Síða 2 af 2

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fim 12. Jan 2017 21:32
af DJOli
68.000kr.- fyrir árið 2016 vegna 2000 árgerðar af hondu hrv.

Ég bý úti á landi.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 00:15
af appel
Það er greinilega verið að taka mig bókstaflega ósmurt.

Þessi tryggingafyrirtæki eru viðbjóðsleg, glæpsamleg.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 01:54
af ASUStek
Ábyrgðartrygging kr. 87.885
Kaskótrygging kr. 57.040
Bílrúðutrygging kr. 8.555
-----------------------------------
í heild 153k borga 124k og á víst að fá eitthvað til baka eftir tjónalaust ár.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 09:18
af JapaneseSlipper
Ég er hjá Sjóvá

2006 Golf Kaskó - 123.540
Brunatrygging - 19.272
Heimilistrygging - 18.019 (Var eitthvað mjög lágt)

Samtals: 160.831
Möguleg endurgreiðsla 14.032 kr
Auk þess sem ég fékk þrif á bíl

Þess má geta að ég var áður hjá Verði og ég hringdi og sagði hvaða tilboð ég hefði fengið Sjóvá og hvort þeir gætu ekki lækkað sig. Svar þeirra var að tilboðið til mín var í lágmarki.

Ég held að það sé bara best að hringja og athuga hvað er í boði á hverju ári.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 09:51
af vesley
Er hjá Verði.

Er að borga um 109.000 fyrir 2012 VW Polo dísel.
Bíllinn er í kaskó og með allar tryggingar.

Ég hreinlega man ekki hvað ég er að borga í brunatryggingu og heimilis en það var einhvað tilboð hjá Verði og var það ein greiðsla á ári.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 10:21
af depill
Ég skipti um bíl á árinu, núna eru tryggingarnar komnar í 137 þúsund krónur. Af einhverjum ástæðum sem ég er ekki alveg viss um, skil ekki 100% tryggingarnar mínar sérstaklega vegna þess að mörg blöðin eru bara fyrir part af tímabili ( búinn að flytja og kaupa bíl á síðasta ári )

Enn ég skil ekki afhverju trygginarfélögin sem taka töluvert háar upphæðir frá manni ( í mínu tilviki borga ég í kringum 350 þúsund krónur í tryggingar á ári, fyrir utan mat er þetta örugglega það félag sem fær mestan part af tekjunum okkar per ár ) skuli ekki gera betur við kúnnana sem þau eru með, í stað þess að ég þurfi að grenja í þeim að lækka verðið mitt og halda þeim á tánum.

Enn svo kemur, ég á hest, ég á hund, ég er líf og sjúkdómatryggður(og tek lyf að staðaldri) og eftir hvað þetta var mikið vesen að skipta síðast, þá bara NENNI ég ekki að skipta um tryggingarfélag nema þetta hreinlega sé mjög margir þúsund kallar sem þetta munar.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 16:33
af Dr3dinn
Ný mazda m3 = 160þ :/ kaskó+lögb.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 17:12
af urban
Sé það að margir hérna taka fram aldurinn á bílnum.

Með lögbundnu trygginguna þá á aldurinn ekki að skipta máli.

Þar sem að með lögbundnu tryggingunni þá eruð þið ekki að tryggja bílinn ykkar, þið eruð að tryggja í rauninni allt annað í heiminum.

Semsagt, það skiptir engu máli hvort að þú sért á 1999 toyota corollu eða 2017 corollu, tryggingarnar ættu að vera svipaðar.

Þetta er eitthvað sem að margir fatta bara ekki og skilja þar að leiðandi ekki hvernig það getur verið að borga sömu upphæð af nýjum bíl og gömlum.

Aftur á mót skiptir aldur og verðmæti bíls gríðarlegu máli þegar að kemur að kakótryggingu, það er ekki fyrr en þá sem að þið eruð að tryggja ykkur gegn tjóni á ykkar bíl.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 22:34
af Nördaklessa
Miðað við þessar tölur sem ég er að sjá, er þá ekki bara lögfræðingur ódýrari en tryggingarfélög?

