Síða 2 af 3

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 16:03
af jericho
einarhr skrifaði:Fyrir 3 árum !

Mjög áhugavert að lesa þetta í dag

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... =kosningar
úff hvað margir létu plata sig!

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mán 04. Apr 2016 16:10
af dori
einarhr skrifaði:Fyrir 3 árum !

Mjög áhugavert að lesa þetta í dag

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... =kosningar

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 11:00
af einarhr
jericho skrifaði:
einarhr skrifaði:Fyrir 3 árum !

Mjög áhugavert að lesa þetta í dag

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... =kosningar
úff hvað margir létu plata sig!
Enda liggur stór hluti samfélagsins í sárum eftir að hafa verið svikin af SDG. Ég þekki mikið af fólki sem gaf honum atkvæðið sitt í góðri trú að hann væri að vinna fyrir okkur en svo kom annað í ljós, Þetta fólk kaus eftir sinni bestu sannfæringu og skil ég til manninn sem var að mótmæla í gær og Kastljós tók viðtal við að hann væri mjög sár og sást það klárlega að hann væri í miklu uppnámi.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 13:06
af verba
Fá bara Steingrím og Jóhönnu til að rédda málunum.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 13:12
af Tbot
verba skrifaði:Fá bara Steingrím og Jóhönnu til að rédda málunum.
Þau höfðu 4. ár til að gera einhvað af viti. Arfleið þeirra er engin.
Reyndu í 3. gang að koma í gegn Icesave, þar sem forsetinn stoppaði þetta sem betur fer.

Annað eins pakk hefur vart verið valið til forustu. SDG hefur ekki komist með tærnar þar sem þetta lið hefur hælana við það gefa skít í almenning.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 13:16
af svanur08
Gerðu lítið annað en að hækka skatta á öllu.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 13:32
af einarhr
Tbot skrifaði:
verba skrifaði:Fá bara Steingrím og Jóhönnu til að rédda málunum.
Þau höfðu 4. ár til að gera einhvað af viti. Arfleið þeirra er engin.
Reyndu í 3. gang að koma í gegn Icesave, þar sem forsetinn stoppaði þetta sem betur fer.

Annað eins pakk hefur vart verið valið til forustu. SDG hefur ekki komist með tærnar þar sem þetta lið hefur hælana við það gefa skít í almenning.
4FLokkurinn er ónýtt fyrirbæri, það er alveg sama hverjir hafa verið í stjórn á Íslandi, það er alltaf verið að moka undir rassgatið á sjálfum sér.
Hvar er Nýja Ísland?, allt þetta unga fólk í 4Flokknum sem kom í pólitík eftir hrun er komið í sömu hjólför og lýðurinn sem sat á þingi fyrir hrun.

Að taka við landi sem er að hruni komið er ekki auðvelt starf og hvað þá að það hefði verið hægt að leysa öll þessi mál úr hruninu á einu kjörtímabili, hverjir komu landinu á sýnum tíma í þessi vandræði?

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 13:35
af einarhr
svanur08 skrifaði:Gerðu lítið annað en að hækka skatta á öllu.
Ef allir þegnar landsins borguðu sína skatta þá hefði kanski fyrri ríkistjórn ekki þurft að hækka skatta á okkur "hin" til að bjarga Ríkissjóði sem var tæmdur að fjárglæframönnum sem eru flúnir með allt sitt fé í Skattaskjól

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 14:04
af GuðjónR
Það er endalaust verið að tala um Sigmund og þingrof í sömu setningunni, verð að segja að mér dettur helst í hug GEÐROF þegar ég heyri á Sigmund minnst. Heilbrigður einstaklingur hagar sér ekki eins og hann hefur gert undanfarna daga.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 14:12
af dori
Það þarf að gera hlutina vel og það tekur tíma að laga allt umhverfið hérna til að koma landinu á þann stað sem fólk vill. Ég vil ekki verja síðustu ríkisstjórn enda ekki sérlegur aðdáandi þeirra en það er frekar ósanngjarnt að dæma þau eins og er gert. T.d. hefði örugglega verið verra en ekki ef þau hefðu ekki sýnt vilja til að semja Icesave.

