Síða 2 af 5
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 00:22
af krat
hverju var deletað
og hvernig fór samtalið :O
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 00:26
af Gúrú
Daniel123 skrifaði:Sæll Gúru
Endilega hringdu 546 4000
kv
daniel
Eftir þetta símtal er ég áhyggjufullur fyrir hönd allra viðskiptavina Vefstjori.is og allra notenda þeirra viðskiptavina.
Ég sé eftir því að hafa notað Eldsmidjan.is og þar með treyst Eldsmiðjunni því þeir hafa alls ekki fengið ásættanlega vöru í hendurnar frá Vefstjori.is.
Mér líður viðbjóðslega fyrir hönd íslenskra vefstjóra að hafa slíkt fólk í starfsstétt sinni og lýsi yfir samúð minni til allra þeirra sem reyna að halda netinu öruggu.
Öryggi og góðir starfshættir eiga að seytla ofan frá til almennra notenda. Það er ekki von að þeir almennu notendur séu öruggir þegar að fólkið sem það treystir hefur það ekki í huga.
SQLi, HTTP log-in og plaintext lykilorð. Hver veit hvað annað.
Gúrú over and out ég get ekki meir ætla að hvíla mig og lesa /r/netsec. Ég á bara ekki orð þegar að ég er ásakaður um lögbrot fyrir að koma upp um lélega starfshætti.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 01:06
af capteinninn
Gúrú skrifaði:Daniel123 skrifaði:Sæll Gúru

Ég hélt að þetta kallaðist frí white hat hacker þjónusta þegar menn finna galla á vefsíðum og láta vita af því til að loka fyrir öryggislekann.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 01:17
af rapport
Eru þeir ekki frekar sekir um að brjóta einhverjar reglur með þvi að safna upplýsingum frá fólki og tryggja ekki öryggi þeirra ?
Að safna upplýsingum sbr. viðskiptasögu einstaklinga eru persónuupplýsingar og ef þetta er rekjanlegt niður á einstaklinga, símanúmer o.þ.h. þá gilsa reglur 299/2001 um meðferð persónuupplýsinga.
Þar er skýrt að öll ábyrgð á vistun og meðferð gagnana er hjá vinnsluaðila, s.s. Eldmiðjunar.
Það væri líklegast best að gera þeim grein fyrir sínum hlut í málinu, það er þegar búið að brjóta þessar reglur sama hvort það kemur patch á eftir, á morgun eða hvort hann kom kl. 22:00.
p.s. Ef þarna eru t.d. kreditkortaupplýsingar þá er voðinn vís, þá er þetta enn alvarlegra og allt önnur lög sem hafa verið brotin.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 01:19
af krat
Gúrú skrifaði:Daniel123 skrifaði:Sæll Gúru
Endilega hringdu 546 4000
kv
daniel
Eftir þetta símtal er ég áhyggjufullur fyrir hönd allra viðskiptavina Vefstjori.is og allra notenda þeirra viðskiptavina.
Ég sé eftir því að hafa notað Eldsmidjan.is og þar með treyst Eldsmiðjunni því þeir hafa alls ekki fengið ásættanlega vöru í hendurnar frá Vefstjori.is.
Mér líður viðbjóðslega fyrir hönd íslenskra vefstjóra að hafa slíkt fólk í starfsstétt sinni og lýsi yfir samúð minni til allra þeirra sem reyna að halda netinu öruggu.
Öryggi og góðir starfshættir eiga að seytla ofan frá til almennra notenda. Það er ekki von að þeir almennu notendur séu öruggir þegar að fólkið sem það treystir hefur það ekki í huga.
SQLi, HTTP log-in og plaintext lykilorð. Hver veit hvað annað.
Gúrú over and out ég get ekki meir ætla að hvíla mig og lesa /r/netsec. Ég á bara ekki orð þegar að ég er ásakaður um lögbrot fyrir að koma upp um lélega starfshætti.
langar að heyra báðar hliðar málsins.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 01:26
af ASUSit
Þrátt fyrir að deila afar sjaldan skoðunum með Gúrú, að þá verð ég fyrir mitt leyti einfaldlega að taka hattinn ofan fyrir þér í þetta skiptið.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 01:41
af Gúrú
rapport skrifaði:Eru þeir ekki frekar sekir um að brjóta einhverjar reglur með þvi að safna upplýsingum frá fólki og tryggja ekki öryggi þeirra ?
Að safna upplýsingum sbr. viðskiptasögu einstaklinga eru persónuupplýsingar og ef þetta er rekjanlegt niður á einstaklinga, símanúmer o.þ.h. þá gilsa reglur 299/2001 um meðferð persónuupplýsinga.
