Re: Verðlagning í ELKO vs Elkjop.
Sent: Fim 29. Des 2016 11:11
Náðum 82.000 bollum á þessa vél í vinnunni áður en hún dóGuðjónR skrifaði:Nú hló ég upphátt, þetta er nú meiri vitleysan. Mæli með því, ef þú átt pening eftir jólatörnina, að þú látir eftir þér að kaupa þessa vél.depill skrifaði:http://elko.is/siemens-surpresso-espressovel. Jæja þá er útsalan byrjuð hjá ELKO 44.995
Mér finnst þú eiga það skilið.
Ég keypti sjálfvirka kaffivél í ágúst 2006, hún er því orðið 10.5 ára og búið að hella 23.388.- sinnum upp á, yfirleitt tvo bolla í hvert sinn þannig að bollarnir eru orðnir yfir 40 þúsund talsins. Vélin kostaði handlegg á sínum tíma en ég hef aldrei séð eftir að hafa keypt hana og þetta er eitt af þeim tækjum sem ég get ekki verið án. Hef tekið hana með mér í sumarbústað.
Aðeins um flutningskostnað. Hann er ekki svona fáránlega hár þegar þú ert með fasta samninga við flutningsaðila sem og ert að flytja í meira magni. Það er ekki dýrt að flytja vörur erlendis frá (panta daglega vörur frá Þýskalandi / Norðurlöndunum) .... alltaf spurning hversu mikið menn vilja leggja ofan á vöru og hversu mikla afslætti þeir gefa kúnna.
Svo var flott comment hér að ofan með að Íslendingar krefjast afsláttar (ég bið um afslátt í ríkinu og Bónus .. fæ alltaf nei ótrúleg nokk) sem er hrikaleg þróun en maður er sjálfur alveg sekur um þetta líka