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 22:47
af pattzi
urban skrifaði:Sé það að margir hérna taka fram aldurinn á bílnum.

Með lögbundnu trygginguna þá á aldurinn ekki að skipta máli.

Þar sem að með lögbundnu tryggingunni þá eruð þið ekki að tryggja bílinn ykkar, þið eruð að tryggja í rauninni allt annað í heiminum.

Semsagt, það skiptir engu máli hvort að þú sért á 1999 toyota corollu eða 2017 corollu, tryggingarnar ættu að vera svipaðar.

Þetta er eitthvað sem að margir fatta bara ekki og skilja þar að leiðandi ekki hvernig það getur verið að borga sömu upphæð af nýjum bíl og gömlum.

Aftur á mót skiptir aldur og verðmæti bíls gríðarlegu máli þegar að kemur að kakótryggingu, það er ekki fyrr en þá sem að þið eruð að tryggja ykkur gegn tjóni á ykkar bíl.
Fer samt eftir hvernig bíl þú átt

ég t.d átti bmw 525 einusinni og corollu á sama tíma og það var mikið dýrara að tryggja bmwinn

BMW 149.000 ekki í kaskó reyndar alls ekki tjónlaus

Corolla 98.000 ath þetta er 2013

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Fös 13. Jan 2017 22:59
af appel
Tryggingafyrirtækin hlæja að einstaklingum sem leita að betri dílum. Ég spurði mitt tryggingafyrirtæki um betri díl, þeir sögðu "computer says no". Ég mun fara frá þeim.

En maður hugsar...

Tryggingafyrirtæki eru sólgin í að semja um hópasamninga, svona "fyrirtækjadíla" einskonar, fá marga viðskiptavini og gefa feitan afslátt út á slíkt.

Fyrir mitt leyti væri ég til í að "poola" heimild mína til aðila einsog Guðjóns í þeim tilgangi að leita betri trygginga fyrir segjum 100 aðila vaktaraðila. Ég hugsa að tryggingafyrirtæki gefi betri díla ef þau fá 100 í samning frekar en 1.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 08:47
af zetor
Ég er hjá Vís

Fornbíll: Land Rover árg 1974
Ek árlega sirka 1.500 km yfir sumartímann í litlu þorpi úti á landi.
Tryggingar: 14.000 kr

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 10:03
af Revenant
Hjá VÍS fyrir Toyota Auris 2015:

Ábyrgðartrygging ökutækja: 88.535 kr.
Kaskótrygging ökutækja: 39.244 kr.
Samtals 127.779 kr.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 10:29
af Tiger
Er með tilboð frá TM og Verði, hef verið hjá Verði undanfarin ár en þeir hafa hækkað helling.

TM
Nissan Leaf kaskó 113þus
BMW No-Kaskó 85þús

Vörður
Nissan Leaf Kaskó 126þús
BMW No-Kasko 86þús

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 11:01
af GuðjónR
Skoda Octavia 2013, Vörður.
Ábyrgðartrygging ökutækis 117.780
Slysatrygging ökumanns og eiganda 37.525
Rúðutrygging ökutækis 10.863
Kaskótrygging ökutækis 86.139
Samtals: 252.337
Afsláttur: -126.155
Til Greiðlsu: 126.152

Svo er ég reyndar með fleiri tryggingar, fannst spes eitt skírteinið en þar er fyrirfram ákveðið tjónleysi?
Veit ekki hvað þetta þýðir, en það lítur út eins og það sé verið að áætla að ég verði tjónlaus á tímabilinu, spurning hvort ég þurfi
að endurgreiða þann afslátt ef ég lendi í tjóni?

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 16:25
af urban
pattzi skrifaði:
urban skrifaði:Sé það að margir hérna taka fram aldurinn á bílnum.

Með lögbundnu trygginguna þá á aldurinn ekki að skipta máli.

