Síða 2 af 2

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Mið 01. Okt 2014 08:07
af AntiTrust
SteiniDJ skrifaði:Ég man eftir þessu rétt eins og þetta hafi verið í gær. Fór og faldi harða diskinn heima hjá ömmu.
Ég henti mínum diskum uppá háaloft. Það var mjög erfitt að útskýra það fyrir mömmu á þeim tíma..

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fim 02. Okt 2014 00:46
af Stuffz
AntiTrust skrifaði:
SteiniDJ skrifaði:Ég man eftir þessu rétt eins og þetta hafi verið í gær. Fór og faldi harða diskinn heima hjá ömmu.
Ég henti mínum diskum uppá háaloft. Það var mjög erfitt að útskýra það fyrir mömmu á þeim tíma..
tveir af hörðu diskunum mínum voru ekki í tölvunni þegar hún var tekin vegna þess að það var of mikill hiti í kassanum, 8 diskar í medium kassa með 13 viftum, græju flipp :P hefði samt kosið að fá c drifið mitt frekar, enda allt download efnið expendable/missanlegt drasl.


---

Skrati kynnti mig fyrir Ásgarði, ég hafði alltaf verið bara á Valhöll áður.

Ég man að Skrati sagði mér að hann hefði verið með fjölskyldu gögn eins og skólaverkefni krakkanna o.s.f. í tölvunni sem var tekin það kom sér verulega illa fyrir hann í svona litlu plássi úti á landi að fá svona meðferð, hann var líka að miklu kappi að vinna með lögfræðinginum sínum að þessu máli var sérlega illa við þennan Ásgeir að ég held fyrir að nota sig til að fá aðgang að hubbnum.

Ég spilaði með honum í Battlefield 2 Combat - Tour of Duty í nokkurn tíma eftir þetta.

Skrati sá hinsvegar aldrei endann á málinu, hann fórst í sjóslysi 2007

Man að við töluðum um málið á Netfrelsisspjallinu í vikunni áður þá áttu að hafa komið framm upplýsingar sem sönnuðu aðild Ásgeirs að málinu, maður var samt ennþá skeptískur á að kaupa það m.a. vegna Tomma Lakkskór stuttu eftir bustið, sumir höfðu haldið að hann hefði verið aðilinn sem svo reyndist ekki vera.

Skrata var veitt heiðursathöfn í BF2C eftir slysið, enda vel liðinn af öllum þar og alltaf hress. eini leikmaðurinn sem ég man eftir að fá þann heiður á meðan ég var þar.



Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fim 02. Okt 2014 14:42
af westernd
Dc++ var án efa skemmtilegasta p2p forrit sem uppi hefur verið

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fim 02. Okt 2014 20:12
af urban
westernd skrifaði:Dc++ var án efa skemmtilegasta p2p forrit sem uppi hefur verið
lang lang skemmtilegasta.

oftar en ekki var maður bara að kjafta á spjallinu
enda eignaðist maður marga góða vini á þessum tíma :)

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fim 02. Okt 2014 21:17
af subgolf
RIP Skrati

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 00:01
af Stuffz
urban skrifaði:
westernd skrifaði:Dc++ var án efa skemmtilegasta p2p forrit sem uppi hefur verið
lang lang skemmtilegasta.

oftar en ekki var maður bara að kjafta á spjallinu
enda eignaðist maður marga góða vini á þessum tíma :)

amm svo var þetta allt skemmt :(

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 02:28
af dreymandi
DC plus plus samfélagið var toppur. vildi óska að einhver reyndi enn og aftur að koma þessu samfélagi á kortið aftur. þetta lifir ágætu lífi erlendis enn. why not Iceland??

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 12:08
af kizi86
dreymandi skrifaði:DC plus plus samfélagið var toppur. vildi óska að einhver reyndi enn og aftur að koma þessu samfélagi á kortið aftur. þetta lifir ágætu lífi erlendis enn. why not Iceland??
Ástæðan fyrir því af hverju ég lokaði mínum höbb var sú að þþað var aldrei neinn inná höbbnum.. Margreyndi að auglýsa bæði hér og p2p eins og deildu og fleirum.. Eftir meira en hálft ár þar sem eg var bara einn inná, þá gafst ég upp og lokaði..

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 12:10
af playman
dreymandi skrifaði:DC plus plus samfélagið var toppur. vildi óska að einhver reyndi enn og aftur að koma þessu samfélagi á kortið aftur. þetta lifir ágætu lífi erlendis enn. why not Iceland??
Þetta er ennþá lifandi hérna heima, bara mestmegnis lokaðar grúbbur þar sem að maður þarf að
þekkja eigandann til þess að komast inn, og oftast er fólk með einnhver Tb í deilingu á þessum hubbum.
Fólk er bara ennþá hálf hrætt við DC++ til þess að stunda þetta aftur, að svo virðist.

