Síða 2 af 4

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Þri 20. Sep 2016 14:34
af kjarrig
Sérstakt eins og hjá Netgíró, er með reikning hjá þeim, hef verið að versla bíómiða í gegnum þennan reikning og hef aldrei farið yfir 5000 á mánuði, samt fæ reglulega tilkynningu um hækkun á heimildinni minni og er heimildin komin í tæplega 360.000 ef ég man rétt. Ég átta mig ekki á hvernig ég get fengið svona háa heimild fyrir ekki meiri viðskiptum, fer ekki yfir 30.000 ári hjá mér.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Þri 20. Sep 2016 14:40
af HalistaX
kjarrig skrifaði:Sérstakt eins og hjá Netgíró, er með reikning hjá þeim, hef verið að versla bíómiða í gegnum þennan reikning og hef aldrei farið yfir 5000 á mánuði, samt fæ reglulega tilkynningu um hækkun á heimildinni minni og er heimildin komin í tæplega 360.000 ef ég man rétt. Ég átta mig ekki á hvernig ég get fengið svona háa heimild fyrir ekki meiri viðskiptum, fer ekki yfir 30.000 ári hjá mér.
Hahaha já. Ég tók símann minn, Samsung Galaxy S6 Edge+ hinn fræga, í gegnum Netgíró og þegar ég átti 1-2 borganir eftir af honum þá sá ég að heimildin var komin uppí eitthvað álíka og hjá þér... 360.000+... En svo, um leið og ég kláraði síðustu afborgunina, þá pompaði hún niður í 90.000 og er bara búin að sitja þar síðan...

Ég fatta ekki alveg hvernig þetta virkar þarna hjá þeim. Þetta er jafn shady og smálána fyrirtækin. En you gotta do what you gotta do and desperate times call for desperate measures...

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Þri 20. Sep 2016 15:52
af Tbot
Hvenær ætla menn að átta sig á því að þetta eru engar góðgerðarstofnanir.
Þetta snýst um að hafa eins mikla peninga af þér og mögulega er hægt.

Þess utan hefur ekkert breyst frá þeirri einföldu visku fyrri kynslóða að eiga fyrir hlutunum.
Þá er ég ekki að tala um húsnæði.

Bílar eru almennt ekki fjárfesting þannig að það er ekki gott að skulda míkið þar.
Settu inn 2 miljóna lán til 7 ára með 10,1% vöxtum og sjáðu hvað þú ert búinn að borga mikið í vexti.

Því miður verður að segjast eins og er að eitt heimskasta sem hægt er að gera er að taka neyslulán. Því það gefur til kynna að viðkomandi er að lifa um efni fram.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mán 03. Okt 2016 09:09
af pattzi
Þetta eru samt asnaleg fyrritæki senda manni sms í tíma og ótíma um hækkandi heimild þegar maður er ekki búinn að vera í viðskiptum við þessi fyrritæki í fleiri mánuði og ekki ætla ég mér það heldur er ekki hægt að loka á þetta einhvernveginn að fá þessi sms

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Þri 04. Okt 2016 18:14
af HalistaX
pattzi skrifaði:Þetta eru samt asnaleg fyrritæki senda manni sms í tíma og ótíma um hækkandi heimild þegar maður er ekki búinn að vera í viðskiptum við þessi fyrritæki í fleiri mánuði og ekki ætla ég mér það heldur er ekki hægt að loka á þetta einhvernveginn að fá þessi sms
Getur blokkað númerið í Android held ég...

Gerði það sjálfur og hef ekkert fengið enn :)

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 01:09
af DJOli
Ég gerði smá "tilraun" og skulda smálánafyrirtækjum nú nokkra hundraðþúsundkalla.

Maður dílar ekki við þessa gæja aftur.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 01:12
af HalistaX
DJOli skrifaði:Ég gerði smá "tilraun" og skulda smálánafyrirtækjum nú nokkra hundraðþúsundkalla.

Maður dílar ekki við þessa gæja aftur.
Ertu að borga af einhverri upphæð eða? Enn að kannski?

Helvítis merðirnir hjá Collectum ehf.

Díllinn er að ég borgi 30k á mánuði, í þessum mánuði borgaði ég hinsvegar 60k............... :mad :mad :mad :pjuke

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 11:19
af DJOli
Hérna eru nokkrar tölur fyrir forvitna.