Þar sem að með lögbundnu tryggingunni þá eruð þið ekki að tryggja bílinn ykkar, þið eruð að tryggja í rauninni allt annað í heiminum.

Semsagt, það skiptir engu máli hvort að þú sért á 1999 toyota corollu eða 2017 corollu, tryggingarnar ættu að vera svipaðar.

Þetta er eitthvað sem að margir fatta bara ekki og skilja þar að leiðandi ekki hvernig það getur verið að borga sömu upphæð af nýjum bíl og gömlum.

Aftur á mót skiptir aldur og verðmæti bíls gríðarlegu máli þegar að kemur að kakótryggingu, það er ekki fyrr en þá sem að þið eruð að tryggja ykkur gegn tjóni á ykkar bíl.
Fer samt eftir hvernig bíl þú átt

ég t.d átti bmw 525 einusinni og corollu á sama tíma og það var mikið dýrara að tryggja bmwinn
Já það er munur á milli bíltegunda.

Einfaldlega vegna þess að BMW er mun hættulegri bíll en corolla, þyngri og aflmeiri bíll, þar að leiðandi veldur hann meira tjóni í eins árekstri og corollan.

Það er ástæðan fyrir því að þú borgaðir meira fyrir hann.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 17:54
af GuðjónR
urban skrifaði:Sé það að margir hérna taka fram aldurinn á bílnum.

Með lögbundnu trygginguna þá á aldurinn ekki að skipta máli.

Þar sem að með lögbundnu tryggingunni þá eruð þið ekki að tryggja bílinn ykkar, þið eruð að tryggja í rauninni allt annað í heiminum.

Semsagt, það skiptir engu máli hvort að þú sért á 1999 toyota corollu eða 2017 corollu, tryggingarnar ættu að vera svipaðar.

Þetta er eitthvað sem að margir fatta bara ekki og skilja þar að leiðandi ekki hvernig það getur verið að borga sömu upphæð af nýjum bíl og gömlum.

Aftur á mót skiptir aldur og verðmæti bíls gríðarlegu máli þegar að kemur að kakótryggingu, það er ekki fyrr en þá sem að þið eruð að tryggja ykkur gegn tjóni á ykkar bíl.
Það er akkúrat kjarni málsins, svo er líka eitt ósanngjarnt en þú borgar sömu sjálfsábyrgð í smátjónum í kaskó og ef þú myndir velta og eyðileggja bílinn. Miðað við verð á kaskótryggingum og hagnaðartölur tryggingafélaganna þá mætti kerfið alveg vera þannig að sjálfsábyrgðin kikki ekki inn fyrr en í tjónum yfir X upphæð. T.d. 200k eða 300k.
urban skrifaði:Já það er munur á milli bíltegunda.

Einfaldlega vegna þess að BMW er mun hættulegri bíll en corolla, þyngri og aflmeiri bíll, þar að leiðandi veldur hann meira tjóni í eins árekstri og corollan.

Það er ástæðan fyrir því að þú borgaðir meira fyrir hann.
Sko, þetta er örlítið eins og að segja að haglabyssur séu hættulegar, málið er að þær eru ekki hættulegri en sá sem er að meðhöndla þær.
Ég áttu Subaru Impreza 2004 árg. 125HP. frá 2007 - 2015. Seint á timabilinu kom óvænt 30% hækkun á ábyrgðartrygginguna. Ég hringdi auðvitað til að kanna hvað væri í gangi og þá var mér sagt það að bíllinn hefði verið hækkaður um áhættuflokk þar sem hann væri að valda fleiri tjónum en áður. Þetta væri þvi hættulegur bíll.