Þar er skýrt að öll ábyrgð á vistun og meðferð gagnana er hjá vinnsluaðila, s.s. Eldmiðjunar.
Það væri líklegast best að gera þeim grein fyrir sínum hlut í málinu, það er þegar búið að brjóta þessar reglur sama hvort það kemur patch á eftir, á morgun eða hvort hann kom kl. 22:00.
p.s. Ef þarna eru t.d. kreditkortaupplýsingar þá er voðinn vís, þá er þetta enn alvarlegra og allt önnur lög sem hafa verið brotin.
Ég vil koma því á framfæri að þegar að ég taldi upp allar þessar upplýsingar var ég að nefna það sem er auðveldlega hægt að fá út frá flestum símanúmerum og/eða Facebook auðkennum. Þ.m.t. mínu.
Þessar upplýsingar sjálfar (fullt nafn, kennitala, heimilisfang) eru ekki hluti af GSM skráningarferlinu sem þó fer fram án notendaskilmála.
Það sem þú nefnir um að skaðinn sé skeður og viðvarandi er eitthvað sem að maðurinn sem svaraði mér í símanum afskrifaði algjörlega og missti ég þar með alla von um ásættanlega úrlausn.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 04:24
af Sallarólegur
Daniel123 skrifaði:
Það má strax sjá að einhverjir hafa verið að gera tilraunir til að misnota kerfið nú þegar eftir þessa umræðu hér og verða það rannsakað nánar og sett í viðeigandi farveg.
AHAHA! Er þetta hótun?
Ég trúi ekki að þú sért í forsvari fyrir fyritæki. Ef svo er - áttarðu þig ekki á því - að fyrirtæki, víðsvegar um heim BORGA fólki fyrir að hacka sig inn og láta þau vita af því?
Flestir hackarar sem hafa setið í fangelsi eru svo ráðnir til risastórra fyrirætkja á ofurlaunum.
Vá hvað sumir skilja ekki tækniheiminn.
Heimild:
Google Offers $3.14159 Million In Total Rewards For Chrome OS Hacking Contest
http://www.forbes.com/sites/andygreenbe ... g-contest/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 04:51
af ASUSit
Sallarólegur skrifaði:Daniel123 skrifaði:
Það má strax sjá að einhverjir hafa verið að gera tilraunir til að misnota kerfið nú þegar eftir þessa umræðu hér og verða það rannsakað nánar og sett í viðeigandi farveg.
AHAHA! Er þetta hótun?
Fyrir mér hljómar þetta frekar eins og arfaslök tilraun til þess að koma sökinni á því, ef einhverjir aðilar hafa komist yfir einhver gögn, yfir á þann einstakling - hér Gúru - sem samviskusamlega varaði við þeirri hættu sem beinlínis stafaði af notkun þessa vefsvæðis.
Góður Daníel!
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 08:15
af Dagur
Veit einhver hjá eldsmiðjunni af þessu? þau eru auðvitað að borga fyrir þetta.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 08:37
af CendenZ
*fliss*
Er verið að afsaka þetta fokkopp
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 09:54
af Pandemic
Þetta með dulkóðunina hljómar eins og klór í bakkann. Það er enginn að segja mér að að forritari sem veit varla hvað hashing algorithmi er hafi implementað dulkóðun á þessi gögn þar sem það er svona 10x auðveldara að nota eitthvað hashing algrím.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 10:30
af suxxass
Mjög sloppy vinnubrögð...
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 11:54
af rango
ASUSit skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Daniel123 skrifaði:
Það má strax sjá að einhverjir hafa verið að gera tilraunir til að misnota kerfið nú þegar eftir þessa umræðu hér og verða það rannsakað nánar og sett í viðeigandi farveg.
AHAHA! Er þetta hótun?
Fyrir mér hljómar þetta frekar eins og arfaslök tilraun til þess að koma sökinni á því, ef einhverjir aðilar hafa komist yfir einhver gögn, yfir á þann einstakling - hér Gúru - sem samviskusamlega varaði við þeirri hættu sem beinlínis stafaði af notkun þessa vefsvæðis.
Góður Daníel!
Mér grunar sterklega hér að hann sé að tala um mig, Enda var það ég sem gróf upp þennan SQL möguleika.
Það er óþarfi að fara í vörn hérna, Ábyrgðin liggur hjá ykkur.
Veit eldsmiðjan af þessu, Er búið að láta þá vita?
Ég n.b. komst ekki yfir nein gögn,
Enn ég efast samt ekki um að einstaklingur sem vill raunverulega komast yfir slík gögn nái því meðað við ykkar hæfni til forritunar.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 12:35
af Stutturdreki
Daníel, ef einhver bendir þér á eitthvað sem þú hefur einfaldlega gert á rangan hátt þá segir maður takk og lagar það. Ekki vera fáviti.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 14:24
af rango
Varst það þú daniel sem forritaðir þennan vef?
