér finnst alveg ótrúlegt að einhver hafi áttað sig á því hvað þú varst að spurja um.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Fim 31. Ágú 2017 17:38
af siggik
pirrar þetta engan þegar hann talar um hugbúnað bankans ?
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Fös 01. Sep 2017 00:02
af Sallarólegur
Þetta er einhver ómerkilegasti þráður sem ég hef séð hérna inni.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Fös 01. Sep 2017 12:39
af rbe
ég fór að skoða svar mitt og hef ákveðið að taka 180gráðu beygju og bið afsökunar ef ég hef móðgað einhvern. tók indriða ruglið út.
im only human. geri mistök mörgum sinnum á dag. enda sést það á bullinu í póstunum mínum hér margoft.
þetta leiðrétting og svar mitt aðallega við því sem sallarólegur sagði um ómerkilegt og því sem ég bullaði um að væri lúxusvandamál
ef einhverjum finnst eitthvað vera vandamál þá er það vandamál fyrir honum sama hvað það er ? öðrum finnst það kannski ekki þá er það ekki fyrir þeim ?
ef ykkur finnst eitthvað merkilegra en annað er það flott mál .það er líka afstætt ? mér finnst ekkert merkilegra en annað (í efnisveröldinni)
það sem er likað mest við hér í þræðinum "Vangefin viðbrögð við tölvupósti" hvað eru eðlileg viðbrögð ? hvað er "eðlilegt" ?
hér byrjar útidúrinn.
tengist þetta ekki bara því að lífverur hafa frjálsan vilja ? (amk manneskjur) það sem við gerum hefur orsakir og afleiðingar. ?
mér finnst enginn hlutur merkilegri eða öðruvísi en annar raðast bara saman á mismunandi hátt. blóm er ekki merkilegri en steinn. tunglið er ekkert öðruvísi en jörðin. allt er orka þá á ég við atómin.
sama hlýtur að vera með lífið ? það er væntanlega annars eðlis en efnisveröldin(orku) en frá sömu uppsprettu? það er engin líkamleg athöfn merkilegri en önnur ? það er ekkert merkilegra að hreyfa vinstri höndina en hægri ? en það sem við gerum hefur orsakir og afleiðingar.
allt er eitt. "ég or faðirinn erum eitt" og "faðirinn er í mér og ég í föðurnum.“
og All is one, and that one is love/light, light/love, the Infinite Creator.
best að stoppa núna kominn langt út fyrir efnið ? heimabankann og ég er ekki á sveppum !
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:34
af netkaffi
"Þetta er einhver ómerkilegasti þráður sem ég hef séð hérna inni."
LOL.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:35
af netkaffi
dori skrifaði:Mér finnst alveg ótrúlegt að einhver hafi áttað sig á því hvað þú varst að spurja um.
Þú ert heldur ekkert að fatta greinilega.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:36
af netkaffi
siggik skrifaði:pirrar þetta engan þegar hann talar um hugbúnað bankans ?
Ertu þroskaheftur? Heimabanki er hugbúnaður bankans.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:42
af netkaffi
Tilgangur þessa þráðs var margvísilegur. M.a. 1) að ath. hvort einhver kannaðist við álíka þjónustu og hvort að hún væri farin. 2) Venta yfir að bankastarfsmaður misskildi mig eða púllaði "við erum banki og þurfum ekki að segja þér neitt" 3) Fá sögur af þjónustu bankanna eða reynslusögur af hugbúnaði þeirra
Nenni ekki að skrifa fleiri ástæaður, en þessi þráður heppnaðist frekar vel fyrir mér. Fékk svör við mörgu! Og hafði gaman af restinni (lúðunum sem voru að dæma þetta harkalega).
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:45
af netkaffi
dori skrifaði:...líka hrikalega skrýtinn póstur.
Hvernig er þetta "hrikalega skrýtinn" póstur?
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 01:58
af netkaffi
Eins að og heimabankinn gæti ekki haft skilaboð sem segja "Þú ert ekki lengur í tilgreindum lánaflokki." Indriði my ass.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 02:04
af netkaffi
Lengra komið software myndi senda notification instantly og ég félli um lánshæfimatsstig/lánshæfimatsþrep.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 13:10
af Nariur
Vá. Septuple post. Double post hvað?
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 14:15
af netkaffi
Og það skiptir máli hvernig? Flott orð samt.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Lau 02. Sep 2017 15:29
af braudrist
vaktin.is skrifaði:Reglurnar
Þessar reglur eru til að gera spjallid.is. betra og þægilegra í notkun. Ef allir reyna að fara eftir þeim verður spjallið mun betri staður til að fræðast og spjalla um tölvur og allt þeim tengt.
