Síða 2 af 2

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 21:32
af viddi
flottur skrifaði: Annars segir GPU-Z að ég er að keyra þetta á x8
Það er vegna þess að örgjörvinn er bara með 16 pcie lanes sem hann splittar á milli kortana, en þú ert allavega engann veginn að fullnýta þessi kort.
Spurning hvort þau séu einfaldlega að svelta, min power req fyrir hvert kort er 300 - 400W.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 21:45
af Klemmi
viddi skrifaði:Spurning hvort þau séu einfaldlega að svelta, min power req fyrir hvert kort er 300 - 400W.
Nei, nVidia gefur upp 250W á þessi kort og það má líklega gera ráð fyrir að það sé í hærra lagi (miðist við 100% álag).

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 22:14
af flottur
Þetta er soldið asnaleg spurning en er ekki sli brú bara sli brú?

Ég þarf eitthvað að kíkja á þetta seinna.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 22:30
af Tiger
Ég var með mín kort á PCI-E 3.0 x16. Veit ekki hvort það munu svona miklu.

Hvað ertu að fá með því að keyra bara 1 kort í einu?

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 22:46
af worghal
eitt kort keyrir á x16 en þegar þú ert kominn í sli þá dettur það í x8 per pci-e slot.
er það ekki rétt hjá mér?

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 22:58
af Tiger
worghal skrifaði:eitt kort keyrir á x16 en þegar þú ert kominn í sli þá dettur það í x8 per pci-e slot.
er það ekki rétt hjá mér?
Jú á þessu móðurborði sem hann er með allavegana.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mán 16. Mar 2015 23:12
af FreyrGauti
Það að þetta sé í pci-e gen3 8x á ekki að breyta neinu máli, hvergi nálægt því að klára það.

Myndi prufa skipta um SLI brú ef þú átt auka.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 00:18
af MatroX
ég var að scorea meira en þetta með 2stk 660ti kortum, fékk P14851 með allt í stock og það var á 3770k. ég myndi allavega skoða þetta eitthvað, þetta makear engan sense

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 07:39
af flottur
Hvar fær maður sli brú nú til dags?

Það er það eina sem mér dettur í hug áður en ég fer ða fikta í bios-num.

MatroX skrifaði:ég var að scorea meira en þetta með 2stk 660ti kortum, fékk P14851 með allt í stock og það var á 3770k. ég myndi allavega skoða þetta eitthvað, þetta makear engan sense
Mér hefur nefninlega alltaf fundist þetta eitthvað skrýtið, þegar ða ég notaði 3d mark 11 að ég scoraði frekar lágt miða við að ég var með svipað setup og þú og Tiger.

Tiger skrifaði:Ég var með mín kort á PCI-E 3.0 x16. Veit ekki hvort það munu svona miklu.

Hvað ertu að fá með því að keyra bara 1 kort í einu?
Veit það ekki, en ég skal prufa það á eftir þegar að ég hef tíma og læt þig vita.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 08:03
af DaRKSTaR
15800 stig fæ ég.. eitthvað stórundarlegt við þetta hjá þér.

http://www.3dmark.com/3dm11/9566414

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 08:46
af flottur
tek eftir þvi að þeir sem eru med K örgjöva eru hærri en eg,
þad eru nokkrir möguleikar sem koma til greina og þad er :

vinnsluminni
aflgjafi
örgjövi

annars þarf eg ad fara fikta i bios stillingum

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 09:17
af Klemmi
Verð að viðurkenna að mér þykir ólíklegt að einhver vélbúnaður sé að halda aftur af þér, gefið að þú sért ekki að lenda í neinum öðrum vandræðum.

Hvernig er með stýrikerfi og drivera? SLI brúin er möguleiki, en nVidia control panellinn á ekki að leyfa þér að velja SLI nema að það sé brú á milli, svo hún allavega skynjar brúnna.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 09:54
af flottur
Klemmi skrifaði:Verð að viðurkenna að mér þykir ólíklegt að einhver vélbúnaður sé að halda aftur af þér, gefið að þú sért ekki að lenda í neinum öðrum vandræðum.

Hvernig er með stýrikerfi og drivera? SLI brúin er möguleiki, en nVidia control panellinn á ekki að leyfa þér að velja SLI nema að það sé brú á milli, svo hún allavega skynjar brúnna.
stýrikerfið er w7 og allir driverar eiga ða vera í lagi miða við að ég er búin að athuga það

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 10:00
af olihar
Þú ættir að fá töluvert hærra score á báðum SLI vígstöðunum.

Svo væri reyndar gaman að sjá test á 4K game-ing þar sem þú ert að nota öll 2x6GB og þar þýtur Titan framúr XXX kortinu.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 10:08
af worghal
Gæti það breytt einhverju að hann er að keyra þetta í 4k?

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 10:28
af Klemmi
worghal skrifaði:Gæti það breytt einhverju að hann er að keyra þetta í 4k?
Það gæti mjög vel verið!

Ég hef ekki skoðað nýrri 3DMark, en í þeim gömlu að þá skipti öllu máli upp á scoreið í hvaða upplausn þú varst að keyra, og því var "default" stilling sem allir keyrðu á til þess að það væri hægt að gera marktækan samanburð.

Er möguleiki að hér sé einfaldlega verið að bera saman epli og appelsínur? :fly

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 10:35
af emmi
:face

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 17. Mar 2015 10:45
af flottur
Jæja

Tók 1 x 980 kort út og keyrði 3d mark 11 Mynd






Þetta var útkoman.
Mynd

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Sun 22. Mar 2015 08:03
af Dazy crazy
Haha, fékkstu hærra með 1 korti en 2, það er spes

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Sun 22. Mar 2015 08:35
af flottur
Dazy crazy skrifaði:Haha, fékkstu hærra með 1 korti en 2, það er spes

Það er ekki : spes.....það er : mjög spes eða allt að því fáránlegt :megasmile

Reyndar er ég að vonast eftir því að ég geti fengið betri útkomu þegar að ég er kominn með betri aflgjafa og búin að update-a 3d mark 11 feature-ina því ég var að keyra þetta á einhverjum demo settings.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Sun 22. Mar 2015 13:25
af FreyrGauti
flottur skrifaði:
Dazy crazy skrifaði:Haha, fékkstu hærra með 1 korti en 2, það er spes

Það er ekki : spes.....það er : mjög spes eða allt að því fáránlegt :megasmile

Reyndar er ég að vonast eftir því að ég geti fengið betri útkomu þegar að ég er kominn með betri aflgjafa og búin að update-a 3d mark 11 feature-ina því ég var að keyra þetta á einhverjum demo settings.
Það á ekki eftir að hafa nein áhrif, AX860 er mjög flottur aflgjafi og meira en nóg fyrir þetta setup, og demoið lengir bara benchmarkið, hefur engin áhrif á útkomuna.

Það er annaðhvort config issue hjá þér eða líklega móðurborðs issue.

Ef þú þekkir einhvern með nýlega vél sem er tilbúinn að leyfa þér að prufa skjákortin þín í þá myndi ég prufa það.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Sun 22. Mar 2015 17:14
af flottur
Ég tékka á þessu á næstu dögum og læt ykkur vita.

Þegar að ég keyrði Titan kortið stakt þá fékk ég 13þúsund og eitthvað í score í 3d mark.

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Þri 24. Mar 2015 21:39
af flottur
Jæja þa er madur buin ad hreinsa alla drivera og setja upp allt draslid aftur og þetta var utkoman.


Mynd

Re: Fyrir þá sem eru með skjákorts blæti

Sent: Mið 25. Mar 2015 00:52
af Saber
#-o