Ég rökærddi þetta við konuna og það var ekki séns að fá hana til að skilja að billinn væri ekki að valda neinum tjónum, það væru ökumennirnir. Þessir bílar eru vinsælir hjá yngri ökumönnum og þess vegna er líklegt að þeir séu að valda fleiri tjónum vegna reynsluleysis en ekki vegna þess að þessi bíll sé hættulegri en sambærileg Toyota. Ég keyrði minn Subaru í 9 ár tjónlaust, kannski var ég heppinn að fá eintak sem var hættuminna en önnur eintök. :face

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 18:45
af urban
GuðjónR skrifaði: Sko, þetta er örlítið eins og að segja að haglabyssur séu hættulegar, málið er að þær eru ekki hættulegri en sá sem er að meðhöndla þær.
Ég áttu Subaru Impreza 2004 árg. 125HP. frá 2007 - 2015. Seint á timabilinu kom óvænt 30% hækkun á ábyrgðartrygginguna. Ég hringdi auðvitað til að kanna hvað væri í gangi og þá var mér sagt það að bíllinn hefði verið hækkaður um áhættuflokk þar sem hann væri að valda fleiri tjónum en áður. Þetta væri þvi hættulegur bíll.

Ég rökærddi þetta við konuna og það var ekki séns að fá hana til að skilja að billinn væri ekki að valda neinum tjónum, það væru ökumennirnir. Þessir bílar eru vinsælir hjá yngri ökumönnum og þess vegna er líklegt að þeir séu að valda fleiri tjónum vegna reynsluleysis en ekki vegna þess að þessi bíll sé hættulegri en sambærileg Toyota. Ég keyrði minn Subaru í 9 ár tjónlaust, kannski var ég heppinn að fá eintak sem var hættuminna en önnur eintök. :face
Já en tryggingar horfa á hlutina í heild.

Í heild eru fleiri tjón á hverja imprezu GT en á hverja corollu t.d.

En síðan er það ekki það, það er fyrst og fremst þyngdin (og svo aflið)

Semsagt, það skiptir óhemju máli hvort að þú ert á 990 kg bíl eða 1600 kg bíl (toyota vs BMW 5 lína t.d.)

Þegar að þeir lenda í árekstri, þá veldur einfaldlega BMWinn meira tjóni en toyotan og þar að leiðandi er eðlilegt að borga hærra iðgjald, þegar að þú ert að tryggja hina aðilana.

Síðan eru það einmitt tjónlaus ár sem að eiga að lækka hjá þér tryggingarnar, en ekki hvernig tegund af bíl þú ert á, þær ættu þá einmitt að lækka meira á þig sem að keyrðir súbarú í 9 ár en peyjann sem að eignaðist GTinn og klesti hann eftir mánuð.

Re: Hvað ert þú að borga í bifreiðatryggingar?

Sent: Lau 14. Jan 2017 19:42
af Glazier
Ég hef aldrei verið með tryggingar á mínu nafni, einfaldlega ekki tímt því og alltaf tryggt mína bíla á nafni foreldranna.

Í þau skipti sem ég hef reynt að fá tilboð í tryggingar eru tölurnar stjarnfræðilegar, reyndar lang oftast á BMW og ég 20 ára þá en við erum að tala um ~200 þús á ári PLÚS kaskó.

Núna fyrir stuttu hringdi ég hinsvegar í tryggingamiðlun íslands, þar var mér boðið að tryggja BMW x5 fyrir ca. 110 þús á ári plús kaskó.
Fannst það strax mikið ásættanlegri tala en þau tilboð sem ég hef fengið, ef ég bætti við öðrum bíl var þetta ca. 100 þús á hvorn bílinn.

Held að ég sé að borga núna um 80-90 þús fyrir BMW x5 hjá Vís á tryggingum foreldra minna, það er án kaskó.
Þeir voru ekki tilbúnir að gefa betra tilboð þegar við leituðumst eftir því á þeim forsendum að við séum 5 manna fjölskylda með 4 bíla og gætum án þess að það truflaði okkur nokkuð tekið einn af númerum og sleppt því alveg að borga af honum tryggingar, sögðu okkur að hafa samband þegar næsta "tímabil" væri að byrja sem var ef ég man rétt í mars eða eitthvað álíka.