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 12:29
af dreymandi
playman: já fatta ekki þá hræðslu. Og það er ekki það sama að það sé í gangi bara lokaðar grúppur. það er bara ekki sem ég tala um. Það er í gangi ef það er þannig að allir hafi aðgang að því.

Kizi.: var á þinum hubb framan af svo hækkaðiru lágmark gb deilimagns og þá gat ég ekki verið þar lengur. þar sem ég var ekki með aðstöðu til að deila 500 gb eða hvað það var. kannski var það ástæðan að fólk kom ekki eða hræðslan.

Hvernig væri að halda upp á 10 ára afmælið með að koma þessu af stað aftur og ná vinsældum. svo mklu betra heldur en torrent dótið þó það sé í lagi. Gallinn er bara sá að menn eru ekkert að þora að setja inn íslensk efni á deildu en eflaust myndu þora meira á dc eða veit ekki. allavega fannst mer alltaf mun auðveldara að finna íslenskt efni þar.En upp með DC plus plús. Eg skora á Kizi86 að fara af stað aftur eða einhvern annan eða einhvern að bjóða mér á hubbinn sinn :)

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 03. Okt 2014 14:58
af urban
dreymandi skrifaði:Eg skora á Kizi86 að fara af stað aftur eða einhvern annan eða einhvern að bjóða mér á hubbinn sinn :)
persónulega nenni ég ekki í þennan "slag" aftur, alltof margir sem að áttuðu sig ekki á því að þetta var ógreitt hobby.

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Sun 05. Okt 2014 12:51
af Stuffz
bump

spjall um önnur P2P tengd efni hér

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=18&t=62709" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Sun 05. Okt 2014 18:02
af Stuffz
dreymandi skrifaði:DC plus plus samfélagið var toppur. vildi óska að einhver reyndi enn og aftur að koma þessu samfélagi á kortið aftur. þetta lifir ágætu lífi erlendis enn. why not Iceland??
tja það væri alveg hægt held ég

Ef t.d. þú ert með einn almennan hub sem er bara fyrir ekkert efni eða "public domain" efni, þá er þetta ekkert mál að halda honum úti bara vinna við að sparka þeim út sem ekki samræmast reglurnar, mér t.d. fannst spjallið skemmtilegasti hlutinn við DC++ hitt var bara aukaefni lol


aukreitis..
og svo eitthverjir litlir prívat hubbar fyrir sem eru fyrir vini og/eða vandamenn það er annað mál, held það flokkist jafnvel undir "sama heimilishald" í lögum enda ef sama heimilishald kaupir t.d. dvd disk þá nota allir innan þess heimilishalds hann, auðvitað myndu sumir vilja hafa selt hverjum einum og einasta í heimilishaldinu disk á mann og helst tvo (extended edition, directors cut, special edition, whatever edition, I-thought-I-had-bought-this-already edition), en já smá olnbogarými með óskýrri túlkun samt.

Mig minnir að 250Gb diskar voru toppurinn á tíma DC++ málsins eða hvort 300gb diskar voru komnir þá líka, maður sjálfur átti allavegana bara 160-200gb diska, í dag 10 árum síðar er hægt að kaupa 6 tb diska útí búð það er ~20x föld plássaukning á 10 árum, á sama hraða verða 120tb diskar toppurinn árið 2024.. svo þegar eitthverjir tala um a 1 tb sé mikið þá velti ég því stundum fyrir mér hvort þeir haldi að harðadisks framleiðendur eigi eitthverntímann eftir að stoppa að stækka diskpláss á vörunum sínum.

hmm segjum sem svo að ef Hollywood, RIAA o.s.f hafa það miklar áhyggjur þá mega þeir alveg reyna að kaupa alla harðadiska framleiðendur og cappa þetta, en þeir vita sennilega að þeir myndu bara tapa á því því markaðurinn finnur alltaf nýjar leiðir til að anna eftirspurn.

