Síða 2 af 2
Re: The New Microsoft Surface Book
Sent: Þri 12. Jan 2016 08:29
af moc133
asgeireg skrifaði:pegasus skrifaði:Ég heyrði einhvern tímann að Dell væri að fara að taka að sér að selja Surface vélar þ.a. kannski getur Advania sérpantað?
Það er hægt að kaupa þetta hjá Opnum Kerfum,
https://okbeint.is/hpbeint/ui/vorur/list.do?id=36
Ég heyrði líka hjá þeim að Surface Book kemur í kringum feb 2016
Svalt! Þakka fyrir ábendinguna ég vissi ekki að þeir væru með Surface
Er virkilega að slefa yfir Surface Book ... dauðlangar í þetta kvikindi
Re: The New Microsoft Surface Book
Sent: Sun 24. Jan 2016 16:03
af Lexxinn
Til að forðast að starta annan þráð.
Hefur eitthver komið hands on á Surface Book og getur deilt reynslu vs MacbookPro? MacbookPro til 4 ára, sem var meira að segja keypt notuð, er orðin svolítið lúin og því áætla ég að kaupa mér nýja fartölvu innan skamms. Mest megnis notuð í netið, videogláp og vonandi meiri skólanotkun þar sem ég stefni á háskóla erlendis næsta haust. Ég hef möguleika að fá hana keypta fyrir mig í USA og þarf því ekki að takmarka mig við litla Ísland. Eitthverjar reynslusögur aðrar en maður les á netinu? Refurbished möguleiki hjá Apple heillar mig reyndar líka sem mundi spara helling...
Re: The New Microsoft Surface Book
Sent: Sun 24. Jan 2016 21:49
af Televisionary
Hún kemur ekki fyrr en um miðjan febrúar til Evrópu, er spenntur að sjá Surface Book. Það eru þó einhver vandræði með Surface Pro 4 i7 módelið sýnist mér af greinum á internetinu og einnig með Surface Book vélina sjá "Surfacegate":
https://www.thurrott.com/mobile/microso ... urfacegate
Grein af Engadget síðan um miðjan desember 2015:
http://www.engadget.com/2015/12/15/micr ... -4-issues/
Það er gaman að sjá í hvaða átt Microsoft eru að fara. En ég held við séum ekki komnir nógu langt í þessari hybrid væðingu ennþá, held að næstu 2 kynslóðir af vélbúnaði verði nokkurn vegin komnar þangað.
Lexxinn skrifaði:Til að forðast að starta annan þráð.
Hefur eitthver komið hands on á Surface Book og getur deilt reynslu vs MacbookPro? MacbookPro til 4 ára, sem var meira að segja keypt notuð, er orðin svolítið lúin og því áætla ég að kaupa mér nýja fartölvu innan skamms. Mest megnis notuð í netið, videogláp og vonandi meiri skólanotkun þar sem ég stefni á háskóla erlendis næsta haust. Ég hef möguleika að fá hana keypta fyrir mig í USA og þarf því ekki að takmarka mig við litla Ísland. Eitthverjar reynslusögur aðrar en maður les á netinu? Refurbished möguleiki hjá Apple heillar mig reyndar líka sem mundi spara helling...
*lagaði innsláttarvillur. Surface Pro lyklaborðið að stríða mér.
Re: The New Microsoft Surface Book
Sent: Sun 24. Jan 2016 21:54
af AntiTrust
Ég er búinn að vera að leika mér talsvert með þessa vél sem einn kollegginn keypti sér úti.
Hún er nákvæmlega jafn rock solid byggð og maður fær tilfinningu fyrir af myndum, gefur MB's ekkert eftir. Skjárinn er mjög flottur og mjög næmur.
Þetta hinge-gap angrar mig samt jafn mikið, ef ekki meira í persónu, gæti ekki unað við það.