1. Grunnupphæð: 26.586kr.- (Gjalddagi: 17.05.16/Eindagi: 16.06.16) (Smálán)
5.10.2016 upphæð: 70.714kr.-
2. Grunnupphæð: 26.586kr.- (Gjalddagi: 21.05.16/Eindagi: 20.06.16) (Smálán)
5.10.2016 upphæð: 59.948kr.-
3. Grunnupphæð: 26.746kr.- (Gjalddagi: 06.06.16/Eindagi: 06.07.16) (E-Content v.1909 ehf)
5.10.2016 upphæð: 52.924kr.-
4. Grunnupphæð: 26.746kr.- (Gjalddagi: 09.06.16/Eindagi: 11.07.16) (E-Content v.1909 ehf)
5.10.16 upphæð: 42.850kr.-
5. Grunnupphæð: 13.815kr.- (Gjalddagi: 11.06.16/Eindagi: 11.07.16) (E-Content v.1909 ehf)
5.10.16 upphæð: 29.347kr.-
(fór yfir aðra lægri en 29þús)
6. Grunnupphæð: 13.815kr.- (Gjalddagi: 19.06.16/Eindagi: 19.07.16) (E-Content v. Múla)
5.10.16 upphæð: 24.717kr.-
(fór yfir nokkra aðra)
7. Grunnupphæð: 26.586kr.- (Gjalddagi: 23.06.16/Eindagi: 23.07.16) (E-Content v. Kredia)
5.10.16 upphæð: 48.163kr.-

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 12:06
af HalistaX
DJOli skrifaði:Hérna eru nokkrar tölur fyrir forvitna.

Bíddu, bíddu, bíddu, Ertu ekki búinn að borga af þessu? Situr þetta bara í heimabankanum að safna vöxtum?

Þá myndi ég hafa samband við smálána fyrirtækin öll ASAP og semja um að vextirnir hætti og þú fáir að borga af þessu með raðgreiðslum í heimabanka! Ekki láta þetta verða mikið verra DJOli, þú grefur þér bara holu sem þú átt seint eftir að komast uppúr. Lendir á vanskilaskrá og svoleiðis....

EDIT: Eða fá greiningu hjá geðlækni á það að stærð eistnanna á þér hafi valdið þér stundar brjálæðinu sem varð til þess að þú hafir tekið þessi lán og færð þau felld niður!

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 13:21
af dandri
Þessi fyrirtæki eru auðvitað mesti skíturinn, markhópurinn þeirra er ungt fólk sem glímir við alkóhólisma og geðsjúkdóma.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mið 05. Okt 2016 13:34
af HalistaX
dandri skrifaði:Þessi fyrirtæki eru auðvitað mesti skíturinn, markhópurinn þeirra er ungt fólk sem glímir við alkóhólisma og geðsjúkdóma.
Helduru að það sé tilviljun að maxið hjá þeim sem hægt er að fá lánað í fyrsta skiptið sé 20k? AKKÚRAT nóg fyrir einu grammi af Kókaíni eða fimm grömmum af Amfetamíni? I think nooot.. :hugenose

Þessu er svoleiðis einungis beint að fólki sem á við vandamál að stríða. Það er alveg satt.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 15:56
af Skúnkur
Ég skulda smálánafyrirtækjunum 563þús fyrir að fá lánað 160þús fyrir 2 ár, og netgíró 380þús fyrir að fá 250þús lánað fyrir jafn löngum tíma. Ekki séns ég mun borga þessum skítafyrirtækjum. Myndi frekar vera á vanskilaskrá það sem eftir er og taka aldrei lán hjá bönkum né öðrum, Þessar kröfur eiga samt að eyðast á 4 árum.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 16:37
af SolidFeather
Skúnkur skrifaði:Ég skulda smálánafyrirtækjunum 563þús fyrir að fá lánað 160þús fyrir 2 ár, og netgíró 380þús fyrir að fá 250þús lánað fyrir jafn löngum tíma. Ekki séns ég mun borga þessum skítafyrirtækjum. Myndi frekar vera á vanskilaskrá það sem eftir er og taka aldrei lán hjá bönkum né öðrum, Þessar kröfur eiga samt að eyðast á 4 árum.
Hélstu að þetta væri bara ókeypis peningur?

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 16:42
af vesi
SolidFeather skrifaði:

Hann hefur eflaust vitað að þetta væru ekki ókeypis peningur,, En!!! að þessir vextir séu í lagi er nátturulega ekki boðlegt og að þetta drasl skuli alltaf fynna glufu í lögum til að gera svona er með ólíkindum.

Skárra væri að skella sér til Ítalíu og tala við mafíuna heldur en þetta drasl, Af hverju getur Ísland ekki hent þessu út eins og Króatar!

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 16:54
af Icarus
Merkilegt hvað fólk vill kenna öllum öðrum um sínar eigin ákvarðanir, það hefur alltaf legið fyrir að Smálánafyrirtæki séu mjög óhagstæð, það er ekki þeim að kenna ef þið sökkvið ykkur í skuldir...