Þetta allt þrýstir á t.d. sjónvarpsefnisframleiðendur að hækka upplausnir, rammafjölda, 3d os.f. skapa stærri og stærri skjöl til að notendur þurfi sérhæfðari, stærri og dýrari búnað til að spila efnið á, sem svo þrýstir á tækniframleiðendur að halda í við.. vanalega er það samt hollywood endinn sem laggar á eftir ekki tækniendinn, ég meina maður er apð taka upp 4k efni á farsíma í dag en flest allt útsent efni er enn á dvd, 720p eða 1080p

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Mið 15. Okt 2014 11:31
af nebon
Sælir strákar,

Mig langar mikið að skrifa sögu Direct Connect Iceland (með fullri alvöru). Allt frá því að hýsa tengipunktana í herbergi hjá mömmu og pabba á 128k, vakna upp um nætur og keyra yfir kópavog því 'hubbarnir' fóru niður, ofan í skrautlegustu djamm ferð á Ísafjörð að hitta Skrata og félaga sem maður kynntist í gegnum DCI.

Enn í dag gleymi ég ekki símtalinu sem ég fékk um nóttina "þeir eru að taka alla, tæmdu allt.." síðan var skellt á. Veit ekki hver hringdi en þetta líktist helst mafíósamynd yfir þessa daga - það má kannski þakka fyrir (eða ekki) að ég var í Danmörku við nám, og því líklega of mikið vesen fyrir þá að sækja mig út. En það átti engin skilið af þessum hópi að vera tekin frekar en Jón Jónsson sem sótti mynd. Þeir réðust á lokað svæði og hengdu þessa samnetverja upp við vegg.

Valhöll var upphafið, þaðan setti ég í gang dci.is þar sem ég fékk nóg af því að kenna frændfólki og vinum að setja upp dc++. Sagan segir sig sjálf þaðan, með hjálp ótrúlega góðs hóps varð margföldunin gríðaleg á nokkrum mánuðum og þetta stækkaði og stækkaði.

Vitleysan virðist ekki enn vera hætt og þessar bansettu stofnanir eru nú komnar inn á sjálf fjarskiptafyrirtækin. Reiðin sem liggur í mér í dag á þessar stofnanir er ekki til þess hafnar að þær séu til - heldur nú, 10 árum síðar eru þau enn að hakkast á sömu hlutunum. Það væri ágætt að fá kynslóðaskiptingu þarna inn og leysa vandann frekar en að henda peningum í þessa vitleysu aftur - og aftur - og aftur.

Over and out!

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fim 16. Okt 2014 23:55
af Stuffz
nebon skrifaði:Sælir strákar,

Mig langar mikið að skrifa sögu Direct Connect Iceland (með fullri alvöru). Allt frá því að hýsa tengipunktana í herbergi hjá mömmu og pabba á 128k, vakna upp um nætur og keyra yfir kópavog því 'hubbarnir' fóru niður, ofan í skrautlegustu djamm ferð á Ísafjörð að hitta Skrata og félaga sem maður kynntist í gegnum DCI.

Enn í dag gleymi ég ekki símtalinu sem ég fékk um nóttina "þeir eru að taka alla, tæmdu allt.." síðan var skellt á. Veit ekki hver hringdi en þetta líktist helst mafíósamynd yfir þessa daga - það má kannski þakka fyrir (eða ekki) að ég var í Danmörku við nám, og því líklega of mikið vesen fyrir þá að sækja mig út. En það átti engin skilið af þessum hópi að vera tekin frekar en Jón Jónsson sem sótti mynd. Þeir réðust á lokað svæði og hengdu þessa samnetverja upp við vegg.

Valhöll var upphafið, þaðan setti ég í gang dci.is þar sem ég fékk nóg af því að kenna frændfólki og vinum að setja upp dc++. Sagan segir sig sjálf þaðan, með hjálp ótrúlega góðs hóps varð margföldunin gríðaleg á nokkrum mánuðum og þetta stækkaði og stækkaði.

Vitleysan virðist ekki enn vera hætt og þessi bansettu stofnanir eru nú komnar inn á sjálf fjarskiptafyrirtækin. Reiðin sem liggur í mér í dag á þessar stofnanir er ekki til þess hafin að þau séu til - heldur nú, 10 árum síðar eru þau enn að hakkast á sömu hlutunum. Það væri ágætt að fá kynslóðaskiptingu þarna inn og leysa vandann frekar en að henda peningum í þessa vitleysu aftur - og aftur - og aftur.

Over and out!
He he hljómar vel, þetta er allavegana krassandi efniviður :]

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Fös 17. Okt 2014 00:22
af andrea
RESPECT Nebon, fyrir að starta þessu hér á landi! :happy

Líst vel á að sagan verði skrifuð. :)

Re: DC++ Málið 10 ára í dag

Sent: Sun 29. Mar 2015 16:11
af urban
Svona úr því að ég rakst á það óvart á facebook.

Þá má geta þess að það eru 10 ár í dag síðan að ég stofnaði lénið tengill.is
vorum reyndar eitthvað byrjaðir áður, en þetta er svona óopinberlegi stofnunardagur tengils