1. Almennar reglur
a. Bréf skulu hafa lýsandi titla, vandaða uppsetningu og ekki má pósta sama bréfi í marga flokka eða í mörgum eintökum. #
b. Óheimilt er að eyða upprunalegu innihaldi bréfa eða titlum þeirra.
c. „Breyta“ takkinn er til þess að leiðrétta bréf eða bæta við þau. Bannað er að breyta innihaldi eða tiltum bréfa í „Eyða“ eða „Má eyða“, það má setja [Selt] eða [Hætt við sölu] fyrir framan titil eða bæta við bréfið. Við brot á þessari reglu fær notandi aðvörun, við ítrekuð verður notandi bannaður.
#
c. Persónuníð og órökstuddur rógburður er með öllu ólíðandi og getur leitt af sér bann af spjallborðinu. #
d. Mest má "bump'a" þræði 1x á 12 klst. fresti, en ekki oftar. #
e. Bannað er að misnota spjallborðið til eigin þágu, t.d. með birtingu "referral links" eða leikja á Facebook eða sambærilegu. #
f. Umsjónarmenn spjallborðsins hafa allan rétt á að skipta sér af og leiðrétta umræður þar sem ofantaldar reglur eru brotnar. #
g. Vaktin.is er samfélag en ekki fjölmiðill skv. skilgreiningu Fjölmiðlanefndar og er því ekki hægt að draga vaktin.is til ábyrgðar fyrir orðum eða gjörðum notenda vefsins. Vaktin.is ber enga ábyrgð á því innihaldi sem kemur frá notendum vefsins. Hver og einn notandi ber ábyrgð á því sem hann gerir eða segir. Vaktin.is ber sömuleiðis ekki ábyrgð á neinum þeim viðskiptum sem fara fram á söluborði vefsins. #
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Þri 05. Sep 2017 15:52
af netkaffi
Ókei. Ég hef brotið reglur um breytingar á þráðum, vissi ekki af þeim. En ég var ekki að reyna bumpa þræðinum með að gera mörg svör við mörgum einstaklingum í fleiri en einum póst. Ég var bara að velja fljótlegustu og þægilegustu leiðina fyrir mig að svara öðrum. Mér finnst að rapidposting sé mjög það sem fólk er orðið vant á Internetinu 2017, eftir Twitter. (Er ekki að segja þetta sé Twitter.)
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Þri 05. Sep 2017 18:42
af Gislinn
Ég fékk þau svör frá Arion Banka þegar ég spurði út í þennan fídus að sú upphæð sem hægt væri að fá sem yfirdrátt með þessum hætti í heimabankanum sé háð veltu og skuldastöðu einstaklings ásamt einhverjum fleiri þáttum sem þjónustufulltrúinn kunni ekki almennileg skil á. Þannig að þótt þú gast tekið 136 þúsund í síðasta mánuði þá gætu forsendur hafa breyst sem valda því að þú getur ekki tekið neitt núna nema með því að fara í eitthvað samþykktarferli.
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Þri 05. Sep 2017 19:17
af netkaffi
Já, þær breyttust á þessum 30 dögum. Ég fékk snailmail (pappír sendann heim) um að þeir hafi tjekkað á mér hjá Creditinfo á þessu tímabili. Hví veit ég ekki, kannski því ég sagði þetta á Facebook?:
Re: Heimabankahugbúnaður og "væl yfir að ég fékk ekki yfirdrátt sem ég fékk með sömu skuldastöðu um daginn"
Sent: Mið 06. Sep 2017 10:05
af Gislinn
netkaffi skrifaði:Já, þær breyttust á þessum 30 dögum. Ég fékk snailmail (pappír sendann heim) um að þeir hafi tjekkað á mér hjá Creditinfo á þessu tímabili. Hví veit ég ekki, kannski því ég sagði þetta á Facebook?:
*mynd*
netkaffi skrifaði:
Svo í gær var á fídus horfinn og kominn einhver slider sem rukkaði 750 krónur fyrir hvaða upphæð sem er og sagði að það færi í samþykktarferli sama hversu lítill yfirdráturinn væri.
Ákvaðst þú að láta þetta fara í samþykktarferli? Ef svo er þá er þessi 750 kr fyrir að fletta þér upp í CreditInfo. Þetta er allavega sama upphæð og er rukkað fyrir uppflettingu þar.
Ég ætla að giska á að þú sért ekki svo mikilvægur að bankinn sé að fylgjast með þér á facebook. Sennilegast er bankanum drullu sama hvað þú skrifar um hann.