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 17:19
af Skúnkur
SolidFeather skrifaði:
Skúnkur skrifaði:Ég skulda smálánafyrirtækjunum 563þús fyrir að fá lánað 160þús fyrir 2 ár, og netgíró 380þús fyrir að fá 250þús lánað fyrir jafn löngum tíma. Ekki séns ég mun borga þessum skítafyrirtækjum. Myndi frekar vera á vanskilaskrá það sem eftir er og taka aldrei lán hjá bönkum né öðrum, Þessar kröfur eiga samt að eyðast á 4 árum.
Hélstu að þetta væri bara ókeypis peningur?
Ef ég sleppi að borga lánið til baka þá eru þetta ókeypis peningar :) Hverju er ég búin að tapa ? Réttindum á að taka lán frá öðrum glæpafyrirtækjum eins og bönkunum ?

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 17:39
af Revenant
Skúnkur skrifaði:

Þeir geta farið fram á fjárnám hjá sýslumanni til að fá upp í ógreiddar kröfur og ef það gengur ekki farið fram á gjaldþrot.
Einnig lifa svona hlutir í 4 ár á vanskilaskrá en 2 ár ef um gjaldþrot er að ræða.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 17:45
af Skúnkur
Revenant skrifaði:

þeir geta ekki tekið fjárnám í bitcoinunum mínum :sleezyjoe

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fim 06. Okt 2016 18:10
af hfwf
Það gleyma margir hérna að sem eru að tala um það að sá sem á kröfuna t.d Motus, geta haldið kröfu á lofti forever.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fös 07. Okt 2016 19:23
af GuðjónR

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Fös 07. Okt 2016 19:38
af vesi
Og ætli sé ekki búið að færa eignirnar sem þá eru "lánin", og skuldsetja þetta er botn.

Bara eins og hvert annað sér-Íslenskt kennitölu flakk

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Sun 16. Okt 2016 23:06
af DJOli
Smá update. Ég er búinn að sækja um hjá umboðsmanni skuldara. Er einnig farinn að þrengja budduna, og t.d. hættur í þeirri svakalegu orkudrykkjaneyslu sem ég var í. Maður getur ekki verið rasshaus endalaust.

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mán 17. Okt 2016 09:01
af Jón Ragnar
Skúnkur skrifaði:
SolidFeather skrifaði:
Skúnkur skrifaði:Ég skulda smálánafyrirtækjunum 563þús fyrir að fá lánað 160þús fyrir 2 ár, og netgíró 380þús fyrir að fá 250þús lánað fyrir jafn löngum tíma. Ekki séns ég mun borga þessum skítafyrirtækjum. Myndi frekar vera á vanskilaskrá það sem eftir er og taka aldrei lán hjá bönkum né öðrum, Þessar kröfur eiga samt að eyðast á 4 árum.
Hélstu að þetta væri bara ókeypis peningur?
Ef ég sleppi að borga lánið til baka þá eru þetta ókeypis peningar :) Hverju er ég búin að tapa ? Réttindum á að taka lán frá öðrum glæpafyrirtækjum eins og bönkunum ?

Haha djöfull eru menn skammsýnir.

Munt aldrei geta tekið íbúðarlán, Fengið vinnu hjá bönkum, ríkinu og flestum tæknifyrirtækjum útaf svona vitleysu

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mán 17. Okt 2016 09:16
af Pandemic
Jón Ragnar skrifaði:

Minnir mig á hlustanda Útvarps Sögu sem hringdi inn og sagðist setja alla reikninga sem hann fengi á grillið, því þá þyrfti hann ekki að borga þá. :face

Re: Smálána fyrirtæki

Sent: Mán 17. Okt 2016 09:30
af urban
Skúnkur skrifaði:
SolidFeather skrifaði:
Skúnkur skrifaði:Ég skulda smálánafyrirtækjunum 563þús fyrir að fá lánað 160þús fyrir 2 ár, og netgíró 380þús fyrir að fá 250þús lánað fyrir jafn löngum tíma. Ekki séns ég mun borga þessum skítafyrirtækjum. Myndi frekar vera á vanskilaskrá það sem eftir er og taka aldrei lán hjá bönkum né öðrum, Þessar kröfur eiga samt að eyðast á 4 árum.
Hélstu að þetta væri bara ókeypis peningur?
Ef ég sleppi að borga lánið til baka þá eru þetta ókeypis peningar :) Hverju er ég búin að tapa ? Réttindum á að taka lán frá öðrum glæpafyrirtækjum eins og bönkunum ?
Til hamingju með að vera ungur og vitlaus.

Vonandi hættiru líka að vera vitlaus þegar að þú eldist, það er nenfilega ekkert gefið.

En ok, þú varst nógu vitlaus til þess að nota þjónustu fyrirtækjanna, vitandi að það væru háir vextir á þessu.

Ég ætla að skjóta á að þú sért 18 - 22 ára, þú lærir það að borga reikningana sína og að hafa kennitölu í lagi seinna meir er án gríns ómetanlegt.

Þú ert að steypa þér í fátækt og vitleysu með því að borga þetta ekki, kemur ekki til með að geta átt bíl öruggan á þínu nafni og nei, þetta hverfur ekki eftir 2 - 4 ár.