Síða 2 af 2

Re: Raforkuverð á Íslandi í samanburði við önnur lönd

Sent: Fös 25. Nóv 2016 10:50
af GuðjónR
Cascade skrifaði:Eins og það er búið að benda á þá ertu ekki að bera þetta rétt saman.

Þegar ég bjó í Danmörku 2010-2012 minnir mig að rafmagnið hafi verið að kosta um 50kr með öllu, meðan það var 16kr hérna.

Það var svipað dæmi með hitann


Fólk erlendis er mikið að hafa alla glugga lokaða, slökkva ljós í öllum rýmum sem enginn er í og spara kyndingu. Þetta þekkist ekki á Íslandi, vegna þess hve ódýrt þetta er
Takk fyrir þetta!
Akkúrat það sem ég var að leita eftir. :happy

Re: Raforkuverð á Íslandi í samanburði við önnur lönd

Sent: Fös 25. Nóv 2016 11:24
af slapi
Rafmagnsverð er mjög breytilegt hérna í Svíþjóð. Það breytist líka verðið eftir "hvaðan" raforkan kemur vatn/vind/sól/osfrv.
Normal verð í kringum mig fyrir íbúð sem er með notkun uppá 5000-7000 kwh/árið fyrir utan upphitun er 90-110 sænskir aurar á kw/h sem getur verið niður í 379skr/mánuði.

Re: Raforkuverð á Íslandi í samanburði við önnur lönd

Sent: Fös 25. Nóv 2016 11:41
af GuðjónR
slapi skrifaði:Rafmagnsverð er mjög breytilegt hérna í Svíþjóð. Það breytist líka verðið eftir "hvaðan" raforkan kemur vatn/vind/sól/osfrv.
Normal verð í kringum mig fyrir íbúð sem er með notkun uppá 5000-7000 kwh/árið fyrir utan upphitun er 90-110 sænskir aurar á kw/h sem getur verið niður í 379skr/mánuði.
Er ég þá að skilj þig rétt að kWh í Svþjóð kosti 11 isk. - 13.5 isk. ?
Eru það þá endanlegar tölur eða vantar flutning og dreifingu inn í þetta?

Re: Raforkuverð á Íslandi í samanburði við önnur lönd

Sent: Fös 25. Nóv 2016 12:49
af vesley
urban skrifaði:
Daz skrifaði:
Svona fyrir utan að "anecdotal evidence" sögur eru voðalega vondar í rökræðu, þá gæti t.d. þessi saga verið lituð af þessum hressu gengissveiflum sem við hrjáumst af hérna á Íslandi. Verkamaðurinn sem rakaði inn seðlum í Noregi árið 2011 (þegar gengisvísitalan var 216) er núna ekkert svo vel settur (þegar gengisvísitalan er 165).
Þetta nefnilega virðast alltof fáir átta sig á.

Gott dæmi sem að ég nefni oft.
Félagi minn hækkaði um ca 30% í launum í október 2008 ef að við reiknum það í íslenskum krónum.

Hann fékk samt enga launahækkun, hann var vinnandi í danmörku og var á nákvæmlega sömu launum í ágúst og nóvember.

Bróðir minn einmitt búinn að búa í Noregi síðastliðin 16 ár. Og miðað við gengi íslensku krónunnar og nýlegt fall norsku krónunar hefur hann fallið rosalega í launum undanfarið þó hann sé með sömu norsku krónunar útborgað, svona samanburður við önnur lönd er flókinn og tekur miklum sveiflum hér á landi útaf gengisbreytingum.