Þegar allt er að hruni komið, sama hvort það er efnahagslega eins og síðast eða siðferðislega eins og núna, þá þarf að sýna þolinmæði og gefa þeim sem eru að reyna að laga ástandið svigrúm til að klára það.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 18:39
af HalistaX
GuðjónR skrifaði:Það er endalaust verið að tala um Sigmund og þingrof í sömu setningunni, verð að segja að mér dettur helst í hug GEÐROF þegar ég heyri á Sigmund minnst. Heilbrigður einstaklingur hagar sér ekki eins og hann hefur gert undanfarna daga.
Ég tek því nú sem móðgun að lýsa Sigmundi við okkur geðrofssjúklingana. :dissed

En neinei, hann hagar sér mjög skringilega karluglan en það magnaða finnst mér þetta viðtal og hve sannfærandi og góður hann er að cover'a upp og afsaka allt draslið. Það lá við að ég finndi til með manninum og hann læti mig skipta um lið bæði í pólitíkini og hvað varðar kynhneigð mína. Sjarmurinn maður... Össshh.

http://www.visir.is/sigmundur-hefur-ekk ... 6160409534

Maðurinn er augljóslega bara með siðblindu og lygasýki á mjög háu stigi og hef ég mikla óbeit á svoleiðis fólki enda lent illa í svona lygameisturum uppá síðkastið.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 20:17
af GuðjónR
HalistaX skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Það er endalaust verið að tala um Sigmund og þingrof í sömu setningunni, verð að segja að mér dettur helst í hug GEÐROF þegar ég heyri á Sigmund minnst. Heilbrigður einstaklingur hagar sér ekki eins og hann hefur gert undanfarna daga.
Ég tek því nú sem móðgun að lýsa Sigmundi við okkur geðrofssjúklingana. :dissed
hehehe sorry!!! það var ekki ætlunin að gera lítið úr geðsjúkum.
En miðað við hvernig maðurinn hagar sér þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvort hann sé raunverulega geðsjúkur?
Núna segir hann Forsetann ljúga, hvað var hann að gera á Bessastaði í morgun? Kíkja í kaffi? kannski narta í Bacon í leiðinni?
Nei segi nú bara svona...

http://www.visir.is/sigmundur-david-seg ... 6160409279

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 20:46
af Tbot
Mér er spurn, á hverju áttu menn von.
Hann sannar orðatiltækið að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Þri 05. Apr 2016 21:26
af GuðjónR
Tbot skrifaði:Mér er spurn, á hverju áttu menn von.
Hann sannar orðatiltækið að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Þú meinar sjaldan fellur skíturinn langt frá rassgatinu.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3192753

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 00:34
af einarhr
GuðjónR skrifaði:
Tbot skrifaði:Mér er spurn, á hverju áttu menn von.
Hann sannar orðatiltækið að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Þú meinar sjaldan fellur skíturinn langt frá rassgatinu.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3192753
Hér er þessi gjörnngur útskýrður mjög vel

http://www.mbl.is/frettir/innlent/1998/ ... t_sidlegt/

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 10:13
af dori
Ef einhver hérna hefur horft á The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst þá sé ég alveg nett mikil líkindi með því hvernig Robert Durst og hvernig Simmi koma fram.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 10:22
af Tbot
einarhr skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Tbot skrifaði:Mér er spurn, á hverju áttu menn von.
Hann sannar orðatiltækið að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Þú meinar sjaldan fellur skíturinn langt frá rassgatinu.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3192753
Hér er þessi gjörnngur útskýrður mjög vel

http://www.mbl.is/frettir/innlent/1998/ ... t_sidlegt/
Ekki gleyma því að þetta var á fullu var Steingrímur Hermannsson í ríkisstjórn.

Síðan hafa menn annað dæmi í formi Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 11:32
af Tiger
Hver er eiginlega forsætisráðherra??

