Síða 2 af 2

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Fös 14. Apr 2017 22:59
af Templar
Getur byrjað að spyrja hvers vegna menn yfirklokka, ekki langt að sækja.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Lau 15. Apr 2017 10:45
af braudrist
Hann er sennilega duglegur að vinna og spara — annað en 90% af Íslendingum — þess vegna hefur hann efni á þessu. Mér finnst þetta frábært og sé ekkert að þessu, þetta er áhugamál eins og hvað annað. Til hamingju með nýju kortin :D

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Lau 15. Apr 2017 10:48
af Klemmi
braudrist skrifaði:Hann er sennilega duglegur að vinna og spara — annað en 90% af Íslendingum
Work smart, not hard :)

Annars kemur það fólki ekki við hvað aðrir nýta peninginn sinn í, svo lengi sem þeir greiða sína skatta.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Lau 15. Apr 2017 16:59
af Tiger
Þetta á að vera nördasíða Íslands...þar er ekki talað um "hvað þarf ég" heldur "hvað langar mig í "..... #simple

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Sun 16. Apr 2017 02:38
af emil40
Þetta er bara eins og með allt við höfum mismunandi áhugamál. Ég er sammála Templar að hælbítingshátturinn í þessu jaðrar við ÖFUND. Hann er með setup sem ég held að flesta dreymi um svo er annað hvort að menn eigi peninga í svona. Ég samgleðst honum bara innilega með að eiga draumasetupið og auðvitað er það aldrei fjárfesting að vera með það nýjasta í tölvudótinu.

Ég eyði miklum tíma í minni tölvu og kaupi nýtt þegar ég er búinn að safna fyrir því. Ég er til dæmis að fara í 1080 ti þegar ég verð búinn að safna fyrir því og síðan annað alveg eins en það verður ekki fyrr en ég verð búinn að safna fyrir því. Ég kýs að staðgreiða allt sem ég kaupi og steypa mér ekki í skuldir við það sem ég kaupi.

Setupið mitt núna er svona :

CoolerMaster Storm Enforcer | i7 7700k kabylake @ 5.0 ghz | Z270x-ultra gaming-CF | Nocthua dh-15 kæling | 28 " ASUS PB287Q 4k | 8 gb ddr4 2133 | amd radeon r7 360 series 2 gb | 19 tb geymslupláss

Eins og þið sjáið þá á ég eftir að stækka minnið og skjákortin. Ég er bara mjög ánægður fyrir hönd templar að vera með draumasetup, maður á að kunna að samgleðjast öðrum en ekki vera með öfund og leiðindi.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Sun 16. Apr 2017 12:43
af jonsig
emil40 skrifaði:Þetta er bara eins og með allt við höfum mismunandi áhugamál. Ég er sammála Templar að hælbítingshátturinn í þessu jaðrar við ÖFUND.
sry :?:

Langaði bara að vita hvað fær hann til að tikka. Hvaðan kemur allt "þið" fólk sem vilja misskilja mann til að búa til eitthvað drama útaf engu? Og móðgast fyrir hönd annara? Í alvöru.

Þetta er einmitt nördasíða, en þetta er ekki einhver trúarsöfnuður. Hérna ræðum við áhugamálin okkar og af hverju við gerum hlutina. :ninjasmiley

Ég spyr hann af þessu því ég er með GTX1070 sli. Og hef ekki lent í neinum leik sem challangear tölvuna mína sem er ekki sú besta en kostar alveg nóg fyrir LEIKJATÖLVU. Þannig ef einhver annar þarf 4* meira processing power, why? Er hann að reikna einhver gröf fyrir nasa? bara forvitni .. einmitt staðurinn til að svala forvitni varðandi tölvuhluti.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Sun 16. Apr 2017 12:54
af Klemmi
jonsig skrifaði: Þannig ef einhver annar þarf 4* meira processing power, why? Er hann að reikna einhver gröf fyrir nasa? bara forvitni .. einmitt staðurinn til að svala forvitni varðandi tölvuhluti.
Ef þú lest svörin fyrir ofan, þá eru menn að benda á að þetta snúist ekki um hvað þeir ÞURFI heldur frekar hvað þeim LANGAR :)

Það þarf ekki jeppa á annað hvert heimili á Íslandi... aukinn rekstarkostnaður við jeppa vs. smábíl er líklega hærri heldur kostnaðurinn við að kaupa alltaf öflugasta skjákortið að hverju sinni.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Þri 18. Apr 2017 21:32
af Templar
Titan Generations
Titan Generations
DSC_0729.JPG (2.65 MiB) Skoðað 462 sinnum

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Þri 18. Apr 2017 22:09
af urban
jonsig skrifaði:
Ég spyr hann af þessu því ég er með GTX1070 sli. Og hef ekki lent í neinum leik sem challangear tölvuna mína sem er ekki sú besta en kostar alveg nóg fyrir LEIKJATÖLVU. Þannig ef einhver annar þarf 4* meira processing power, why? Er hann að reikna einhver gröf fyrir nasa? bara forvitni .. einmitt staðurinn til að svala forvitni varðandi tölvuhluti.
Vegna þess að honum langar til þess og hann getur það.

Þetta er svona einsog það er alveg gersamlega óþarfi að eiga bíl með stærri vél en 1400cc vél.
Samt kaupir fólk sér 5,7 lítra 400 hestafla tæki.

Afhverju, vegna þess að það vill það og getur það.

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Þri 18. Apr 2017 23:15
af rbe
https://www.nvidia.com/object/compare-quadro-gpus.html

það er kominn tími á upgrade ?
annað hvort Quadro P6000 eða Quadro GP100
sýnist þau vera á frá 5000 dollara p6000 hitt sennilega dýrara stykkið .
er GDDR5X ekki annars alveg out hehe .

Re: Til sölu 2x Titan X (Pascal) skjákort 100K stk. gott sem ný.

Sent: Mið 19. Apr 2017 02:04
af emil40
Ég mun fara í haust í 2x gtx 1080 ti AF ÞVÍ AÐ MIG LANGAR ÞAÐ og þá verð ég kominn með nægann pening í það. Ég myndi alveg vilja titan xp en ég sé ekki fram á að ég myndi hafa efni á því .... ef ég væri með þær tekjur að ég gæti það myndi ég gera það.

Eins og urban segir líka maður þarf ekkert meira en bíl með stærri vél en 1400cc vél það er nóg en þetta fer bara eftir áhugasviði fólks og ef maður getur það og langar til þess af hverju ekki ?