Síða 2 af 2
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Þri 16. Des 2014 21:28
af MatroX
kiddi skrifaði:Já ég er aðeins að smitast af þessu líka út af þessum þræði ykkar hér, ég nota reyndar Apple lyklaborð því mér hefur þótt þau langsamlega best, heyrist lítið í þeim og þau er þunn og nálægt borðinu, en ég verð að viðurkenna að ég er pínu skotinn í þessu blingbling lyklaborði frá Corsair, Gaming K70, ég er aðeins fyrir liti og ljós :-) Ég á margar góðar minningar með upprunalegu lyklaborðunum frá IBM frá því í gamla daga, en ég er hræddur um að konan myndi henda mér út ef ég tæki upp svoleiðis lyklaborð hér, sem og ungabörnin á heimilinu gætu sennilega lítið sofið.
ég er með k95 og ég elska það, þetta er svo þæginlegt borð og fítusarnir í forritinu frá corsair eru endalausir, kærastan segir að þetta sé ekkert rosalega hátt og þetta venst bara
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Mið 17. Des 2014 10:21
af SolviKarlsson
Hvað voru Corsair borðin að kosta hingað komin? Hvað gæti K65 RGB kostað?
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Mið 17. Des 2014 11:22
af zetor
Er haegt ad fa thokkalegt mechanical gaming lyklabord fyrir 10.000 kr ?
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Mið 17. Des 2014 12:48
af linenoise
Ódýrasta mechanical á Íslandi er nýtt á 10K.
http://tolvutek.is/vara/tt-esports-meka ... art-nordic" onclick="window.open(this.href);return false;
Það eru samt ekki allir hrifnir af Cherry Mx Black svissum. Mörgum finnst þeir of stífir.
Ódýrasta Cherry Mx Red lyklaborðið er á 14500 í Kísildal.
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=2598" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er samt alveg spurning hversu mikið "gaming lyklaborð" þetta frá Kísildal er. Hvað þýðir "gaming" lyklaborð fyrir þér? Ef við erum að tala um onboard programmable macros o.s.frv. þá erum við komnir vel yfir 25K.
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Fös 19. Des 2014 12:51
af kiddi
Ég kíkti í Tölvulistann með það hugarfar að fá mér K70 (Cherry Brown) borðið, en svo þegar ég fór að pikka í það og K95 (Cherry Red) til skiptis fannst mér K95 ögn hljóðlátari og með léttari takka, fannst þetta bara alls ekki svo slæmt. Svo nú er ég kominn heim og ég er alveg...uh-oh, ég held þetta sé alltof hátt :/ Þarf eitthvað að máta þetta næstu daga, kannski verð ég með spánýtt K95 RGB lyklaborð til sölu bráðlega :/
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Lau 20. Des 2014 15:54
af zaiLex
kiddi skrifaði:Ég kíkti í Tölvulistann með það hugarfar að fá mér K70 (Cherry Brown) borðið, en svo þegar ég fór að pikka í það og K95 (Cherry Red) til skiptis fannst mér K95 ögn hljóðlátari og með léttari takka, fannst þetta bara alls ekki svo slæmt. Svo nú er ég kominn heim og ég er alveg...uh-oh, ég held þetta sé alltof hátt :/ Þarf eitthvað að máta þetta næstu daga, kannski verð ég með spánýtt K95 RGB lyklaborð til sölu bráðlega :/
Fá sér o-rings
Re: Mechanical Lyklaborð
Sent: Lau 20. Des 2014 17:22
af braudrist
MatroX skrifaði:kiddi skrifaði:Já ég er aðeins að smitast af þessu líka út af þessum þræði ykkar hér, ég nota reyndar Apple lyklaborð því mér hefur þótt þau langsamlega best, heyrist lítið í þeim og þau er þunn og nálægt borðinu, en ég verð að viðurkenna að ég er pínu skotinn í þessu blingbling lyklaborði frá Corsair, Gaming K70, ég er aðeins fyrir liti og ljós :-) Ég á margar góðar minningar með upprunalegu lyklaborðunum frá IBM frá því í gamla daga, en ég er hræddur um að konan myndi henda mér út ef ég tæki upp svoleiðis lyklaborð hér, sem og ungabörnin á heimilinu gætu sennilega lítið sofið.
ég er með k95 og ég elska það, þetta er svo þæginlegt borð og fítusarnir í forritinu frá corsair eru endalausir, kærastan segir að þetta sé ekkert rosalega hátt og þetta venst bara
Finnst þér Corsair Gaming Software ekki vera svona feature-lítið? Mér fannst alla veganna Logitech Gaming Software vera mun betra þegar ég var með G19 lyklaborðið mitt. Ég er með Corsair Vengeance K95 lyklaborð og mér finnst vanta marga möguleika í forritinu og svo eru þeir ekki búnir að uppfæra hugbúnaðinn hjá sér í marga mánuði. Ég er samt mjög mikill Corsair maður, enda eru þeir gæðamerki að mínu mati, en mér finnst Corsair Gaming Software vera bara algjör hörmung.