Mynd

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 12:05
af GuðjónR
Tiger skrifaði:Hver er eiginlega forsætisráðherra??

Mynd
Essasú ???

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 13:51
af einarhr
Tbot skrifaði:
einarhr skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Tbot skrifaði:Mér er spurn, á hverju áttu menn von.
Hann sannar orðatiltækið að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Þú meinar sjaldan fellur skíturinn langt frá rassgatinu.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3192753
Hér er þessi gjörnngur útskýrður mjög vel

http://www.mbl.is/frettir/innlent/1998/ ... t_sidlegt/
Ekki gleyma því að þetta var á fullu var Steingrímur Hermannsson í ríkisstjórn.

Síðan hafa menn annað dæmi í formi Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar.
Framsóknarmenn sjá um sína og hafa alltaf gert. Ég þekki nokkur dæmi þar sem sprenglærður einstaklingur fékk aldrei góða vinnu fyrir en að hann skráði sig í Framsóknarflokkinn. Þegar hann var skráður þá fékk hann strax framkvæmdastjórastaf í stórrfyrirtæki.

ath þessi einstaklingur er núna einn af aðstoðarmönnum $iðblinda Davíð

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 18:12
af Tw1z
Hvað gerði Sigmundur rangt í stuttu máli?

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Mið 06. Apr 2016 18:31
af nidur
Tw1z skrifaði:Hvað gerði Sigmundur rangt í stuttu máli?
Hann sagði Nei í staðinn fyrir Já í viðtalinu við svíann, sem var lygi.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Fös 08. Apr 2016 15:28
af Spekingur
svanur08 skrifaði:Gerðu lítið annað en að hækka skatta á öllu.
Eins og eðlilegt er þegar lítill peningur er eftir í kassanum eftir ríkisstjórnina á undan. Það er ekki eins og ríkisstjórnin sem tók við eftir hrun hafi verið við stjórn fyrir hrun. Hrunið og allt eftir það voru frekar einstakar aðstæður þar sem allir þurftu að skera niður enda þörf á því. Hefði ekki skipt neinu máli hvaða flokkar hefðu tekið við stjórn eftir hrunstjórnina, alltaf hefði verið hægt að finna eitthvað að, einhver hefði alltaf verið ósammála, osfrv.

Ekki gleyma því heldur að það fór vinna í gang í stjórnartíð fyrrum ríkisstjórnar sem núverandi ríkisstjórn hreykir sér af að hafa lokið. Þannig virkar þetta. Við sem almenningur erum fljót að gleyma hver gerði hvað, af hverju og hvenær.

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Fös 08. Apr 2016 15:51
af svanur08
Spekingur skrifaði:

Það er sko til nóg af peningum bara ekki gert það sem á að gera við þá, þurfum við alla þessa þingmenn svona marga, nei það þurfum við sko ekki og við fólkið eigum að blæða fyrir þetta allt. Ekki eru þeir með lág laun þessir menn. Ekki skera þeir niður sín laun er það?

Re: Spilling í ríkisstjórn

Sent: Fös 08. Apr 2016 15:55
af rapport
Það sem þessi ríkisstjórn er búin að gera er að henda í almenning andvirði 2-3 nýrra Landspítala með lækkun skatta, leiðréttingunni o.þ.h.

Þetta er fé sem fór allt í neyslu og safnaðist því upp hjá eigendum fyrirtækja.

Vegna ástandsins í hagkerfinu þá er enginn að fjáfesta neitt hér innanlands, allir eru bara að safna peningum í sjóði eða fasteignir.

En auðlegðarskatturinnvar aflagður þannig að engar tekjur fást af þessum sjóðum.

Núna er svo búið að tala um 6-800 milljarða stöðugleikaskatt sem endaði svo sem 300 milljarða stöðugleikaframlag sem greitt er með eignum en ekki peningum = það mun kosta ríkið helling að þurfa að selja þetta allt.

Þá á líka að afnema gjaldeyrishöftin svo að allir sem eigi sjóði erlendis eða innanlands geti keypt þessar eignir ríkisins á spott prís.