Ég skal svosem kíkja á þetta hjá þér ef þú ert í vafa með þetta.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 15:54
af krat
Bíð eftir svörum frá Daníel.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 17:42
af Danni V8
Djöfull finnst mér óþæginlegt að lesa þennan þráð.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 17:44
af MatroX
Danni V8 skrifaði:Djöfull finnst mér óþæginlegt að lesa þennan þráð.
hvernig væri að þú byrjaðir að svara þeim hahaha
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 17:48
af krat
Danni V8 skrifaði:Djöfull finnst mér óþæginlegt að lesa þennan þráð.
Afhverju er það?
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 19:39
af Hargo
krat skrifaði:Danni V8 skrifaði:Djöfull finnst mér óþæginlegt að lesa þennan þráð.
Afhverju er það?
Því hann heitir sennilega líka Daníel, hence the nickname
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 23:01
af intenz
Guð minn almáttugur. Sem tölvunarfræðingur skammast ég mín fyrir að þetta sé ekki orðin lögbundin starfsgrein, þar sem þessi maður veit ekkert og ætti ekki að vera í þessum geira. Og að fara í vörn og "hóta" lögsóknum er bara barnalegt.
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 23:12
af gRIMwORLD
ég er búinn að lesa snöggt í gegnum þráðinn og er að reyna að ná tímaröð atvikanna.
Gúrú! áttaðir þú þig á gallanum í kerfinu og auglýstir hann alheimi strax eða reyndir þú að hafa samband við vefstjórann fyrst?
Finnst það einmitt vera soldið ábyrgðarmál hvernig þessu er háttað til að einmitt koma í veg fyrir að einhverjir misforvitnir geti reynt að svala hakkaraþörf sinni á svona lélegum síðum. Reyna allavega að leyfa viðkomandi aðilum að fá 5 mín breather til að taka síðuna niður eða breyta.
Ef þeir svo sinna því ekki þá má auðvitað setja instant pressu á þá og þeir neyðast til að að taka síðuna alveg niður (ef þeir hafa vit í kollinum)
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Mán 08. Des 2014 23:36
af Klemmi
intenz skrifaði:Sem tölvunarfræðingur skammast ég mín fyrir að þetta sé ekki orðin lögbundin starfsgrein
Tölvunarfræðingur er lögbundið starf, hins vegar getur enginn bannað þér að selja þig út sem forritara án formlegrar menntunar, enda þætti mér það mjög óeðlilegt. Hitt er svo annað mál hvort það mætti ekki setja slíkar reglur þegar forritaðir eru gagnagrunnar sem halda utan um persónuupplýsingar.
http://europass.is/wp-content/uploads/2 ... 005-36.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Eldsmiðjan geymir lykilorð
Sent: Þri 09. Des 2014 04:18
af Gúrú
gRIMwORLD skrifaði:Gúrú! áttaðir þú þig á gallanum í kerfinu og auglýstir hann alheimi strax eða reyndir þú að hafa samband við vefstjórann fyrst?
Þetta er svo fáránleg spurning sem á engan rétt á sér.
Þetta er ekki eitthvað CVE sem ég uppgötvaði og tilkynnti öllum, fyrirtækinu og forriturum þess óafvitandi.
Þetta er eiginleiki sem var skrifaður (senda lykilorð í SMS) inn í fáránlegt kerfi (geyma plaintext lykilorð) sem var hannað visvítandi.
Þetta er ekkert sem að væri neinar fréttir
fyrir þá sem að hönnuðu kerfið svona. Sbr. að láta BMW vita af þessum framrúðum þeirra.
Reyna allavega að leyfa viðkomandi aðilum að fá 5 mín breather til að taka síðuna niður eða breyta.
Eftir margar vikur af því að hafa lykilorðið mitt í plaintext mér óafvitandi sem á
aldrei að gerast
fær fólkið sem hannaði kerfið svona óöruggt, meðvitað skv. því sjálfu, og það án þess að vara mann við
engan helvítis breather.
Ó hey, manstu þegar ég phishaði lykilorðið þitt þegar ég fékk að gera vefsíðuna fyrir Eldsmiðjuna?
Heh það er samt allt í lagi því ég vissi að það væri óörugg vefsíða þegar ég gerði hana.
Svo spyr ég þig: Hvað gerði þetta fólk eftir að það var látið vita? Baðst það afsökunar? Rétti það úr málunum?
Fylgdi það almennum viðbragðsreglum? Hlustaði það á aðvaranir?
Nei. Það kom vel bökuð steypa af hlutleysu sem þjónaði engum tilgangi nema þeim að láta alla vita að hér væri ófagfólk á ferð.